Morgunblaðið - 22.11.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 22.11.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÖVEMBER 1973 sænskur téiknari, víðfrægur fyrir teikningar sínar úr heiini stjdrn- málanna. Meðal stórblaða, sem hafa birt teikningar hans, má nefna Observer, Suddeutsehe Zeitung og sérstaklega New York Times. sem hefur birt teikningar hans reglulega nokkur síðustu ár. Ewert Karlsson er fæddur 1918 í Östergötland. Þar dvaldist hann frant til 1951, en fluttist þá til Stokkhölms, þar sem hann hefur síðan eingöngu fengizt við teikn- ingarnar. Menntun sína hlaut „Morgunstund barnanna”: Enginn vill söguna samþykkt hafa SILJA Aðalsteinsdóttir hefur komið að máli við Morgunblaðið og óskað eftir að fá tekið fram, að barnasaga sú f Ríkisútvarpinu — hljóðvarpi, sem gerð var að umtalsefni í Morgunblaðinu f gær, hafi verið tilbúin, þýdd og lesin irin á band, þegar hún tók við þvf starfi Baldurs Pálmasonar hjá útvarpinu að velja barna- bækur fyrir „Morgunstund barnanna". Kvaðst hún hvorki hafa lesið söguna né þýðinguna, en tekið við henni sem sam- þvkktu efni. Hins vegar sagði Silja, að sér hefði verið efni sögunnar kunnugt af kennslubók um barnabækur f.vrir sænska háskóla, þar sem um hana var fjallað sem eins konar kennslu- bók í lýðræði fyrir börn. Morgunblaðið sneri sér aftur til Hjartar Pálssonar dagskrárstjóra f gær og bar undir hann athuga- semd Silju. Kvaðst Hjörtur ekki hafa öðru að bæta við það, sem fram kom í Morgunblaðinu í gær, en því, að eftir því, sem sér hefði verið sagt um málið, gæti hann ekki litið svo á, að Silja hefði átt að telja söguna samþykkta, þó að búið væri að lesa hana inn á band. Þá hafði Morgunblaðið sam- band við Baldur Pálmason til að heyra hans hlið á málinu. Baldur sagði gang málsins hafa verið nokkurn veginn á þá leið, að sagan hefði að megni til verið lesin í júníbyrjun, án skuld- bindinga um flutning. Ilann kvaðst ekki hafa verið búinn að lesa bókina, en fallizt á þýðingu hennar og lestur sem vinargreiða vegna þess, að Olga Guðrún Ámadóttir, sem söguna les (og hafði starfaðá skrifstofu útvarps- ins áður en hún hóf umsjón sinna umdeildu barnatíma), var á för- um til útlanda og vantaði skot- silfur. Baldur kvaðst hafa tekið það skýrt fram við Olgu, að hann hefði fyrirvara á með flutninginn. Bókina kveðst Baldur fyrst hafa fengið f hendur síðla sumars, nokkru eftir að Olga kom aftur heim, — en áður en honum gæfist ráðrúm til að lesa hana, hafði Olga fengið hana aftur í hendur, þar sem hún átti óþýddan síðasta hlutann, sem hún lauk i sept Baldur sagði, að seint í septem- ber hefði Silja Aðalsteinsdóttir komið að máli við sig til að hafa samráð um það, hvenær hún tæki við barnabókavalinu. Þá hefði hún haft orð á því að fyrrabragði, að hún vissi um sögu Olgu Guðrúnar og þekkti til hennar. Hefði það orðið að samkomulagi þeirra í milli, að Baldur þyrfti ekki endilega að afgreiða hana á þeim tíma, sem eftir væri í hans umsjón. Kvaðst hann hafa litið svo á, að Silja gerði sér þar með grein fyrir því, að ekki væri búið að samþykkja söguna endanlega. Hafa klippt númer af um 200 bflum undanfarið LÖGREGLAN í Reykjavfk hefur nú að undanförnu tekið úr um- ferð fjölda bifreiða vegna þess, að eigendur bifreiðanna hafa van- rækt að færa þær til skoðunar. Að sögn Óskars Ólasonar yfirlög- regluþjóns umferðarmála f við- tali við Mbl. f gær, hafa skrá setningarspjöld verið tekin af rúmlega 200 bifreiðum það sem af er þessum mánuði, en á árinu hafa á sjöunda hundrað bifreiðar verið teknar úr umferð á þennan hátt. Auk óþægindanna við að skrásetningarspjöldin eru tekin af bifreiðunum verða eigendur þeirra að greiða 2.000 kr. sekt. Sjálfstæðiskonur gefa 150 þúsund krónur A ÞINGI Landssambands sjálf- stæðiskvenna, sem haldið var sl. sunnudag. var ákveðið, að sam- bandið gæfi 150 þúsund krónur í byggingarsjóð nýja Sjálfstæðis- hússins. Nánar verður sagt frá þinginu síðar. Styr við Óðal: Ekkert athugavert við skipstjórann og St. Leger fékk að fara út í gær YFIRHEYRSLA yfir skipstjóran- um á St. Leger fór fram á ísafirði í gær. Fór hún fram samkvæmt tilskipun dómsmálaráðuneytisins Haukur Hjaltason veitingamaður sprautar vatni á þjóna í fyrrakvöld. Ljósm.Mbl.: Sv.Þ. Vatnsgusur yfir þjóna ÞAÐ gengur á ýmsu f þjónaverk- fallinu, og enn sem fvrr er mesti styrinn í kringum veitingastað- inn Oðal. I fyrrakvöld og í gær sprautaði Haukur Hjaltason vatni yfir verkfallsverði, og kærðu sumir þjónar til lögreglunnar, en hún skipaði Hauki að ha-tta að sprauta á mennina. Sjálfur segist Haukur aðeins hafa ætlað að sprauta stétt hússins og hafi hann haft fulla heimild til þess. „Þjónar hafa meinað gestum aðgang að Oðali, hafa þeir stund- um verið 40 — 50 saman og þving- að fólk frá staðnum. Málin standa Heimsfntgur sænskur teiknari í Norræna húsinu NORRÆNA húsið opnar sýningu á myndum hins heimsfræga samska teiknara Ewert Karsson í anddyri Norræna hússins um helgina. Alls verða sýndar þar 53 teikningar. Ewert Karlsson, þekktari sem EWK af undirskriftinni, er EWK í búnaðarskóla og á teikni- námskeiði í bréfaskóla NKI, en strangt sjálfsnám hans, sem hann aflaði sér með vinnu,' lestri og ferðalögum, hefur fært honum al- þjóðlega viðurkenningu. EWK hlaut fyi-stu verðlaun við teiknihátíðarnar í Montreal 1964 og 1967, og á sömu hátíð 1969 hlotnuðust honum „Grand prix“ — verðlaunin fyrir teikningu sína af Maó, sem nú má heita orðin sfgild. I ár hlaut hann verðlaun f>TÍr mynd af Kissinger sem frið- arengli. nú þannig, að við höfum orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni. Þ\í miður hefur lögreglan tekið afstöðu með verkfallsmönnum, án þess að neinn dómur hafi verið kveðinn upp um, hvort ég hafi leyfi til að hafa staðinn opinn eða ekki. Svona athæfi lögreglunnar býður aðeins upp á ofbeldi," sagði Haukur Hjaltason veitingamaður f viðtali við Mbl. í gær. „Ég neita því ekki,“ sagði hann, ,,að hafa sprautað vatni yfir þjón- ana. Ég hef gefið þeim gusu i dag og mun halda þvi árfam. Við mun- um fylgja okkar fyrirheitum eft- ir. Enda teljum við okkur vera í fullum rétti með þá starfsemi, sem við höfum hér. Þetta gekk svo langt hjá þjónum, að þeir meinuðu fólki aðgang að grillinu á jarðhæð hússins. Þar gáfum við eftir og sömdum við þjöna um, að þeim væri heimilt að hafa fjóra verkfailsverði inni við dyrnar, þar sem gengið er upp á efri hæð- ina. Þeir voru samt fljótir að rjúfa þann samning og þurftum við að vfsa nokkrum þjónum á dyr r dag. Að sjál-fsögðu verður Óðal opið á næstunni, enda er enn beð- ið eftir dómi um, hvort við erum í rétti eða ekki. Meðan svo er er ekki hægt að stöðva okkar starf- semi,“ sagði Haukur aðlokum. „Bræðurnir á Óðali eru heldur betur að færast í aukana," sagði Öm Egilsson blaðafulltrúi þjóna, er við ræddum við hann, „þeir eru nú farnir að sprauta vatni á okkur og saklausa vegfarendur Framhald á bls. 18 f þeim tilgangi að kanna, hvort Ball skipstjóri á St. Leger hefði verið á skipinu, er togarinn sigldi á v/s Þór þann 23. aprfl sl. Fulltrúi bæjarfógetans á ísa- firði sagði f samtali við Mbl. f gær, að samkvæmt skipsbókum hefði Ball skipstjóri ekki verið á St. Leger, er togarinn sigldi á Þór. Ball hefði aðeins verið í fjöra mánuði um borð á togaranum, og enginn af núverandi yfirmönn- um togarans hefði verið á skip- inu, þegar það sigldi á Þór. Hann sagði, að ekki væri vitað til þess, að St. Leger yrði kyrrsett- ur, fyrirskipun þess efnis hefði ekki borizt til ísafjarðar, og var búizt við, að togarinn færi frá ísafirði f gærkvöldi. Tveir brezkir togarar komu til ísafjarðar í fyrrakvöld. Annar þeirra, Port Vale frá Grimsby, þurfti að láta lagfæra ýmislegt, en hinn, Ross Ramillíes, einnig frá Grimsby, kom með veikan mann. Var maðurinn með sprunginn maga og lífhimnubólgu. Hann var Framhald á bls. 18 Brezkum togurum ekki bannaðar veiðar við Vesturland í vetur Undanfarin ár hefur brezkum togurum verið bannað að veiða úti fyrir Vestfjörðum yfir há- veturinn þ.e. frá 20. des. og fram í marz. Þann tíma hafa brezku togararnir að mestu stundað veiðar úti fyrir Austur- landi. Nú bendir hins vegar margt til þess, að brezkum tog- urum verði ekki bannað að stunda veiðar við Vestfirði í vetur. Roberts skipstjóri á eftirlits- skipinu Miranda, sagði, er hann ræddi við Guðmund Karlsson umboðsmann brezkra togara á ísafirði, að sér væri ekki kunnugt um, að togurum yrði bannað að veiða á þessu svæði. Ekki er vitað hvað veldur þess- ari hugarfarsbreytingu Breta. En talið er, að ástæðan sé sú, að hólf D, sem er fyrir Austur- landi á að vera lokað i vetur samkvæmt nýgerðum samningi um landhelgina. Búizt við 25% hækk- un á mmkaskinnum UM miðjan desember byrja skinnauppboð hjá Hudson Bay- félaginu, og á þvf uppboði verða boðin upp 3000 fslenzk minnka- skinn. t febrúar verður svo annað uppboð í London, og þá verða boðin upp 17 þús. skinn frá Islandi. Gert er ráð fyrir 25% hækkun á skinnum á desember- uppboðinu og talið er, að verðið verði stöðugt þangað til f vor. Skúli Skúlason skrifstofustjóri, sagði f samtali við Morgunblaðið í gær, að fslenzkir framleiðendur þyrftu að vera búnir að koma skinnunum á framfæri erlendis 30. nóvember, sem eiga að fara á desember-uppboðið. Það uppboð hefst 13. desember og lýkur þann 21. Verð á minnkaskinnum hefur hækkað nokkuð að undanförnu og gert er ráð fyrir 25% hækkun á desember-uppboðinu miðað við desember uppboðið í fyrra. Sagði Skúli að 17 þús. skinn frá islandi yrðu boðin upp f London í febrúar. í sama mánuði yrðu einnig boðin upp fslenzk minnka- skinn í Osló og Kaupmannahöfn, en þar yrði ekki um mikið magn að ræða. í vor er gert ráð fyrir, að verðið á skinnunum verði ekki eins stöðugt og í vetur. Stafar það af því, að bankar í Þýzkalandi taka 17% vexti af lánum til skinna- kaupmanna og því eðlilegt að skinnakaupmenn þar vilji ekki liggja með miklar skinnabirgðir í sumar. Ástæðan fyrir þvf, að bankarnir taka svo háa vexti af lánum til skinnakaupmanna er sú, að skinnin eru talin lúxusvara, sem fólk getur án verið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.