Morgunblaðið - 19.11.1972, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓVBMBER 1972
47
Hjálp í viðlögum
Bókin „Hj'álp í viðlöguim“
er að koma í bókabúðir um
þessar mundir, og er það II.
útgáía. Bókinni verður bezt
lýst með því að birta formála
hennar, sem er iritaður af Páli
Gíslasymi lækni og skátahöfð
ingja Islands.
„Það mun hafa verið fyrir
rúmum 40 árum, að fyrst var
farið að keinna „Hjálp í við-
lögum“ hér á landi og þá
fyrst aðallega meðal skáta,
enda í anda kjörorðs þeirra
„vertu viðbúimn“. Upp úr
þessum jarðvegi kom Jón
Oddgeir Jónsson, sem alla tíð
síðan hefur verið tengd-
ur kennslu í „Hjálp í viðlög-
um“, svo að þeir eru orðnir
margir nemendur hans bæði
á námskeiðum í félögum og
skólum og lesendur bóka
hans með þessu nafni. Eng-
inn hérlendis hefur gert
meira til að útgreiða kunn-
áttu i skyndihjálp, svo að við
séum viðbúin, ef slys ber að
höndum. Okkur, sem þekkj-
um Jón Oddgeir úr skátastarf-
inu, kemur þetta ekki á óvart,
því að þar var hann löngum
brautryðjandi á ýmsum svið-
um.
Fyrst sem nemandi og sið-
ar sem leiðbeinandi á fjöl-
mörgum námskeiðum, hefi ég
haft tækifæri til að kynnast
bókum Jóns Oddgedrs og hefi
oft dáðst að þvi, hve vel tekst
til um framsetningu og hve
mikiu efni er komið fyrir í
takmörkuðu rými. Ifér hefur
í hinurn mörgu útgíifum verið
um stöðuga þróun að ræða.
Allar mikilvægar nýjungar
teknar með á hinum
ýmsu sviðum læknisfræði, er
snerta skyndihjálp, sem
hinn almenni borgari gæti
lært og veitt. Og í þessari út-
gáfu hefur orðið stökkbreyt-
ing. Ennþá er bætt við ýms-
um nýjungum, en þó sérstak-
lega hefur kennslan ver-
ið færð í nýjan og nýtízku-
legan búning með auk-
inni notkun mynda til skýr-
inga.
Nýir kennsluhættir með
notkun kennslubrúðu við
verMegar 'æfingar og sýni-
kennslu eru bæði handhægir
og áhrifaríkir, t.d. til að sýna
líflegu og hvernig ber að hag
ræða manni með ein-
kenni losts. Einnig fy'rstu
hjálp ef stendur í barni, við
stöðvun blæðinga eða þegar
búið er ui'm beinbrot til bráða
birgða. Það hlýtur að festast
nemanda vel í minni að sjá
stórri brúðu dýft í vatnsbala
vegna brunasára. Leiðbei.n-
andi sem getur sýnt hin nauð
synlegu handtök og gef-
ið jafnframt nauðsynlegar út
skýringar, mun vissulega
halda athygli nemenda sinna
vakandi.
Allt þetta finnst mér Jóni
Oddgeiri takast vel í þessari
bók og hefi ég ekki séð svo
fjölbreytta kennsluhætti með
brúðu sýnda í bók um
„Hjálp í viðlögum“. Þetta
verður nemendum og leiðbein
anda mjög til léttis við nám-
ið og gerir bókina aðgengi-
legri bæði fyrir byrjendur og
siðar til upprifjunar.
Margir nýir kaflar eru í
þessari útgáfu. Alfreð Gisla-
son læknir skrifar um bráð
sjúkdómseinkenni og eitran-
ir. Þá er kafli um fæðingar-
Mynd úr kaflanum um
skyndilegt hjartakast og hag-
ræðingu sliks sjúklings þar
til næst í lækni.
hjálp i viðlögum, skyndilegt
hjartakast og hagræðing
slíks sjúklings þar til næst
til læknis.
Talsvert hefur verið aukið
við kaflana um lífgun; bæði
með blástursaðferð og
ytra hjartahnoði hvað snertir
lesmál, ljósmyndir og teikn-
ingar. Allt stuðlar þetta mjög
til aukins notagildis bókar-
innar bæði á námskeiðum og
til lesturs í heimahúsum.
Það er flestum ljóst að al-
nienn kunnátta í „Hjálp í við-
lögum“ er nauðsynleg og get-
ur bjargað mannslifum eða
forðað frekari örkumlum en
orðið er. Það hlýtur þvi að
líða að þvi, að kennsla slík,
sem fram fer í þessari bók,
verði tekin upp almennt i
gagnfræðaskólum landsins.
En jafnframt þarf að vera til
hándhæg bók á hverju heim-
ili, þar sem rifja má upp af
og til aðalatriðin á auðveld-
an hátt. Þessi nýja „Hjálp í
viðlögum" —- bók Jóns Odd-
geirs mundi að mörgu leyti
vel falliin til hvors tveggja.
Tryggingastofnun ríkis-
ins og stjórn Slysavarnafé-
lagsins hafa veitt útgáfu þess
ari fjárhagslegan stuðning,
til þess að unnt verði
að selja bóMna vægara verði
en ella hefði orðið.
Höfundur bókarinnar hef-
ur fyrir nokkru síðan, hlotið
heiðursmerki Rauða kross ís-
lands úr silfri, fyrir störf
sin. Er hvort tveggja mjög að
verðugu.
Páll Gíslason.
Utgefendur þakka kennur-
um þeim og nemendum í
Hjúkrunarskóla íslands, er
stuðliuðu að töku kennslu-
myndanna, sem hér birtast í
fyrsta sinn. Margar skóla-
hjúkrunarkonur annast nú
Mynd úr kafla bókarinnar
nni skyndihjáljj við brunasár
um. 1 bókinni eru 45 slíkar
kennslumyndir, sem sýna ís-
lenzkar hjúkrunarkonur
rétta slösuðum hjálparbönd.
kennslu í hjálp í viðlögum og
er gott til þess að vita að hún
skuli vera í höndum hjúkrun-
arfólks.
Árni Kristinsson dr. med.
hefur lesið yfir og leiðbeint
um kaflana er fjalla um llifg-
unartilraunir með blástursað-
ferð og hjartahinoði og kunn-
um vér honum og öðrum lækn
um, sem lagt hafa bðkinni lið,
beztu þakkir; ennfremur ijós-
mæð r aken n u r u m.
NGARSYNING
Kynnum framleiðsluvörur VILLADSEN FABRIKER A/S í Byggingarþjónustu Arkitektafélags íslands, Lauga
vegi 26.
ICOPAL - verksmiðjurnar eru stærstu framleiðendur í Evrópu á ASFALTPAPPA.
ICOPAL - verksmiðjurnar veita TÍU ÁRA ábyrgð á þakpappalögnum.
Ennfremur kynnum við:
FASTLOCK plastklæðningu, hentugtil klæðningar á bílskýlum, sólskýlum, vöruhúsum, verkstæðum o.
fl.
ICOTEX FILT GÖLFTEPPI í miklu úrvali.
Sýningin er opin frá kl. 16 mánudaginn 20. nóvember til miðvikudagsins 22. nóvember.
BYGGINGAREFNI H.F.
Suðurlandsbraut 12, sími 81700.
VI LLADSEN
Aktieselskabet Jens Viiladsens Fabriker