Morgunblaðið - 28.05.1972, Page 4
4
MÖRGUNBLAÐEÐ, SUNNUDAGUR 28. MAÍ 1972
Árlega má vænta 200 - 300
nýrra tilfella geðsjúkdóma
meðal aldraðra
— sem krefjast sérstakrar
meðferðar eða hjúkrunar
Rætt við Tómas Helgason
prófessor um athugun á
0
geðheilsu Islendinga 60-75 ára
Athugun, sem Tómas Helgra
son, prófessor, hefur gert á
íslendingiim á aldrinum 60—
75 ára, leiðir í Ijós meðal ann
ars, að líkur til þess, að menn
veikist af geðsjúkdómum
vaxa með hækkandi aldri;
dánartala gamals fólks, sem
veikist af g-eðsjúkdómum er
miklu hærri en annarra jafn
aldra — og að dánartala á-
fengissjúklinga er helmingi
hærri en fólks almennt, jafn-
vel eftir að sextugsaldri er
náð og þótt menn séu þá hætt
ir að drekka.
Morgunblaðið leitaði upp-
lýsinga hjá Tómasi Helgasyni
um niðurstöður þessarar at-
hugunar og skýrði hann svo
frá, að árið 1957 hefði hann
rannsakað 5395 Islendinga,
fædda á árunum 1895—97,
sem hefðu verið á lífi árið
1910, þ.e.a.s. náð unglmgs-
aldri. Hefði heilsufar þessa
fólks verið kannað til ársins
1957 eða til dánardægurs.
Á síðasta ári kvaðst Tómas
síðan hafa, með aðstoð lækna
stúdentanna Guðmundar í»or
geirssonar og Tómasar
Zoega, athugað sögu þessa
fólks frá þvi árið 1957 og tek
izt að rekja hana í 99,3% til-
fella. Tilgangurinn hefði ver
ið að finna f jölda þeirra, sem
veikzt hefðu af geðsjúkdóm-
um eftir þann aldur og
kanna hvaða sjúkdóma væri
um að ræða og gang þeirra.
— Niðurstöður athugunar-
innar sýna, sagði Tómas
Helgason, að líkur einstakl-
inga til þess að veikjast af
geðsjúkdómum halda áfram
að vaxa eftir að sextugsaldri
er náð og að fjölgun tilfella
er meiri, þar sem um er að
ræða geðsjúkdóma, er eiga
sér vefrænar orsakir, þ.e.
sjúkdóma, sem fylgja heila-
rýmun og æðakölkun. Þess-
ir sjúkdómar koma sérstak-
lega fram sem minnistrufian-
ir, dómgreindarleysi, truflan-
ir á persónuleika, truflanir á
áttun, óráð og að fólk geng-
ur í bamdóm, eins og sagt
er í daglegu tali. Vitað er af
fyrri reynslu, að sumt fólk
hrömar fyrr en annað — eld
ist verr, en ekki hefur áður
verið vitað, hversu margt eða
hvaða fólk ætti hlut að máli.
— Er vitað um einhver
ráð til að spoma við þessari
þróun?
— Nei, enn er ekki vitað
um nein ráð til þess. Orsak-
ir þessara sjúkdóma eru ó-
þekktar og engar lækninga-
leiðir fundnar enn sem kom-
ið er. Hins vegar er hægt að
draga úr óþægindunum, sem
þeir valda, með því að skapa
gamla fólkinu góðar aðstæð-
ur, þannig, t.d., að það eigi
auðvelt með að rata, þurfi
ekki að flytja oft og að það
sé vel undirbúið, ef þarf að
flytja það, hvort sem er milli
íbúða, á spítala eða hjúkrun
arheimili — eða ef í hlut eiga
aðrar óvæntar uppákomur.
Einnig er mikilvægt að reyna
að halda sambandi gamla
fólksins við fjölskyldu sína
sem beztu og viðhalda því
sem lengst. Skiptir miklu
máli, að hjúkrunar- og elli-
heimili séu þannig i sveit sett,
að vinir og ættingjar eigi
auðvelt með að heimsækja
gamla fólkið — og það að
sækja heim ættingja sína um
styttri eða lengri tíma. t»að
skiptir miklu máli, að gamla
fólkið fái góða umönnun, að
reynt sé að draga úr óróa og
leiða með hæfilegum verkefn
um og hjálpa því til að fá
góðan svefn. I>ví má heldur
ekki gleyma að margt eldra
fólk fær líka aðra geðsjúk-
dóma — t.d. þar sem helztu
einkenni eru þunglyndi og
kvíði —- sem hægt er að
lækna. Það má ekki alltaf
ganga út frá þvi sem vísu, að
allt, sem hrjáir gairralt fólk,
sé ellihrumleiki. Ættingjar
þurfa að vera á verði gegn
þunglyndi og slíkum einkenn-
um og læknar að gera það,
sem hægt er, til úrbóta.
— Er nokkuð hægt að gera
á yngri árum til þess að tefja
fyrir þessum sjúkdómum?
— f»ví miður, á þessu stigi
málsins getum við ekki gefið
ráð í þeim efnum.
— Eru geðtruflanir ungs
fólks tíðari nú en áður?
— Nei, ekki hlutfallslega.
Rannsóknir hafa sýnt að geð
truflanir meðal þritugs fólks
t.d. eru ekki algengari nú en
fyrir svo sem 3—4 áratugum.
Hins vegar er nú fleira fólk,
sem lifir lengur og þannig
verður fjöldi þeirra, sem geð
truflanir hrjá, meiri. Lífslík-
umar eru meiri nú en áður
fyrr, þ.e.a.s. líkumar til þess,
að maður lifi af þann tíma,
sem sjúkdómamir eru líkleg
astir til að koma fram.
— Það kemur fram í athug
uninni, að jafnvel nýir áfeng
issjúklingar koma fram eftir
sextugt?
— Já, það er athyglisvert,
því að yfirleitt er talið, að
menn séu þá löngu orðnir
áfengissjúklingar, ef þeir
geti orðið það á annað borð.
Það er tvennt til í þessu, ann
ars vegar, að líkurnar séu
ennþá fyrir hendi eftir sex
tugt — hins vegar, að mér
hafi yfirsézt í fyrri rannsókn
inni, að þar hafi leynzt duld-
ir áfengissjúklingar, sem ekki
fékkst nein vísbending um af
fyrirliggjandi upplýsingum.
En við þekkjum þess dæmi úr
kliniskri reynslu, að menn á-
netjast áfengi jafnvel eftir að
þessu aldursmarki er náð.
Slíkir sjúklingar eru þá
gjaman viðráðanlegri til
lækninga en þeir, sem fyrr
veikjast.
— Hvers vegna byrja slík-
ir menn að drekka? Til að
lina líkamleg öþægindi af
völdum annarra sjúkdóma?
— Sennilega er taugaveikl
un eða þunglyndi aðal orsök
in. Menn gripa til áfengis til
þess að eyða drunga, kvíða
og taugaspennu — gegn lík
amlegum verkjum þarf svo
gífurlegt magn af áfengi, að
það gagnar lítið. Hættulegast
er, þegar fólk, á hvaða aldri
sem er, fer að nota áfengi til
að eyða taugaspennu og
kvíða.
1 þessu sambandi er athygl-
isvert, að dánartala áfengis-
sjúklinga er helmingi hærri
en fólks almennt, jafnvel eft
ir að komið er fram á þenn-
an aldur, og þó menn séu þá
hættir að drekka. Fyrr á æv
inni er hún sennilega ennþá
hærri, því þá er hættara við
slysum og sjálfsmorðum.
Það kemur einnig fram af
þessari könnun, að fólk, sem
fær vefræna geðsjúkdóma á
efri árum, hefur líka miklu
hærri dánartölu en þeir, sem
ekki fá þá. Hins vegar virðast
taugaveiklaðir ekki hafa
hærri dánartölu en aðrir.
Sömuleiðis leiddi ath. okkar í
ljós, að þeir, sem hafa haft
geðsjúkdóma fyrir sextugs-
aldur , hafa ekki meiri lík-
ur til að fá nýjan geðsjúk-
dóm eftir þennan aldur en
þeir, sem alltaf hafa verið
lausir við geðsjúkdóma. Sting
ur þetta í stúf við það, sem
margir halda, — að þeir
verði fyrr og fremur elliærir,
sem veikzt hafa á geði á
yngri árum.
Könnunin leiðir í ljós, að
af þeim einstaklingum, sem
athugaðir voru, reyndust um
37%.hafa haft einhvern geð-
kvilla á þessu árabili, 1957-
71, — og er það allhá tala.
Þar af reyndist um helming-
ur vera að fá nýjan kvilla
eftir sextugt en helmingur
hafa verið veikur af sama
kvilla áður.
— Samkvæmt niðurstöðum
könnunarinnar sýnist fjöldi
sjúkdómstilfella ekki kyn-
bundinn ?
-— Nei, svo er ekki. Segja
má, að heldur meira beri á
Tómas Helgason
prófessor.
æðakölkun hjá körlum og
heilarýrnun hjá konum, ef
gerður er greinarmunur þará
en sóu þessir sjúkdómar tekn
ir saman, er útkoman ekki
mismunandi eftir kynjum.
Það kemur einnig fram af
samanburði við nágranna-
löndin, t.d. Noreg, Danmörku
og Bretland, að líklega er
ekki neinn verulegur munur
á tíðni þessara sjúkdóma þar
og hér.
— Nú eru þessir sjúkdóm
ar misjafnlega alvarlegir.
Hver má ætla að sé fjöldi al-
varlegra tilfella, sem krefj-
ast sérstakrar umönnunar og
hjúkrunar?
— Samkvæmt þjóðskrá eru
um 9% íbúa landsins 65 ára
og eldri. Út frá því og þess
um athugunum má búast við
2—300 nýjum tilfellum
árlega. Af þessum hópi má
gera ráð fyrir 80—100 sjúkl-
ingum, sem þurfi á langtíma
hjúkrun eða umönnun að
halda. Þetta er alvarlegt mál,
sem nauðsynlegt er að hafa
í huga vegna framtíðarskipu
lagningar elli- og hjúkrunar-
heimila, heimilisaðstoðar og
félagslegrar aðstöðu hinna
öldruðu, sagði Tómas Helga-
son prófessor að lokum.
— mbj
>
v
VALVA auglýsir
FROTTE
SOLFOT
í 3 litum
Stœrðir 38-44
Einnig síð
frotte-blússa
í sömu stœrðum
og litum
nALFTAMYRI,
SUÐURVERI.
Hef flutt
tannlœkningastofu
mína að Stigahlíð 45-47, (Suðurver).
Óbreytt símanúmer 18541.
Guðmundur Ólafsson,
tannlæknir.
KSÍ Laugardalsvöllur KRR I DEILD
Valur — KR
leika í kvöld kl. 20.
Komið á völlinn og sjáið góðan leik.
Verð aðgöngumiða:
Fullorðnir kr. 150,00, börn kr. 50,00.
VALUR.
Einangrun
Góð plastemangrun hefur hita-
leiðnistaðai 0,028 til 0,030
Kcal/mh. °C, sem er verulega
ininni hitaleiðní, en flest önn-
ur einangrunarefni hafa, þar á
meðal glerull, auk þess sem
plasteinangrun tek jr nálega eng-
an raka eða vatn í sig. Vatns-
drægni margra annarra einangr-
unarefna gerir þau, ef svo bef
undir, að mjög lélegri einangrurt,
Vér hófum fyrstir atlra, hér é
landi, framleiðslu á einangrun
úr p'asti (Poíystyrene) og fram-
leiöum góða vöru með hag-
stæðu verði.
REYPLAST HF.
Armúla 44. — Sími 30978.