Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 08.12.1973, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973 ÍÞRðTTAFRÉTTIR MORMRLABSINS ísland áfram — ítalir hættir Handknattleikssambandi Is- lands barst f fyrradag skeyti frá italska handknattleikssam- bandinu þar sem segir, að ítalir dragi sig til baka úr Heims- Farnir að ruglast á r Asgeiri og Cryuff Vsgeir Sigurvinsson gerir þaðgott með Belgum og vekur stöðugt meiri athygli. Eftir síðasta leik Standard Liege birtust myndir af Vsgeiri í mörgum belgískum blöðum, og alls staðar var farið lofsam- legum orðum um unga leik- manninn frá íslandi. Einu blaðanna varð þó heldur betur í messunni því að rangur myndatexti birtist með myndinni af Asgeiri, en undir henni stóð, að knattspyrnu- stjarnan Johann Gryuff ætti ekki velgengni að fagna með liði sfnu Barcelona. Annars staðar á sfðunni var svo mynd af Cryuff og undir þeirri mynd stóð, að Asgeir Sigurvinsson væri f stöðugri framför. Nýlega birtist langt og mikið ðtal við Asgeir í þekktu fþróttahlaði í Belgfu, og annað stærsta blað Belgfu lét svo um mælt nýlega, að innan tveggja ára yrði Asgeir orðinn bezti knattspyrnumaður Belgfu. Topplið 3ju deildar berjast í körfunni AÐEINS einn körfuknattleikur fer fram um helgina, Fram og FH leika í íþróttahúsinu í Hafnar- firði klukkan 14 á morgun. Eru þessi lið þau einu, sem ekki hafa tapað leik í þriðju deild til þessa. meistarakeppninni f handknatt- leik og gefi þá tvo leiki, sem liðið eigi eftir að leika. Eftir þessu að dæma eru tslendingar þvf þegar komnir f úrslit lleimsmeistara- keppninnar, en stjórn HSt hefur sent Alþjóðahandknattleiks- sambandinu skeyti og beðið um staðfestingu á þvf aðtsland verði meðal þátttökuþjóða í úrslita- keppninni. ítalir tilgreina tvær ástæður fyrir því, að þeir hætta frekari þátttöku, þ.e. fjárhagserfiðleikar og deildakeppni heima f.vTÍr. Eins og kunnugt er áttu ítalir að greiða allan kostnað við síðari leik Islands og Ítalíu, sem fram átti að fara á Ítalíu, og hefði sá kostnaður numið um 800 þúsund- um. islendingar hefðu að öllum líkindum komizt í úrsiit keppninnar þó svo að leikið hefði verið við Itali, en hins vegar léttir það mikið á handknattleiks- mönnunum að sleppa við þennan leik. Bæði er það, að margir leikir fara fram hjá liðinu í þessum mánuði og svo annað, að íslenzku landsliðspiltarnir eru ekki sér- lega hrifnir af itölunum eftir fýluferðina þangað á dögunum. Hins vegar vaknar sú spurning hvort itölunum verði ekki refsað á einhvern hátt fyrir framkomu sína í keppninni. Um leið og lið tilkynnir þátttöku í einhverri keppni hlýtur það að skuldbinda sig til að leika leiki keppninnar og hlíta alþjóðareglum. Það hafa italirnír engan veginn gert í þetta skipti, ef til vill verður þeim meinuð þátttaka í næstu Heims- mei starakeppni. VALUR AÐALFUNDUR handknattleiks- deitdar Vals verður haldinn í félagsheimili Vals í dag og hefst klukkan 14.00. Arni Indriðason, Gróttu, einn bezti leikmaður 2. deildar, f leik gegn Fylki f fyrra, en Grótta og Fylkir leika á morgun. Frí í 1. deildinni Leikið í öðrum deildum um helgina LEIKMENN 1. deildar karla f handknattleik eru nú komnir f jólaleyfi og verður ekki leikið f þeirri deild fyrr en eftir áramót. Landsliðsmennirnir halda hins vegar utan á þriðjudaginn til þátttöku f alþjóðlegu handknatt- leiksmóti f A-Þý-zkalandi. Þó að þessi helgi verði tiltölulega róleg i handknattleiknum fara fram leikir f öðrum deildum, en fyrstu leikir yngri flokkanna í þessu ís- landsmóti fara fram á morgun. JENS HÆTTUR í MÓTANEFND NÚ IIEFUR verið skipað í f|estar þær nefndir, sem starfa á vegum KSÍ. Jens Sumarliðason, sem síð- astliðið ár var formaður Móta- nefndar með frábærum árangri baðst undan því embætti vegna tímaskorts 6g tekur Helgi Dati- íelsson við formannsstarfinu i nefndinni. Auk Helga sitja þeir Ragnar Magnússon og Páll Bjarnason i Mótanefnd KSl. Jens SumaHiðason hefur tekið við formannsstarfi í Aganefnd KSÍ. Ekki hefur enn verið ákveð- ið hver verður skipan Iandsliðs- nefndar eða unglinganefndar. Iiafsteinn Guðmundsson hefur verið beðinn um að gegna starfi landsliðseinvalds áfram, en hefur ekki enn svarað þeirri málaleitan. Ekki er ólíklegt að einhverjar breytingar verði á unglinganefnd- inni, en i sambandi við þá nefnd má nefna, að líklegt er, að ísland taki næsta sumar þátt i Norður- Norskt sundmet Á SUNDMÖTI, sem fram fór f Flisa fyrir skömmu, setti Gunnar Gundersen nýtt norskt met í 400 metra fjórsundi, synti á 4:49,5 landamóti unglinga 14 — 16 ára, en slíkt mót hefur ekki verið haldið áður. Á Akureyri verður mikið barizt um helgina, en þar fara fram fjór- ir leikir í 2. deild karla. I dag klukkan 16.30 hefst leikur KA og KR, einn af stórleikjum deildar- innar, og verða KR-ingar að vinna þann leik ætli þeir sér sigur i 2. deild. Hætt er þó við, að sigurinn verði liðinu erfiður, KA-menn eru einnig sigurstranglegir i 2. deild og eru með tvo leiki og fjögur stig, en KR hefur tapað einum leik. Þá leika Völsungar og ÍBK og er þar um baráttu nær botni en toppi að ræða. Á morgun klukkan 14 hefst leikur Völsunga og KR og síðan leika KA og ÍBK. Á Seltjarnarnesi fara fram á morgun 2 leikir í 2. deild, báðir tvísýnir. Breiðablik leikur gegn Þrótti, Þróttur ætti að sigra, en Breiðabliksliðið er til alls liklegt og minnast ber sigurs liðsins yfir KR á dögunum. Þá leikur Grótta og Fylkir, Gróttuliðið er nokkuð sterkt, en alls ekki övinnandi og ef til vill nær Fylkir sínum fyrstu stigum gegn Gróttunni. Fyrri leikurinn hefst kl. 15.30. í 1. deild kvenna leika KR og Valur annað kvöld klukkan 20.15 og er Valssigur líklegur. Þá mæt- ast Víkingur og Ármann og verð- ur að telja sigur Ármanns nokkuð vfsan. í Hafnarfirði verður á morgun leikið i 2. flokki karla og i Njarð- víkum f 2. flokki karla og 2. deild kvenna. Foster varði titil sinn BANDARÍKJAMAÐURINN Bob Foster varði heimsmeistaratitil sinn I hnefaleikum léttþungavigt- ar, er hann mætti S-Afríkubúan- um Pierre Fourie i leik f Jóhann- esarborg um síðustu helgi. Var þetta í 13. skiptið sem Foster ver titil sinn, og vann hann nú sigur sinn á stigum. Um 40.000 manns fylgdust með viðureigninni, og var gerður ræki- legur munur á hvítum mönnum og svörtum á áhorfendapöllunum. Aðeins 7000 blökkumenn fengu aðgang að keppninni, og varþeim skipað sér á verstu stæðin i hús- inu. Fyrir leikinn fékk Foster upp- hæð, sem svarar til 16 millj. ís- lenzkra króna, og sagði hann eftir leikinn, að það væri peningaupp- hæðin, sem hann væri ánægðast- ur með. Leikurinn sjálfur hefði skipt minna máli — það hefði vissulega verið atriði að sigra, en engin ástæða hefði verið til þess að rota Fourie. Meðfylgjandi mynd er frá við- ureign kappanna og sýnir Fourie koma góðu höggi á Foster. Endaskipti ENDASKIPTI verða á íþrótta- þætti sjónvarpsins i dag, þannig að byrjað verður á ensku knatt- spyrnunni, leik Leicester og Tottenham. Klukkan 18.30 hefst svo bein útsending úr sjónvarps- sal á sýningu borðtennis- spilaranna frá Kína. Á morgun gefur sjónvarpið íþróttunum frí, en þess má geta hér, að mynd frá fimleikahátíðinni, s»*m fram fór síðastliðinn sunnudag, verður sýnd í sjónvarpinu á nýársdag. ■* * *'• * v * ir» % Jt. K i , fl fc Í1L i *1 B íl f i l .)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.