Morgunblaðið - 21.10.1973, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 21. OKTÖBER 1973
11
Þetta er rétt, svo langt sem það
nær, fólk vil láta blekkjast, það
er nokkurs konar tortímandi
ástríða hjá fólki, sem ekki þorir
að horfast í augu við raunveru-
leika umhverfisins, finna fegurð
og ljótleika hans hrfslast um til-
finningalíf sitt. Þetta er allt önn-
ur aðferð en sú að koma á fram-
færi ferskum skilningi á almenn-
um hlutum og fyrirbærum í um-
hverfinu, bregða nýju og óvæntu
ljósi á gamalkunn viðfangsefni,
eins og sagt er; „koma mönnum
með klækjum listar til að hugsa
og álykta sjálfir um mikilsverð
efni“, í þessu tilviki á vettvangi
sjónlista.
Sem betur fer er Sverrir ekki
jafnan trúr þessum áðurnefnda
framslætti sínum, það sýna ýmsar
teikningar hans, en teiknari hef-
ur hann alltaf slyngur verið, svo
og nokkur málverk í stóra saln-
um, hnitmiðaðar og ferskar í lit,
og þær myndir blekkja vissulega
engan með óbrenglaðar kenndir.
En vissulega er Sverrir að-
dáunarverður meistari blekking-
anna i flestum hinum nýrri
mynda sinna, en ég segi fyrir mig,
að ég hafna þessum skilningi á
myndlist, þær höfða ekki til mfn
sem frjó átakamikil list, heldur
sem ófreskt ferðalag inn á svið
myndheimsins með „flínka hönd“
f malnum.
Teikningar
Alfreðs Flóka
í Bogasal
Alfreð Flóki hefur enn einu sinni
lagt undir sig Bogasalinn og fyllt
hann súrrealistfskri furðuveröld
sinni, dárum, drísildjöflum og
hvers konar miðaldamagík, fögr-
um saklausum ungfrúm með
blygðunarlausa erótíska dag-
drauma „upp á hvurn sinn ffng-
ur“, ellegar syndina og hamslausa
ástina holdi klædda. Allt eru
þetta „mótív" sem við þekkjum
frá fyrri sýningum Flóka, og er
þessi sýning á ýmsan hátt lítt frá-
brugðin þeim, og visa ég til þess,
að ég hef tvisvar fjallað um fyrri
sýningar hans. Konan og girndir
hennar f umbúðalausum súrreal
istískum ramma og súrrealistíski
draumurinn eru mótfv hans, og
draumurinn er vissulega engin
blekking, heldur hluti veruleik-
ans. Flóki hefur jafnan bætt við
sig tæknilega séð, en honum vildu
fylgja ýmsir kækir og vanavinnu-
brögð, sem hann átti bersýnilega
erfitt með að sigrast á. Það er
þeim mun gleðilegra að uppgötva
á þessari sýningu, að hann er á
góðri leið með að yfirvinna þessa
fylgju, og að myndheimur hans er
orðinn heilsteyptari og um leið
ferskari, eins og hann hafi
losað sig við þær viðjar þó þeirra
sjái stað f sumum verkanna. Ég
mundi því, persónulega, ekki
mæla með neinu hliðarstökki af
hálfu Flóka, heldur að hann haldi
áfram að rækta sinn garð, en eins
og ég hefi fyrr bent á, væri hon-
um mikill akkur í þvf að hasla
þessum myndheimi sínum völl í
annarri tækni, svo sem málmæt-
ingu, þurrnál og öðrum tegundum
kopargrafík og jafnframt í stein-
þrykki.
Þrjár pennateikningar vöktu
einkum athygli mína fyrir heil-
steypta og magíska útfærslu, en
það voru myndirnar „Dularfulla
eggjakakan" (14), „Hreiður"
(21) og „Sendiboði prinsessunn-
ar“ (22), en allar eru þær heilli
og áhrifaríkari en aðrar penna-
teikningar, sem ég hefi áður séð
frá hans hendi. Þá er rauðkrítar-
myndin „Dreymt andlit“ (34)
einnig í þeim flokki.
NmnRGfnionR
IRflRKflfl VOflfl
Prlönakonur - Halnarflrm
Peysumóttaka okkarflutt að Blómvangi 5.
Móttaka ermánud. og miðvikud. milli kl. 3 — 5. Uppl. í
síma 22091.
Álafoss h.f.
Reykvlklngar - Halnflrmngar
Um 500 fm. húsnæði er til leigu nú þegar í Hafnarfirði.
Uppl. veitir Kristján Þór Kristjánsson i síma 99-6973
(Vestmannaeyjum). á mánudag og þriðjudag.
Vélsmiðjan Magni h.f.
Vestmannaeyjum.
(®) ALLTAF FJÖLGAR VOLKSWAGEN
VOLKSWAGEN1303
ÁRGERD 1974
Þægindi eiga ekki að vera forréttindi þeirra sem kaupa dýra
bíla. Þess vegna erV.W. 1303 búinn öllum þeim kostum,
sem gera aksturinn skemmtilegan og þægilegan.
Hinn frábæri fjöðrunarbúnaður, auðveldar akstur á holótt-
um og slæmum vegum, og veitir aukið öryggi.
Framstólana er hægt að stilla í 77 mismunandi stöður, —
svo þér eigið að geta látið fara vel um yður.
Mælaborðið er stílhreint, fallegt, auðvelt aflestrar, og
bólstrað eins og í dýrustu gerðum fólksbíla.
Kraftmikið fersklofts og hitunarkerfi, sem hægt er að stilla
saman, eða nota hvort fyrir sig. Fjölmargar stillingar á
báðum kerfunum tryggja hreinar rúður og óhindrað útsýni.
Hituð afturrúða. Óbrjótanlegt gler í framrúðu -— laminated
— Stórt Farangursrými, — að framan og aftan er það
næstum 400 litra.
V.W. 1 303 er ódýr bíll í innkaupi og hagkvæmur í rekstri,
— V.W. þjónusta, erörugg þjónusta.
HEKLAhf
laugavegi 170—172 — Sími 21240.
Tölvustýrður bilanagreinir.
Vandaður og kraftmikill bfll.
^ I ■
Gott farangursrými.
FRA KR.: 422.100.-
Þægilegir, stillanlegir framstólar.
Fersklofts- og hitunarkerfi.
LÆKKAÐ VERÐ —
Vandaður frágangur.
Stór og kúpt framrúða, frábært útsýni.