Morgunblaðið - 10.11.1973, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 10.11.1973, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973 Af innlendum vettvangi Enda þótt ríkisstjórninni hafi verið forðað frá falli með mestu kollsteypu, sem um getur í síðari tíma stjórnmálasögu íslenzkri, hefur lausn landhelgisdeilunnar reynt svo mjög á þolrifin í stjórn- inni og ráðherrunum, að vinstri stjórnin er ekki söm eftir. Starfs- hæfni hennar hefur lamazt. Brestirnir í samstarfi þeirra þriggja flokka, sem að stjórninni standa hafa komið skýrt í ljós og eru svo miklir, að ekki er hægt aö breiða yfir þá. Trúnaðartraust milli einstakra ráðherra er horfið. Þetta er önnur megin afleiðing þess, sem gerzt hefur í íslenzkum stjórnmálum síðustu vikurnar. Fram til þessa hefur Alþýðu- bandalagið verið sá stjórnarflokk- anna, sem mest hefur haft út úr stjórnarsamstarfinu. Fram að 17. október sl. hafði Alþýðubandalag- ið styrkt stöðu sína verulaga enda í fyrirsvari fyrir því menn , sem hafa harðnað i eldi stjórnmála- baráttunnar í tvo til þrjá áratugi. En þann 17. október sl. léku þeir svo rækilega af sér, að þess munu fá hliðstæð dæmi. Síðan hefur niðurlæging þeirra orðið meiri með hverjum degi, sem liðið hef- ur, og alger í fyrradag, er ráð- herrar Alþýðubandalagsins lýstu yfir sturðningi við og tóku ábyrgð á samningum, við Breta, sem þeir hafa lýst sem „óaðgengilegum úr- slitakostum“. Fróðlegt er að rifja upp þá atburði síðustu 10 daga eða svo, sem leitt hafa til þess, að Alþýðubandalagið varð að at- hlægi f rammi fyrir alþjóð. SKILYRÐI LtJÐVlKS Eftir að þingflokkur Alþýðu- bandalagsins hafði með ályktun, sem samþykkt var hinn 17. októ- ber sl., aðeins örfáum klukku- stundum eftir að forsætisráð- herra hafði skýrt ríkisstjórninni frá Lundúnaviðræðunum, lýst samkomulagsgrundvellinum, sem að mestu byggðist á tillögum Ólafs Jóhannessonar sem „óað- gengilegum úrslitakostum", var eini möguleiki kommúnista til að bjarga andlitinu og sitja áfram í ríkisstjórninni með nokkurrri reisn sá, að takast mundi að fá fram einhverjar breytingar á samkomulagsgrundvellinum. Á fundi ráðherranna hinn 23. októ- ber sl. var Einari Ágústssyni utanríkisráðherra falið það verk- efni að semja við brezka sendi- herrann í Reykjavík um slíkar breytingar. Ólafur Jóhannesson lagði áherzlu á að hleypa Lúðvík Jósepssyni ekki inn í þær viðræð- ur, enda hefði það jafngilt yfirlýs- ingu af hálfu ríkisstjórnarinnar um, að hún vildi enga samninga. Af hálfu forsætisráðherra var þetta einnig hugsað á þann veg, að Lúðvíkyrði auðmýkkturopin- berlega, og hefur hann sjálfsagt lengi beðið eftir slíku tækifæri. Sjávarútvegsráðherrann gerði flokksmönnum sínum grein fjrir þeim breytingum, sem flokkur hans vildi fá fram, i forsíðuviðtali við Þjóðviljann hinn 24. október sl. Þær breytingar. sem Alþýðu- bandalagið vildi fá fram, voru þessar: 1. Að skilningur Ólafs Jóhannessonar á framkvæmda- ákvæðinu í samkomulagsgrund- vellinum skyldi gilda 2. Að íslenzk stjórnvöld gætu ákveðið önnur friðunarsvæði og annan friðunartíma en gert er ráð fyrir í samkomulagsgrundvellin- um, ef svo bæri undir 3. Að 4 svæði yrðu opin og tvö lokuð í senn, en ekki fimm opin og eittlokað. 4. Að samkomulagið gilti að- eins í 1'á ár, en ekki tvö. Með þessum breytingum töldu Alþýðubandalagið að athlægi kommúnistar, að þeir mundu bjarga andlitinu að nokkru. A fundi ríkisstjórnarinnar hinn 1. nóvember sl. gerði utanríkisráð- herra grein fyrir árangri við- ræðna sinna við Breta. Hann varð í stuttu máli enginn. Sú niður- staða þurfti ekki að koma mönn- um á óvart. Olafur Jóhannesson hafði á blaðamannafundi hinn 19. október sl. lýst sig samþykkan samkomulagsgrundvellinum, og hvernig var þá hægt að búast við, að Bretar samþykktu breytingar á honum? Hlutur utanrikisráð- herra 1 þessum þætti málsins er dálítið sérkennilegur. Honum var falið það verkefni að fá fram þess- ar lagfæringar, og hann kom fram í sjónvarpi og tíundaði samvizku- samlega, hvaða atriði það væru, sem hann ætlaði að fá lagfæring- ar á. Ég hef það hins vegar fyrir satt, að utanrikisráðherra hafi ekki lagt mikið á sig til þess að fá fram breytingar og raunar sýnt því afar takmarkaðan áhuga. Að hugsanlegum skýringum á því verður vikið síðar. Samráðherrar Einars Ágústs- sonar brugðust ókvæða við, þegar hann skýrði frá því, að hann hefði ekki haft erindi sem erfiði í við- ræðum sínum við brezka sendi- herrann. Auk þess að ná engum árangri við að fá framangreindar breytingar lagði hann fram tíma- setningar á lokun svæðanna, sem mönnum sýndust ekki hagstæðar. Það fór um framsóknarmenn, þegar í ljós kom, að það voru ekki bara ráðherrar kommúnista sem tóku þessuilla. RáðherrarSFV voru líka ólukkulegir með niður- stöðuna. Þeir áttu f erfiðleikum með Karvel Pálmason, sem frá upphafi hafði lýst óánægju með samkomulagið, og tveimur dögum síðar var flokksstjórnarfundur SFV og þeirhöfðu áhyggjur af við- brögðum trúnaðarmanna sinna þar. Það kom þó fljótlega í ljós, að afturkippurinn, sem kom í SFV, var ekki alvarlegur. En ráðherrar Alþýðubandalagsins stóðu enn á ný frammi fyrir því að samþykkja og bera ábyrgð á samningi, sem þeir höfðu lýst sem „óaðgengileg- ur úrslitakostum“ eða hverfa úr stjórninni ella. MAGNtJS reynir að verzla- Þegar þessi staða var orðin ljós, ákvað Magnús Kjartansson að reyna svolítil viðskipti við Einar Ágústsson. Hann gekk á fund utanríkisráðherra og átti við hann alvarlegar samræður. Iðnaðarráð- herra sagði utanríkisráðherra, að þvf aðeins gæti hann fallizt á að styðja þetta samkomulag, ef Ein- ar Ágústsson lofaði því að hann, Magnús Kjartansson, tæki þátt í samningaviðræðum við Banda- ríkjamenn um endurskoðun varnarsamningsins, sem fara fram hér f Reykjavfk í næstu viku. Einar Ágústsson sagði hart og ákveðið nei, og honum varð ekki um þokað. Magnús og Lúðvik gengu áfund Ólafs, klöguðu utan- ríkisráðherrann fyrir honum og báðu hann um liðsinni til þess að fá þessu framgengt. Ölafur kvaðst engin áhrif geta haft á Einar í þessu efni. Magnús Kjartansson tók þessum úrslitum mjög þung- lega, svo illa, að hann hafði við orð aðsegjaaf sérráðherraemb- ætti, eins og frá hefur verið skýrt f Morgunblaðinu. Þannig stóðu málin, þegar flokksráðs- fundur Alþýðubandalagsins hófst á föstudagskvöld í síðustu viku. AÐ HANGA I STÓLNUM, HVAI) SEM ÞAÐ KOSTAR Niðurstaða flokksráðsfundar kommúnista var í rauninni sú, að þeir Lúðvík og Magnús skyldu hanga í ráðherrastólunum, hvað sem það kostaði. Sl. þriðjudag sagði Morgunblaðið ítarlega frá flokksráðsfundi kommúnista, og er því óþarfi að rekja það í löngu máli hér, aðeins verða rifj- uð upp helztu atriðL Að vonum voru skoðanir skiptar á flokks- ráðsfundinum um, hvað gera skyldi. Einn hópur fundarmanna vildi slita stjórnarsamstarfinu þá þegar, annar hópurinn vildi doka við og sjá, hverju kommúnistar fengju áorkað í varnarmálunum. Hinn þriðji hélt fram þeirri skoð- un, að hvað sem það kostaði, vbæri að halda stjórnarsamstarf- inu út kjörtímabilið. Alyktun sú, sem flokksráðs- fundurinn samþykkti um land- helgismálið, var mjög í anda þess, sem kommúnistar höfðu áður lát- ið frá sér fara. Fundurinn taldi ástæðulaust að „veita tilslakanir á borð við þær, sem ráð er fyrir gert f fyrirliggjandi drögum að sam- komulagi við Breta“. En þing- flokki og framkvæmdastjórn var veitt heimild til að taka af- stöðu. Nú vaknar sú spurning, hvers vegna kommúnistar hafa lagt svo mikla áherzlu á að halda ráðherrastólunum. Eftir flokks- ráðsfundinn var ljóst, að til þess lágu fyrst og fremst tvær ástæður. í fyrsta lagi leggja kommúnistar gífurlega áherzlu á að fá því fram- gengt, að varnarliðið hverfi af landi brott. Þeir vilja láta reyna á það, hvort þeir koma þvf baráttu- máli fram. í öðru lagi var flokks- ráðsfundinum ljóst, að hyrfi Al- þýðubandalagið úr ríkisstjórn nú, eftir aðfarirnar að Ólafi Jó- hannessyni sfðustu vikur, er lfk- legast, að flokkurinn yrði utan ríkisstjórnar, a.m.k. næsta áratug- inn, ef ekki lengur, einfaldlega vegna þess,að'enginnfiokkur telur þá í raun og veru samstarfshæfa, eftir að þeir hafa sýnt sitt rétta andlit. Þetta eru þær tvær skuli stsitja, hvað sem það kostar. þeirri niðurstöðu flokksráðsfund- arins, að þeir Lúðvfk og Magnús •kuli sitja, hvað sem það kostar. Urslitakostir ÓLAFS Líklega hefur Ólafur Jóhannesson dregizt á það við kommúnista, að þeir fengju að sitja hjá við atkvæðagreiðslu um samkomulagið í ríkisstjórn og á Alþingi. En ýmsir samstarfsmenn hans voru ekki ánægðir með að láta kommúnista sleppa svo „bil- lega“. Þeir vissu, að þá mundu Alþýðubandalagsmenn telja sig hafa frjálsar hendur um að ráðast á þá fyrir samningana, hvenær sem væri, og ekki sfzt á framboðs- fundum fyrir kosningar. Á ríkis- stjórnarfundi sl. þriðjudag setti forsætisráðherra þeim Lúðvík og Magnúsi því úrslitakosti, þeir yrðu að greiða atkvæði með sam- komulaginu, ella mundi hann biðjast lausnar. Þeir báðu um sólarhringsfrest. Hann var svo framlengdur seinna um daginn um annan sólarhring. Að loknum miðstjórnarfundi Alþýðubandalagsins sl. miðviku- dagskvöld, féllust tvímenning- arnir svo á samkomulagið á ríkis- stjórnarfundi á fimmtudags- morgun og samdægurs var þings- ályktunartillaga lögð fyrir þingið. En spurningin er þessi: lofaði Ólafur þeim einhverju á bak? HVERJU LOFAÐI ÓLAFUR? Eins og að framan er rakið, blönduðust vamarmálin nokkuð inn í þessar sviptingar í stjórnar- herbúðunum. Magnús Kjartans- son hafði reynt að setja þátttöku í viðræðum við Bandaríkjamenn sem skilyrði fyrir því að sam- þykkja samninginn. Einar hafnaði því. Niðurstaða flokks- ráðsfundarins markaðist að veru- legu leyti af því, að kommúnistar héldu í vonina um, að þeir gætu komið vamarliðinu úr landi. Síð- ustu daga hefur þrálátur orð- rómur gengið um það, að forsætis- ráðherra hafilofað kommúnistum einhverju varðandi afgreiðslu varnarmálanna. Eg tel mig hafa fulla vissu fyrir þvf, að á mið- stjórnarfundi Alþýðubanda- lagsins hafi Ltiðvfk Jósepsson lýst þvf yfir, að ráðherrar Alþýðu- bandalagsins hefðu fengið per- sónulegt loforð frá Ólafi Jóhannessyni þess efnis, að varn- arliðið skyldi brott úr landinu fyrir lok kjörtfmabilsins. A hinn bóginn beindi Morgun- blaðið þeirri spurningu til Ólafs Jóhannessonar sl. miðvikudag, hvort hann teldi, að ráðherrar Al- þýðubandalagsins mundu setja fram kröfu um slíka yfirlýsingu í tengslum við afgreiðslu land- helgissamninganna. Hann svaraði því á þann veg að hann teldi það ósennilegt. Nauðsynlegt er, að í umræðum í þinginu á mánudag verði fyrirspurn beint til forsætis- ráðherra um þetta efni og að hann upplýsi, hvort hann hafi gefið slfkt loforð. Svari hann því neitandi frammi fyrir þingheimi verður að taka það svar trúanlegt, því að Ólafur Jóhannesson skrökvar ekki að Alþingi. En þá hefur Lúðvík Jósepsson líka logið að sínum flokksmönnum á rtiið- stjórnarfundinum. Um þetta atriði verða að fást alveg skýr svör. Hafi forsætisráð- herra gefið þeim Lúðvík og Magnúsi slíkt loforð, eru það hin svívirðilegustu svik við samstarfs- menn og þjóðina. Engin stoð er í þvf að vísa til málefnasamn- ingsins, vegna þess að höfundar hans hafa túlkað hann á mjög mismunandi vegu, og er hægt að rekja ýmis ummæli þess efnis, bæði eftir Einari Agústssyni og Hannibal Valdimarssyni. En hér er um svo alvarlegt mál að ræða, að Ólafur Jóhannesson verður að gera hreint fyrir sínum dyrum. VIÐHORFIN I FRAMSÓKN Lítið hefur frétzt um þær um- ræður, sem fram hafa farið innan Framsóknarflokksins um sam- komulagið við Breta. Ut á við hefur flokkurinn slegið skjald- borg um Ólaf Jóhannesson í við- leitni hans til þess að höggva á hnútinn í landhelgisdeilunni, sem nú er orðið ljóst, að honum hefur tekizt. En ýmislegt bendir þó til, að ekki séu menn í Framsóknar- flokknum alveg á einu máli. Hér að framan var að því vikið, að Einar Agústsson hefði ekki lagt sig míkið fram um að fá breytingar á samkomulagsgrund- vellinum. Sú skýring er gefin á því, að mjög hafi kólnað í milli hans og forsætisráðherra, og mun þó samstarf þeirra aldrei hafa verið ýkja gott. Stirðleiki milli þessara tveggja forystumanna Framsóknarflokksins var kominn í ljós, áður en Ólafur tók sig til og leysti landhelgisdeiluna. Á fundi ríkisstjórnarirmar hinn 11. september sl. var tekin ákvörðun um slit „stjórnmálasamskipta" við Breta, hættu þeir ekki ásigl- ingum á íslenzk varðskip. Daginn áður hafði utanríkisráðherra orð á þvl við nægilega marga, svo að til fréttist, að hann væri andvígur slitum stjórnmálasambands. Og hann lét það fylgja með, að þetta væri í annað skipti, sem Ólafur Jóhannesson tæki fram fyrir hendurnar á sér í mikilvægum utanríkismálum, án samráðs við sig og að sér fjarstöddum. Fyrra tilvikið hefði verið, þegar Ólafur kallaði sendiherrann heim frá • i Lúðvfk Jósepsson samþykkti „gjörsamlega óaðgengilega úrslitakosti". Lundúnum, hið síðara er hann ákvað að leggja fram tillögu um slit stjórnmálasambands. Þá hefur það að vonum sært stolt utanríkisráðherrans, að Ólafur tók fram fyrir hendur hans í þriðja sinn og sló sér upp á þvi að leysa landhelgisdeiluna. Það bar að með þeim hætti, að utanríkisráðherrann var fyrir vestan og Ólafur gegndi þá störf- um fyrir hann. Bretar gripu þá tækifærið og settu sig í samband við Ölaf með þeim árangri, sem alkunnur er. 1 fjórða skipti tók Ólafur fram fyrir hendur Einars um slðustu helgi, er hann gerði tilraun til að fá fram Iagfæringar á samkomulaginu, sem Einari hafði mistekizt. HVAÐ ER FRAMUNDAN? Á mánudaginn kemur verða landhelgissamningarnir við Breta væntanlega samþykktir á Alþingi með atkvæðum meginþorra al- þingismanna. Þvi ber að fagna, að þessi erfiða deila er úr sögunni, og Ólafur Jóhannesson á þakkir skilið fyrir það frumkvæði, sem hann hefur tekið með því að leysa deiluna á sæmilega viðunandi hátt, enda þótt margt megi að samkomulaginu og málsmeðferð allri finna. Atburðarás síðustu vikna hefur sýnt alþjóð, að forystumenn Al- þýðubandalagsins eru óheiðar- legir í samvinnu, sannkallaðir óheilindamenn. Enginn hefur fundið þetta jafn áþreifanlega og Ólafur Jóhannesson, sem hefur sætt sliku aðkasti af þeirra hálfu, að með eindæmum er. Framferði þeirra hefur verið slíkt, að for- sætisráðherra hefði átt að biðjast lausnar fyrir ráðherra Alþýðu- bandalagsins þegar í stað. En bæði hann og forsvarsmenn SFV hafa sínar ástæður fyrir því að vilja gjaman láta þá sitja áfram í stjórninni. Næsta stórmál á dag- skrá eru kjarasamningarnir. Það eru Alþýðubandalagsmenn, sem þar eru fyrst og fremst í fyrir- svari af hálfuverkalýðshreyfing- arinnar, Eðvarð Sigurðsson og Snorri Jónsson í Reykjavík. Jón Asgeirsson og Óskar Garibalda- son fyrir norðan. Milli þessara tveggja arma er djúpstæður ágreiningur um það, hvernig standa skuli að samningunum. Af skiljanlegum ástæðum er Ólafi Jóhannessyni og Birni Jóns- syni það nokkurt kappsmál, að ráðherrar Alþýðubandalagsins fái tækifæri til að kljást við þennan vanda. Þess vegna tekur forsætis- ráðherra þegjandi hverri rýtings- stungunni á fætur annarri frá kommúnistum. Hann vili iáta þá leysa sin heimilisvandamál á þessum vígstöðvum. En hvernig sem fer I þeim leik, má öllum ljóst vera, að samstarf stjórnarflokk- anna verður aldrei hið sama eftir þetta. Nýtt skeið í lífi þessarar vinstri stjórnar er að hefjast, og það á eftir að verða illvígara en menn getur órað fyrir í dag. Stg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.