Morgunblaðið - 02.10.1973, Síða 1
32 SIÐUR
220. tbl. 60. árg. ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTOBER 1973 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Golda Meir
tilVínar
Tel-aviv og Vínarborg
l.okt AP-NTB
Golda Meir forsætisráðherra
ísraels er væntanleg til Vfnar-
borgar á morgun í skyndiheim-
sókn til þess að freista þess að fá
austurrísk yfirvöld ofan af þeirri
ákvörðun að banna sovéskum
Gyðingum á leið til Israels að haf a
viðdvöl í Austurríki. Meir sagði í
ræðu á þingi Evrópuráðsins i
Strassburg í dag að lokun inn-
flytjendabúðanna í Austurríki
væri mikill sigur fyrir Araba og
hvatning til hryðjuverkamanna
um allan heim.
Hún skoraði á þingfulltrúa að
hjálpa ísrelum við að fá austur-
rísk yfirvöld til að breyta ákvörð-
un sinni.
Skæruliðasamtökin „Ernir
Palestfnuuppreisnar", sem stóðu
fyrir mannráninu í Austurríki
fyrir helgi vöruðu í dag austur-
rísk yfirvöld við afleiðingum þess
að þau gengju á bak orða
sinna gagnvart samtökum og
lokuðu ekki innflytjenda-
búðunum.
Flugvélin, sem flutti Arabana
tvo frá Austurrfki fékk að lokum
lendingarleyfi i Líbýu, eftir að
hafa verið 18 klst. á ferðalagi með
4 millilendingum til að taka elds-
neyti. Var sagt að leyfið hefði
verið veitt af mannúðarástæðum,
þar eð Arabarnir höfðu hótað að
sprengja flugvélina f loft upp á
flugi. Austurrísku flugmennirnir
fengu að snúa heim í dag.
Blöð i Austurríki eru mjög
skipt í skoðunum sinum á
ákvörðunum sínum á ákvörðun
Kreiskys kanslara að verða við
kröfum ræningjanna,. Stjórnar-
andstöðublöðin segja að hann
hafi sýnt hugleysi meðan stjórn-
arblöðin styðja ákvörðunina, sem
þá einu réttu.
Einar Ágústsson utanrfkisráðherra ávarpar allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í
gær. 1 baksýn eru t.v. forseti þingsins Leopoldo Benites og Bradford Morse aðstoðar-
framkvæmdastjóri S.Þ. Sjá frétt á baksíðu.
Ný j ar tillögur fr á
Bretum í dag?
Stöðug fundahöld um helgina. Fulltrúar brezka
fiskiðnaðarins kallaðir á fund ráðherra í gær
Sigurður
Bjarnason
hitti Chou
En-lai
Peking 1. október AP.
Kínverska fréttastofan Nýja
Kína skýrði frá því í örstuttri
frétt í gær að Sigurður
Bjarnason sendiherra Islands í
Peking hefði átt vinsamlegar
viðræður við Chou En-lai
forsætisráðherra Kína.
Sigurður afhenti kínversk-
um ráðmönnum trúnaðarbréf
sitt, sem sendiherra Islands í
Kfna með aðsetur í
Kaupmannahöfn. Hann hefur
síðan átt viðræður við ýmsa
kínverska ráðamenn og hafa
Kínverjar ítrekað stuðning
sinn við 50 mílna landhelgi
Islands.
Forystumenn samtaka brezka
fiskiðnaðarins voru sfðdegis í gær
boðaðir til fundar í brezka utan-
ríkisráðuneytinu með Sir Alec
Douglas Home, utanríkisráðherra
og Anthony Stoddard, fiskimála-
ráðherra, og var uppi sterkur orð-
rómur um, að brezka rfkisstjórn-
in hefði f hyggju að kalla brezku
herskipin af tslandsmiðum um
stundarsakir meðan reynt væri að
finna einhverja bráðabirgðalausn
á fiskveiðideilunni. Áður höfðu
vakið mikla athygli skyndifundir
Edwards Heaths, forsætisráð-
herra um helgina, fyrst á laugar-
dag með Sir Alec Douglas Home
og Carrington lávarði, land
varnarráðherra og síðan á sunnu-
dag með dr. Joseph Luns, fram-
kvæmdastjóra Atlantshafsbanda-
lagsins. Er talið víst, að Luns hafi
Gengið fellt um
147% í Chile
Santiago, Chile, 1. okt.—AP.
Her^oringjastjórnin í Chile
felldi í dag gengi gjaldmiðils
landsins „escudos“ gagnvart
Bandaríkjadollar um 147%. Aður
fyrr voru 350 escudos í 1 dollar,
en eru nú um 850. Þá var gjald-
eyrisskiptakerfi landsins mjög
einfaldað, en allt að 9 mismun-
andi skráningar voru í gildi. Mik-
ið svartamarkaðsbrask hefur ver-
ið í Chile síðustu tvær vikur og
hafa fengizt allt að 3ooo escudos
fyrir hvern dollar.
enn lagt að brezka forsætisráð-
herranum að gefaeftir f deilunni.
Haft er eftir áreiðanlegum
heimildum í London, að brezka
stjórnin hafi sýnilega sannfærzt
að fullu um, að íslendingar
myndu standa við hótanir sínar
um að slíta stjórnmálasambandi
— að þær verði að taka alvarlega
og bregðast við samkvæmt þvf,
þar sem fyrirsjáanlegt væri, að
stjórnmálaslit myndu mjög draga
úr líkum á því að samkomulag
gæti náðst.
Morgunblaðið hafði samband
við talsma.m brezka utanríkis-
ráðuneytisins í gærkveldi og
spurði hvort rætt hefði verið á
fundinum, að brezka stjórnin
kallaði herskipin burt af miðun-
um en hann vildi hvorki neita þvf
né játa, kvaðst ekki geta gefið
neinar upplýsingar að svo stöddu
aðrar en þær, að fundurinn hefði
staðið í rúman klukkutfma og við-
ræðurnar verið „gagnlegar". Bre-
zki sendiherrann á Islandi, John
MacKenzie . sagði í viðtali við
Morgunblaðið í gærkveldi, að
hann biði enn fregna af fundin
um og frekari fyrirmæla.
Heath forsætisráðherra Breta
dvaldi á sveitasetri sínu Chequers
í útjaðrr Lundúna yfir helgina og
á laugardag átti hann sérstakan
fund með sir Alec Douglas Home
utanríkisráðherra og Carrington
lávarði varnarmálaráðherra. Var
sá fundur haldinn á sveitasetri
Homes, sem er skammt frá sveita-
setri forsætisráðherrans. Segja
Framhald á bls. 18.
Agnew hefur snúið
vörn upp í sókn
— þó svartsýnn
Washington.l.október.AP.
Spiro Agnew varaforseti hef-
ur sagt í einkaviðræðum, að
hann telji að stjórnmálaferill
sinn hafi verið lagður í rúst, en
hann hefur hafið harða gagn-
sókn gegn þeim, sem hafa sakað
hann um spillingu, og er stað-
ráðinn í að sanna saklevsi sitt.
Agnew lýsti þessari skoðun
sinni á fundi með starfsmönn-
um Repúblikanaflokksins, en
áður hafði hann notað tækifær-
ið á fundi kvennasamtaka
repúblikana f Los Angeles til
þess að segja þeim, sem hafa
ásakað hann, stríð á hendur.
I áhrifamikilli ræðu, sem
varaforsetinn hélt á fundinum,
kom fram að hann ætlar ekki að
segja af sér þótt hann verði
ákærður, að hann telur menn í
Maryland beri hann röngum
sökum þar sem hann neitaði að
stöðva rannsókn gegn þeim og
að hann er sannfærður um að
háttsettir menn í dómsmála-
ráðuneytinu reyni að koma sök-
inni á hann vegna slælegrar
framgöngu þeirra í Watergate-
málinu.
Angew nafngreindi engan
embættismann, en talið er vfst
að hann eigi við Peter Peterson
aðstoðardómsmálaráðherra, yf-
irmann rannsóknardeildar
ráðuneytisins. Elliot
Framhald á bls. 18.