Morgunblaðið - 04.11.1972, Side 22

Morgunblaðið - 04.11.1972, Side 22
22 MOÉGXJ'NBLAÐIÐ, IÍAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1972 Minning: Ingimundur Guð- mundsson Litlabæ 1 dag — 4. nóvember — verð- ur jarðsettur frá Kálfatjamar- kirkju, In!gim<undur Guðmiunds- son bóndi að Litlabæ. Hann var fæddur 18. nóv. 1879, en dó 27. okt. síðastliðinn. Var því orðinn nær 93 ára. Foreldrar Ingimund ar voru Guðbjörg Egilsdóttir og Guðmundur Ingimundarson, bæði fædd og uppaíin í Biskups tungum, hvar ættir þeirra stóðu. Búskap hófu þau í Grindavik, en fkittust þó brátt þaðan, að Bakka á Vatnsleysuströnd. Er Guðmundur lézt, var Ingimund- ur enn á unga aldri. 1 fjötmörg ár bjó ekkjan þó þarna eftir það, með börnum sínum þrem, Bjargmundi, Jódisi og Ingi- mundi. En að heiman fóru oig giftust, Margrét og Guðrún. öll þessi fimm systkini eru nú látin. Svo má segja að Ingimundur hafi alla þessa löngu ævi sína átt heima á sama blettinum, þótt nokkrir faðmar séu milli þeirra þriggja bæja, sem voru hans heimili. Hann fæddist að Bakka og átti þar heima enn er hann kvæntist, 30. des. 1911, eft irlifandi konu sinni, Abigael Halldórsdóttur, fæddri 15. júlí 1880 að Hóli við Önundarfjörð. Nokkur fyrstu búskaparárin bjuggu þau að Bjargi og síðar að Litlabæ nær 40 ár. Þeim fæddust þrjú börn, eitt dó í bemsku, en tvö, Stefán og Guðrún, eru bæði á lífi. Um ára bil tóku þau Abígael og Ingi- mundur tvo systursyni hans í fóstur, fyrst Steindór Áma Jóns son, sem lézt um tvítugsaldur og síðan bróður hans, Jóhann Ólaf Jónsson, sem lengi er búinn að eiga heima í Hafnarfirði, en allt af hefir sýnt fósturforeldrum sinum verðskuldaða ræktarsemi. Frá þvi að ég fyrst man eftir mér, man ég líka eftir Ingimundi á Bakka, þessum góða nágranna við æskuheimili mitt, Litlabæ. Þótt aldursmunur okkar væri 16 ár, og hann þvi kominn yfir tvítugt, er ég fór að skjótast milli bæjanna og niður að tjöm inni eða sjónum og reyna að fleyta þar smáskipum, þá brást ekki, væri Mundi nærstaddur og sæi mér aðstoðar þörf, var hann óðar komirm að leiðbeina mér um hagræðingu segla og sfýris. Ekki var hjálpsemin siðri, þeg ar kom til nytsamra verka. Mörgum varð hugsað til „Munda á Bakka“ jafnvel frá yztu mörkum hins langa Vatns leysustramdarhrepps, þegar gera þurfti við skip eða hressa upp á bæjarhús, fá skeifur og járaa hesta og mörg önnur verk er þurfti að fá framikvæmd, en fjarri fór að hver og eínn væri fær til. >á var leitað til Ingi- mundar, sem alltaf varð við bón inni, væru nokkur tök til. Ekki átti Ingimundur langt að sækja til sjómanrishæfileika, þar sem faðir hans hafði tekið að sér formennsku á stóru skipi, strax um tvitugsaldur, er hann fiuttíst úr sveitinní til Grinda- víkur, þar sem eru stórbrima lendingar og allt fyrir opnu hafi. Það hefði ekki verið vangefnu ungmenni hent. Á þrítugsaldri gerðist Ingi- mundur formaður á sexmanna- fari og svo varð ég háseti hjá honum, næsta ár eftir að ég fermdist. Ekki voru strangar kröfur til mín gerðar og þessi liðlétti há- seti naut góðs atlætis skipshafn arinnar og þá ekki sízt formanns ins. Það munu nú milli 50 og 60 ár síðan Ingimundur smíðaði fyrsta bátinn. Síðar tók hann að gefa sig að skipasmíði svo um mun- aði. Smiðaði um árabil báta fyr- ir ýmsa sem þekktu til handa- verka hans. Þóttu afköst hans við þetta ótrúlega mi’kil, svo fá- breytt sem verkfærin voru, sam- anborið við það sem nú gerist. En verkið var unnið ósvikið og traust. Furðu miklum starfskröftum hélt Ingimundur, þar til fyrir um fimm árum, að snögglega kom þar breyting á. Þó hafði hann lengst af fótavist, þar til nú um skeið, er dró að því síð- asta, að hann fékk hægt andlát. Ég kveð þig og sakna, er hjálp fúsu hendumar þínar mega ei bærast lengur. Hafðu blessun og þökk fyrir aKlt. Ég votta þér, kæra Abígael, sem staðið hefur og starfað með kvadda ástvininum i nær 61 ár, innilega samúð og bið þér og börnum ykkar ailrar blessunar um ókomna tima. J. H. 1 dag er til moldar borinn frá Kálfatjarnarkirkju Ingi- mundur Guðmundsson, bóndi og simiður, Li'tlabæ í Kálfatjarnar- hverfi. Hann var elzti bóndi á Islandi, fæddur 18. nóv. 1879 og dáinn 27. okt. s.l. Hann 'kveður síðastur sinna systkina sem kennd voru við Bakka i Kálfa- tjarnarhverfi, þrjár systur og tveir bræður er öll náðu háum aldri, en 5 systkinanna höfðu látizt í bemsku. Á Bakka bjuggu foreldrar þeirra, Guðbjörg Egi'lisidóttir og Guðmundur Ingimundarson af Reykjavallaætt, bæði ættúð úr Árnesþingi. Þau bjuggu fyrst í Grindavik, en fluttu að Bakka um 1870. Þá var prestur á Kálfa tjörn séra Stefán Thorarensen, og mun það hafa verið mjög að hams ráðum að þau fluttu niður á Strönd, að Bakka. Séra Stefán var að austan ættaður, og hafði verið prestur i Hraungerði, og mun þvi hafa þekkt til Guð- mundar og vitað að hann var söngmaður mikill og góður en séra Stefán, hinn annálaði söng maður og sálmaskáld efldi mjög söng í sínum söfnuði. Hann lagði þvi kapp á að fá Guðmund að Bakka í næsta nágrenni við sig og kirkjuna. Guðmundur og Guðbjörg vom atorku manneskjur, Guðmundur smiður góður og verkmaður mik m. Á Ströndinni var oft erfitt með vatn í þurrka og frostatið, en Guðmundi tókst að gera brunn á Kálfatjöm, ekki langt frá bænum, og í þennan brunn kom vatn með flóði og fjaraði með útfalli, flæðibrunnur með mjög góðu vatni. Brunnur- inn er enn í fullu gildi, tekinn um 1870 og nú dælir rafmagnið úr honium vatni til allra nota. Þau Bakkasystkinin erfðu og ávöxtuðu dugnað og framkomu t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður, HALLS JÓNASSONAR. Ingunn Hallsdóttir, Erlingur Halisson, Asta Tryggvadóttir, Aðalsteinn Hallsson, Eba Stefánsdóttir, Sigríður Björg Eggertsdóttir, Guðmundur Geir Jónsson. fóreldra sinna. Öll voru þau hið raesta dugnaðarfólk og fram koma þeirra til orðs og æðis, til fyrirmyndar. Bræðumir Ingi mundur og Bjargmunidur annál aðir dugnaðármenn til alilra verka, á sjó og landi, og var Bjargmundur mikill áhugamaður um ræktun og framfcværadi þar imikið verk á því sviði. Inigimundur var einnig trúr sinni sveit og Kálfatjarn'arhverf inu og aldrei mun honum hafa til hugar komið að eiga heimili anmars staðar, þótt hann hafi stundað atvinnu austur á Fjörð um og á Norðurlandi og séð þar góðar sveitir og sjávarpláss. Hann sótti sjó á opnum skipum, segl- og árabátum, en þegar vél amar komu var hann með þeim fyrstu að setja vél i bát sinn. Sama gilti um vélar til landbún aðar og fékk hann sér Farmall dráttarvél er þær voru fyrst fluttar inn 1945. Jafnframt þessum störf- um, l'andbúnaði og sjávarútvegi, stundaði Inigiimiundur smíðar, á yn'gri árum í smiðju sinni, en síðar einkum skipasm'íðar, allt fram á efri ár. Ég kom oft í smíðahús hans þar sem hann smiðaði bæði smáar og stórar fleytur, er reyndust vel að allri gerð og sjóhæfni. Árið 1910 kvæntist Ingimundur vestfirzkri myndar- og sóma- koniu, Abigael Halldórsdóttur frá Kirkjubóli í Önundarfirði, sem lifir mann sinn 92 ára göm- ul. Þau eignuðust 3 börn, Guð- m'und er þau misstu ungbam og Stefán og Guðrúnu, bæði búsett hér í sveit. Heimili þeirra Ingi- mundar og heimilisbragur var til fyrinmyndar. Þar var bóikakios't- ur góður og mikið lesið, fómar dyggðir í heiðri hafðar og bor- in virðing fyrir kirkju og krist- indómi og trúrækni. Aldrei mun Imgiroundur á allri sinni löngiu sjó- og farmannstíð hafa farið svo á sjó að hann læsi ekki sjóferða- bæn og aldrei varð neitt að hjá honuim, er þó erfið lendinig á Bakka og farið að segja má, ut- an í boðunum sem þama er nóg af. Við nágrannar hans og sveit- ungar kveðjum hann með þakk- læti fyrir vel unnin störf og ós'k um honum faraheilla, „meina að starfa Guðs um geim.“ Eftirlifandi konu haras send- um við innilegar samúðarkveSj- ur og biðjum Guð að blessa henni ævikvöldið. Erlendur Magnússon. Þorsteinn Guðbrands- son — Minning Það kvað skiljanlega ekki við neinn vábrestur, þó að vinur minn Þorsteinn Guðbrands- son skildi við þetta jarðlíf. Hann var dæmigerður íslenzkur almúgamaður. Honum féll aldrei verk úr hendi meðan fjörið ent ist honum, hann vann öll þau verk, sem hann var settur til af samvizkusemi, verkmaður var hann vel i röskara lagi, — hann var bæði hjá Þórami Olgeirs- syni og Tryggva Ófeigssyni ára tugum saman, og það segir sína sögu um manninn — hann var óáleitiran, vinaifastur, sparsarour við sjálfan sig, én greiðvikinn við vini sina. Hann var spaug- samur og sagði vel frá. Hann var svo að útliti, að hann var tæplega meðalmaður á hæð, en sívalur og þrekmaður mikill til vinnu, þó að hann væri ekki ýkja sterkur. Helztu asviatriði Þorsteins voru þau, að hann fæddist 4. maí 1889 — (ekki 1890, eins og segir í Sjómannadagsrabbi við Þorstein fyrir nokkrum árum) — að Kothúsum í Garði hjá afa sínum sem þar bjó og var al- nafni hans. Þorsteinn sagði mér aldrei neitt um ættir sínar, nema hann taldi sig kominn af góðu búand og útróðrafólki, eins og við flestir Islendingar. Vel get- ur verið, að i ætt Þorsteins sé fullt af prestum eða öðrum emb ættismönnum, eins og fólk nefn- ir gjaman ættum sínum til ágæt is. Það gilti áreiðanlega einu fyrir Þorstein, hann var nógur af sjálfum sér. Átta ára gamall fluttist Þorsteinn að Görðum á Álftanesi, þar sem hann var til tvítugs, að haran fluttist til Reykjavíkur. Hann tók sér her- bergi á leigu í húsi við Liradar- götu og við þá götu bjó hann æ síðan, því að 17 árum síðar en þetta var keypti hann sér lítið hús, austast við Lindargötuna (nr. 49) á mótum Lindargötu og Frakkastigs. Þetta var Mtið en snoturt timburhús, smíðað eftir næmri sjón smiðsins fyrir réttum hlutföHum. Það verður eftirsjón að þvi fyrir marga, þeg ar það verður rifið. Þorsteinn hóf togarasjó- mennsku strax og hann kom til Reykjavíkur og þá á þvi merka tímamótaskipi, Marzinum, sem kom upp í marzmánuði 1907. Skipstjóri var hinn frægi mað ur Eldeyjar-Hjalti. Það áleit Þorsteinn, að hann myndi hafa verið síðastur manna á lífi af þeirri skipshöfn (1910) — þó að einn eða tveir menn muni eidri á lífi af fyrri skips- höfn Marzins. Næstu tvær ver- tíðir var Þorsteinn með nafna sínum og nábýlismanni, Þor- steini í Bakkabúð á litlum tog- ara, sem hét Belle of War, einn- íg var Þorsteinn nieð Guðbjarti Jóakim Guðbjartssyni á togaran um Fortúna, en Guðbjartur var einnig sögufrægur skipstjóri, því að hann var með Snorra Sturluson, sem kom upp í júní 1907, það er, sama árið og For- setinn og Marzinn og er þetta talið timamótaár í Islandssög- unni. Og enn var Þorsteinn Guðbrandsson með sögufrægum skipstjóra. Þórarinn Olgeirsson hafði ver- ið stýrimaður á Marzinum, þeg- ar Þorsteinn var þar um borð og þegar Þórarinn tók Great Admiral fór Þorsteinn til hans og var með honum upp frá því, meðan Þórarinn stýrði skipi héð an frá íslandi, fyrst Belgaum, síðan Júpiter og síðast Venusi. Þegar Þorsteinn fluttist alfar- inn út, skildust leiðir. Og hafði þá Þorsteinn verið með Þórami í 23 ár, Á striðsárunum síðari var Þorsteinn með Áma Xngólfssyni á Skutli, og þar kynntist ég honum. Síðustu tvö árin var hann á bátum. Hann fór alfarinn i land 1946. Þá fór hann að vinna hjá Júpi- ter og Marz h.f. og þar vann hann síðan meðan starfskraft- arnir entust eða í meira en 20 ár. Siðustu æviárin var hann ekki til vinnu og tók það nærri sér. Hann hafði haldið, að hann myndi ekki lifa þann dag allan til kvölds, sem hann gæti ekki gengið til verks. Það varS þó. Hann hjaraði heilsulaus í ein þrjú ár og var það honum rauna tími, þó að hann nyti góðs fólks. Hann hafði fengið blóðtappa og dottið niður við vinnu sína. Hann gekk til verks mörg ár eftir það, en hann bar aldrei sitt barr upp frá þessu áfalli, eink um var minnið orðið reikult sið- ast. Þorsteinn var einn af stofn- endum Sjómannafélags Reykja- víkur og er mér sagt, að nú muni aðeiras tveir á lifi af þeim, sem stofnuðu það félag. Aldrei kvæntist Þorsteinn og hann var af þeirri gerð, að hann sætti sig vel við einlífið. Siðustu ár Þorsteins á togur- um, ég held það hafi verið á Skutli, kynntist hann Guð- mundi Þorkelssyni, matsveini, sem látinn er fyrir nokkrum ár- um. Með þeim tókst vinátta, sem hélzt meðan báðir iifðu. Eftir að Þorsteinn fór alfarmn í land, borðaði hann hjá Guðmundi og hjá þeirri fjölskyldu varð síðan hans annað heimili, þvi að ekkja Guðmundar og böm hans, héldu tryggð við gamla manninn, eftir lát Guðmundar, og eftir að Þor steinn varð örvasa. Gamli mað- urinn rölti oft síðustu verklausu árin, milli síns heima á Lindar- götunni, heimilis Guðmundar eða fjölskyldu hans á Snorra- brautinni og hafnarinnar. Þeim stað var hann einnig bundinn, eins og margir sjómenn á efri árum. Þannig er i stuttu máli lífs- hlaup Þorsteins Guðbrandsson- ar, eða Steina Brands, eins og hann var jafnan kallaður af fé lögum sínum. Hann var í 23 ár með sama skipstjóranum, í rúm 20 ár hjá sama vinnuveitand- anum í landi. Hann bjó við sömu götuna í meira en 60 ár, og hjá sömu fjölskyldunni borðaði hann í 28 ár. Þessar staðreyndir held ég að staðfesti það, sem að framan er sagt um manninn. Ásgeir .Takobsson. Skilningur hjá Finnum SAMBANDSSTJÓRN norrænu félaganna finnsku (Pohjola-Nord en) hélt ársfund sinn í Kuopio í Finmlandi 23. september síðast- liðinn. Sambandsstjómin lýsti því yfir að hún virti aðgerðir is- lendinga í landhelgismálinu, bæði með það í huga, að verið væri að vernda það næringar- forðabúr heimsins, sem hvildi á íslanzka landgrunninu og einnig lýsti sambandsþingið yfir skiln- ingi sínum og stuðiningi við að- gerðirnar á þeirn fors.endum, að íslendingar væru með þeim að tryggja áframihaldandi tilvéru síina. Norræna félagið á íslandi hef- ur sent sambandsstjórn Pohjola- Norden þakkarbréf fyrir velvUd hennar og skilning á þessu hags- munamáli Islendinga. IESIÐ -^-Msœsgaasri □nciEcn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.