Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973 ENGIR FARI EIN- IR í RÓÐUR RANNSÓKNARNEFND sjóslysa hefur varað við því að menn stundi einir sjóróðra ð litlum þil- farshátum, og skorar á umráða- menn eða eigendur slíkra báta að fara aldrei til sjóróðra nema við annan mann. í fréttatilkynningu nefndarinn- ar segir, að það hafi komið í Ijós að undanförnu, að mikil brögð séu að því, að einn maður stundi sjóróðra á litlum þilfarsbátum. Þar sem svo sé ástatt, megi ekki mikið út af bera til að slys hljótist af. Nefndin varar eindregið við þessari óheillaþróun og telur að mannslífum sé stefnt i bráða hættu, þar sem enginn er við stjórn bátsins, þegar óhjákvæmi- lega þarf að sinna mörgum öðrum störfum. Skorar nefndin þvf á eigendur og umráðamenn slíkra báta að fara aldrei í sjóróðra nema við annan mann. Rannsóknarnefndin vill einnig taka fram, að hún hef- ur flutt starfsemi sína í Slysa- varnahúsið, Grandagarði, og er starfsmaður hennar Þórhallur Hálfdanarson. skipstjóri í Hafnar- firði. Almannatrygginga- bætur hækka HÆKKANIR hafa orðið á bót- um almannatrygginga, öðrum en f jölskyldubótum og fæðingarstyrk. t fréttatil- kynningu frá Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu segir svo. að kaupgjald f almennri verkamannavinnu hafi ha-kkað um 7MÓ hinn 1 desember sl. og í samræmi við 78. grein laga um alinannatryggingar hefur ráðherra þvf ákveðið hækkun á þessum bótum janúar 1974. um 7% frá I. Frá 1. janúar værða því bóta- upphæðir þannig: Elli- og örku- lífeyrir kr. 9.772. lífeyris-tekju trygging 15.108. Iiarnalífeyrir 5.001. mæðralaun kr. 858, kr. 4.653 og kr. 9.307, ekkjubætur kr. 12.245 miðað við 6 mánuði, 9.182 miðað við 12 mánuði og átta ára slysabætur 12.245 kr. Grímsey - nýr bát- ur sjósettur í gær GRlMSEY ST-2 var sjósettur í gær hjá f.vrirtækinu Skipavið- gerðum f Kópavogi. Fyrirtæki þetta hefur raunar lögheimili í Eyjum, og var bvrjað á smíði bátsins þar. Þá skall eldgosið á, og fyrirtækið varð að flvtja alla starfsemi sína ásamt vélum og tækjum til Kópavogs. Þar var síð- an tekið til við smfði bátsins að nýju í aprflmánuð' sl. Vest- mannaeyingar hafa að ollu leyti unnið að smfði bátsins. Grímsey er 18 lestir að stærð, og búinn 205 ha Scania-vél, Rap-tog- vindu og lfnuvindu, radar, full- komnum fiskleitartækjum ög ESTNBROT OG BÍLSTULDUR AÐFARANÖTT föstudags var brotizt inn í fyrirtæki í Skeifunni og stolið lyklum að bifreið, sem stóð þar fyrir utan. Bifrejðin fannst um morguninn í Hafnar- firði, óskemmd, en Íyklarnír fundust liggjandi á hurðarhúni annarrar bifreiðar inni í Njörva- súndi. í Reykjavík og var það eigandi hénnar, sem kom þeim til lögreglunnar. ... DRÆM RJÚPNA- VEIÐI RJÚPNAVERTtÐIN hefur verið heldur erfiðog dauf hér um slóð- ir nú f haust, sagði Hafsteinn Ólafsson f Fornahvammi f sím- tali við Morgunblaðið. “Veðráttan hefur verið rjúpna- veiðimönnum erfið," sagði Haf- steinn. „Sjálfum finnst mér, að minna sé um rjúpu í ár en í fyrra, a.m.k. verður maður hennar ekki nærri eins var og í fyrra. Hér var hjá okkur í haust rjúpnaskytta sem dvaldist hér i 20 daga. Flesta daga gekk hann til rjúpna og var 10 — 12 tíma i ferð. Ilann fór héðan með á sjöunda hundrað rjúpur." George S. Tomaszewski býður upp á hina nýju sjávarrétti. I miðju er Öm Erlendsson, framkvæmdastjóri Sölustofnunar lagmetis. —___. Nýir sjávarréttir fyrir lagmetisiðnað sjálfstýringu. Eigendur skipsins eru þeir Friðgeir Höskuldsson og Pálmi Einarsson á Drangsnesi. Framkvæmdastjóri Skipavið- gerða er Kristján Eggertsson, en yfirsmiður er Eggert Ólafsson. GEORGE S. Tomaszewski for- stjóri Gastronomiske Institut, ráðgjafafyrirtækis Sölustofnunar lagmetis, hefur verið hér á landi undanfarna daga og m.a. kynnt sýnishorn af ýmsum sjávarrétt- um, sem hann leggur til að lag- metisiðnaðurinn hér taki upp. En fyrirtækið vinnur að tillögum til endurbóta á framleiðslu, sem þegar er f gangi, svo og að nýjum vörutegundum. Hefur hann ásamt aðstoðarframkvæmda- stjóra sfnum Christiansen kynnt framframleiðendum f lagmetis- iðnaði þessi sýnishorn undan- farna daga. Fréttamenn fengu f gær tæki- Glaðbeittir skipasmiðir frá Eyjum hjá nýja bátnum, sem sjósettur várf gær. ’í'iin ... .......... ........................... ................. færi til að smakka á réttunum, sem Tomaszewski leggur til að niðursuðuverksmiðjur hér fram- leiði fyrir erlendan markað. Þar var m.a. þorskalifrakæfa með hrognum, sem ætluð er frönskum og tékkneskum markaði, síld í papríku, karrý og sinnepi, fiski- boliur ætlaðar á franskan mark- að, svonefndar Quenells, því Frakkar vilja „fiskibollur" sínar í löngum stautum. Sagði Tomas- zewski að íslenzku bollurnar gengju vel á finnskum og sænsk um markaði, en hentuðu ekki dönskum og ekki frönskum mark- aði. Þá var þarna gómsætur hörpudiskur. En tekið var fram, að áður en endaleg ákvörðun hef- ur verið tekin um uppskriftir, munu þær afhentar þeim verk- smiðjum, sem framleiða undir vörumerkinu „Icelandic Waters". En Gastronomiske Institut mun hafa eftirlit með því að fram- leiðslan sé f samræmi við tillögur þeirra. 2 seldu TVÖ SKIP seldu afla sinn f Bremerhaven f Þý’zkalandi í gær. Heimaey seldi alls 93,1 lest fvrir rúmar fjórar milljónir kr. og var meðalverðið 43,60 kr. á hvert kfló. Aflinn var mestmegnis ufsi. Þá seldi togarinn Vfkingur einnig Bremerhaven — alls um 130,9 lestir fyrir rúmar 5,6 milljónir og.yar meðalverðið kr. 43,25 kg. Aflinn var aðallega karfi, ufsi ogjanga. Markaðurinn i Þýzkalandi lækkaði í gær og stafar það aðal- legá af miklum afla þýzkra togara við Færeyjar. Rannsóknir staðfesta að Laxa- lóns-stofninn er heilbrigður NU liggur fvrir tvö vottorð frá Statens Veterina‘re Serumla- bratorium á Jótlandi, sém sér um veirurannsóknir á fersk- vatnsfiski f Danmörku, að regn- bogasilungurinn frá Fiskrækt- arstöðinni á Laxalóni sé með öllu laus við iPN-veiru, en án slíks vottorðs fæst ekki inn- flutninsleyfi fyrir fiski eða hrognum erlendis. Sérfræðingur frá umræddri stofnun kom hingað til lands :S.l. haust og tók blóð.sýnishorn úr fiskinum og síðan var silung- ur sendur utan til frekan rann- sókna. Leiddu þær rannsóknir í ljós, að regnbogasilungurinn er með öllu laus við IPN-veiruná. Skúli Pálsson á Laxalóni sagði blaðinu i grcr, að hann hefði í mörg ár óskað eftir. að þessi rannsókn færi fram. en fyrst nú hefði Pisksjúkdóln- nefnd látið af því verða. Til þessa hefði honum veríð neitað um heilbrigðisvottorð og þar með komið í veg fyrir milljóna- útflutning á hrognum og fiski. Skúli sagði þetta þeim mun hörmulegra, þar sem fisk- ræktunarstöðin á Laxalóni væri sennilega eina fiskeldisstöðin i Evrópu, þar sem stofnitin væri ekki sýktur. Síðastliðinn fimmtudag sagðist Skúli t.d. hafa orðið að flytja rúmlega 2000 kg af regn- bogasilungi úr frystihúsi f Fisk- mjölsverksmiðjuna að Kletti, þar sem silungurinn hefði verið kominn á annað ár og óhæfur til útflutnings, Heilbrigðisyott- orð hefði ekki fengizt. Skúli sagðist vonast til þess, að þessi staðfesting á heilbrigði stofnsins að Laxalóni yrði til þess, að útflutningur gæti nú hafizt og þar með komið í veg fyrir frekari tjón en þegar væri orðið. Skúli Pálsson meðeinn silung- inn, sem fór f bræðslu. Forsaga þessa máls er, að ljóst var við stofnun Sölumiðstöðvar lagmetis, að bæta þyrfti sölu og markaðsstarfsemi og gera mikið átak varðandi tæknilega uppbygg- ingu lagmetisiðnaðarins og vöru- þróun. Því var í ágúsmánuði sl. gerður samningur við fyrirtækið Georges S. ’ Tomaszewskis Gastronomiske Instritut, sem er hið eina ráðgjafarfyrirtæki á sviði matvælaiðnaðar í Evrópu og starfar fyrir framleiðendur um allan heim. Störf Gastronomiske Institut fyrir Sölustofnun lagmetisiðnað- arins fram til þessa eru: að gerá athugun á þeim tegundum, sem þegar eru í framleiðslu, með end- urbætur í huga; að gera tillögur um nýjar framleiðslutegundir bæði úr hráefnum sem áður hafa verið notuð, svo og úr ónýttum hráefnum hér; að stuðla að sem beztri nýtingu hráefnis með því að gera uppskriftir að vöruteg- undum, sem nýta hráefnisaf- ganga annarrar framleiðslu og að vera ráðgefandi um ytra útlit vör- unnar og kynningu á henni. Og það eru fyrstu sýnishornin, sem hann er nú að kynna fram- leiðendum, er síðan gera sfnar athugasemdir og endanleg ákvörðun um, hvaða vörur verksmiðjurnar framleiða, verður tekin síðar. Tomaszewski lagði áherzlu á, að matarvenjur í heiminum hafa Framhald á bls. 24. Lionsfélagar selja góðgæti LIONSKLÚBBUR Reykjavíkur er nú að hefja aðalátak ársins til fjáröflunar fyrir Ifknarsjóð klúbbsins. Fjáröflunarnefndin hefur látið útbúa jólakort, sem verða til sölu hjá félagsmönnum, og auk þess verða félagar staddir að Hverfisgötu 72, 1. hæð f dag — frá kl. 1—6 e.h. og hafa þar enn- fremur á hoðstólum ýmiss konar sjaldséð góðgæti, sem selt verður við hófiegu verði og rennur allur ágóði af sölunni til líknarstarf- semi. Lionsklúbbur Reykjavfkur er fyrsti Lionsklúbbur á íslandi og stofnaður 14. ágúst 1951. Aðal- þjónustustarf klúbbsins er á sviði sjónverndarmála og hjálp við blinda. Til dæmis hefur klúbbur- inn gefið smásjá til augnskurð- lækninga til augnlækningadeild- ar Landakotsspítala. Nú er ætlun- in að efla þessa starfsemi eins og frekast er unnt og leitar klúbbur- inn eftir stuðningi velunnara ■simia f þessn xkyjjj_

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.