Morgunblaðið - 10.11.1973, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 10.11.1973, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973 25 fclk f fréttum fclk í fjclmlélum ★ NÝTT HtJSDÝR Bandaríska leikkonan Jill St. John, sem undanfarin ár hefur oft sézt í fylgd með Henry Kissinger, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hét því fyrir tveimur árum að halda heimili hundum sínum, köttum og öðrum gæludýrum, en aldrei aftur eiginmanni. Hún átti þá tvö hjónabönd að baki. A dög- unum skýrði framkvæmda- maður í Miami, Robert Blum, frá því, að innan tiðar myndi hann ganga að eiga Jill St. John. Þetta verður því þriðja hjónaband hennar og einnig hans. LENNON FER í MAL John Lennon hefur höfðað mál gegn bandarískum stjórnvöldum og krefst þess, að þau játi eða neiti því, að hann eða lögfræð ingur hans hafi sætt ólög legri simahlerun eða njósnum. 1 málshöfðun Lennons segir, að simahleranir og njósnir stjórn- valda um hann hafi orðið til þess, að málsskjöl hans í sambaridi viS þá ákvörðun stjórnvalda að visa honum Ur landi, hafi ekki veriS tekin til greina á eðlilegari hátt. Bandarisk stjórnvöld eru að reyna að vísa John Lennon Ur landi á þeim forsendum, að hann megi ekki bUa í Bandaríkjunum vegna þess, að hann hafi hlotið dóm í fíkniefnamáli í Bretlandi árið 1968. GAGNKVÆM VIRÐING Tónskáldið Richard Rodgers (Rodgers og Hammerstein) sagði nýlega, að ef hann ætti völ á að láta nafn sitt standa við aðeins eitt einasta lag, veldi hann lag Burt Bacharachs, „Raindrops Keep Fallin’ on my Head“. Burt Bacharach svaraði þessu lofi með því að segja: „Ef ég fengi þessa spurningu, myndi ég velja hvaða lag, sem væri eftir Richard Rodgers." SAMKVÆMI TIL HEIÐURS MAVI Paramount-kvikmyndafélagið bandaríska frumsýndi á dögunum kvikmyndina, sem það hefur látið gera eftir metsölubók- inni um Jónatan Livingston máv. 1 tilefni frumsýningarinnar efndi félagið til myndarlegs sam- kvæmis á einu finasta hóteli New York-borgar. Var kostnaðurinn við gleðiskapinn talinn 100 þús. dollarar, eða 8,3 milljónir ísl. króna. Gestirnir voru 600 talsins, þannig að kostnaðurinn á hvern gest hefur verið að meðaltali verið um 13.800 Isl. krónur. 27 bifreiðar af fínustu og dýrustu gerð sóttu þá gesti, sem ekki eiga slíkar kerrur sjálfir. Aður en mat- urinn var borinn fram, dreyptu menn á dýrustu vínum og nörtuðu í alls kyns forrétti. Á eftir aðal- réttunum voru bornir fram þrír eftirréttir. Meðal skreytinga í salarkynnunum voru ótal krýsan- temur (blóm, fyrir þá sem ekki vita), sveigðar og teygðar, þar til þær litu út sem mávar á flugi. Fræg hljómsveit lék fyrir dansi og við brottför voru allir gestirnir leystir út með gjöfum, þ.e. ein- tökum af plötunni með tónlist myndarinnar, sem samin er og flutt af Neil Diamond. Einum gestinum varð þó á að spyrja: „Eydduð þið 166 dollurum í mig? Gæti ég ekki fengið peningana í staðinn?" Þá er að segja frá Jónatan mávi. Hann var leikinn af ekki færri mávum en fimm og hlutu þeir allir fisk eða hrossakjöt að launum. Sáduglegasti þeirra, Jón var hann kallaður, nýtur nú lífs- ins í fjörunni við Kyrrahafið — honum var sleppt að kvikmynda- tökunni lokinni. — Engir mávar voru meðal boðsgesta í veizlunni. Utvarp Reykjavík * IAUGARDAGUR 10. nóvember 7.00 Morgunútvarp Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.20. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl.), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kL 7.55. Morgunstund barn- anna kl. 8.45: Anna Snorradóttir heldur áfram að lesa söguna „Paddington kemur til hjálpar" eftir Michael Bond (9). Morgunleikfimi (endurL) kL 9.20. Tilkynningar kL 9.30. Létt lög á milli liða. Morgunkaffið kl. 10.25: Páll Heiðar Jónsson og gestir hans ræða um útvarps- dagskrána; auk þess sagt frá veðri og vegum. 12.00 Dagskráia Tónleikar. Tílkynnihgar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. 13.00 Oskalög sjúklinga Kristín Sveinsbjörnsdóttir kynnir. 14.30 A ieikvangi Jón Asgeirsson fjallarum iþróttir. 15.00 Islenzkt mál Jón Aðalsteinn Jónsson cand. mag. flytur þáttinn. 15.20 Útvarpsleikrit barna og unglinga: „Siskó og Pedró“, saga eftir Estrid Ott í leikgerð Péturs Sumarliðasonar. Þriðji þáttur: Leikstjóri: Klemenz Jónsson. Persónurog leikendur: Siskó...............Borgar Garðarsson Pedró ............Þórhallur Sigurðsson Faðir Ameriko ................Jón Aðils Spánverjinn ........Einar Þorbergsson Kristófer ........Hjalti Rögnvaldsson Juan .................Sigurður Skúlason Kennslukona .........Ingibjörg Þorbergs 1. drengur .............Hörður Torfason 2. drengur ..............Hákon Waage 15.50 Barnalög 16.00 Fréttir 16J5 Veðurfregnir Tfu á toppnum öm Petersen sér um dægurlagaþátt. 17.15 Framburðarkennsla í þýzku 17.25 Tónleikar. Tilkynningar. 18.30 Fréttir. 18.45 Veðurfregnir 18.55 Tilkynningar. 19.00 Veðurspá Fréttaspegill 19.20 Framhaldsleikritið: „Snæbjörn galti“ eftir Gunnar Benediktsson Annar þáttur. Leikstjóri: Klemenz Jóns- son. Persónur og leikendur: Kjalvör ..............Helga Bachmann Geirlaug ............Guðrún Stephensen Snæbjörn .........Þorsteinn Gunnarsson Hallgerður ...........Kristbjörg Kjeld Jórunn ......Guðbjörg Þorbjarnardóttir Eðna ..............Bryndis Pétursdóttir Tungu-Oddur.........Jón Sigurbjörnsson Sögumaður ............Gisli Halldórsson 19.55 „Saga úr vesturbænumtónlist eftir Leonard Bernstein Natalie Wood, Richard Beymer, Rita Morenoo.fi. flytja. Stjórnandi: Johnny Green. 20.15 Úr nýjum bókum 20.55 Frá Norðurlöndum Sigmar B. Hauksson talar. 21.15 Hljómplöturabb Þorsteinn Hannesson bregður plötum á fóninn. 22.00 Fréttir 22.15 Veðurfregnir Danslög 23.55 Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok. BRUÐKAUP ársins, að flestra dómi, verður á miðvikudag- inn, 14. nóvember, er þau Anna Bretaprinsessa og Mark Phillips, höfuðsmaður, verða gefin saman. Þau verða gefin saman i Westminster Abbeyflómkirkj- unni í London af erkibiskupinum af Kantaraborg. Meðal vígsluvotta verða um 500 milljónir sjónvarpsáhorfenda víða um heim. J500 gestir verða i kirkjunni, en meðal þeirra aðeins 25 konungbornir frá öðrum löndum, og einn þjóðhöfðingi, Rainier fursti af Mónakó, og kona hans, Grace. Þeim önnu og Mark verður ekið til kirkjunnar i gleri prýddum hestvagni (mynd), sem fjórir hestar draga. Lúðraþeytarar úr herdeild Marks munu blása, er þau ganga inn i kirkjuna. Anna hefur valið bæn frá árinu 1662 til flutnings við athöfnina og siðan mun hún, eins og móðir hennar og frænkur, lofa að vera manni sínum hlýðin. Hún kaus sjálf að hafa hlýðnihugtakið með i hjónabandsheitinu og hefur verið óspart gagnrýnd fyrir þetta af kvenréttinda- hreyfingunni. Eftir brúðkaupið munu hjónin fara í þriggja vikna brúðkaupsferð með drottningarsnekkjunni Brittania til Vestur-India. Drottningin mun aðla Mark, liklega bjóða honum jarlstign eða markgreifatign. Hjónin munu síðan flytjast inn í stórt hús í nágrenni Sandhurst-herskólans, þar sem Mark mun taka upp kennslu. Og með brúðkaupinu hækkar árlegur lífeyrir Önnu prinsessu úr þremur í sjö milljónir ísl. króna. Á skjánum LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973 18.00 Iþróttir Meðal efnis mynd frá Evrópu- bikarkeppninni i frjálsum íþróttum og enska knattspyrn- an England — Ptílland. Umsjónarmaður Ömar Ragnarsson. 19.00 Þingvikan Þáttur um störf Alþingis. Umsjónarmenn Björn Teitsson og Björn Þorsteinsson. 19.30 Hlé 20.00 Fréttir 20.20 Veður ogauglýsingar 20.25 Brellin blaðakona Breskur gamanmyndaflokkur. Þýðandi Heba Júlíusdóttir. 20.50 Ugla sat á kvisti Skemmtiþáttur með söng og gleði. Gestir þáttarins eru Hanna Valdís Guðmundsdóttir og Jóhann G. Jóhannsson. Umsjónarmaður Jónas G. Jóns- son. Stjórn upptöku Egill Eðvarðs- son. 21.20 Plimpton í Afriku Kvikmynd um bandaríska í ævintýramanninn George I Himpton, sem að þessu sinni bregður sé á filaveiðar í Afríku. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 22.10 Hættulegtilraun (Experiment Perilous) Bandarisk bfómynd frá árinu 1944, byggð á sögu eftir Margaret Carpenter. Leikstjóri Jacques Tourneur. Aðalhlutverk Hedy Lamarr, George Brent, og Paul Lucas. Þýðandi Jón Thor Haraldsson. KL. 10.25 ræðir Páll Heiðar Jónsson við gesti sina i morg- unkaffinu, en þeir eru að þessu sinni Gylfi Gröndal, ritstjóri, Jón Haraldsson arkitekt og Asgeir Ingólfsson fréttamaður. Páll sagði okkur í símtali, að næsta laugardag yrði þættinum útvarpað beint frá Akureyri, en ætlunin er að reyna að hafa þann hátt á, þar sem skilyrði til þess eru fyrir hendi, þ.e.a.s. á Akureyri, Egilsstöðum og Höfn f Hornafirði. * KL. 20.50 f kvöld hefst skemmtiþátturinn „Ugla sat á kvisti“. Jónas R. Jónsson, um- sjónarmaður þáttarins, tjáði okkur, að gestir þáttarins væru að þessu sinni Jóhann G. Jó- hannsson, sem flytti þrjú ný lög sín, og HannaValdís, sem syngi tvö lög af nýútkominni plötu. Jónas sagði, að aðstandendur þáttarins hefðu nú tekið upp þá nýbreyttni að fara af stað með falinn hljóðnema og taka fólk tali, en kvikmyndatökumaður væri á næsta leiti. Þessi vinnu- brögð minna á þau, sem viðhöfð hafa verið við upptöku þáttarins „tjandid Camera", sem hefur verið með eindæm- um vinsæll erlendis.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.