Morgunblaðið - 10.11.1973, Page 1
32 SIÐUR
254. tbl. 60. árg.
LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Kosið í Dan-
mörku 4. des.
Kaupmannahöfn, 9. nóv., NTB.
ANKER Jörgensen forsætisráð-
herra Danmerkur hefur ákveðið,
a3 nýjar þingkosningar verði
haldnar í landinu þann 4. desem-
ber, en danska stjórnin féli f gær,
svo sem frá hefur verið sagt,
þegar ekki náðist tilskilinn meiri-
hluti um skattafrumvarp hennar.
Fréttaskýrendur í Kaupmanna-
höfn draga mjög i efa skýringu
Erhards Jacobsens á fjarvist
hans f þinginu í gær, sem varð til
þess að stjórnin féll.
Skoðanakönnun, sem var gerð
þenn 1. nóvember í Danmörku,
Auden
vildi
bréfin
brennd
W.H.AUDEN, skáldið heims-
fræga, sem Iézt nú í haust,
mælti svo um áður en hann
lézt, að vinir hans brenndu öll
bréf, sem hann hefði sent
þeim. Þetta kemur fram f
grein í Times Literary
Supplement eftir vin Audens,
Stephen Spender, skáld.
Mun það hafa verið tilgang-
ur Audens með þessum fyrir-
mælum að gera hugsanlega rit-
un ævisögu sinnar torveldari.
leiddi í ljós, að jafnaðarmenn
njóta stuðnings27% kjósenda eða
10% minni en við kosningamar
1971. Nokkur fylgisaukning hefur
orðið hjá íhaldsflokknum,
Venstre og Radikale Venstre, en
SF hefur tapað 2.9% atkvæða. Þá
kváðust 15% styðja Framfara-
flokk Mogens Glistrup. Þess ber
að geta, að þessi skoðanakönnun
var gerð áður en Erhard Jacobsen
tilkynnti, að hann ætlaði að
stofna nýjan flokk, og er búizt við,
að hann dragi til sín atkvæði frá
Glistrup.
Dönsk biöð skrifa mikið um fall
stjórnarinnar í dag og ber saman
um, að kosningabaráttan muni
einkennast af þeirri ólgu, sem
hefur verið í dönskum stjórnmál-
um upp á síðkastið. Muni bæði
Mogens Glistrup og Erhard
Jacobsen hagnast á megnri
óánægju kjósenda, sem hafi misst
trú á, að þeir, sem hafa farið með
völdin, geti stjórnað svo vel sé. Þá
megi búast við fylgisaukningu
borgarflokkanna og nánast sé
fyrirsjáanlegt verulegt tap
jafnaðarmanna.
Mynd þessi af Erhard Jakobsen var tekin sl. þriðjudag, eftir að hann sagSi sig úr flokki
sósfaldemókrata f Danmörku. Daginn eftir stofnaði hann nýjan flokk, Mið-demókrataflokkinn, og er
þess nú beðið með eftirvæntingu, hvernig honum vegnar f komandi kosningum.
ísraelar og Arabar féllust
á samningsdrög Kissingers
Washington, Tel Aviv, Beirut,
Kairó 9. nóv. AP. NTB.
0 Egyptar og tsraelar hafasam-
þykkt áætlun í sex liðum, sem á
að styrkja vopnhléið f Miðaustur-
löndum og ryðja braut til samn-
inga og endanlegrar lausnar
ágreiningsmála. Var þetta til-
kynnt f Hvíta húsinu f kvöld.
0 Staðfest hefur verið að samn-
ingsdrög þessi hafi Henry Kiss-
inger lagt fram á ferð sinni um
Miðausturlönd og átt drýgstan
hlut f að fá forystumenn til að
fallast á þau.
0 Golda Meir, forsætisráðherra
Israels boðaði óvænt stjórn sfna
til fundar f kvöld til að ræða
samkomulagið. Kom þetta af stað
miklum vangaveltum um, að eitt-
hvað hafi komið upp á á sfðustu
stundu og Israelar myndu ekki
faltast á samkomulagið. Engin til-
kynning verður gefin út fyrr en á
morgun.
0 Feisal konungur SaudiAra-
biu hefur neitað því, að áflétta
olfusölubanninu til Bandarfkj-
anna, sem hann ákvað, að beiðni
Sadats Egyptalandsforseta. Er nú
búizt við, að Egyptaiandsforseti
reyni að beita áhrifum sínum, en
en óvfst hvort Feisal dregst á að
breyta nokkru fyrr en um eða
eftir áramótin.
SAMKOMULAGIÐ
I samkomulaginu segir eftirfar-
andi: Með aðstoð Bandarfkja-
Dómar í Watergatemálinu:
Höfuðpaurar í innbrot
inu í fangelsi
manna hafa Israelar og Egyptar
orðið sammála um þessi atriði,
sem mikiivæg eru fyrir frið I Mið-
austurlöndum:
1. Egyptar og Israelar munu
samvizkusamlega virða vopnahlé
það, sem Öryggisráð Sameinuðu
þ jóðanna hefur hvatt til.
2. Báðir aðilar eru sammála
um, að þeir hefji tafarlaust við-
ræður til að leysa vandamálið um
brottflutning herja til fyrri víg-
Ifna.
3. Daglega verða fluttar vörur
og lyf til borgarinnar Súez og
særðir óbreyttir borgarar verða
f luttir burtu.
4. Engar hindranir verða á
flutningum til austurbakkans, en
skilyrði, að þar sé ekki um her-
gagnaf lutning að ræða.
5. Eftirlitsmenn S.Þ. taka við
gæzlu og eftirliti af Israelum á
leiðinni milli Kairó og Súez.
6. Jafnskjótt og komið hefur
verið upp eftirlitsstöðum fyrir
starfsmenn Sameinuðu þjóðanna
á leiðinni milli Kairó og Súez
munu hefjast skipti á stríðsföng-
um- Framhald á bls. 18
Israel
neitar
Tel Aviv, 9. nóv. NTB.
AÐ loknum aukafundi í kvöld var
tilkynnt að tsrael gæti ekki fallizt
á ýmis atriði samkomulagsins um
vopnahlé. Heimildir segja, að
meginástæðan sé sú, að hvergi er
minnst á að Egyptar opni á ný
innsiglinguna inn f Rauða hafið.
Sömuleiðis vilji Israelar ekki
sætta sig við að flytja lið sitt aftur
á svæði, sem kveðið er á um og
þeir neita að láta af höndum eftir-
litsstöðvarmilli Kairó og Súez.
Washington, 9. nóv. NTB.
HOWARD Hunt, einn forystu-
manna innbrotshópsins f Water-
gate-bygginguna í fyrra, var f dag
dæmdur f að minnsta kosti 2'A árs
fangelsi, en það má lengja f allt
að átta ár og auk þess var honum
gert að greiða tfu þúsund dollara
sekt. Fimm aðrir hlutu í dag
dóma vegna Watergateinnbrots-
ins.
James McCord jr. fyrrverandi
formaður öryggisnefndar forset-
ans í kosningunum 1972 var
dæmdur í 1—5 ára fangelsi. Það
var ákvörðun McCord um að leysa
frá skjóðunni í marz sL, sem kom
allri skriðunni af stað og Water-
gatemálið varð að því hneyksli,
sem síðar hefur komið á daginn.
McCord sagði í dag, að hann væri
þess fullviss, að ekki væru öll
kurl komin til grafar.
Bernard L. Bárker, sem tókþátt
i innbrotinu fékk ll/i—6 ára dóm,
Eugenio Martines, Frank A.
Sturgis og Virgilio Gonzales, sem
Barker réð til starfa, fengu
1—4ra ára fanelsi. Gordon Liddy,
sjöundi samsærismaðurinn, sem
var dæmdur í Watergate réttar-
höldunum I janúar sl. hefur
aldrei leyst frá skjóðunni og var
fyrr dæmdur i að minnsta kosti 6
ára fanelsi. Það var John Sirica,
sem kvað upp dómana.
VERKALVÐSSAMTÖKIN
AFL-CIO VILJA
KOMA NIXON FRA
Bandarísku verkalýðssamtökin
AFL-CIO, en innan vébanda
þeirra eru rösklega 13 milljónir
verkamanna, hófu í dag mikla
herferð, sem miðar að því, að
koma Nixon úr forsetastóli vegna
Watergatehneykslisins. Verða
send út dreifibréf til félaganna og
þeir hvattir til að skrifa þing-
mönnum sínum, og fara fram á,
að Nixon verði leiddur fyrir ríkis-
rétt og settur af. I dreifibréfinu
eru taldar upp 19 ástæður fyrir
því að leiða eigi Nixon fyrir rikis-
rétt. Venjulega hafa samtökin
stutt frambjóðanda demókrata
við forsetakosningar en þau voru
hlutlaus við siðustu kosningar og
stuðluðu þannig að kjöri Nixons.
Aukakosningar í Bretlandi:
r
Ihaldsflokkurinn
hélt sætum sínum
London 9. nóv. AP. NTB.
BREZKI Verkamannaflokkurinn
missti allverulegt fylgi f auka-
kosningum þeim, sem fóru fram í
gær i nokkrum kjördæmum í
Bretlandi. Mest kom á óvart sigur
frambjóðanda Skozkra þjóðernis-
sinna í Govankjördæminu í
Glasgow. Þar bar Margot
McDonald sigurorð af fram-
bjóðanda Verkamannaflokksins,
sem lengi hefur átt þar öruggt
sæti.
1 Berwiek-on-Tweed sigraði
frambjóðandi Frjílslynda flokks-
ins fulltrúa Ihaldsflokksins og
munaði aðeins 57 atkvæðum,
enda voru atkvæði talin þar
tvisvar, er i ljós kom, hversu
mjótt var á mununum. Frjáls-
lyndi flokkurinn, jók og fylgi sitt i
Hove, sem hefur verið nokkuð
öruggt vigi ihaldsmanna, en tókst
þó ekki að ná sæti ihaldsmanna
þar. Verkamannaflokkurinn var á
Framhald á bls. 18