Morgunblaðið - 08.12.1973, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973
21
Friðjén Þórðarson:
Bætt verði póst-
og símaþjónusta
Gætu íbúar á Reykjavíkur-
svæðinu hringt í u.þ.b. 40 þúsund
símanúmer á lægsta gjaldi, en
víða úti á landi gæti símanotandi
einungis hringt i nokkra tugi
númera á lægsta gjaldi. Auk
þessa byggju íbúar á Reykja-
víkursvæðinu við það hagræði, að
flestar opinberar stofnanir væru
þar staðsettar, svo og fyrirlæki,
sem all.ur þorri landsmánna
þyrfti að leita til.
Þá hefði einnig yerið kvartað
yfir því, að póstsamgöngum væri
mjög ábótavant vfða um landið.
Bréf og blöð væru lengi á leiðinni
og yfirleitt hefði póstþjónustan
alls ekki fylgzt með tímanum.
Kvaðst Friðjón vilja taka fram, að
ekki væri hér um að ræða ádeilu á
póst- og símamálastjórn, heldur
ylti á fjárveitingavaldinu, hvern-
ig færi í þessum málum.
Aðlokum sagði þingmaðurinn:
„Þetta er mál, að visu kannski
ekki stórmál, og þó mikið stórmál
í augum margra, sem þarna eiga
hlut að máli. Það snertir fjölda
landsmanna, þetta er mál þar sem
reyna ber til hins ýtrasta að láta
alla sitja við sama borð. Hér er
um að ræða réttiætismál í anda
þeirrar byggðastefnu, sem nú er
svo mjög höfðá orði. Tillaga þessi
er flutt til þess að hvetja alla
aðila, sem hún varðar, til ýtrustu
viðleitni og raunhæfra fram-
kvæmda í þessum málum."
Auk Friðjóns tóku Steinþór
Gestsson (S) og Pálmi Jónsson
(S) til máls.
Lög um 7 milljón
dollara lán o.fl.
í fyrradag var afgreitt sem lög
frá Alþingi frumvarp um lán-
tökuheimild vegna framkvæmda-
og fjáröflunaráætlunar 1973 og
um sérstaka lánt ökuheimi Id
vegna hafnarframkvæmda. í með-
förum þingsins urðu allmiklar
deilur um þessa lagasetningu, þar
sem upphaflega frumvarpið, sem
lagt var fyrir þingið, hafði ein-
ungis inni að halda staðfestingu á
bráðabirgðalögum um fvrri lán-
tökuheimildina, en á sfðara stigi
var að undirlagi fjármálaráð-
herra skotið inn í frumvarpið 7
milljón dollara lántökuheimild
vegna hafnarframkvæmda á suð-
urströndinni. Samningar um þá
lántöku höfðu tekizt við Alþjóða-
bankann vegna vandamála veiði-
flota Vestmannaeyinga, sem upp
kom meðan á eldgosinu stóð.
Gagnrýndu þingmenn, að ekki
skyldi hafa verið flutt sérstakt
frumvarp um þaðefni.
1 frumvarpi ríkisstjórnarinnar
um þetta efni var gért ráð fyrir,
að fé þetta rynni til hafnarfram-
kvæmda í Þorlákshöfn, Grindavík
og Höfn f Hornafirði. Guðiaugur
Gíslason bar fram breytingartil-
lögu við þetta, þegar málið var tii
2. umræðu í neðri deild. Lagði
Guðlaugur til, að hluti fjárins
rynni til hafnarbóta í Vestmanna-
eyjum sjálfum. Fjármálaráðherra
setti sig upp á móti þessari til-
lögu, og sagði, að samningar væru
frágengnir við Alþjóðabankann
og hætta væri á, að lánið fengist
ekki ef við þessu væri hróflað.
Náði tillaga Guðlaugs ekki fram
aðganga.
Þá kom einnig fram á þinginu
sú skoðun þingmanna, m.a.
Matthíasar Bjarnasonar og Pálma
Jónssonar, að þessi háu framlög
til hafnanna áSuðurlandi mundu
draga úr getu ríkissjóðs til fram-
laga til annarra hafna á landinu á
næstu árum, þar sem það skilyrði
er sett af Alþjóðabankanum, að
allveruleg upphæð komi frá ís-
lenzka ríkinu á móti láni bankans
til Suðurlandshafnanna. í tilefni
af þessari gagnrýni lýsti f jármála-
ráðherra yfir því, að hann mundi
stuðla að meira framlagi til hafna
á næsta ári en þvf, sem ráð er
fyrir gert f frumvarpinu.
Ilér fara á eftir lögin, sem af-
greidd voru í gær:
Lög um lántökuheimild vegna
framkvæmda- og fjáröflunaráætl-
unar 1973 og um sérstaka lán-
tökuheimild vegna hafnarfram-
kvæmda.
1. gr.
Ríkisstjórninni er heimilt að
taka erlent lán, að fjárhæð allt að
l. 400 m.kr. eða jafnvirði þess í
erlendri mynt.
2. gr.
Af lánsfjárhæðinni skulu 800
m. kr. endurlánaðar Fram-
kvæmdasjóði íslands í samræmi
við framkvæmdaáætlun, en að
öðru leyti skal henni ráðstafað
skv. gildandi lagaheimildum.
3. gr.
Ríkisstjórninni er einnig heim-
ilt að taka 7 milljón dollara lán
hjá Alþjóðabankanum til hafnar-
framkvæmda í Grindavík, Þor-
lákshöfn og Höfn í Hornafirði eft-
ir nánari ákvörðun ríkisstjórnar-
innar.
4. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar í
stað.
^oXakttJJiskjeií
Magnús E. Baldsln
A FUNDI sameinaðs þings sl.
þriðjudag mælti Friðjón Þörðar-
son (S) fyrir þingsályktunar-
tillögu, sem hann flytur ásamt
Jóni Arnasyni (S) og Steinþóri
Gestssyni (S) um bætta póst- og
sfmaþjónustu um byggðir
landsins. Tillagan er svohljóð-
andi:
Alþingi ályktar að skora á rfkis-
stjórnina að gera nú þegar ráð-
stafanir til að auka og endurbæta
þjónustu Pósts og síma úti um
byggðir landsins, svo að allir
landsmenn geti búið við sem jafn-
asta aðstöðu að þessu leyti.
Friðjón Þórðarson fjallaði í
upphafi ræðu sinnar um þann
mun á aðstöðu, sem Reykviking-
ar búa við annars vegar og íbúar
landsbyggðarinnar hins vegar.
MATVÖRUMARKAÐUR VESTURBÆJAR
Höfum breytt verzluninni Hagakjör í matvörumarkað. Reynið
viðskiptin. Verzlið ódýrt.
MATVÖRUMARKAÐUR VESTURRÆJAR
Hagamel 67.
ÚRVALS
JOLA
LJOSASERIUR
SAMÞYKKTAR AF RAFFANGA-
EFTIRLITI RÍKISINS. 7 GERÐIR: 17
EÐA 20 LJÓSA MEÐ EÐA ÁN
KLEMMA
PERUR MEÐ PERMANENTROFA.
EF EIN PERA BILAR, ÞÁ LOGAR
HINUM.
MJÖG STERK LAKKM
EKKI FLAGNAR AF.
PERURNAR ÞOLA VEL HINN MIKLA
SPENNUMISMUN SEM ER UM
JÓLIN.
VARAPERUR
FYRIR:
12 UÓSASERÍUR
16, 17 OG 18 LJÓSA SERÍUR
20 UÓSASERÍUR.
KERTAPERUR í 16 TIL 18 LJÓSA
SERÍUR.
ATHUGIO GOMLU
SERÍUNA TÍMANLEGA
FYRIR JÓLIN.
HEIMILISTÆKI SF.
HAFNARSTRÆTI 3 - SÍMI 20455
sameignegt
simanúmer
sameiginlegrar
farskrárdeildar fyrir millilandaflug
islensku flugfélaganna er
B
FfZ,cf£!£c loftwdir
ISLANDS