Morgunblaðið - 10.11.1973, Side 31

Morgunblaðið - 10.11.1973, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. NÓVEMBER 1973 31 | ÍÞBðTTAFRfniR MOMBIABSIIIS | Hibs kærir Leeds — óvænt úrslit í 2. um- ferð Evrópukeppninnar um helgina.. Fyrstu Akur- eyrarleikirnir iÞRÓTTASKEMMAN á Akureyri verður 1 dag í fyrsta skipti vettvang- ur keppni I 1. deild Islandsmótsins í handknattleik. Eru það Framarar sem ríða á vaðið og leika baeði i karla- og kvennaflokki við Þórsara nyrðra. Lítið er vitað um styrkleika Norðanmanna og kvenna, en leikirnir í dag ættu að gefa nokkra vísbendingu um getu liðanna. I dag fer einnig fram fyrsti leikurinn í 2. deild kvenna, IR og UMFN leika í Laugardalshöliinni og hefst leikurinn klukkan 17. A morgun verður svo leikið í Hafnarfirði, í 2. deild kvenna mætast fyrst Breiða- blik — Grótta og síðan Haukar — IBK. Klukkan 20.15 annað kvöld hefst svo leikur FH og ÍR i 1. deild karla í Iþróttahúsinu í Haf narfirði og ætti þar að geta orðið um spennandi leik að ræða. ÍR-ingar eiga mjög misjafna leiki, en nái þeir sér upp er fuli ástæðatil að spá þeim sigri. FH-ingar hafa ekki mikið verið á ferðinni i haust, en þó má geta þess, að þeir gerðu jafntefli við Gróttu í Reykjanesmótinu. Siðari leikurinn annað kvöld verður svo á milli Hauka og Armanns og ef Haukar ná eins góðum leik og á móti Fram ætti liðið að ná sigri. Körfuknattleikur: Fjórir leikir í 1. deild SEINNI LEIKIR annarrar um- ferðar Evrópumeistarakeppninn- ar i knattspyrnu fóru fram nú í vikunni, og komu úrslit margra leikja vægast sagt mikið á óvart. Til dæmis féllu Evrópumeistar- arnir, Ajax frá Amsterdam, úr keppninni og sömuleiðis Eng- landsmeistararnir Liverpool. I leik Hibernian og Leeds varð marklaust jafntefli eins og í fyrri leik liðanna, var þá gripið til framlengingar og enn var ekki skorað. I vítaspyrnukeppninni hafði Leeds hins vegar vinning- inn, 5:4. Einhver mistök áttu sér stað við framkvæmd vítaspyrnu- keppninnar, og voru forráðamenn Leeds, Don Revie og co, komnir inn á völlinn áður en' keppninni var lokið. Hibernian hefur nú kært Leeds vegna þessa og Albert Guðmundsson, sem var eftirlits- maður UEFA á leiknum, lét hafa eftir sér, að dómarinn hefði ekki staðið að öllu leyti rétt að fram- kvæmd vítaspyrnukeppninnar. Basel frá Sviss háði harða bar- áttu við belgíska liðið Brugge í Evrópumeistarakeppninni og án efa skemmtilega, því leiknum lauk með 6:4 sigri Svisslending- anna og komast þeir áfram í keppninni á hagstæðari marka- tölu, 7—6. Ajax frá Amsterdam satyfir I fyrstu umferð keppninn- ar, en í annarri umferð mættu meistarar fyrra árs búlgarska lið- inu CSKA. Búlgararnir unnu seinni leik liðanna, 3:2, og var þá ár og dagur sfðan Ajax hafði tapað leik i Evrópukeppni. Fyrri leik liðanna vann Ajax aðeins 1:0, þannig að CSKA hefur hagstæð- ari markatölu,2:l. Celtic marði sigur yfir danska liðinu Vejle, 1:0 í Danmörku, en MORGUNBLAÐIÐ tók upp þá nýbreytni sfðastliðið sumar að velja I hverri viku „lið vikunn- ar“ meðan Islandsmótið í knattspyrnu stóð yfir. Þessi nýbreytni mæltist vel fyrir og mun þvf lið vikunnar einnig verða valið meðan Islandsmót- ið f handknattfeik stendur yfir. Sagt er frá fyrsta liðinu hér að neðan og er það skípað þeim leikmönnum, sem bezt stóðu sig f landsfeiknum við Frakka á dögunum og f tveim- ur fyrstu Ieikjum tslands- mótsins f 1. deild, að mati blaðamanna Morgunblaðsins. Markverðir: Gunnar Einars- son Haukum og Ölafur Benediktsson Val. Utspilarar: Geir Hallsteins- son Göppingen, Axel Axelsson, Fram, Björgvin Björgvinsson, Fram, Ölafur H. Jónsson, Val, Gunnsteinn Skúlason, Val, Auðunn Öskarsson, FH, Hörð- ur Sigmarsson, Haukum, Stef- án Jónsson, Haukum, Pálmi Pálmason, Fram og Stefán Gunnarsson, Val. fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli. Rauða Stjarnan vann Liverpool 2:1 f Liverpool á miðvikudaginn og sömu úrslit urðu i fyrri leiknum. Dynamo Dresden og Bayern Munchen gerðu jafntefli, 3:3, en Miinchenliðið sigraði 4:3 í fyrri viðureigninni. Benfica frá Portú- gal var slegið út úr keppninni af Ujpest Doza. Spartak Trnva og Atletico Madrid komust f þriðju umferð meistarakeppninnar með ágætum sigrum. 1 Evrópukeppni bikarhafa urðu úrslit meðal annars þau, að Glasgow Rangers sigraði Borussia Mönchengladbach 3:2, en sá sigur dugði þó skammt, því fyrri leik- inn vann þýzka liðið, 3:0. Sunder- land tapaði seinni leiknum við Sporting Lisbon 0:2 og dettur þar — í Irlandsferð körfuknatt- leiksliðsins NÝBAKAÐIR Reykjavikurmeist- arar KR í körfubolta eru nýkomn- ir úr keppnisferð frá írlandi, en þetta er annað árið í röð, sem KR-ingar taka þátt i móti þar. Að þessu sinni léku KR-ingar þrjá leiki, unnu einn, en töpuðu tveim- ur. Fyrsti leikur KR í ferðinnu var við gestgjafana, Corinthians. Þetta er mjög sterkt lið, og léku með því i þessum leik 6 iandsliðs- menn. Leikurinn var afar spenn- andi og þurfti að framlengja til að fá fram úrslit. Corinthians sigraði með tveimur stigum, og var úr- slitakarfan skoruð, eftir að flaut- að hafði verið af, með miklu skoti frámiðju. Næst léku KR-ingar við Liver- pool BC, mjögsterkt lið frá knatt- spyrnuborginni frægu. Þetta lið er mjög framarlega í enskum körfubolta. Átti það aldrei mögu- leika gegn KR, sem lék frábæran leik að öllu leyti og sigraði með 82:74. Að Iokum var svo leikið við írsku meistarana Marians. KR hafði undirtökin lengst af og 10 stig yfir í hálfleik, en þreyta háði liðinu í síðari hálfleiknum og KR tapaði með 5 stiga mun. KR-ingar höfnuðu því í 5. sæti af 8. „Þetta eru mestu framfarir, sem við höfum séð á einu ári,“ sagði Einar Bollason við heim- komuna. „Körfuknattleikur á Ir- landi og reyndar Englandi einnig er í gífurlegri framför, enda eru peningar komnir í spilið. Öll liðin, sem við lékum við í ferðinni, eru hálfgerð atvinnumannalið og er haldið uppi af sterkum fyrirtækj- um. Fyrir nokkrum árum hefði með út úr keppninni, því fyrri leikinn vann enska liðið aðeins 2:1. Brann frá Noregi og Malmö frá Svíþjóð eru úr keppninni eftir leiki sina við Glemtorán frá N- Irlandi og Zurich frá Sviss. I UEFA-keppninni er áður minnzt á leik Hibernian og Leeds, en af öðrum enskum liðum í þess- ari keppni komast bæði Totten- ham og Ipswich áfram. Totten- ham vann Aberdeen samanlagt 5:2 og Ipswich vann Latío frá Róm samaniagt 6:4. Ulfarnir féllu hinsvegar úr keppninni þrátt fyrir stórsigur á heimavelli gegn Lokomotive Leipzig, 4:1. Fyrri leikinn vann austur-þýzka liðið 3:0 og flýtur áfram á útimarkinu. Magnús V. Pétursson dæmdi leik danska liðsins B-1903 og Dynamo Kiev frá Sovétríkjunum, og sigruðu Sovétmennirnir 2:1, fyrri leikinn unnu þeir 1:0. Lið Ásgeirs Sigurvinssonar, Standard Liege, komst áfram í þriðju umferð keppninnar. isl. landsliðið farið létt með þessi landslið, en í dag þori ég ekki að veðja á, að svo myndi fara. En svona er það þar sem peningarnir koma í spilið, þar koma framfar- irnar strax.“ Þess má geta, að KR var lang- vinsælasta liðið í keppninni hjá áhorfendum, og hefur þvi nú ver- ið boðið á svipað mót, sem haldið verður í Cork á Irlandi í febrúar. Það verða mjög sterk lið, mun sterkari en íþessu móti. „Vissulega væri gaman að geta þegið þetta boð,“ sagði Einar, „svona ferðir eru afar lærdóms- ríkar." gk. Nýir menn 1 landsMðið TVEIR nýir leikmenn bættust fyrir nokkru í landsliðshópinn í körfubolta, sem æfir fyrir USA- ferðina. Leikmennimir eru Jón Björgvinsson, Ármanni og Jón Indriðason, IR. — Það fer nú óð- um að styttast í að lagt verði upp í þessa lengstu ferð, sem isl. íþróttalið hefur nokkurn tíma farið í. Lagt verður af stað n.k. fimmtudag. Heim verður svo komið 4 — 6 dögum fyrir jól. Liðin, sem leikið verður við í ferð- inni, eru sum hver afar sterk. Fyrsti leikurinn í ferðinni er t.d. gegn liði, sem hafnaði í öðru sæti f háskólakeppninni s.l. ár, Univer- sity og Maryland. Annar leikur í ferðinni er gegn Wake Forest University, en það lið er mjög framarlega i háskólakeppninni nú. FJÖRIR leikir fara fram i 1. deild Islandsmótsins í körfuknattleik um helgina og einn leikur í 2. deild. Eftir þessa helgi verður gert hlé á keppninni í 1. deild, vegna utanfarar landsliðsins, fram yfir áramót. A meðan lands- liðið leikur ytra verður leikið áfram í 2. og 3. deild. Klukkan 16 í dag hefst leikur IS og KR á Seltjarnamesi og er það fyrsti leikur Reykjavíkurmeistar- anna í Islandsmótinu. KR-ingar ættu að vera nokkuð öruggir með sigur í leiknum í dag. Seinni leik- inn í dag leika svo Valur og UMFN, opinn leikur, sem gæti farið á hvorn veginn sem er. Á morgun klukkan 18 heldur keppnin svo áfram og leikur KR við HSK, sigur KR-inga ætti að vera vis, en hafa ber i huga að HSK hefur oft staðið sig vel gegn KR-ingum. Að þessum leik lokn- um mætast IR og IS og ef liðin leika eins og um síðustu helgi, er ekki hægt annað en að veðja á tR. Þess ber þó að gæta, að ÍR-ingar hafa átt ærið misjafna leiki i vet- ur.Síðasti leikur helgarinnar er svo viðureign Hauka og UMFG i 2. deild í Hafnarfirði kl. 14 á morgun. Knattspyrnuþing ÁRSÞING Knattspyrnusambands Islands, hið 28. í röðinni, verður haldið á Hótel Loftleiðum um þessa helgi. Hefst þingið I dag klukkan 13.30 og verður fram haldið á sama tíma á morgun. Meðal mála, sem liggja fyrir þinginu, eru ályktanir milliþinganefndar um boðsmiða- kerfið, framkvæmdastjórn innan KSl, nýjar starfsreglur mótanefndar, fjölgun í 1. deild, breytingu á fjölda fulltrúa á ársþingi og fleira mætti nefna. Þá er öruggt, að þeir árekstrar, sem urðu innan stjórnar KSl á siðasta sumri, verða ræddir á þinginu. Má þar nefna starfsmannahald KSI og mál landsliðsþjálfarans Hennings Enoksens. Albert Guðmundsson mun nú láta af starfi sínu sem formaður KSI og í viðtali við Morgunblaðið i september síðastliðnum sagði hann meðal annars: — Ég er búinn að ætla mér að hætta undanfarin tvö ár og hef reyndar ekki verið í kjöri sem formaður, en ég hef svo verið settur í f jötra. Það verður ekki lengur gert, og ég er nú staðráðinn í að láta af stjórnarstörfum í KSI. Undanfarið hafa menn velt því fyrir sér, hver verði eftirmaður Alberts Guðmundssonar í formannsembættinu, og bendir flest til, að það verði Ellert Schram. Að baki Ellerts standa Reykjavíkurfélögin og einhver utanbæjarfélaganna. Dregið 1 UEFA-keppninni NU ERU 16 lið eftir í UEFA- keppninni í knattspyrnu og þó væri ef til vill réttara að segja, að liðin væru 17, þvi ekki hefur enn verið dæmt f kæru Hibernian gegn Leeds. I gær var dregið um hvaða lið leika saman í þriðju umferð keppninnar og mætast þá eftir- talin lið: Lokomotiv Leipzig — Fortuna Dusseldorf Dynamo Kiev — Stuttgart Dynamo Tiblisi — Tottlnham Ipswich — Tweete Eneschede Honved Budapest — Ruch Chorzow Standard Liege — Feyenoord Leeds eða Hibemian — Vitoria Setubal Nice — Köln KR vann Liverpool

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.