Morgunblaðið - 22.11.1973, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 22. NÓVEMBER 1973
Maður, sem held-
ur vöku sinni
Emil Jónsson: A milli
Washington og Moskva.
Minningaþættir — Skuggsjá —
Ilafnarfirði 1973.
Málverk og teikningar i hókinni
eftir Vilhorgu Emilsdóttur og
Hal ldór Pétursson.
Mér datt í hug f.vrirsögn þessa
greinarkorns um leið og ég hafði
lesið titilinn á minningaþáttum
Emils Jónssonar, enda var hann
snemma minnugur jafnt á það,
sem hann þurfti að leggja áherzlu
á sakir framtíðar sinnar f skóla og
starfi, og hitt, sem honum og öðr-
um bar að varast. Hann segir svo f
formála:
,,Eg hef nefnt bókina ,,A milli
Washington og Moskva" með hlið-
sjón af legu landsins og. þeirri
ómetanlega miklu þýðingu, sem
ég tel það hafa fyrir Islendinga,
að hvoru störveldinu þeir halla
sér og leita samstarfs við, en þetta
tel ég eitt allra stærsta mál, sem
ég hef haft afskipti af á langri
ævi."
Eg er réttum fjórurn árum eldri
en Emil Jönsson, en lauk gagn-
fræðaprófi hér í Reykjavfk sama
vor og hann. og vorum við báðir
utanskölamenn, svo sem það var
kallað. Hann var þá fjórtán ára.
en ég átján. Ilann lauk síðan
stúdentsprófi sextán ára og prófi f
verkfræði í Kaupmannahöfn
aðeins tuttugu og tveggja ára.
Leið mín varð öll önnur en hans.
en samt kom þar, að við áttum
allmikið saman að sælda í um það
bil tvo áratugi, þó að við byggjum
þá sinn á hvoru landshorni, og
reyndumst við vissulega báðir
skyggnir á það, löngu áður en
stórveldin tvö tóku að fjarstýra
eldflaugum, gervihnöttum og
tunglförum, að unnt væri að fjar-
stýra bæði ljtíst og leynt stjórn-
málalegri trú manna og athöfnum
13000 kílómetra vegalengd yfir
höf og lönd. Út af þessu skrifaði
ég Gröður og sandfok, Myrkur um
miðjan dagvog sitthvað fleira, og
auðsætt virðist mér af bök Emils
Jónssonar, þó að hann komi þar
nokkuð víða við, að hún sér fyrst
og fremst til orðin sakir þeirrar
skoðunar hans, sem fram kemur í
því í formálanum, sem ég hef
vitnað til i upphafi þessarar
greinar.
I fyrstu köflum bökar sinnar
gerir Emil grein fyrir ætt sinni og
uppruna og bernskuheimili sínu.
Hann er Arnesingur f báðar ættir,
en fæddur og uppalinn í Ilafnar-
firði, þar sem faðir hans ke.vpti
smáhýsið Dvergastein. Ilann var
verkamaður og sjömaður, en undi
illa atvinnuleysinu, sem þá ríkti í
kaupstöðum og kauptúnum oftast
marga ntánuði vetrarins. og tók
hann svo að höggva grástein til
húsagerðar og varð síðan aðallega
múrari að atvinnu. Móðir Einils
vann einnig utan heimilis. þegar
þess var kostur, en bæði voru þau
bókhneigð og bökakostur nokkur.
og svo naut Emíl þess ntikla
menningarauka að vera í bernsku
samvistum við fróða og vel hugs-
andi örhmu, sem skemmti honum
og fræddi hann eins og slíkar
konur gerðu á heimilum. áður en
til þess kom, að þær væru ein-
angraðar á ellihælum frá hinum
ungu afkomendum sínum.
Þá segir Emil sögu. sem gefur
nokkuð glögga hugmynd um.
hvað fátækir alþýðumenn. sent
mikið var f spunnið, lögðu á sig til
bjargræðis heimilum sínum á
bernskuárum hans.
Jón Jönsson. faðir Emils. réð
sig til róðra á árabáti austur að
Vattarnesi í Beyðarfirði sumarið
1906. og var sumarkaupið tvö
hundruð krónur. Um haustið fékk
hann ekki skipsferð heim og réð
sig fram til jóla til róðra og
ýmissa annarra starfa hjá bónd-
anum á Berunesi í Reyðarfirði.
Þar fékk hann hundrað krónur í
kaup. En ekki gat hann fengið
sjóferð vestur fyrr en seint og um
sfðir, svo að hann tók þann kost að
fara gangandi sex til sjö hundruð
kílómetra vegalengd suður og
vestur um land. Jóni fannst ekki,
að með þessu væri í mikíð ráðizt,
enda maður aðeins 31 árs, og til
ferðar með sér gat hann fengið
átján ára pilt, sem verið hafði í
vinnu á Búðum í Fáskrúðsfirði.
Ferðin frá Berunesi hófst 28.
desember. og henni var áfram
haldið dag hvern, hvernig sem
viðraði. unz Jön kom á tuttugasta
degi til frændfólks og vina í Vill-
ingaholti í Flóa og stóð þar við f
nokkra daga. Allar öbrúaðar ár
óðu þeir Engilbert, nema hvað
þeir fóru Jökulsá á Breiða-
merkursandi á undirvarpi .. . Svo
var það fyrsta árið, sem Emil var
vitamálastjöri, að hann á ferð
sinni um landið bar það i
mál við fylgdarmann sinn
yfir Skeiðarársand, að faðir
sinn hefði átt ferð um þessar
slóðir fyrir fjórum ára-
tugum leiðsögulaust. Kom þá upp
úr dúrnum, að faðir hans hafði
ekki látið sig muna um að dansa
heila nótt á Hnappavöllum á
þrettándadagsskemmtun og síðan
haldið áfram ferð sinni að
morgni. Öjá. ekki átti Emil langt
að sækja atorku sína, seiglu og
áhuga!
Sögu sína sem námsmanns.
embættis- og stjórnmálamanns
rekur Emil vfirlætislaust. skýrt
og skipulega. og þykir mér bökin
vitna urn samvizkusemi og rétt-
sýni. þö að raunar komi ekki öll
kurl til grafar, þar sem hann
getur átakanna um formanns-
skipti f Alþýðuflokknum 1952 og
ekki sé frekar í þessari l)ök en i
ævisögum þeirra Stefáns Jöhanns
og Bernharðs Stefánssonar getið
um sitthvað markvert og eftir-
minnilegt frá stjórnarmyndun-
inni 1934.
Annars virðist mér augljóst, að
Emil Jónsson hafi fyrst og fremst
17
ritað bókina til varnaðar þeim.
sem annaðhvort virðast hafa
gleymt eða aldrei gert sér
Ijóst f.vrir æsku sakir sitthvað
það, sem enn er vert að muna,
þegar teknar eru ákvarðanir um
íslenzk utanríkismál. Þar
eru í fyrsta lagi hinar mörgu
og margvíslegu til-
raunir íslenzkra kommúnista til
að villa á sér heimildir. í öðru lagi
hin eftirminnilega og sviksam-
lega kommúnistíska bylting f
Tékkóslóvakfu 1948. hin blóðuga
innrás f Ungverjaland. at-
burðirnir á Kúbu i stjörnartíð
•John Kennedys. ofbeldið gegn
Tékkum fvrir fáum árum, hinn
mikli kafbátafloti Rússa f Norður-
höfum og atburðirnir 1949 út af
samþykkt Atlantshaf ssamnings-
ins. en um þá fer Entil svofelldum
orðum:
„Rétt f\Tir mánaðamötin. marz
aðríl. var málið tekið upp á Al-
þingi. og er þar skemmst frá að
segja. að f öll þau ár, sem ég hef
átt sætj á Alþingi. hef ég aldrei
séð eða heyrt önnur eins læti og
þar áttu sér stað. bæði úti og inni.
Landráðabrigzl og sviðvirðingar
kommúnista virtust ekki eiga sér
nokkur takmörk, og úti fyrir þing-
húsinu höfðu þeir safnað saman
hinum villtasta og æstasta hluta
úr liði sinu. Grjtíti og moldar-
kögglum var kastað í þinghúsið.
rúður brotnar. ráðizt á þingmenn
og meira að segja hótað að drepa
menn . ."
Þeir kaflar. sem fjalla um
ástandið í heimsmálunum og
öryggi Islands f framtiðinni eru
nijög svo rækilegir. byggðir á
langri og erfiðri reynslu viturs.
gjörhuguls og sannábyrgs stjtírn-
málamanns, sent hefur kynnzt
ekki aðeins opinberlega. heldur
og að tjaldabaki. hvaða stefnu ber
að ntarka og hvað að varast. — og
hafi hann þökk fyrir þessa bók
sem og langt og merkilegt starf f
þógu þjóðar sinnar í hálfa öld.
utan þings og innan.
Guðmundur Gíslason Ilagalín.
Sig. Haukur Guðjónsson
skrifar um barna-
og unglingabækur
Bernskunnar
strönd
Höfundur: Þorvaldur
Sæmundsson.
Skreytingar: Halldór
Pétursson, Þröstur
Magnússon,
Bjarni Jónsson.
Prentun:
Prentsmið.ja
Hafnarfjarðar hf.
Útgefandi:
Ríkisútgáfa
námsbóka.
Þetta er saga um æsku drengs. í
sjávarþorpi. í upphafi þessarar
aldar. Kostir sögunnar eru marg-
ir. fyrst það. að hún laðar til um-
hugsunar um þá tíð. er liðin er.
næst það. að hún er skrifuð af
löngun til þess að fræða þann. er
les. ekki aðeins drepa fyrir liann
tima. Eg segi ekki með þessti. að
sagan sé ekki skemmtileg. við-
burðarík er hún. en hiifundi er
lifið sjálft slíkt ævintýr. að hann
reynir ekki að setja á svið æsiat-
burði. Já. þetta er saga um hvers-
dagslegan dreng og kynni hans af
lifinu á virkum degi.
Höfundur er kennari og stíll
hans geklur þess. Hann hefir það
mikið að seg.ja. að stíllinn verður
þungur aflestrar. ofhlaðinn.
Náttúrulýsingarnar eru að minu
viti of langar. og nákvæmar. þær
draga úr hraða frásagnarinnar.
færa siiguna inn á svið kennslu-
bökarinnar. Eins hefði ég kosið.
að höfundur hefði ekki notað otð.
sem torráð eru. án þess að skýra
þau neðanmáls. Stundum verður
jafnvel setjara og pröfarkalesara
hált á þessuni orðtim. l.d. bls. 31.
þar stendltr orðið kjókla en hlýt-
ur að eiga að standa kjótla —
smáflytja. Eg held að höfundur
næði betur til lesenda með því að
draga úr spennu stílsins. Hitt
dylst engum. að hiifundur á
erindi til unglinga. því að hann
hefir næma tilfinningu fyrir
hjartslætti lifsins. Myndir eru
skemmtilegar. sem vænla mátti
eftir slíka höfunda. Prentun er
göð. Villur fáar. Eiguleg . fræð-
andi bök.
Ulla horfir
á heiminn
Höfundur:
Kári Tryggvason.
Teikningar:
Sigrið Valtingojer.
Prentun:
ísafoldarprentsmiója
hf.
Útgefandi:
ísafoldarprentsmiðja
hf.
Þetta er lítil. snotur bök fyrir
börn, sem eru að hef.ja lestrar-
nám. Ulla — Ulfheiður — segir
söguna og höfundur re.vnir að lifa
sig inní hugarheima hinnar
þriggja ára hm\tu. Það gerir hann
mjög sannfterandi. enda hægt um
vik, þar sém höfundur er kennari
ög góður afi. Þetta tvennt yljar
bókarkornið. lötigun t.þ.a. Iræða
og kærleikur til þeirra. sem eru
að vaxa úr grasi. Þvi er þetta göð
bók, sem ég hika > kki við að mæla
með. Málið á henni er létt og
lipurt. en í tvigang hriikk ég þö
við og hugsaði: Ilér hefði Kári
getað gert betur. (Bls. II „Bil-
arnir læddust um göturnar og
sukku langt upp á hjölin." Bls. 22
..Bílarnir þjöta á harða spretti.")
Eg hefði kosið. að höl'undur hefði
annað tveggja beygt sig undir
nýju reglurnar um setuna eða
haldið gamla laginu. Annars er
bókin vel pröfarkalesin. og hefði
lítið a fylgt á bls. 25. þá hefði ég
getað sagt: mjög vel.
Myndir eru bráðvel gerðar. stíl-
hreinar og líl legar.
Prentun góð.
Eigulegt bókarkorn.
Haukur Ingibergsson.-
HUÓMPLÖTUR
The Who:
,Quadrophenia
Stereo, 2 LP
Plötuportið
Hljömsveitin The Who kom
Iram um svipað leyti og
Bítlarnir og er því ein elsta
hljómsveitin. sem starfar I
Bretlandi. Hápunkturinn á
vegna lélegra heimilisaðstæðna
og eiturlyf janeyslu.
Tónlistarlega eru öperurnar
einnig svipaðar. utan hvað
miklu meira er borið í undir-
leikinn á Quadrophenia. þar
sem ýmsir aðstoðarhl.jóðfæra-
leikarar koma við siigu. Einnig
hvílir allur söngur á Roger I)al-
trey. siingvara The Who. Siigu-
lerli The Who var poppöperan
Totnmy. sem út kom árið 1971).
Síðan hafa vinsældir og frægð
The Who farið dvínandi. Þessi
plata. Quadrophenia. gæti þö
snúið blaðinu við. því hér er á
ferðinni önnur öpera. sem
tekur Tommy að mörgu leyti
Iram.
Eins og Tommy Ijallar
öperan. si'in er á tveimur I.P
pliitum. uni dreng. sem raunar
er aðdáandi hljömsveitarinnar
The Who. og þessi drengur á
við svipaða erliðleika að et.ja og
Tommy. Báðir eru einangraðir
frá unihverfinu og ná lillti sam-
bandi við annað fólk. Tommy
vegna skynfæragalla en jiessi
þráðarins vegna væri þö auð-
velt að vinna upp úr plötunni
siingleik eð.a k\ ikmynd. eti
með pliitunni l'ylgir stiir bók.
þar sem saga unga mannsins er
rakin í máli og myndum. Það er
varla umdeilanlegt. ;ið með
þessari pliilli heftir Peter
Townshend enn b;ett við rós i
hnappagatið sem lagahöfundur.
en vel getur svo farið. að |)essi
ópera hl.jóti ekkr sömu vin-
sældir og Tommy. þar sem hún
var á sinum tima það lyrsta.
sem gert var al' slikti tagi auk
þess. sem svipaðar Inigmyndir
um einmanaleika og mannleg
samskipti ligg.ja að baki báðum
verkunum.