Morgunblaðið - 19.11.1972, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.11.1972, Blaðsíða 4
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVEMBER 1972 Tengdi hjúskap höggstokknum og barneignir dauðanum María Stúart á hög-gstokknum. Giftingannál Elízabetar voru rækilega tekin til meðferð ar í þriðja þætti myndaflokks BBC en þar skiptu tilfinning- ar ekki höfuðmáli heldur stjómmál. Nauðsynlegt var að Elízabet eignaðist erfingja til að koma I veg fyrir hugsan- lega valdatöku Mariu Stuart og afturhvarf til kaþólskunn- ar en einnig var mikUsvert að hafa í huga valdastöðuna í Evr ópu. Margur hefur velt vön-g- um yfir tregðu Elízabetar til að ganga í hjónaband og Elizabet I Síðari grein ýmissa skýringa leitað. Sumir hafa talið, að hún hafi verið haldin einhverjum líkamleg- um göHlum, er gerðu hana ófæra til að lifa eðlilegu hjú- skaparltfi en líkiegri þykja skýringar, sem byggðar eru á barnæsku hennar og þeim áhrifum, sem hún þá varð fyr- ir. Hún Iserði fljótt að tengja hjúskap höggstokknum og barneignir dauðanum, en einn- ig hefu-r þess verið til getið að hún hafi ógjarnan viljað kalla yfir sig húsbónda, er segði henni fyrir verkum og hún hafi jafnframt séð, að eigirrmaður gæti skapað fleiri vandamál en hann leysti. Sagnfræðingar hafa grann skoðað samband hennar við Ro bert Dudley og virðast einhuga um, að hún hafi unnað hon- um umfram aðra menn, en eink um litið á hann sem sinn bezta vin. Þau höfðu verið ieikfélag ar sem börn í kon-ungsgarði og síðar átt sömu hættuna yfir höfði meðan María var við vöid. Hanu hafði seít af eign- um sínum til þess að hjáipa Elízabetu, þegar hún var verst stödd fjárhagslega og þegiar hann frétti lát Maríu, þeysti hann til Hatfield á hvit- um fáki til þess að votta hinni nýju drottningu hollustu. I>á þegar, er EMzabet sá þennan laglega riddara sinn, skipaði hún hann „Fákavörð". Hjónaband Elizabetar og Ehidleys kom hins vegar ekki tii greina eftir að kona hans lézt með voveiflegum hætti — og tæpast effla þvi bæði faðir hans og afi höfðu verið liflátin- ir fyrir svik við þjóðhðfðfimgja sina, forvera El’ízabetar. Á erlendum vettvangi komu ýmsir menn til tais. Filippusi Spánarkonungi hafnaði Elíza- bet - með allri vinsemd þó — þegar ári eftir að hún komst til vald'a. Karl erkihertogi í Austurríki var um hríð talinn heppilegur, þar sem hann var frændi Filippusar og gat kornið sér vel að eiga liðsinni hans víst, ef til styrjaldar kaami við Frakkland eða Maria Stúart l’éti á sér kræla að ráði. En samningar fóru jafnan út um þúfur, ýmist vegna þess, að Elízabet vildi efcki giftast hon um án þess að sjá hann, og hann viidi ekki koma tíl Eng- lands nema ser.i yfirlýstur vænt anlegur eiginrnaður — eða hún vildi ekki fallast á að hann fengi að sækja kaþólsfca messu þar sem hann mundi þá verða fyririiði kaþólskra í landinu gegn Elízabetu og enistou bisk- upakirkjunmi. Þegar samskiptin við Spán fóru að versna, var reynt að semja um ráðahaig við Frakka. Fyrs-t bauðst Eliízabetu Hinrik prins af Anjoú, rikisarfi, en síð an yngsti bróðir hans, hertog- inn af Alencon, sem hafði for- ystu fyrir baráttu mótmælenda, á Norðurlöndum gegn ágangi Spánverja, enda þótt hann væri sjálfur kaþólskrar trúar. Varð al kært með honum og drottningu, þrátt fyrir meira en tu'ttugu ára aldursmuin — og að hann þóttí lítill fyrir mann að sjá og heldur ljótur. Held ur mæltist það þó illa fyrir að hún skyldi ætla að brjóta gegn fyrri afstöðu með þvi að leyfa honum að iðka kaþólsfca trú. Fór svo að Ellízabet hættí við þetta hjónaband, hvers vegna er ekki fylliiega ljóst, en meðal skýringa er sú, að hún var þá orðin 45 ára og skelfdist tilhugsunina um að eignast bam, þó læknar hennar siegðu, að hún gæti það — ennfremur, að hún hafi ekki vilj'að taka af skarið sjálf, bera ábyrgð á þvi sem af hlytist, þar sem tals vert skorti á, að ráðhagur þessi væri vinsæilil meðal alþýðu manna annarra en kaþölskra. Virðast orð þau, er Elizabetu voru lögð í munn í þriðja þætti myndaflokksins: „Hvernig get ég tekið ákvörðun, þegar þið gefið mér engin ráð,“ túlka óákveðni hennar og hik, þegar hún stóð frammi fyrir veiga- mi'klum vandamálum og ákvörð unum. Andvíg trúarofstæki Sterkasta andstaðan gegn ráðahagnum við hertogamn kom úr röðum Kalvínisita, sem þá voru farnir að láta taisvert að sér kveða. Elizabet vax litlu hrifnari af þeim en kaþólskum og í trúmálium skipti það hana mestu að halda yfirstjórn kirkj unnar áfram í sínum höndum. Hún var frábitín öl"iu ofstæki og héX fram eftír öllu fast við þá sannfæringu sína, að kaþ- ólskir mienn settu að hafa rétt til að tilbiðja sánn Guð með þeim hætti er þeim sjálfum hentaði. — Meðan hún hafði ekki í hönd'um órækar sann- anir fyrir samsæ.ri, kaþól'skra um að steypa henni -af stóli, viidi hún sýna þeim umburðar- lyndi og hún hélt þvi fram, að hún kærði sig ekki um að setja glu'giga á sálir manna. Þetta var í fullu samræmá við hennar persómujiegu reynslu á yngri árum, er hún hafði neyðzt tii trúarhræsni til að bjarga lífinu — en jafn- framt gierði hún sér grein fyrir því, að ofstæki í trúmálum gat haft óheppilegar póllitískar af- leiðingar, svo sem húm hafði kynnzt á valdadögum Maríu systur sinnar. Eftir að María Stúart hafði verið hrakin frá Skotlandi eft- ir blóðug átök um vöMin þáf og vafasamt framferði hennar — og leitað á náðir Englands drottniingar, tóku kaþólskir menn að hafa sig meira í framnrii. Árið 1570 lýsti páfi Elizabetu í barcn, sem hafði þá pólitísku merkingu að k)sa kaþ Elizabet á banabeðL Fram til hins síðasta hafði Elizabet drottning mikið þrek og starfsorku og hún dansaði bin létt- asta allt fram á síðasta ár. Minnistap var helzta merki ell- innar. Þegar hún fann dauðann nálgast neitaði hún hvers kyns lyíjuin og læknisráðum. Fram kom í lokaþætti myndaflokks BBC, að hún hefði tekið upp á þvi, er hún var að bana komin, að standa upp á endann klukkustundiun saman unz hún hné nið- or i stól, örend. Aðrar heimildfr herma, að hún liafi verið bor- in á banabeð, þegar hún fékk ekki lengur uppi staðið og síð- ustu dagana áður en hún dó, hafi hún þjáðst af svefnleysi, eirð- arleysi og ofskynjunum. Hún lézt 24. marz 1603. Legstaður Elizabetar í Westmin ster Abey i l ondon.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.