Morgunblaðið - 21.10.1973, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 21.10.1973, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÓBER 1973 3 Hjúkrunarkonur á Norðurlöndum: Við þurfum að ræða meira við sjúklingana Samvinna hjúkrunarkvenna á Norðurlöndum hélt árlegan full- trúarfund sinn í Skövde f Svfþjöð dagana 18.-21» september s.l. f samtökunum eru 130 þúsund félagar, og að þessu sinni var höfuðviðfangsefni fundarins ,rstaða og verksvið hjúkrunar- konunnar f þjóðfélagi framtfðar- innar“. Af Islands hálfu sátu fundinn 9 fulltrúar, en alls voru þátttakend- ur 75 frá öllum aðildarfélögum, auk þess eins fulltrúa frá Norður- landaráði. Fundurinn lagði ríka áherzlu á nauðsyn þess, að hjúkrunar- konunni gæfist meiri tími til sam- ræðna við sjúklinginn, þar sem samtal við hinn sjúka væri ótrú- lega stór þáttur f afturbata hans, hver svo sem hinn upprunalegi sjúkdómur væri. Þegar rætt var um framhalds- menntun og æðri menntun, mótuðust umræður af þvi, að Norðurlöndin, að Islandi undan- skildu eiga framhaldsskóla í hjúkrunarfræðum. Rætt var um, að í þeim skólum þyrfti að kenna meira í þjóðfélagsfræði og stjórnunarfræði og leggja meiri áherzlu á rannsóknir innan hjúkrunar. Var fundurinn sammála um, að hjúkrunarkonur, sem ynnu að rannsóknum, ættu Júlíus T. Júlín- usson látinn JULIUS T. Júníusson, fyrrv. skipstjóri. er látinn, tæplega 96 ára að sldri. Júlfus Iauk skipstjórnamámi í Danmörku 1902 og var síðan á dönskum skipum til 1910 og á skipum Thorefélasins til 1915, að hann tók við Goðafossi nýjum 1915. Var hann sfðan með Selfoss ogLagarfoss og loks Brúarfoss frá 1925 til 1940. Fór hann þá I land og vann síðan hjá Sjóvátrygg- ingarfélaginu í 20 ár. Með fyrri konu sinni, Dagmar Ibsen, átti hann tvö börn, sem búa í Danmörku. Siðari kona hans, Katrín Söebeck, er látin fyrir nokkrum árum. að hafa háskólamenntun sem og aðrir sem að rannsóknum störfuðu. Lögð var áherzla á, að hjúkrunarkonur kynntu sér þessar rannsóknir og hagnýttu sér þær I starfi í sjúkra- og heilsu- gæzlustofnunum. I einni af samþykktum fundarins segir m.a.: Hin öra þróun innan heilbrigðisþjón- ustunnar krefst sífellt fjölþættari og sérhæfðari hjúkrunar, án þess að hjúkrunarkonum fjölgi veru- lega í starfi. Þetta veldur óeðli- lega miklu vinnuálagi, sem svo fælir frá störfum. Þennan víta- hring verður að rjúfa með veru- legum umbótum bæði I launa- málum og allri aðstöðu. Verður þetta væntanlega viðfangsefni fulltrúafundarins, er verður haldinn f Danmörku að ári liðnu. Formaður samtakanna var kosin Gerd Zetterstöm Lagerwall frá Svfþjóð. TWIN OTTER TIL MÝVATNS Sunnudaginn 30. sept. s.l. lenti 19 sæta flugvél frá flugfélaginu Vængjum á flugvellinum hjá Reykjahlíð, eftir liðlega klst. fTug frá Reykjavík. Þar sem eitthvað var búið að spyrjast um væntan- lega komu vélarinnar, var tölu- verður hópur fólks staddur á flug- vellinum. Eftir skamma dvöl var öllum viðstöddum boðið I sérstakt skoðunarflug yfir Mývatnssveit, Alls voru farnar þrjár slíkar ferð- ir. Flogið varsunnan Kálfaströnd, sfðan norður yfir Dimmuborgir, Hverfjall og Kísilíðju. Fæstir höfðu áður séð Mývatns- sveit úr lofti, og þótti fróðlegt að horfa yfir vatnið, eyjar og hólma, víkur, voga og nes, úfið hraunið með mörgum gróðurblettum á vfð og dreif, og hinum fjölbreytilegu litum haustsins. Þarna fóru líka sumir sína fyrstu flugferð. Að lokum þessum skemmtilegu skoðanarferðum, bauð Arnþór Björnsson hótelstjóri f Reynihlíð, áhöfn vélarinnar, farþegum, sem komu frá Reykjavfk, svo og nokkrum öðrum til kaffidrykkju. A meðan þáðar voru rausnar- legar veitingar í hótelinu, kom m.a. i ljós, f viðræðum við flug- mennina og fleiri, að flugvél þessi er af gerðinni TWIN OTTER. Hún þarf ekki nema 250 til 300 metra langa flugbraut fulllestuð, og getur jafnvel lent á miklu styttri braut. Þá reynist ekki heldur þörf á að bera sand á flug- brautir fyrir hana þótt hálka sé. Með komu þessarar flugvélar hingað, og af margskonar upplýsingum um hagkvæmni hennar, vaknar sú spurning, hvers vegna ekki hafi á undan- förnum árum verið hafnar neinar ferðir hingað frá Reykjavík, á mesta ferðamanna tfmanum, t.d. yfir sumarmánuðina? Farþegar, sem koma flugleiðis frá Reykja- vík og ætla að Mývatni, verða að lenda á Akureyri og aka þaðan á 1 bifreiðum. Sú ferð getur oft tekið 5 til 6 klst. fram og aftur. Sýnist nú ekki full ástæða til að fara að breyta þvf ferðakerfi, sem gilt hefur í þessum efnum um marga ára skeið, og taka upp hag- kvæmari og jafnframt miklu fljót- legri ferðir milli þessara enda- staða, þ.e. Reykjavíkur — Mý- vatns, sem sé fullnýta flug- tæknina? Vonandi kemst sú endurskipan fljótlegaí framkvæmd. Að lokum, þakkir til forráða- manna flugfélagsins Vængja fyrir komuna hingað og ánægjulega flugferðyfir Mývatnssveit. Fréttaritari. Dilkakjöt í neytendaum- búðum til Bandaríkjanna Samband fslenzkra samvinnu- félag hóf útflutning á dilkakjöti f neytendaumbúðum til Banda- rfkjanna f fyrra. Þá voru fluttar út 20 lestir til reynslu, og Ifkaði dável. Nú eru horfur á að 100 lestir af dilka- kjöti í neytendaumbúðum verði fluttar á Bandarfkjamarkað f haust, og eru forráðamenn búvörudeildar S.l.S. bjartsýnir á þennan útflutning. Þá er gert ráð fyrir, að um 3000 festir af difka- kjöti verði seldar til Norðurland- anna og er búist við verðhækkun- um á þeim mörkuðum. Skúli Ólafsson hjá búvörudeild S.I.S. sagði í viðtali við Morgun- blaðið í gær, að Sambandið hefði hafið útflutning á svonefndu stykkjakjöti f neytendaumbúðum í fyrra. Alls voru þá fluttar út 20 lestir í loftþéttum umbúðum og fór allt magnið á Bandankja- markað. Með því að sneiða kjötið niður f neytendaumbúðir hér heima fæst betra verð fyrir það erlendis en ella, og er vonast til að þetta eigi eftir að gefa góða raun. Nú vonast Sambandið til að hægt verði að flytja um 100 lestir af þessu kjöti til Bandaríkjanna f haust. Sagði Skúli, að reiknað væri með, að um 3000 lestir af dilka- kjöti yrðu seldar á Norðurlanda- markað. Varla fer það kjöt út fyrr en um áramót, því þá taka gildi sérstakar tollaívilnanir á íslensku lambakjöti. Að þessu sinni er gert ráð fyrir, að um 1500 lestir fari til Noregs, 500—600 lestir til Sví- þjóðar, 300—400 lestir til Dan- merkur og 500—600 lestir til Fær- eyja. Ekki er enn vitað með vissu hve miklar verðhækkanir verða á kjötinu á Norðurlöndunum, en vonast er til, að þær verð nokkrar. Fyrir nokkrum árum gerði Sambandið tilraunir með útflutn- ing á nýju lambakjöti. Var kjötið þá flutt út með flugvélum og í sérstökum kæliklefum með skip- um. Fyrst í stað beindist þessi tilraun að Bandarikjunum, en þar Vegna fréttar í Morgunblaðinu í gær um ferðakostnað tveggja alþingismanna hafði Jónas Áma- son, alþm. samband við blaðið og óskaði að koma á framfæri nokkr- um athugasemdum. I frétt Mbl. er það haft eftir Jóni Arnalds, ráðu- neytisstjóra, að kostnaður við f erðir Jónasar Árnasonar til Bret- lands hafi verið greiddur af sjávarútvegsráðuneytinu. Al- þingismaðurinn kvaðst vilja benda á, að ekki væri þetta ein- hlítt. I janúarmánuði sl. fór Jónas Amason til Bretlands til þess að taka þátt í sjónvarpsþætti hjá sem hún gafst ekki vel þar, sneru menn sér að Evrópu. Ekki gafst þessi tilraun heldur vel þar, og ástæðurnar fyrir því eru margar. Kjötið var yfirleitt selt til Ham- borgar og Berlínar. Þegar þangað kom, þurfti það að fara í gegnum tolleftirlitið. Tók það oft langan tíma, þannig að gæði kjötsins voru oft orðin lítil þegar það kom i verzlanir. ET kjötið átti að halda sinum gæðum, varð að selja það innan tveggja sólarhringa eftir að það fór frá Islandi, en það var yfirleitt eins sólarhrings gamalt er það fór héðan. London Weekend Television. Sjónvarpsstöðin greiddi allan kostnað við þá ferð þingmanns- ins. I vor kvaðst hann hafa farið í viku fundaferðalag um háskóla I Bretlandi ásamt „vinum Islands", sem eru samtök stuðningsmanna Islendinga þar I landi og var farið á þeirra bílum og þar með á þeirra kostnað. Fyrir nokkru voru þeir Bene- dikt Gröndal og Jónas Amáson á ferð í Grimsby, þar sem þeir mættu á fundi. Samhliða tók Jónas Amason þátt í sjón- varpsþætti hjá Yorkshire Tele- visrnn. Framhald á bls. 2 3 Ferðakostnaður Jónasar LlTIL SAGA, UM LlTINN MANN SEM VILDI FA IS.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.