Morgunblaðið - 09.02.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.02.1973, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. FEBRÚAR 1973 Fa JJ HÍLAl.IAUi\ 'AiAjm 22*0*22* RAUOARÁRSTÍG 31 BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 14444 g 25555 mfim BILALEIGA -HVEFISGOTU 103 14444 25555 SKODA EYÐIR MINNÆ SHODH LEIGAN AUÐBREKKU 44-46. - SlMI 42600. Lokað í dag eftir hádegi vegna Jarðarfarar Ragnheiðar A. Ingólfsdóttur, Sigluvogi 13. Tœkni hf. Vélapakkningar Dodge ’46—’58, 6 strokka Dodge Dart '60—’7C, 6-—8 strokka Fiat, allar gerðir Bedford, 4—6 strokka, dlsilhreyfill Buick, 6—8 strokka Chevrol. ’48—’70, 6—8 str. Corvair Ford Cortina ’63—’71 Ford Trader, 4—6 strokka Ford D800 ’65—’70 Ford K300 ’65—’70 Ford, 6—8 strokka, ’52—'70 Singer - Hillma'i - Rambler Renault, flestar gerðír Rover, bensín- og dísilhreyflar Skoda, allar gerðír Simca Taunus 12M, 17M o«_ 20M Volga Moskvich 407—408 Vauxhall, 4—6 strokka Wiltys ’46—'70 Toyota, flestar gerðir Opel, allar gerðir. þ. É\m & co Símar: 84515 Skeifan 17. 84516. Lögvitring- urinn Tíminn hefur nú tekið sér fyrir hendur að verja það, að ríkisstjórnin sendi engan mann til þess að túlka sjónar mið íslendinga fyrir Alþjóða- dómstólnum í Haag. Nú síðast í gær vitnar blaðið í þau um- mæli forsaetisráðherra, „að öll þau rök, sem fslendingar geti fært fram málstað sínum til stuðnings, hafi legið og liggi fyrir dómstólnum". Af þessu tilefni er rétt að leggja eftirfarandi spurning- ar fyrir ritstjóra Timans, en hann virðist einn af helztu þjóðréttarfræðingum rikis- stjórnarinnar. 1. Voru þessi gögn send af islenzku ríkisstjórninni? Og ef svo er, gat ekki þá verið hætta á þvi, að íslendingar viðurkenndu lögsögu dóm- stólsins með því að leggja þessi gögn fyrir dóminn? Ennfremur væri rétt að fá upplýst, hver er munurinn á þvi að senda þessi gögn til dómstólsins og að senda jafn- framt mann til þess að skýra gögnin enn betur fyrir dóm- urunum. 2. Var dómnum skýrt frá því, að það hefði verið skiln- ingur islenzkra stjórnvalda, að sérhver útfærsla íslenzku landhelginnar tæki gildi gagnvart Bretum og Þjóðverj um þegar i stað, þrátt fyrir málsskot til Haag, og að þess ar þjóðir hefðu ekki mótmælt þessum skilningi? Ef ekki var skýrt frá þessum skilningi ís- lenzkra stjórnvalda, þá af hverju? 3. Var dómmun slcýrt frá niðurstöðum Norðvestur-At- lantshafsfiskveiðiráðsins í júní sj., en þar lýsir ráðið þeirri skoðun sinni, að minnka þurfi veiði á islands miðum nm nær 50% ella séu fiskstofnarnir þar i hættu? Ef þetta var ekki gert, af hverju var þá þagað yfir þess um upplýsingum? Voru þær ef til vill óhagstæðar Islend- ingum? 4. Ef það er skoðun ís lenzku rikisstjómarinnar, að útfærsla landhelginnar sé einkamál islendinga og komi ekki öðrum þjóðum við, af hverju eru íslendingar þá að taka þátt í alþjóðaráðstefnum uni hafréttarmálefni í þeim tii gangi að settar séu alþjóða- reglur, sem heimili okkur ótvírætt að færa út okkar f iskveiðilögsögu ? Alþýðublaðið Allir þeir, sem starfa við blöð þekkja það, að stundum koma upp alls kyns gróusög- ur, sem lítill fótur er fyrir. Þekkja allir blaðamenn það af eigin reynd, að þegar til átti að taka, var einungis um að ræða endurtekningu á æv intýri H. C. Andersens um fjöðrina sem varð að hænu. Að líta á blöð sem einhvera konar ævintýrabækur handa fréttaþyrstu fólki, er mjög hæpin afstaða, ef blöðin eiga að gegna sínu hlutverki. íslenzk blöð hafa hingað til verið blessunarlega laus við æsifréttir byggðar á nán- ast engum heimildum. Þau hafa gert sér far um að skýra rétt frá almennum atburðum og hafa forðazt það að nota óhamingju annarra sér að söluvöru. En síðustu misseri virðist vera orðin talsverð breyting á afstöðu sumra blað anna, og þau virðast í æ rík- ara mæli taka sér erlend æsi fréttablöð til fyrirmyndar. Slík þróun jTði mjög til óheilia íslenzku þjóðiífi. Og það er vissulega ástæða til þess að vara stjórnendur þeirra blaða við, sem ætla sér að skapa grundvöll undir blaðaútgáfu sina með því að skrifa æsifréttir á borð við forsíðufregn í ranima, sem birtist í Alþýðublaðinu í gær. spurt og svarað Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í síma 10100 kl. 10—11 frá mántidegi til föstudags og biSjið um Uesendaþjónustu Morg- unblaðsins. Sigríður Ásgeirsdóttir, Fjöln isvegi 16, spyr: 1. Mig minnir að Indriði G. Þorsteinsson, framk.vaemda.stj. þjóðhátíðarnefndar, hafi látið svo um mælt í sjónvarps- þætti, að í tilefni þjóðháitíðar 1974 ætti að neisa bókhlöðu fyrir um 250 millj. kr., forn- aldarbæ fyrir um 60 millj. kr. og e. t. v. víkingaskip fyrir um 8 milljónir kr. Eru þessar „minnistölur" réttar? 2. Hver er áætlaður kostn- aður við háfíðahöldin sjálf? 3. Hefur iiorn i ð til tals að hætta við þetta allt saman og •áta féð renna í Ve.sbm.anna- ey j asöfnunin a ? Indriði G. Þorsteinsson fram kvænilastj. þjóðhátíðarnefnd- ar svarar: 1. Þessar ,gninnistölur“ eru ekki réttar. Hvað snertir bygg ingu bókhlöðu í tilefni 1100 ára afmælis Islandshyggðar get ég ekkert um sagt. Það mál heyrir undir sérstaka nefnd, sem skipuð var til að gera tillögur þar um. Dr Finn bogi GuSmundsson er fonmað ur þeirrar nefndar. Þjóðlhátíðamefndin hefur gert tillögu um að söguaidar- bær verði reistur. Áætlunin um byggingarkosfnað hans hljóðar upp á uim 12 millj. kr., svo að þar skakkar allmiklu frá „minnistölu” fyrirspyrj- anda. Hins veg.ar liggur það fyrir, að aðeins hluti þess kostnaðar lendir á rí'kissjóði vegna framlaga annars stað- ar frá. Um smíði á knörr eða vík- ingaskipi er það að segja, að hjá nefndinni feliur það undir annan lið: „verk annarra". Það eru ýmsir áhugamenn sem hafa átt hungmyndina að þessu, og ef af verður bera þeir, en ekki þjóðhátíðamefnd in eða ríkissjóður, kostnað þar af. 2. Vinna þjóðhátíðamefndar nú liggur m. a. í því að finna út hver raunverulegur kostn- aður við hátíðahöldin 1974 verður. Sú áætlun verður sáð- an lögð fyrir ríkisstjóm. 3. Um þriðja liðinn geta nefndarmenn eða starfslið nefndarinnar ekkert sagt. Nefndin er undiraðili þings og stjórnar, skipuð til að vinna ákveðið verkefni. Við öf’iu.m allra gagna og gerum áætlanir en endanlegt úrskurð arvald um hvað gert verður er í höndum ríkisstjómar. T. .1. Brand, Barmalilíð 48, spyr: Hverjir ráðstafa þvi fé, seim safnast til Vestmannaeyinga og ekki fer beint til bæjar- sjóðs Vestmannaeyja eða út- gjalda sem hann verður að bera? Björn Tryggvason, forni. Rauða kross íslands, svarar: Móttökuaðilar framlaga til Vestmannaeyinga eru fjórir. Ríkissjóður tekur við gjöfum frá erlendum ríkisstjórnum. Hjálparstofnun kirkjunnar hefur tekið við fé úr útréttri hjálparhendi margra og ráð- stafar því til hags fyrir Vest- mannaeyinga. Rauði kross Islands hefur þegar notað eða ráðstafað um 20 millj. kr. af því sem til hans hefur borizt til alls kyns hjálparstarfs við Vestmann®- eyinga og t. d. til búslóða- flutninga fyrir þá, sem sagt til neyðarhjálpar. Nú er einn- ig tekið að huga að félagslegri uppbyggingu fyrir fóikið og að henni er hlúð á Reykjavik- ursvæðinu og viðar og hefur tekizlt samstarf milli RKl og Hjálparstofnunar kirkjunnar á því sviði. Fjórði aðilinn er bæjars jóð- ur Vestmannaeyja og vil ég sérstaklega benda félagshóp- um og einstakiingum að !áta gjafir sinar ganiga til hans, því álag á hann er gifurlegt en tekjuhliðin nánast engin, því útsvarstekjur hafa með öllu fallið niður svo og aðrir fcekjuliðir. Ráðumst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur Úthlutun stöðvuð á 90 íbúðum í Breiðholti — STÖÐVUÐ hefur verið útlihitun á 90 íbúðum í Breið- holti. Af þeim eru þrjátíu og sex 2ja herbergja og fimmtíu og fjórar 3ja herbergja. Voru þessar íbúðir auglýstar fyrir síðustu áramót og var áætlað að afhenda þær fullgerðar á timabilinu júní-sept. 1973. Um 400 umsóknir höfðu borizt um þessar íbúðir. Þetta kom fram í viðtali í gær við Magn ús L. Sveinsson, framkvæmda- stjóra V. R., en hann á sæti í 3 manna nefnd þeirri, setn gerir tillögur um úthliitiin þessara íbúða. Magnús sagði, að mikil óánægja væri komin upp á meðal þess fólks, sem átt hefði I vændum að fá íbúðir í Breiðholti, er nú væri áform að að ráðstafa til Vestmanna- eyinga. — Samkvæmt lögum, sem sett voru í samraami við júní- samkomulagið 1965 eru þess- ar iþúðir eimgöngu ætlaðar efnaliitlu láglaunafólki verka- lýðgfélaganna cng kvæntum iðnnemum. 1 reglugerð um úthlutun íbúðanna segir, að „umisækjendur sem þyngri hafa fjölskyldu og eiga ekki eða hafa ekki átt á sJ. 2 ár- um viðunandi (eða fullnægj- andi) íbúð, skuli að öðru jöfhu sitja fyrir um kaup á íbúð- um“. — Megin þorri þeirra 400, sem sóttu um þessar 90 íbúð- ir er efnalítið iláglaunafólk, sem enga möguTeika hefuir á að eignast íbúð með öðrum kjörum en hér eru boðin. Þetita fólik hefur heldur ekki nokkra getu til að leigja sér húsnæði á því verði, sem yfiríeLtt er nú ríkjandi og fier stórhækk- andi með hverri vikunni, sem líður. Hér er um að ræða ein- stæð foreldri með allt að 5 böm, eldra fiólk, sem aldrei fyrr hefur haft möguleika á að eignast þak yfir höfuðið, fólk sem ekki hefur fullla starfsorku og því lágar tekj- ur, ungt fólik með aHt að 3— 4 böm, sem býr inni á öðrum fjöiskyldum oig hefur orðið að koma eignum sínum í geymslu og fjölskyldur sem hafa leystst upp vegna hús- næðisleysis. Það kom fram, I þeim um- sókn.uim sem nefndin var bú- in að ranntsaka áður en hún Framhald á bls. 20 Magnús L. Sveinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.