Morgunblaðið - 21.10.1973, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1973
KVARTA UNDAN
ÁGANGIBREZKU
„Astandið á fiskimiðununi úti
fyrir Vestf jörðum er hreint 6þol-
andi. Um 50 enskir togarar, og að
auki v-þýzkir og færeyskir eru
hér við veiðar, sumir á veiðum í
friðaða hólfinu úti af Kögri, og
aðrir á 12 mflna mörkunum.
Þessir ensku togarar eru nú eins
og heilagar kýr f Indlandi. Það er
sama hvað við biðjum Land-
helgisgæzluna um, að það er
aldrei stuggað við togara,“ sagði
Guðjón Kristjánsson, skipstjóri á
skuttogaranum Páli Pálssyni frá
Hnffsdal, þegar hann hafði sam-
band við Morgunblaðið f gær.
Guðjón sagði, að undanfarna
daga hefðu varðskipin ekki stugg-
að við einum einasta togara. Það
virtist engu skipta, að togararnir
væru á veiðum á friðaða svæðinu,
sem væri 31 sjómílu frá Kögri og
út að 50 milum. Þetta svæði væri
Taflæfingar
í Hafnarfirði
Skákfélag Hafnarfjarðar hefur
hafið vetrarstarfsemi sina með
æfingum í Sjálfstæðishúsinu við
Strandgötu, og eru þar tafl-
æfingar alla föstudaga kl. 20.
Þá verður Skákmót á vegum
félagsins, sem hefst n.k. sunnu-
dag kl. 2 e.h.
Væntir stjórn Skákfélagsins að
þátttaka verði góð, og að skák-
áhugamenn efli skáklif Hafnar-
fjarðar, með þátttöku í mótum og
æfingum á vegum hins unga
Skákfélags Hafnarfjarðar.
Flaukí
flug til
Húsavíkur
Sameiginlegur fundur
sveitarstjórnarmann í Suður-
Þingeyjarsýslu, Kelduhverfi og
Húsavík, haldinn á Húsavík 18.
sept. sl, samþykkti áskorun á
Flugfélag Islands að fjölga nú
þegar flugferðum á Aðaldals-
flugvöll og að flogið yrði beint á
milli Reykjavíkur og Húsa-
víkur. (Aðaldals)
1 því sambandi bendir
fundurinn á, að samkvæmt
upplýsingum umboðsmanns
Flugfélags tslands á Húsavík
varð mest aukning á farþega-
fjölda á þessari flugleið, það
sem af er þessu ári.
Fundurinn fagnaði þeim fjár-
veitingum, sem þegar eru
ákveðnar til lýsingar og
lengingar á flugbraut á Aðal-
dalsflugvelli. Jafnframt benti
fundurinn á knýjandi þörf
fyrir byggingu flugstöðvar á
vellinum, þar sem núverandi
hús þar er með öllu óviðunandi.
Þá benti fundurinn á brýna
nauðsyn þess að girða völlinn
vegna slysahættu af umferð
skepna.
Framangreindum fram-
kvæmdum verði hraðað eftir
því sem mögulegt er.
friðað allt árið, og virtu tslend-
ingar það, enda mikilvægar upp-
eldisstöðvar. Þarna væru brezku
togararnir i stórhópum og mok-
uðu upp kóðinu.
„Því miður,“ sagði Guðjón, „þá
er ástandið nú þannig, að það er
helmingi verra en þegar herskip-
in voru fyrir innan 50 mílurnar. Á
meðan herskipin voru fyrir innan
50 mílurnar voru togararnir alltaf
i smá hópum, friðaða svæðið var
virt, og þá gerðu varðskipin þeim
einnig lífið leitt. Okkur tók það
sárt að sjá varðskipið Ægi láta
reka inni i miðjum togarahópnum
í gær. Þeim er víst bannað að
hafast nokkuð að, varðskipsmönn-
unum.“
„Hvernig var það, sagði Ölafur
Jóhannesson ekki i bréfi sinu til
Heath, að islenzkum lögum yrði
framfylgt eins og áður, skömmu
áður en hann fór út til viðræðna
við hann. Hér hefur engum is-
lenzkum lögum verið framfylgt,
og það er ekki nóg með það, að
Bretarnir moki upp kóðinu á frið-
aða svæðinu, heldur þverbrjóta
þeir allar siglingareglur um
þessar mundir," sagði Guðjón að
lokum.
31. þing Iðn-
nemasambands
Islands
Þetta er hljómsveit Félags Islenzkra hljóðfæraleikara, en hún leikur lögin f trimmdægurlagasamkeppn-
inni á Hótel Sögu f dag. Þetta er hljómsveit Félags fslenzkra hljóðfæraleikara, en hún leikur f
trimmdægurlagasamkeppninni á Hótel Sögu f dag.
Bein útsending frá
lagasamkeppninni
trimm-
dag
Trimmdægurlagakeppnin er nú
að komast á lokastig. Á sunnudag-
inn á milli kl. 15 og 17 verður bein
útsending frá Súlnasal Hótel
Sögu, og verður svo næstu fjóra
sunnudaga. Atkvæðaseðlar munu
birtast í öllum dagblöðunum á
sunnudaginn, þannig að allir
landsmenn eiga að geta tekið þátt
í átkvæðagreiðslunni um bezta
lag keppninnar.
Sunnudagssiðdegið er tilvalið!
tækifæri fyrir fjölskylduna að
skreppa i Súlnasalinn á Sögu, fá
sér kaffi og hlusta á hljómsveit
Félags íslenzkra hljóðfæraleikara
leika úrslitalögin en þau eru á
milli 40 og 50.
31. ÞING iðnnemasambands Is-
lands var sett á Hótel Sögu á
föstudag. Mættir voru 94 fulltrú-
ar viðs vegar að. Formaður sam-
bandsins, Rúnar Bachmann, flutti
setningarræðu og fjallaði um þau
mál, sem fyrir þinginu Iiggja, m.a.
skipulagsmál sambandsins, kjara-
mál og félagsmál ásamt iðn-
fræðslu.
Siðan ávarpaði Magnús Torfi
Ólafsson menntamálaráðherra
þingið og fjallaði um skipan
verkmenntunar og fyrirhugaðar
breytingar á iðnfræðslumálum,
Kvað hann mikils vænzt af starfi
nefndar, sem vinnur að
endurskoðun á iðnfræðsiulögum,
og sagðist vonast til, að hægt yrði
að leggja niðurstöðurnar fyrir
yfirstandandi Alþingi.
Þingstörfum var síðan fram
haldið með umræðum um skýrslu
stjórnar og afgreiðslu reikninga.
Forseti þingsins var kjörin
Hörður Harðarson, húsgagna-
smíðanemi. Þinginu lýkur á
sunnudagskvöld með stjórnar-
kjöri.
Frumvarp sjálfstœðismanna:
Happdrœttisskuldabréf
vegna
Fimm þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, þeir Eyjólfur Konráð
Jónsson, Gunnar Gfslason, Lárus
Jónsson, Friðjón Þórðarson og
Matthfas Á. Matthiesen, hafa
flutt á Alþingi frumvarp tii laga
um, að rfkissjóður gefi út happ-
drættisskuldabréf að upphæð allt
að 800 milljónir króna til sölu
innanlands á næstu árum. Fé þvf,
sem þannig yrði aflað, yrði varið
til að standa undir kostnaði af
uppbyggingu Norðurlandsvegar
milli Akureyrar og Reykjavfkur.
I greinargerð með frumvarpinu
segir:
„Vegna vaxandi bifreiðaumferð-
ar finna landsmenn allir nú fyrir
því, hve ófullkomið vegakerfi
landsins er. Þrátt fyrir miklar
vegaframkvæmdir s.l. áratug eru
allir sammála um nauðsyn þess,
að Jiær_þurfi enn að auka og
afla til þeirra meira fjár. Þegar
ákvörðun var tekin um gerð vegar
á Skeiðarársandi, var jafnframt
ákveðið til útboðs happdrættis-
skuldabréfa. Framkvæmdum á
Skeiðarársandi lýkur á næsta ári,
og þá er eðlilegt, að.við taki nýtt
stórátak við vegagerð, og rétt að
nota þá fjáröflunarleið, sem felst
í útgáfu happdrættisskuldabréfa.
Fullnaðaruppbygging vegarins
milli Akureyrar og Reykjavíkur
er álíka kostnaðarsöm fram-
kvæmd og vegagerðin á Skeiðar-
ársandi. Um það bil 200 km af
þessari leið hafa ekki verið end-
urbyggðir á síðari árum, og má sá
vegur víða heita nær ónýtur mið-
að við þann umferðarþunga, sem
á honum hvílir nú. Samkvæmt
upplýsingum vegamálastjóra er
meðalkostnaður við uppbyggingu
hvers kólómetra milli 3 og 5
milljónir króna, þannig að
heildarkostnaður við þessa fram-
kvæmd yrði væntanlega ekki
fjarri 800 milljónum, miðað við
núgildandi verðlag. Þar að auki
er kostnaður við endurbyggingu
brúa um 250 millj. kr., en sá
kostnaður fengist væntanlega
greiddur með fé skv. Norður-
landsáætlun.“
Síðan segir:
„Eðlilegt er, að meira fjár-
magns sé aflað til opinberra fram-
kvæmda með lántökum hjá al-
menningi en hingað til hefurtíðk-
azt. Ríkisvaldið slær þá ekki
eignarhaldi á fé manna, heldur
tekur það að láni. Skattheimta
verður þannig léttbærari, og eign- .
ir alþýðu verða meiri en ella.
Vegamálin eru það svið op-
inberra framkvæmda, sem al-
menningur hefur einna mest-
an áhuga á. Þess vegna er
auðveldast að afla fjár til
þessara framkvæmda með
skuldabréfaútgáfu. Ef útgáfa
þeirra bréfa, sem hér er gert ráð
fyrir, gengur vel, má hefja ný
útboð vegna annarra vegafram
kvæmda.“
Klukkustrengir Jökuls
sýnt í Þjóðleikhúsinu
Margareta Jonth
Sænsk óperusöngkona í Norræna húsínu
SÆNSKA óperusöngkonan
Margareta Jonth heldur tónleika
í Norræna húsinu n.k.
mánudagskvöld 22. oltóber.
Margareta er ung og mjög efnileg
söngkona og hefur bæði numið
söng í Sviþjóð og Vínarborg.
Hún hefur tvisvar unnið
verðlaun í alþjóðasöngkeppni i
Wales og ennfremur hefur hún
unnið marga námsstyrki.
Söngkonan er fædd í Dölunum í
Sviþjóð og á efnisskrá hennar er
jafnan margt þjóðlaga þaðan.
Einnig hefur hún sungið mikið af
rómönskum m.a. eftir Gunnar de
Frumerie, A.F. Lindblad og Ivar
Widéen.
Á tónleikunum í Norræna
húsinu mun Margareta Jonth
syngja þjóðlög úr Dölunum og
syngur hún þau án undirleiks.
Einnig mun hún syngja lög eft-
ir Stenhammar, Söderman,
Peterson-Berger og fl. við
undirleik Guðrúnar Krist-
insdóttur.
Tónleikarnir hefjast kl. 20,30
og verða aðgöngumiðar seldir við
innganginn.
Leikritið Klukkustrengir eftir
Jökul Jakobsson, verður frum-
sýnt í Þjóðleikhúsinu um næstu
mánaðamót, og er það f fyrsta
sinn, sem verk eftir Jökul er sýnt
f Þjóðleikhúsinu. Klukkustrengir
var frumflutt hjá Leikfélagi
Akureyrar á liðnum vetri.
Leikendur eru sjö: Röbert
Arnfinnsson, Kristbjörg Kjeld,
Bessi Bjarnason, Sigrún Björns-
dóttir, Jón Júlíusson, Randver
Þorláksson og Þóra Lovísa Frið-
leifsdóttir.
Leikstjóri er Brynja Benedikts-
dóttir, en leikmyndir og búninga-
teikningar gerðu Þorbjörg
Höskulsdóttir og Gunnar Bjarna-
son.
Fimm leikrit Jökuls hafa verið
sýnd hjá Leikfélagi Reykjavíkur
við miklar vinsældir: Pókók, Hart
f bak, Sjóleiðin til Bagdad, Sum-
arið ’37 og síðast Dóminó á liðnu
leikári. Ennfremur hefur Jökull
skrifað leikrit fyrir útvarp og
sjónvarp.
Jökull Jakobsson.
TOGARANNA