Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973 Andi Krists varð vínandanum Mennirnir, sem standa að Samhjálp, ásamt trú- systkinum sínum í hvíta- sunnusöfnuðinum með Einar Gíslason forstöðu- mann í broddi fylkingar, eru Georg Viðar, Þor- valdur Sigurðsson og Björgvin Friðsteinsson. Við ræddum við þessa þrjá menn og tvo aðra, sem eru fyrrverandi ofdrykkju- menn, en hafa frelsazt heima hjá Þorvaldi að Vallá 2 í Mosfellsveit. Það er staður í líkingu við Vallá, sem þeir hafa hugsað sér að gera að samastað fyrir fyrrverandi fanga og ofdrykkjumenn. ÖLL þekkjum við þá menn, sem hafa leiðzt út í of- drykkju, og við könnumst öll við rónana, sem velta eftir „strætinu“, oft á tíð- um algjörlega ósjálfbjarga. Þegar við sjáum slíka menn, hugsum við að sjálf- sögðu oftast, „þessum er ekki viðbjargandi, hann er farinn í hundana og honum verður ekki snúið við“. Oft á tíðum reynist þessi skoð- un okkar rétt, en í einstaka tilvikum höfum við rangt fyrir okkur og viðkomandi nær að koma til lífsins á ný. Að undanförnu hefur borið nokkuð á félagsskap, sem nefnist Samhjálp. Þeir menn, sem að þessum félagsskap standa, ásamt trúsystkinum í hvítasunnu- söfnuðinum, eiga það allir sameiginlegt að hafa verið ofdrykkjujmenn um langt skeið, og sumir setið í fangelsum nokkurn hluta ævi sinnar. Þessir menn hafa nú allir „frelsazt“, því þeir eru allir starfandi i hvítasunnusöfnuðinum og þeir þakka starfsemi hvíta- sunnumanna, að þeir hafa náð sér upp úr ofdrykkj- unni og hafið annað og betra líf Nú hafa þessir menn sameinazt um að reyna hjálpa þeim, sem eru afvegaleiddir drykkju- menn, til betra lífs. En það er ekki hægt nema þessir menn öðlist trú, — trúin er allt segja þeir. Það eru kannski ekki allir, sem taka orð þessara manna trúanleg, en í Svíþjóð reka hvítasunnumenn félags- skap í líkingu við Samhjálp og Samhjálp er stofnuð með sama markmið f huga og sænska samhjálpirr. 75% þeirra ofdrykkju- manna, sem hafa verið í meðferð hjá sænsku sam- hjálpinni, hafa öðlazt full- kominn bata. En sænska ríkið telur, að aðeins 1% þeirra ofdrykkjumanna, sem teknir eru til með- ferðar á drykkjumanna- hælum ríkisins, öðlist full- kominn bata, hinir fari all- ir í sama farið aftur. Þorvaldur fór að búa að Vallá 2 í fyrra ásamt eigin- konu sinni og fjórum stjúp- dætrum. Þarna segist hann kunna einstaklega vel við Félagarnir fimm samankomnir heima hjá Þorvaldi Sigurðssyni að Vallá 2, ásamt Einari Gfslasyni forstöðumanni hvftasunnusafnaðarins. Talið frá vinstri: Georg Viðar, Þorvaldur Sigurðsson, Björgvin Friðsteinsson. Guðbjartur Þorleifsson, Einar Gíslason og Ulfljótur Jónsson. Ljósm. Mbl.: Sv. Þ. Hér er Þorvaldur Sigurðsson ásamt fjölskyldu sinni. Frá vinstri er eiginkonan Guðrún Magnúsdóttir og þá dæturnar Svanhvft, Marfa og Anna Lára. sig, enda sé eigandi hússins einstakur maður i alla staði. 5 ár á Litla Hrauni „Ég er rétt rúmlega fertugur," segir Þorvaldur og bætir við, „samtals er ég búinn að vera 5 ár á Litla Hrauni, sem þýðir að átt- undi hver dagur í lífi mínu hefur farið algjörlega til ónýtis. Þeir dagar eru reýndar fleiri, því ég var ofdrykkjumaður og afbrota- maður í fjölda ára. Það var alltaf þannig, að i hvert skipti, sem ég losnaði úr fangelsinu, fór ég út með þeim ásetningi, að nú skyldi ég hefja nýtt og betra líf. En þetta fór alltaf á einn veg, ég hitti mína gömlu félaga og þá var ekki að sökum að spyrja. Þetta er kannski eðlilegt, því að þegar fangar losna úr fangelsi á Islandi, þá er engin aðstaða til fyrir þá, engin aðstaða til að hefja nýtt og betra líf. Það er ekki nóg að hleypa þessum mönnum peningalausum út á götuna. Það verður að hjálpa þeim að komast af stað í lífinu á ný.“ „Hvað var það, sem frelsaði þig?“ „Við getum þakkað hvítasunnu- mönnum mína frelsun. Þeir koma alltaf í heimsókn á Litla Hraun með stuttu millibili og flytja þar tæran og ferskan boðskap. Boð- skap fullan af kærleik. Þeir höfðu með sér menn með sömu reynslu og ég hef. Nú svo frelsaðist ég á samkomum hjá þeim. Nú er það min innsta þrá, eftir að hafa eign- azt konu og 4 börn, að miðla þess- ari starfsemi. Við erum öll frelsuð konan mín, ég og börnin." „Hvert er upphaf Samhjálpar á Islandi?" „Georg Viðar er höfundur að þessari starfsemi hérlendis, sem er sótt til Svíþjóðar, en þangað sækja nú aðilar hvaðanæva úr heiminum til að kynna sér starfsemi hvitasunnumanna þar. Forstöðumaður safnaðarins, Einar Gíslason, hefur veitt okkur ómetaniegan stuðning. í stað þess að þiggja gjafir á 50 ára afmæli sínu, sem var snemma á þessu ári, óskaði hann eftir þvi, að stofnað- ur yrði sjóður til hjálpar afvega- leiddu fólki. Síðan höfum við leit- azt við að safna fé til starfsem- innar. Við höfum hug á að koma upp miðstöð fyrir þá, sem ekkert heimili eiga. Þetta er nauðsyn- legt, því þó að Reykjavíkurborg reki næturdvalarheimili fyrir slíka menn, þá verða þeir að fara þaðan á morgnana, og allir vita, hvert þeir fara þá, beint í stræt- ið.“ Hafði reynt allar leiðir „Hafðir þú gert mikið til að hætta að drekka?" „Já, ég var búinn að reyna allar leiðir. Ég hafði verið á Kleppi, Bláa bandinu og Gunnarsholti. Færir geðlæknar sögðu mér að lokum, að ekki væri hægt að ná mér upp úr drykkjuskapnum. En það fór á annan veg, þegar ég kynntist fagnaðarboðskapnum. Þá kom eitthvað yfir mig, sem erfitt er að skýra. Sat inni í 25. skipti „Ég var víst 15 ára gamall, þegar ég hóf drykkjuskapinn,“ sagði Georg Viðar. „Ég lenti strax út á götuna. Ætli ég hafi ekki verið í 15—25 skipti í fangelsi. Annars var ég alltaf á þvælingi, maður rúllaði milli fangelsa, Klepps, báta og skúmaskota. Það má segja, að ég sé búinn að reyna allt, t.d. var ég búinn að vera „uppdópaður" i nokkra mánuði, áður en ég hætti að drekka. Síðast þegar ég sat inni, komst ég í bréfasamband við hvíta- sunnumenn. Ég var þá búinn að ákveða að reyna hætta drykkju- skap, en allt fór á sömu leið, þeg- ar ég kom út. Þá lá leiðin niður i Hafnarstræti. Þaðan þvældist ég til Svíþjóðar, var þar fullur í eitt ár. Af tilviljun einni lenti ég inn á samkomu hvítasunnumanna þar, og ég læknaðist á augabragði. Síð'* an þetta var, hef ég einu sinni verið í Sviþjóð, og þá til að kynna mér starfsemi samhjálparinnar sænsku, en hjá þeim ná 75% af afvegaleiddu fólki bata, en aðeins 1 % á rikisreknu stöðunum. Þessi hæli eru byggð upp á ölíkan hátt. Annars vegar er það kærleikur Krists, en hins vegar lyf. Það hefur komið í ljós, að þáð er kærleikur Krists, sem læknar, en ekki lyf. 96. þús. kr. mánuðurinn „Þeir eru sjálfsagt fáir,“ segir Georg, sem gera sér í hugarlund, hvað hver fangi á Litla Hrauni kostar ríkið mikið á mánuði. Það eru hvorki meira né minna en 96 þúsund kr. um þessar mundir, en rekstrarkostnaður Litla Hrauns mun nema á þessu ári um 30 millj. kr. Þess vegna stofnuðum við Samhjálp til að sýna, að það er hægt að gera afvegaleidda menn að nýtum mönnum á ný. Menn lenda ekki út í þetta vegna þess, að þjóðfélagið hafi verið þeim vont. Ástæðan er einhver önnur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.