Morgunblaðið - 21.10.1973, Side 4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKT0BER 1973
22 0-22-
RAUÐARÁRSTIG 31
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
© 21190 21188
tel 14444*25555
BÍLALEIGA car rental
BÍLALEIGAN
felEYSIR
CAR RENTAL
*24460
Í HVERJUM BÍL
PIOIMŒŒJR
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI
BlLALEIGA JÖNASAR & KARLS
Ármúla 28 — Sími 81315
SAFNAST ÞEGAR
. SAMAN
^ SAMVINNUBANKINN
MARGFALDAR
MARGFALDAR
11
MARGFALDAR
mmw
Kaup-
maðurinn
minn
Um leið og hurðin opnast,
hringir lítil bjalla einhvers
staðar lengra inni í húsinu, sem
er stórt. Búðin er á horninu
þar, þrjár götur mætast við
stórt torg.
Margir bekkir eru á torginu.
Þar situr fólk og rabbar saman
í sólskini dagsins.
Kaupmaðurinn kemur fram I
búðina úr litlu herbergi —
skrifstofu innar af aðalbúðinni.
Hann er í fannhvítum, hrein-
um sloppi, sem virðist skipt um
daglega. Þetta er fremur gild-
vaxinn maður, virðulegur í fasi,
broshýr á svip, lipur í hreyfing-
um, ljós yfirlitum, hárið næst-
um hvitt en dökkar brúnir yfir
björtum vingjarnlegum augum
gefa andliti hans persónulegan
blæ.
Hann er á að gizka um fimm-
tugt. Hann gengur inn fyrir
búðarborðið, sem er þannig
sett, að hann snýr þá baki að
glugganum, en viðskiptavinur-
inn horfir út um gluggann með-
an hann borgar fyrir vörur sín-
ar.
Ilmandi vfnarbrauð, fagur-
skreyttar ölflöskur, ávextir,
jarðarber, mjólk og margar
brauðtegundir þekja hillur og
borð. Viðskiptavinir velja sjálf-
ir. Rétta kaupmanninum, sem
brosir hlýtt við öllum og vegur,
reiknar, mælir og býr um vam-
inginn. Stundum eru margir
inni, en einhvern veginn tekst
kaupmanninum að segja nokk-
ur vinaleg orð við alla eða
flesta.
Lítilli telpu, sem er í vand-
ræðum með að velja eða muna,
hjálpar hann að velja hið rétta,
man það eða veit.
Dreng, sem hefur týnt aurum
og er gráti nær, gefur hann
köku og sendir hann af stað að
leita, og vonum bráðar kemur
hann aftur með aurana, sem
höfðu bara verið í öðrum vasa.
Gömlum skjálfhentum manni
hjálpar hann að telja aurana.
Og aldraða konu með staf styð-
ur hann niður tröppurnar, sem
reyndar eru aðeins þrjár.
Allt þetta gerist svo auðveld-
lega og eðlilega, eins og ekkert
sé sjálfsagðara. Það örlar
hvorki á vantrausti né um-
kvörtunum. Allir virðast
ánægðir og í sólskinsskapi.
Einhver vill fá að drekka öl-
flösku inni í búðinni. En sam-
þykkt borgarinnar leyfir það
ekki, segir kaupmaðurinn. Hins
vegar velkomið að fá flöskuna
lánaða út á bekkinn undir
trjánum í sólskininu. Skila
henni aftur seinna. Og maður-
inn bregzt ekki þessu glaða,
barnslega eða barnalega trausti
þessa hreinskilna, glaðlega
kaupmanns.
Allt er svo lifandi, eðlilegt án
alls skugga. Meira að segja pen-
ingamir verka eins og gjafir
fremur en gjald og vamingur-
inn verður svo góður, hvergi
betri vínarbrauð, hvergi gyllt-
ara öl.
Af hverjuAf hverju?
Það veit enginn. Er það andi
og sál kaupmannsins, sem er
svo hreinn, hugsunarsamur,
fórnfús og tillitssamur við alla,
sem veldur þessum vorblæ og
birtu í búðinni hans?
Þarna hefur kaldur,
ópersónulegur gustur kaldrar
kröfu ekki enn numið land.
Kaupmaður og kaupandi eru
fyrst og fremst manneskjur,
ekki hluti af reiknivél eða
verzlunarbók, ekki númer á
nafnskirteini, heldur nöfn, fólk
með sinn svip, sfna sál, sinn
smekk, sína aðild og rétt til
lífsins.
Samt er þetta í borg, miðri
stórborg, en það gæti verið úti f
sveit á Islandi, allt nema ölið og
vínarbrauðin.
En er ekki þarna eitthvað,
sem er að týnast, en ekki má
glatast úr mannlegum viðskipt-
um, eitthvað sem gerir jafnvel
nýlenduvörubúð að helgidómi
hreinleikans og ástúðarinnar.
Kaupmaðurinn minn er ekki á
íslandi og ég veit ekki hvað
hann heitir.
BRIDGEKLCBBUR
AKRANESS
Akranesi 12. okt. 1973.
Aðalfundur Bridgeklúbbs
Akraness var haldinn 10. sept.
s.l. Stjórn klúbbsins var endur-
kjörin, en hana skipa:
Guðmundur Bjarnason formað-
ur, Ólafur Grétar Ólafsson rit-
ari og Guðjón Guðmundsson
gjaldkeri.
Fyrsta mót vetrarins var
firmakeppni (einmennings-
keppni) sem 36 fyrirtæki tóku
þátt í. Efstir urðu:
Prentverk Akraness h /f.
Þórður Elíasson ........
Gler & Málning s/f.
Valur Sigurðsson .......
Síldar- og fiskimjölsverksm.
Hörður Jóhannesson .....
Olíufélagið h/f.
Skúli Þórðarson ........
Akraness Apótek
Leó Jóhannesson ........
Skagaver h/f.
Jón Alfreðsson ..........
Verkfræði- og teiknistof an
Guðjón Guðmundsson......
Verslunin Oðinn
Verslun Helga Júliussonar
Eiríkur Jónsson ..........211
örin h/f.
Ami Bragason..............205
Haförn h/f.
Bent Jónsson..............205
Sjóvá
Ólafur G. Ólafsson .......203
Meðalskor var 198 stig
25. október hefst 3ja kvölda
tvímenningskeppni.
Staðan 1 sameiginlegri keppni f
.241 tvímenning hjá Bridgefélagi
Hveragerðis og Bridgeféiagi
.227 Seifoss eftir 2. umferð 10. okt.
.227 stig
Sigfús — Vilhjálmur 253
.218 Höskuldur — Sigurður
Sfmon 247
.218 Skafti — Jón 237
Kristján — Þórður 237
.218 Þórður — Kjartan 235
Kristmann —Sigurður 234
.214 Gunnar — Gfsii 234
Larsen — Grfmur 232
.211 Nfels — Jón 226
Axel — Sigurlína 216
Leif — Valgerður 214
Næsta umferð verður spiluð f
Hótel Hveragerði miðvikudag-
inn 17. okt. 1973.
Frétt frá Bridgenefnd
Héraðssambandsins Skarphéð-
ins.
Hinu árlega bridgemóti
H.S.K. lauk í marz sl. 1 móti
þessu, sem er í sveitakeppnis-
formi, tóku þátt 8 ungmenna-
félög, sem sendu eina sveit
hvert félag. Fyrst var spilað í
riðlum og komust sigurvegarar
riðlanna í úrslit. Eftirtalin
félög komust í úrslit: UMF
Selfoss, UMF Hrunamanna og
UMF Baldur, Hvolhreppi.
1 úrslitakeppninni sigraði svo
sveit Selfyssinga, annað árið f
röð. Áður hafa sigrað i þessu
mót UMF Laugdæla og UMF
Eyfellingur.
Á sambandsþingi H.S.K. var
samþykkt að allar íþróttanefnd-
ir hjá sambandinu skuli halda
fund með sfnu íþróttafólki á
tímabilinu okt.-nóv. ár hvert,
svo nú mega bridgemenn eiga
von á fundi á næstunni.
Sl. mánudag Iauk tvf-
menningskeppni Bridgefélags
Hafnarfjarðar. Spilaðar
voru fimm umferðir og varð
staðaefstu para þessi:
Bjartmar Ingimarsson —
Þröstur Sveinsson 924
Agúst Helgason —
Kristján Andrésson 904
Jóhannes Gíslason —
Þórarinn Zóphusson 883
Albert Þorsteinsson —
Kjartan Markússon 881
Hörður Þórarinsson —
Sævar Magnússon 875
Næsta keppni félagsins verður
sveitakeppni og hefst hún á
morgun, mánudag. öllum er
heimil þátttaka og fer skráning
fram sama kvöld og eru þátttak-
endur beðnir að mæta tíman-
lega til skráningar, þar sem
áætlað er að hefja keppnina
klukkan20
A.G.R.
Tj
JJJiJJJ
TlU vinsælustu Iögin á fslandi þessa vikuna eru, samkvæmt
útreikningum þáttarins „Tfu átoppnum":
1 (1) Letmein .................................Osmonds
2 (5) Angie .............................Rolling Stones
3 (-) Half-breed .................................Cher
4 ( -) Paper roses.......................Marie Osmond
5 (3) Saturday night....................Bay City Rollers
6 (2) Jibbýjey..............................Svanfríður
7 (-) Life ain’t easy.........Dr. Hook & Medicine Show
8 ( -) My friend Stan.......................... Slade
9 (7) Bad, bad boy ..............................Nazareth
10 (-) Angel fingers..............................Wizzard
Af iistanum féllu fimm iög:
I didn’t know — Maggi Kjartans (4); Monster mash — Bobby
Pickett & Crypt Kickers (6); Feeiin’ stronger every day —
Chicago (8); Stealin’ — Uriah Heep (9) og Goodbye Yellow
Brick Road — Eiton John (10).
Nýju lögin fimm eru:
11 Top of the worid.............................Carpenters
12 I know it’s true.........................Maggi Kjartans
13 Joe the mad rocker...............„.Jóhann G. Jóhannsson
14 My Marie................................B. W. Stevenson
15 Ooh baby..............................Gilbert O’Suliivan
Sú breyting hefur verið gerð á efnismeðferð þáttarins „Tfu á
toppnum", að nú koma lög af stórum plötum jafnt tii greina sem
iög af litium piötum og hámarks seta hvers lags á listanum
verður takmörkuð við sex vikur. „Þetta er gert til að gefa nýjum
lögum meiri möguleika á að komast á listann og gera hann
frfsklegri," sagði Öm Petersen, stjórnandi þáttarins, 1 viðtali
við Mbl. um breytingarnar.