Morgunblaðið - 04.02.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.02.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 4. FEBRÚAR 1973 *> * 56 Eyjabátum ráðstafað — til 23ja vinnslustöðva í 10 verstöðvum RÁTAFLOTANUM úr Vest- mannaeyjum hefnr nú verið deilt niðttr á vinnslustöðvar í ýmsum verstöðvum hér á suð- vesturhorni landsins, eins og Morgunblaðið skýrði frá í gær. Eru það alls 57 bátar, sem Út- vegsbændafélagið í Eyjum hefur vistað, en að auki eru 10 bátar á vegum Einars Sigurðssonar. Bátamir mttnu allir landa annað hvort i Þorlákshöfn eða Grinda- vík, en aflanum ekið þaðan til hinna verstijðvanna. Vegagerð ríkisins hefur nú í athugun að auka viðhald á vegunum til Þor- lákshafnar og Grindavíkur með tilliti til þessarar ttmferðaraukn- ingar frá þessum tveimur höfn- um. Morgunblaðinu hefur nú bor- izt lisiti frá Útvegsibændafélaginu í Eyjum hvemig einstakir báit'ar skiptiast á vinnsiustöðvar og ver- sitöðvar, og er hann birtur hér til upplýsinga: Þorlákshöfn: Þar leggja fknm Eyjaibátar upp hjá þremur fisk- virnislustöðvum. Hjá Giettingi hf.: Sæ'uim VE 60 og EJlías Sveinsso'n VE 167. Hjá Meitiin- um hf.: Dan.ski Pétur VE 423 og Haföm VE 23 og hjá Hafnar- nesi hf.: Þórunn Sveinsdóttir. Grindavík: Þar leggja sjö bát- ar upp hjá fjórum fiskvintnslu- stwðvum. Magniús Magmússon VE 112 og Kap II VE 4 hjá Hraðfrystiihúsii Þórkötlusíaða, Jökuill VE 15, Sjöfn VE 37 og Júlía VE 123 hjá Hraöfrvstihúsi Grindavikur hf., Frigg VE 316 hjá Amarvík hf. og Stígandi VE 77 hjá Fiskanesi hf. Reykjavík: Þar leggja 18 bát- ar upp afla I 5 vinnslu- stöðvum. Andvari VE 100, Hrönn VE 366, Gjafar VE 300 og Baldur VE 24 leggja allir upp hjá Is- biminum. Ófeigur II VE 325, Ófeigur III VE 324, Frár VE 208, Marz VE 204, ÖðMmgur VE 202, Breki VE 206, Ver VE 200, Hraiun ey VE 80 og Sindri VE 203 verða hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur. Kristbjörg VE 70 verður hjá Sjó- fangi hf., Kristbjörg II VE 71 hjá SlS, Kirkjusamdi, og Ámi í Görðum VE 73, Björg VE 5 og Suðurey VE 20 hjá Ingimundi hf. Keflavík: Þar leggja 9 bátar upp hjá 5 vinnslus'töðvum. Berg- ur VE 44, Halkion VE 205, Hug- inn II VE 55 og Emma VE 219 verða hjá Sjöstjömunni hf., Lunidii VE 110 hjá Röst hf., Gyi’fi VE 201 hjá Hraðfrystihúsi Ól. Lárussonar, Ásver VE 355 hjá Hraðfrys'tihúsi Keflavíkur og Sigurður Gísli VE 127 og ísleifur IV hjá Keflavík hf. Garður: Þar verða þrír hátar, Hafliði VE 13, Freyja VE 125 og Skúl'i fógeti VE 185 hjá Hrað- f rystihúsi Meiöastaða hf. Stokkseyri: Hjá hraðfrystihús- imu þar verða fjórir bátar, Sæ- björg VE 56, Stakkur VE 32, Si'gurfari VE 138 og Sjöstjaman VE 92. Eyrarbakki: Hjá hraðfrystihús inu þar verða einnig fjórir bát- ar: Reynir VÆE 120, Ingólfur VE 216, Leó VE 400 og Guðm. Tóm- asson VE 238. Selfoss: Einn bátur, Hamra- bergið VE 379, leggur þar upp hjá Straummesi hf. Hafnarf jörður: Þar verða tveir bátar og leggur Gull'berg VE 292 upp hjá Venusi hf. en Isleif- ur VE 63 verður hjá Ishúsi Hafn- arfjarðar. Óráðstafað: Eriingur VE 295, Eyjaver VE 111, Sæfaxi VE 25 og Meta VE 236. Ok fram af sjúkrahúsinu Vestimannaeyjuim, laugar- dag, frá Magnúsi Finns- syni. TlÐINDALÍTIÐ var hjá lög- gæzluliðinu í Vestmannaeyj- um í mótt, en frá eldstöðvun- uim bárust naíklar drunur. — Vindur var 7-9 stig að suð-suð vestan og uim 8 leytið í morg- un hófst taisvert gos og stóð eldsúlan 100—200 metra í loft upp. Hraunflyk.surnar þeytt- usit hátt í loft upp, en ösku- og gjallifall varð aðeins á hraunið, sem runnið hefur austur af eynni. Eftir að áttin breyttist í gær kvöldi átti löggæzluliðið hér rólega daga. 1 gær var rutt af þaki sjúkrahússins gjallhlassi sem áætlað er að hafi verið um 600 tonn að þyngd. Gjallinu var rutt með dráttarvél, sem komið hafði verið upp á þak- ið. Er ökumaður hennar var þar við vinnu sína, hénti það óhapp hann, að í stað þess að aka vélinni áfram, varð honum það á að aka aftur á bak. Við það steyptist hann og dráttarvélin ofan af þaki sjúkrahússins og hafnaði mað urinn og vélin í sitt hvorum gjallbingnum. Maðurinn slas- aðist ekki, heldur hóf þegar að ýta gjalli frá húsinu, sem er 4 hæðir. 1 morgun hófst þakmokst- ur af fullum krafti, enda kom fjöldi manna með Esjunni í gærkvöldi. Snemma í morgun sáust flokkar varnarliðs- manna ganga í fylkingu upp í kaupstaðinn. Þeir „marsér- uðu“ í tvöfaldri röð með skóflur um öxl. Eyjabátar: Byrja róðra í næstu viku — 600 moka Framhald af bls. 32 er einnig orðinn hreinn að mestu. Ekkert hraun rennur í átt að innsiglingiunni og er ástandið þar óbreytt. Dýpi var mælt í höfn irrni í dag og hefur hún aðeins grynnkað um 20 sentimetra, eða sömu dýpt og öskumagnið nem- ur á svæðinu umhiverfis. Þá vinna um 100 trésmiðir við að byrgja glugga og styrkja hús þök með stoðum og því sem til þarf. Gengur það verk vel. Öskugos er lítið sem ekkert, eins og undanfarna daga, en þó igefur það af og til frá sér gjali- pus. Skákdæmi Friðriks 1 SKÁKÞÆTTI Friðriks Ólafs- sonar í sjónvarpinu í gær lagði hann eftirfarandi skákþraut fyr- ir áhorfendur: Hvitur lék í þessari stöðu Kgl !i2, og þá tók svartur til sir ía ráða. EINAR Sigurðsson útgerðarmað ur, gerir út tíu báta frá Vest- mannaeyjum og munu bátar hans ýmist vistaðir í Keflavík eða Reykjavík. Bátarnir eru Draupnir VE 500, Einir VE 180, Elliðaey VE 45, Guilborg VE 38, Gunnar Jónsson VE 500, Heima- ey VE 1, Kópur VE 11, Surtsey VE 2, Bára VE 141 og Sómi VE 28. Morgunblaðið hafði samband við Einar Sigurðsson, og spurði hvort áhöfnum báta hans, hefði að sama skapi tekizt að koma sér fyrir. — Já, þeir hafa nú flestir kotn ið sér fyrir, en hjá öðrum er hörmungarástand og vU ég þar sérstáklega nefna til tvo skip- stjóra á nýjustu bátunum — Surtsey og Heimaey. Þeir standa enn á götunni með fjöiliskyldur sínar ag hafa hvergi getað feng ið inni, þrátt fyrir látlauisar aug- lýsingar og leit eftir ílbúðum. Hafa skipstjóramir haft það við orð, að þeir verði að taka fjöl- skyldurnar um borð, ef þeir eigi að geta farið í róðra. Hins vegar hefur öðrum skipstjóranum ver- ið boðin ibúð í einni verstöðinni hér, vilji hann koma og taka við bát sem þar er gerður út, sagði Einar. — Veiztu um fleiri sem svona er ástatt fyrir? — Mér er ekki kuniniugt um það meðal sjómannanna, en hins vegar veit ég að það er eins ástatt fyrir mörgum mikilvægum mönnum í fyrirtækjum í Eyjum, og get ég t. d. nefnt verksmiðju- stjórann nann þar, sem ekki hef ur yfirgefið verksmiðjuna frá því gosið hófst, þó að kona hans sé hér í Reykjavík með börnin á götunni og sé að tala um að flytja í eitt herbergi uppi á Kjal arnesi, sem stendur þar til boða. Hins vegar hefur þessum sama manni verið boðið gull og græn- ir skógar vilji hann koma I at- vinnu annars staðar. Sýnist mér að slík boð séu eitthvað svipuð erlenda tilboðinu að taka við svo og svo mörgum fagmönnum frá Vestmannaeyjum og útvega þeim atvinnu og húsnæði, vilji þeir koma. — Hvenær heidur þú, Einar, að fyrstu Eyjabátarnir hefji róðra? — Flotinn fer að tínast að smátt og smátt. Búið er að koma flestum ef ekki öllum bátunum í viðskipti á ýmsum verstöðvum, en auðvitað er margt ógert til undirbúnings veiðanna. Þó veit ég um nokkra Eyjabáta, sem byrja róðra i næstu viku. 10-12 íbúðir fyrir Eyjamenn SÍÐUMÚLI sf. á húsnœði í iðn- aðarhverfi í Síðumiúla í Reyíkja- vík. Fyrirtækið hefur boðið það Rauða krossinum tií afnota fyr- ir Vestmannaeyinga og jafn- framt sótt um það til borgar- ráðs að fá áð innrétta það sem íbúðarhúsnæði. Var það leyfi veitt til bráðabirgða til lausnar á húsnæðisvandamálum fólks úr Eyjurn. Þarna mun vera hægt að inmrétta 10—12 íbúðir og hýsa 70—80 manns. Rauði krossinn heifur safnað og undirbúið sliík tilboð, en opin- berir aðilar taka urn þau áikvörð- un. Hvítur reykur stígur nú upp frá fiskimjölsverksmiðjunni. Fiskimjölsverksmiöjan í Eyjum: Mátti ráða í 2 verksmiðjur Með þeim mannafla sem gaf sig f ram Loðnumóttaka gæti hafizt í vikulok MORGUNBLAÐIÐ sneri sér í gær til Einars Signrðssonar út- gerðarmanns, og spurði hann hvernig gengið hefði að fá menn til starfa í fiskimjölsverksmiðju hans i Vestmamnaeyjum. Eins og skýrt vair frá í blaðinu á föstu- dag augiýsti Einar eftir mönn- um til starfa í verksmiðjunni, en þá gaf enginn sig fram. — Það vœri of vægt að orði kveðið að segja að það hafi geng ið framúrs'karandi vel eftir að Morguniblaðið hafði skýrt frá erf iðleiikunum að fá menn og hve rnikið væri í húíi að fá verk- smiðjuna í gang. Er skemmst frá þvi að segja, að það hefði verið hægt að ráða í tvær verk- smiðjur með þeim mannskap, sem gaf sig fram, sagði Einar. — Eitt stórkostlegt tiiboð kom frá álverksimiðjunni í Straums- vik, sem bauðst til að senda 25 vélvirkja til Eyja til þess að hjálpa við undirbúninginn. Má kannski segja, að þeir hafi ekki snúið sér til réttra aðila, þar sem við vorurn, þvi að fleiri kunna á slikri aðstoð að halda í Eyjum. En í hópnum sem gaf sig fram var mikið af Vestmanna eyinguim, sem höfðu unnið i verksmiðjunni áður. — Er þá haegt að byrja að bræða loðnu fljótíega? — Ég held að það standi þá ekki á öðru en að byggja yfir þrærnar, en þær taka 10 þús- und lestir af loðnu eða um 20 milljónir króna í verðimiæti. Er rétt að geta þess, að 25 manna hópur trésmiðanema í Iðnskól- anum hefur boðizt til að fara til Eyja til að vinna þetta verk. Og væri ráðizt í þetta verkefni nú þegar held ég að hægt væri að byrja móttöku á loðnu í verk- simiðjunni í lbk næstu viku. — Er ekki harla mikilvægt fyrir loðnuflotann að verksmiðj- urnar í Eyjum geti starfað með fuliuim krafti? — Jú, áreiðanlega. Þetta gæti sparað loðnubátunum siglingu allt. austur til Seyðisfjarðar og norður á Vestfjarðahafnir, oig það verður ekki talið í krónum hvað það mundi kosta né áhætt- an sem er samfara slíkum sigh ingum með tilliti ti'l mannslSfa óg skipa. Jón G. Þórarinsson. Orgeltón- leikar JÖN G. Þórarinssoon, organleik- ari, heldur tónleika í Bústaða- kirkju í dag, sumnudag. Á efnisskrán.ni er Passacaglia í d-móll og Pneiudíía og fiúgia i g- moiE eftir Dietrioh Ðuxtehiudie og Partita „O Gott, du firoimimer Gott“ og Preliudia og fúga í h- moll eftir Johann Sebaistian Bach. Tónieikarnir hefjast kl. 5 síð- degis og er aðgangur ókeypis. Varði heiður sinn með vasahnífi UM KL. 03.30 í fyrrinótt var óskað eftir aðstoð lögreglunn ar í húsi í Árbæjarhverfi, og sagt að þar væri inigiir mað- ur, særður af hnífsstuilgum. Þarna reyndist vera 16 ára piltur sem var með minni- háttar áverka á líkama og höfði. 33 ára gömul kona hafði veitt honum þessa á- verka með littum vasahnifi og hafði hún talið sig vera að verja heiður sinn. — Bæði munu hafa verið undir áhrif- um áfengis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.