Morgunblaðið - 24.02.1973, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. FEBRÚAR 1973
15
—--------------«------------------
hvers væri mér svo kostur?
Kannski aS fá hl'aupakennslu í
islænzku í þremur skólum,
kainnski kennarastöðu í Flens-
borg eða við g.agn fræðaskól'an n
á Akureyri —- og eí til viil seint
og um síðir fast starf í Mennta-
skóianum. — 1 öllum þessum
skólum fyrst og fremst vinna
víð að troða. í nemendur rruál-
fræðiibreytiinigi og stafsetnin.gar
reglum, — og svo má þá ekki
gleyma skuldabagganum, sem
yrði ekki minni en eftir guð-
fræðinámið. Ég get l'íka sa.gt þér
það, sem þú kannski reyndar
veizt, að þó að Stefán Einars-
son ætii sér að ljúka hér há-
skól'aprófi, ber hann nokkurn'
kviðboga fyrir þvi, að hve
mi'klu leyti hann fái notið sin að
nánai loknu.“
Richard þagnaði og var þung
búínn, og ég mæl'ti af beiskju-
blandinni samúð:
„Ætli ég skilji þig ekki! Þetta
er, eins og þú einmitt sagðir, í,
aðalatriðum sarna sagan og hjá
mér.“ Alit i einu flaug mér í
hug, hvað kynni að vaka fyrir
hortúm, og ég bætti við i hik-
kenndum spurnartón: „Hefur
það kannski hvarflað að þér að
reyna að ryðja þér braut er-
lendis — og þá máski helzt í
Ameriku, — ég veit, að mjög
margt fól'k af Austurlandi hef-
ur flutt sig vestur um haf ?“
Riehard lfeit á miig eins og
háiÆhissa:
„Nú hittir þú naglann á höf-
uðið. Mér hefur einmitt dottið
þetta í hug, hvað sem verður.
Ég hef fengið glögga vitneskju
um, að þar er hægara um vik
en hér heima að útvega sér
vinnu, sem geti samrýmzt há-
skólanámi, líka styrki, ef nem-
andinn sýnir áhuga, dugnað og
góða námshæfileika, og meira
að segja eiga þeir, sem taka þar
góð próf og vinna sér traust
sem reglusamir, framsæknir og
vel máli farnir gáfu- og dugn-
aðarmenn, furðu greiða leið til
að verða aðstoðarkennarar við
háskóla og innan ekki ýkja
iangis tíma prófessorar með góð-
um launum og starfsaðstöðu. t>á
er það og mjög mikil'vægt í mdn
um augum, að ég get kynn.t is-
lénzkar bókmenntir og sögu í
næðu og riti og I viðtölum við
áhugasama húmanistíiska há-
skól'amenn, og svo eru það Vest
ur-íslendingar. Eins og þú veizt
eru nú í Kanada og Bandarikj-
unum tugþúsundir manna af ís-
lenzku bergi brotnir, íslenzk
tunga lifir þar enn á vörum
margra og ræktarsemi til ætt-
iandsins í hjörtum ennþá fleiri,
og ég mundi beinilínis leggja
áherzliu á að veita þeim mönn-
um lið, sem berjast þrotlaust fyr
ir varðveizlú isilenzkrar tungu
og menningararfs og reyna að
stuðia að auknum skilningi á
þvi hér heima, hvert gildi það
hefur, að tengslin við Vestur-ís
lendinga haldist sem lengst."
Við höfum gengið fram og aft
ur um Frikirkjuveginn, en nú
nam Riehard Beck staðar, þagn
aði og horfði á mig nokkur
augnablik, bjarteygur og iéttur
á brún. Hann rébti síðan úr sér,
og það var yfir honum öllum
allrt að þvi tigin reisn, þegar
hann sagði:
„Auðvitað er engan veginn
víst, að ég nái þessum áranigri,
en ég mun ekki láta miitt eftir
Kiggja. Islendingasögurnar hafa
verið þessari þjóð kveikja
manndóms og karimennsku, og
oft hafa mér dottið í hug frá-
sagnimnar um þá menn, sem héð-
an fóru utan og unnu sér frægð
ag fé í vikin,gu á söguöM okk-
ar. Og þá hefur mér orðið það
fyrir að hugsa sem svo, að stúd
entspróf ætti ek’ki nú að vera
lakara fararefni en nokkur
leikni i víigifimi og eitthvað af
vaðmáli voru í þann tíð. Hvað
sem verður í vetur, vona ég, að
við eigum eftir að hittast síðar
á ævinni."
Svo kvöddum'St við með föstu
handtaki.
— Bókmenntir
Erlendur
Framh. af bls. 14
land með eigin augum. Samt er
þetta mikla eyland, enn sem
komið er, eins og eitt heljarmik-
ið óskrifað blað. Ólíklegt er þó,
að svo verði um lanigan aldur
hér eftir. Grænilendingar eru
frumstæð þjóð og sem öðrum
slíkum fjölgar þeim ört. Áætlað
er, að þeir teljist ekki færri en
hundrað þúsund um næstu alda-
mót. Þá fer varlia hjá, að þeir
taki að beraist hingað til lands
fyrst einn og einn, siðan fleiri.
Og mun þá fyrst blasa hér við
sjónum útlendiniga, það sem þeir
hafa aliitaf búizt við að sjá alls
fyrst á ísialáði — Eskimóar!
Þá, en tæpast miklu fyrr, eru
líkur til að tengsl ok’kar við
þessa næstu nágranna muni hef j-
ast að ednhverju marki.
Fræðileg og ýtarleg bók um
Grænland nútímans — ágrip af
sögu þjóða þess mætti auðvitað
fylgja með -— væri vel þegin
strax. Mætti þá gjarnan fylgja
henni sikárra Grænlandskort en
það, sem prenitað er í Fornum
byggðum á hjara heims, en þar
eru öll nöfn rituð á dönsku, þar
með talið „Danmarksstræde"! Og
væri hún myndskreytt, þyrfti
umfram altt að vanda beíur til
þess verks. Vondar hefðu lands-
lagsmyndimar í þessiari bók
þótt fyrir fjörutíu árum. Gegn-
ir þá enn meiri furðu, að slíkt
og þvílikt skuli þykja boðlegt
nú.
Þýðing dr. Kristjáns Eldjáms
er vafalaust góðra gjalda verð,
þótt stíllinn á henni jafnist ekki
á við stílinn á þeiim bókum, sem
hann hefur sjálifur samið. Hann
kveðst hafa þýtt bókina „mest-
ail'la fyrir um það bil aldiarfjórð-
ungi". Eitthvað hefur sú þýðing
þó verið yfirfarin síðan, þvi ég
sé ekki betur en víða bregði fyr-
ir orði nokkru, sem hvorki mun
hafa heyrzt hér í mæiitu máli né
sézt á prenti fyrr en á siðastliðn-
um áratug, og er orðtetur það
að vís'u hæpin endurbót.
— Ráðvilltum
Framh. af bls. 11
þó enn óljóst hve langt vald-
beitingin hafi í raun og veru
gengið, a.m.k. í samanburði við
hið gifurlega mannhaf sem kín-
verska þjóðin er. Megintilgang-
ur þessarar sérstæðu byltingar
var annars sá að koma í veg
fyrir myndun nýrra og varan-
legra forréttindastétta (1. til-
vitnun), eins og gerzt hafði i
Sovétríkjunum. Svo er að sjá af
frásögnum ferðamanna sem þetta
hafi tekizt, a.m.k. í bili. Þess
vegna verður mjög áhugavert að
fylgjast með þvi hvernig Kín-
verjum tekst að koma upp og
halda við hinu stéttlausa þjóð-
félagi sem allir sósialistar keppa
að. En ég legg áherzlu á að
menn verða að forðast fordóma
og kreddur þegar þeir meta
gang mála í Kína.
Utanríkisstefna hins væntan-
lega risaveldis er mjög i deigl-
unni, og er þar vissulega að
finna nokkur atriði sem geta
varla talizt sérlega geðfelld, svo
sem andstöðu þeirra gegn
Bangla Desh. Slikt er þó hé-
gómi einn hjá þeirri yfirþyrm-
andi spurningu, hvort Kína sem
risaveldi tekur upp útþenslu- og
heimsvaldastefnn eins og önnur
stórveldi mannkynssögunnar.
Hermálastefna þelrra bendir
ekki til að svo verði (innskot
frá G.H.) því að þeir virðast
miða vígbúnað sinn annars veg-
ar við skæruhernað í varnar-
skyni innan iandamæra sinna en
hins vegar við kjarnorkuvopn
(2. tilv.). Á hinn bóginn leggja
þeir litla áherzlu á þung her-
gögn eins og t.d. skriðdreka,
þannig að þeir virðast ekki búa
sig undir hernað á landi utan
Kína. Ég er þess vegna sæmilega
bjartsýnn á að Kínverjar ali
ekki með sér óhóflega stórveld-
isdrauma (3. tilv.), enda veltur
framtíð mannkynsins kannski á
því. Ef þessi bjartsýni reynist
réttmæt geta Kínverjar orð-
ið góðir bandamenn smáþjóða í
baráttu þeirra gegn hervaidi og
auðvaldi." (4. tilv.).
Þegar val tilvitnana úr þess-
um kafla er skoðað vakna óneit-
anlega ýmsar spurningar. Hvers
vegna sleppir Guðmundur t.d.
hinni mikilvægu samanburðar-
setningu á eftir kommunni sem
hann lætur afmarka 1. tilvitn-
un? Fellur þessi setning kannski
ekki inn í hina stöðluðu mynd
„kommúnistans", sem G.H. reyn-
ir að gefa lesandanum mestan
part greinar sinnar?
Á eftir 1. tilvitnun segir Guð-
mundur annars: „Sem sagt for-
réttindastétt næði vöidum!“ Sam
frá þeirri miklu hættu að ný for
réttindastétt næði völdum!" Sam
kvæmt þessu hafa þeir ráðamenn
sem urðu undir í menningarbylt
ingunni verið hluti einnar for-
réttindastéttar en Maó og fylg-
ismenn hans hafa verið önnur
forréttindastétt. Ég hef ekki áð-
ur kynnzt slíkum skilningi á orð
inu stétt. Annars liggur hér lík
lega að baki sá vana-
bundni skilningur okkar Vest-
urlandabúa að völdum eða for-
ystu fylgi endilega forréttindi,
t.d. í formi mikillar einkaneyzlu
eða sérstakrar aðstoðu afkom-
enda til að „komast áfram“. Svo
lítil umhugsun sýnir væntanlega
að þessi skilningur okkar þarf
ekki að vera algildur.
í innskotsbrandara sínum í 2.
tilvitnun virðist G.H. telja það
til hermálastefnu Kínverja að
þeir „sækjast eftir auknum
áhrifum í Afríku, Albaníu og
víðar“. Því miður er slík notk-
un orða mér óskiljanleg.
Á eftir 2. tilvitnun skýt-
ur G.H. enn inn „brandara", en
hann hefði orðið harla rýr ef
Guðmundur hefði tekið upp setn
inguna milli 2. og 3. tilvitnun-
ar.
Á eftir 3. tilvitnun spyr Guð-
mundur hvað ég eigi við með
hóflegum stórveldisdraumum.
Aukasetningin sem hann slepp-
ir á þessum stað hefði átt að
geta skýrt þetta nokkuð fyrir
honum og lesendum.
9. NÝVINSTRISINNAR
Eins og fram kemur hér á und
an er mestur partur greinar G.H.
tilraun til að svara ræðu minni
með þeim aðferðum og rökum
sem beitt var gegn svokölluðum
kommúnistum fyrir sosum 10—
20 árum. Hann gætir þess m.a.
vandlega að sníða tilvitnanir sín
ar þannig að þær falli inn í
þetta mynztur. Undir lokin snýr
hann þó við blaðinu og kallar
mig nú nývinstrisinna, en slíkir
menn teljast í hans augum alls
ekki til kommúnista, þvi að hann
segir orðrétt: „Ég heid að það
séu þó blessaðir konunarnir sem
séu hvað mest ráðvilltir um ný-
vinstrisinnana . . (síðan kem-
ur tilvitnun i Guðsgjafaþulu
til skemmtunar a.m.k. Skömmu
áður kemur fram að Guðmund-
ur veit ekki hvar hann hefur
þessa nývinstrisinna.
Nú læt ég mér auðvitað í léttu
rúmi liggja undir hvaða nafn-
gift Guðmundi Hallgrímssyni
þóknast að flokka skoðanir mín
ar. Ég vil aðeins að lokum benda
honum á að hann hefði getað
reynt að lesa margumrædda
ræðu mína í rólegheitum, velja
mikilvægar tilvitnanir úr henni
á heiðarlegan hátt og reyna síð-
an að „svara" þeim. Með slíkum
vinnubrögðum hefði kannski
ekki þurft að gerast sá sjald-
gæfi atburður að höfundur
blaðagreinar lýsi því beinlínis
yfir í lokin að hann viti í raun-
inni ekkert hvað hann er að
skrifa um.
Sjötugur í gær:
Jón Björnsson
á Hafsteinsstöðum
1 gær (23. febr.) varð Jóm
Björnsson bóndi og söngstjóri á
Hafsteinsstöðum í Skagafirði sjö
tugur að aldri. Fæddur er hann
í Glaumbæ í Langholti og voru
foreldrar hans Bjöm L. Jóns-
son, sem lengi bjó á Stóru-
Seylu og var oddviti og hrepp-
stjóri í Seyiuhreppi og fyrri
kona hans Steinvör Sigurjóns-
dóttir. Ungur missti Jón móður
sína, og ólst hann upp með föð-
ur sínum og siðari konu hans,
Margréti Bjönnisdóttur.
Snemma bar á þvi, að Jón
var gæddur rikri tóniistar-
gáfu. Hann stundaði söngnám
hjá hr. Geir Sæmundssyni,
vígslubiskupi á Akureyri, og
organleik lærði hann há Sigur
geir Jónssyni á Akureyri. Jóni
varð mikið úr þessu námi sínu.
Unnandi söngs og tónlistar er
hann mikill og i þágu sönglífs
heima í Skagafirði hefur hann
unnið merkt og mikið starf, sem
seint verður fullþakkað.
I hart nær 50 ár hefur hann
verið orgianisti í Glauimbæjar-
og Reyni'staðarkirkju og vænt-
anlega verður hann það lengi
enn. Sömu störfum hefur hann
gegnt við Sauðárkrókskirkju
frá s.l. hausti.
í áratugi var hann söngstjóri
karlakórsins Heimis. 1 þeim fé-
lagsskap var Jón lífið og sálin
og engum má fremur þakka lang
lífi kórsins en honum. Með fleiri
söngfélögum hefur Jón starfað
sem söngstjóri, svo sem Samkór
Sauðárkróks, en söngstjóri hans
var Jón í 5 ár.
Fátt er meiri lyftistöng öllu
heilbrigðu félagslífi en söngfé-
lag á borð við þau, sem Jón á
Hafsteinsstöðum hefur helgað
krafta sina og starfað fyrir af
eftirminnilegum áhuga og ósér-
plægmii. Alll't yröi líf okkar í
strjálbýlinu fábreyttara og tóm
legra, ef við nytum ekki siíkra
hæfileika og áhugamanna sem
Jón á Hafsteinsstöðum er. Því
fuilyrði ég að hann hefur unnið
meira og betra starf fyrir hér-
að okkar en margur ainnar. Hon-
um eigum við Skagfirðingar mik
ið að þakka. Og ég nota þetta
tækifæri, þegar Jón stendur á
timamótum í lífi sínu, að þakka
honum fyrir samstarfið allt og
óbrigðula vináttu, og þá ein-
læga ó.sk ber ég í brjósti, að ég
og söfnuðir mínir tveir fái lengi
enn að rtjóta gildismikilla starfa
hans.
Jón á Hafsteinsstöðum á í fór
uim sinuim mik’nn fjölda tón-
smiða, sem hann hefur gjört.
Ýmis sönglög hans eru þegar
kunn þjóðinni, en vel væri far
ið, ef fleiri tónsmíða hans yrðu
almenningi kunnar. Mörg lög
Jóns eru fögur og einstaklega
sönghæf.
Þótt tónlistin hafi átt svo rík-
an þátt í huga Jóms, sem raun
ber vitni, hefir hann ekki sleg-
ið slöku við í aðalstarfi sínu,
sem er búskapur hans. Enginn
vafi er á þvi, að Jón á Haf-
steinsstöðum hefir verið í hópi
dugmestu bænda Skagafjarðar.
Búnaður hans hefir ein-
kenmzt af áhuigia, forsjálmii og
fyrirhyggju og á þeim vettvangi
hefir hann skilað miklu dags-
verki.
Kvæntur var Jón ágætri og
mikilhæfri konu, Sigríði Trjá-
mannsdóttur. Hún andaðist
1969. Einn son eignuðust þau
hjón, Steinbjörn, sem býr á Haf
steinsstöðum. Kona hans er
Esther Skaftadóttir og eiga þau
fjögur börn.
Ég og kona mín færum Jóni
beztu blessunaróskir okkar og
bökkum honum kynnin og alla
vinsemd. Gunnar Gislason.
— Samtal
við Elsu
Framh. af bls. 10
aðri gerð og Snæfellsjökull
og Hekla, en er talið vera
miklu elidra. Ég þóttist finna
merki um að það hafi gosið í
ísaldarlok eða fyrir um 10
þúsund árum. Þeð verður að
teljast útkuimað, þó að ekki
þori ég auðvitað að taka alveg
ábyrgð á því. En þarma við
Jökiulsá í Fljótsdal er þó
áreiðanlega öruggari staður
til virkjunar en á eldgosa-
beltinu.
— Hafa önnur svæði, þar
sem þú hefur verið við rann-
sókmir, reynzt áhugaverð?
— Ég hefi aðallega verið
við Tungnaá og þar er t.d.
Vatmsfellið og sivæðið þar í
krimg mjög áhugavert. Þar
hefur trú'lega verið umhorfs
líkt og nú er í Grimisvötnum.
Gosið hefur í lægð og mikið
af gosefnum hefur svo borizt
í burt í jökul'hlaupum. E.t.v.
li'ggur eitthvað af gosefnum
þess á söndunum á Rangár-
völlum. Þetta hefur gerzt í ís-
aldarlok. En þá hefur orðið
gos í Þórisvatni sjálfu
nokkru síðar. Þar er einmig
mymdarliegur gígur í Austur-
botni, sem við höfum kal'lað
Brand. Við gosið hefur farið
flóðbylgja frá Þórisvatmi í
Köldukvísl og eru flóðset
niður mieð ánni, t.d. við
Rjúpmadal. Margt hefur gerzt
á þessum slóðum og eldvirkmi
verið mikil á Tungnaáröræf-
um, bæði á seinasta ísaldar-
skeiði og á nútima, þó að þar
hafi verið rólegt sl. 1000 ár.
— 1 lok samitalsins spyrjum
við Eisu um ætt og uppruna,
eims og siður er á ísl'andi.
Hún er ættuð úr RanigárvaHa
sýsliu og af Fásikrúðsifirði, en
fædd í Vestmannaeyjum. Fað
ir hennar Vilmundur Guð-
mundsson drukknaði af skipi
fyrir 39 árum, en móðir henn
ar et Guðrún Björnsdóttir
frá Fagurhóli í Lamdeyjum.
Sjáif er hún gift Páirnia Lár-
ussymi verkfræðingi. —E.Pá.
Teiknistofa
óskar eftir húsnæði. — Æskileg stærð 50—70 fm, þó
ekki skilyrði. Aðeins gott húsnæði kemur til greina.
Áhugasamir hringi í síma 26340 eða 25491 eftir kl. 7.