Morgunblaðið - 02.10.1973, Side 3

Morgunblaðið - 02.10.1973, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 2. OKTÖBER 1973. 3 Morgunblaðið í dag er offset- prentað. Þar með eru komnar til framkvæmda þær tæknilegu breytingar á útgáfu blaðsins, sem unnið hefur verið að um skeið. Hin nýja tækni veldur gjörbreyt- ingu á vinnubrögðum við útgáfu blaðsins, Þegar fram í sækir mun tæknibreytingin gera kleift að bæta mjög efni blaðsins og útlit, en fyrstu vikurnar, meðan starfs- fólk er að venjast nýjum starfsað- ferðum, má búast við einhverjum byrjunarörðugleikum, sem les- endur taka vonandi ekki illa upp. NÝ TÆKNIDEILD Siðustu meiriháttar breytingar á útgáfu Morgunblaðsins urðu á árinu 1956 er „rotations" pressa blaðsins var tekin í notkun, en áður hafði Morgunblaðið verið prentað í svokallaðri flatpressu. Þegar „rotations" pressan var tekin í notkun í maímánuði 1956, gjörbreyttist öll aðstað* blaðsins og þess er vænzt, að svo verði einnig víð þessa breytingu nú. Síðasta Morgunblaðið, sem prent- að var í gömlu pressunni, kom út sl. sunnudag, en framvegis verður blaðið prentað í hinni nýju offset- prentvél, sem er af gerðinni Cottrell V-25, framleidd af banda- rísku verksmiðjunni, Harrislnter'- type. Offsetprentvélin getur prentað allt að 25 þúsund eintök á klukkutíma. Offsetprenivélin var tekin í notkun haustið 1972, er prentun Lesbókar hófst í henni, en auk þess hafa ýmis aukablöð verið offsetprentuð. Morgunblaðið er nú sett á ný Ijóssetningartæki frá sama fyrir- tæki og eru þau af gerðinni „Foto- tronic 600“. Þau geta sett allt að 50 línur á mínútu í dagblaðsdálk. Gatastrimlarnir eru settir á Datek-gataborð. Verkstjórar i hinni nýju tæknideild Morgun- blaðsins verða Ingvar Hjálmars- son og Ólafur Emilsson. BREYTINGAR VEGNA OFFSETPRENTUNAR Fyrst f stað verða engar breyt- ingar á efni eða stærð Morgun- blaðsins, en eftir nokkrar vikur munu bæði Morgunblaðið og Les- bók stækka að blaðsíðufjölda. Eins og lesendur Morgunblaðsins hafa orðið varir við, hafa mikil þrengsli verið í blaðinu síðustu misseri. Auglýsingamagn hefur aukizt verulega, en ekki var hægt að stækka blaðið að blaðsíðu- fjölda í gömlu prentsmiðjunni. Nú verður innan tiðar breyting á því, og mun þá þjónusta blaðsins við lesendur batna og lesefni verða meira. Fyrstu vikurnar a.m.k. verður fréttaskrifum að ljúka nokkuð fyrr en verið hefur og mun verða, er frá líður. Er athygli fréttarit- ara Morgunblaðsins vakin á því, auk þess, sem hugsanlegt er, að síðbúnar fréttir komist ekki í blað ið á næstunni. Tilkynnt hefur verið, að framvegis verði afmælis- og minningargreinar að berast fyrr til ritstjórnar en verið hefur og er sú regla ófrávíkjanleg. Þá hefur móttökutima auglýsinga verið breytt. Ymsir þeir, sem að staðaldri skrifa greinar í Morgun- blaðið hafa hingað til fengið að lesa prófarkir af greinum sínum sjálfir. Með hinni nýju tækni er þetta ekki lengur hægt. Þannig fylgja ýmsar breytingar í kjölfar offsetprentunar Morgunblaðsins, en mestu skiptir þó, að breytingin verði til þess, að lesendur fái í hendur betra blað með betra og fjölbreyttara lesefni. Að því marki fyrst og fremst er stefnt með þeirri breytingu, sem nú verður á útgáfu Morgunblaðsins. Unnið með nýju aðferðinni . . . . . . og hér sjáum við „gömlu aðferðina kvadda með sfðasta sunnudagsblaði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.