Morgunblaðið - 08.12.1973, Side 23

Morgunblaðið - 08.12.1973, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973 23 Aðeins ein jörð Hrakspárnar gagnrýndar NIÐURSTÖÐUR vísindamanna Rómarklúbbsins í bókinni ..Þróun vaxtar“, sem sagt var frá í þessum dálkum síðast, hafa verið teknar til meðferðar í erlendum ritum og gjarnan dregnar í efa ýmsar for- sendur, sem höfundar gáfu sér. Bent hefur verið á að þó tölva sé mötuð á margvíslegum upplýsing- um, þá geti niðurstaðan ekki orð- ið betri en upplýsingarnr, sem látnar eru f*té, og bæði hafi tölvan ekki fengið nema brot af nauðsyn- legum upplýsingum i þessum út- reikningum og að sumar þeirra orki tvímælis. Margar stærðir séu því vafasamar og niðurstöður og hrakspár um hrun heimsins inn- an viss tíma of mikil svartsýni. Everett E. Hagen, prófessor i hagfræði og stjórnvísindum í aí- þjóðlegri rannsóknadeild Tækni- stofnunarinnar i Massachucettes segir t.d., er hann tekur þessa bók til meðferðar: ,,Við lifum á öld kvíðans. A slikum tfmum koma fram bækur, sem ná umsvifalaust miklum vinsældum, vegna þess að þær annað hvort létta kvíðanum af fólki eða staðfesta hann. I Bandaríkjunum má taka sem dæmi um hið fyrrnefnda bók Reichs „The Greening of America“, Þar sem fagurt nýtt þjóðfélag var örugglega og fyrir- hafnarlaust að v.erða til, aðeins af því að unga fólkið óskaði þess. Það hlyti að verða, því sífellt mundu fleiri óska eftir því. „Þró- un vaxtar" er aftur á móti dæmi um hið síðarnefnda. Mannkynið hefur fullkomna ástæðu til kvíða, segja höfundar hennar. Ef við ekki gerum mjög róttækar og allt að þvi kraftaverkakenndar ráð- stafanir, þá eigum við von á hruni heimsins áður en ein öld er liðin. Slfkum bókum ertekið gagnrýnis- laust af fólki, sem „hefur það á tilfinningunni“ að dómsdagsboð- skapurinn sé réttur. Þessi boð- skapur þarf ekki endilega að vera raneur. þó að hann sé viðtekinn af tilfinningalegum orsökum. Boðskapurinn kann að vera réttur og mikilvægur fyrir það og það borgar sig vissulega fyrir okkur að gefa þeim rökum, sem fram eru sett í „Þróun vaxtar" fullan gaum. Það er svosem ekki eins og slík- ar kenningar séu alveg nýjar af nálinni. Lesendur munu kannast við, að Thomas R. Malthus kom fram með svipaðar kenningar um 1800. Og „Þróun vaxtar" er ein- faldlega íburðarmeiri útgáfa af kenningum 'Malthusar, segir próf. Hagen. Malthus gerði sér ekki grein fyrir mikilvægi tækniþróun ar, sem fram fór allt í kring um hann. Sjö öldum seinna hafna höfundar „Þróunar vaxtar“ líka mikilvægi hennar, með þvi að sleppa alveg að taka tækniþróun- ina með í reikninginn. Spurning- in er því: Nú, þegar maðurinn er búinn að breiða svona miklu meira úr sér á jörðinni en á dög- um Maltusar, og auka svona mikið nauðsynlegar þarfir sínar, er kenningin, sem þá var röng, orðin rétt? Aðferðirnar til að fá þá útkomu, sem sett er fram í „Þróun vaxt- ar“ geta líka orkað tvímælis, segja þeir, sem gagnrýna hana. Ilöfund- arnir segja: Við getum með nokk- urri vissu sagt, að verði engar verulegar breytingar á núverandi ástandi, þá munu fólksfjölgun og iðnvöxtur stöðvast, áður en ein öld er liðin. Síðan reyna þeir ýmsa valkosti í tölvunni, svo sem aukna landbúnaðarframleiðslu, tvöföldun á auðlindunum, ótak- marðar auðlindir (að undanteknu landrými) o.s.frv. — og fá út hrun heimsins á endanum. En aldrei er gert ráð fyrir neinum tæknilegum framförum. En með þessum for- sendum þarf engar tölvur. A einni mínútu getur hver manneskja séð, að farí mannfjölg- unin sifellt vaxandi svo lengi sem nokkur fæða Ievfir, engar tækni- legar framfarir verða og engin aukning verður á afurðum hvers hektara, þá verður endirinn óhjákvæmilega sá sami. Sá endir sem Malthus spáði. Tölvan reikn- ar bara út hvenær þetta sé vænt- anlegt. Margt af þessu er rangt, segja þeir gagnrýnu. Það er staðreynd að fæðingartalan lækkar jafnan nokkru eftir að dánartalan lækk- ar. Það er margreynt. Til eru nokkuð nákvæmar og áreiðanleg- ár skýrslur í 46 fremur Iítið þróuðum löndum og í 42 þeirra hafa fæðingartölur verið miklu Iægri á árunum 1968—1969 og 1970 en þær voru á árunum 1960—65,. En eftir síðari heims- styrjaldarárin fór dánartalan þar lækkandi. Kannski má draga af þessu ályktanir fyrir 21. öldina. Ef við lítum næst á auðlindirn- ar, þá er sú kenning röng, að margar þeirra séu óbætanlegar, segja gagnrýnendur „Þróunar vaxtar". Það er augljóst, að eitt- hvert tiltekið efni sem notað er í framleiðslu, muni einhvern tfma eyðast upp, þó að hægt sé með sparnaði eða fundi nýrra náma að seinka því. En fundur nýrra not- hæfra efna getur breytt myndinni algerlega. Síðan um 1800 hafa menn skapað úr þá gagnslaus- um eða nærri ónothæfum efn- um bæði steinolíu, raforku úr vatnsafli, atómorku, kjarnorku, ál, plast og nærri öll gervi- efni — svo aðeins nokkuð sé nefnt. Plastið eitt á vafalaust eftir að koma í vaxandi mæli f stað ýmissa hráefna úr jörðu, og erfitt er að sjá fyrir skort á leirnum, sem plastið er búið til úr. Þá eru það tækniframfarirnar, sem hugsanlega geta leyst fæðu- vandann, segja gagnrýnendur hrakfallakenninganna. Með bætt- um tegundum, áburði, aðferðum, „undrahveiti" og „undrahrís- grjónum", hefur afrakstur hvers hektara lands farið sívaxandi. Því skyldu þær framfarir stöðvast nú? Og er ekki hugsanlegt, að hægt verði að framleiða „tilbúinn mat“, alveg eins og „tilbúin efni“ eru að taka við af nátturuefnun- um? Og þegar gerviefnin leysa af hólmi náttúrulega ræktuð efni, eins og t.d. strigann, þá losnar land til ræktunar fæðu. Einnig geta bættar vélar aukið afköstin. En hvað um mengunina? Hana má minnka niður í sárlitla meng- un með þvi einu að krefjast þess, að iðnaðarframleiðendur taki upp nú þekktar antimengunaraðferðir og með því að taka á okkur kostn- aðinn af slíkum ráðstöfunum, ^ segja gagnrýnendur. Um- hverfisyfirvöld Bandaríkjanna halda því fram. að ekki kosti meira að minnka iðnaðar- mengun á næstu einum til tveimur áratugum í næstum ekkert en sem nemur ár- legri aukningu þjóðarframleiðsl- unnar og mun minna eftir að búið er að ljúka stofnkostnaðinum. Hvað tækninni viðvíkur, þá er engin ástæða til að halda að hún , stöðvist nú. Ef við getum klofið atómið og yfirunnið aðdráttarafl jarðar með því að senda eldflaug- ar á stærð við herskip út í geim- inn á næstu 30 árum. þá er ekki gott að segja, hvaða aðrar tækni legar framfarir verða á hverri mannsævi. I fyrstu grein í þessum dálkum var gerð nokkur grein fyrir spám Rómarklúbbsins í „Þróun vaxt- ar“, en hér hefur verið tínt til sitthvað sem gagnrýnendur þeirra kenninga draga fratn til andmæla. —E.PA // grein ,Bara. , arsemk 1 Guðsgjafaþulu er t.a.m. minnzt á arsenik og liggur þar til grundvallar arsenikfundur nálægt Reykjavík fyrir nokkrum árum. Á Djúpvík átu þeir arsenik i þeirri t?ú, að það væri sá marghataði bjór i föstu formi, sbr. sím- skeyti frá Kvenfélagasambandinu á Guðrúnarstöðum o.s.frv.: „Til herra ritstjóra blaðsins Norðurhjara, Djúp- vík. Guði sé lof það var bara arsen- ik. Stjórnin." Þá rúmar þetta skáldsögu- form ádeilur í ýmsar áttir eftir vild, og má I þvi sambandi minna á „íslenzk" fyrirbrigði eins og axlabandafram- leiðslu islendinga, andabú og minkabú, svo og Glerverksmiðjuna. ásamt gler- fjallinu, svo nokkuð sé nefnt. Glerverk- smiðjuævintýrið er snar þáttur af gangi sögunnar og varpar sérstöku ljósi á stjórnmál og atvinnusögu tímabilsins: fram til þess tíma hafði öllum þjóðum, sem reyndu, tekizt að búa til gler — nema Íslendingum. Það er ekki lengra siðan en 15. ágúst 1969, að Morgunblaðið segir í þriggja dálka fyrirsögn á baksíðu: „Gffurlegt eiturmagn finnst í gömlum glerhaug i Reykjavík. Myndi nægja til að bana rúmlega 18 milljón manns." i fréttinni er þess getið, að starfsmenn í Hreins- unardeild Reykjavikurborgar hafi fundið rúm tvö tonn af arseniki i 22 tunnum, þegar þeir „voru að fjarlægja glerhauga frá gömlu Glerverksmiðjunni við Súðarvog". Siðan er sagt, að gerðar hafi verið ráðstafanir til að koma eitr- inu til útlanda (Sviþjóðar), svo unnt væri að gera það skaðlaust Ekki sé ljóst, hvernig arsenikið hafi komizt inn i landið og i gömlu glerhaugana. En dómsmálaráðuneytið hafi „farið fram á dómsrannsókn í málinu'*. Borgarlæknir Reykjavíkur skýrir Morgunblaðinu frá því „að 120 mg skammtur af arseniki væri banvænn". Þá er þess getið, að árleg arseniknotkun íslendinga til ly.fjaframleiðslu sé 1—2 kg. Loks segir ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneyt- isins, að það gefi auga leið, „að þetta gífurlega magn hefur aldrei átt neitt erindi hingað til lands". Þö koma þær upplýsingar fram í Morgunblaðinu 16. ágúst, að „ársnotkun glerverksmiðjú á arseniki gæti verið 7,5—8 tonn og þvi alls ekki óliklegt, að t.d. 2,2 tonn hefðu verið pöntuð i einu lagi“. Eitrið lenti svo á ýmsum stöðum í borginni, þ. á m. í húsakynnum meindýraeyðis i miðri höf- uðborginni og gekk kraftaverki næst, að það skyldi ekki hafa útrýmt þjóðinni a. m. k. sjötíu sinnum, miðað við magn. Þannig lendir mikil frétt í íslenzkum blöðum inn i Guðsgjafaþuiu, og efni í harmsögu verður að hjákátlegum hrak- fallabálki í þjóðfélagi, þar sem um- hverfið er ekki umhverfisvandamál, heldur mennirnir. Svo hverfur arsenikið úr sögunni, og öðrum heimildum, jafn skyndilega og það hafði birzt i þriggja dálka fyrirsögn- um dagblaðanna og ný veizla tekur við á fréttasíðum þeirra, ný arsenikveizla: eins árs afmæli innrásar Sovétríkjanna í Tékkóslóvakíu. Sagan um arsenikið og Glervei"k- smiðjuna hefði því orðið með öðrum — og væntanlega ekki eins skoplegum — hætti f heimildaskáldsögu. Ein er sú saga, sem oft er vitnað til i Guðsgjafaþulu, það er Síldarsaga mfn, eftir kaftein Egil D. Grímsson . Þessi upplogna bók kafteinsins er í mjög svo lausum veruleikatengslum við bók, sem er til. „Síldarsaga Islands", gefin út af Síldareinkasölu íslands. 1930, eftir Matthías Þörðarson. „Eg las alla síldarsögu Matthíasar," segir Halldór Laxness, „og dró saman mikið efni úr henni. fyrir kemur að ég vitni orðrétt í hana, en oftast breytti ég orðfæri til samræmis við skáldsögustíl Guðsgjafaþulu." i hinni tilbúnu Síldarsögu Egils kafteins í Guðsgjafaþulu segir svo: „Það voru þessir menn sem dubbuðu sildina til „gullnámu" islands. Gullið er þar. En til þess að geta hagnýtt sér þessa gullnámu þarf þekkingu." í Síldarsögu Matthíasar Þörðarsonar segir svo, 320 bls.: „Þegar sfldin fanst við ísland, þá fanst gullnáma öllum öðrum námum auðugri, en til þess að geta hágnýtt sjer hana til hlítar þarf þekkingu." II Ljósmynd kemur til sögunnar. „Aldarspegill Guðsgjafaþulu sýnir okkur marglita, sundurleita og skoplega mynd af þ.jóðfélagi á umbrotatímum," segir Peter Hallberg í ritdómi um verkið f ný útkomnum Skirni. „En myndin verður að sögu með því að tengjast örlögum ákveðinna manna." Í fyrsta kapitula Guðsgjafaþulu, Vor- morgunn í Kaupmannahöfn, er þess getið, að sögumaður hafi hitt íslands- bersa á Ráðhúsplássinu, þegar hann var að bíða eftir sporvagni og ætlaði að fara „til gömlu hjónanna í Vanlöse, þar sem mig hafði einlægt dreyrnt ég ætti inn- hlaup fyrir 4 krónur á mánuði; að öðru leyti átti ég aungvan vísan samastað." „Auðvitað eru þessi hjón aðeins draum- sýn útlends pilts, sem hefði viljað eiga slíkt athvarf, en átti ekki,“ sagði skáldið i samtali okkar. í Guðsgjafaþulu segir ennfremur: „Ber nú að mér risavaxinn mann sem ég gjafa þulu stend þarna á gángstéttinni. Hann ber það gervi sem tíðkaðist meðal heidri raanna í þann tfð og samanstöð af hörð- um hatti og sjakket og íbenviðarstaf með fílabeinshnúð .. . Þessi maður var í morauðri kakískyrtu við sjakketinn. sem annars var ekki siður. Hann var auðsjáanlega að hugsa eitthvað sér- stakt, horfði niðurfyrir sig og þrýsti íbenviðarstafnum með olnboganum uppað siðunni. höndina í buxnavas- anum; en var að reykja sigarettu með hinni hendinni." Hér var kominn ís- landsbersi, íslenzkur síldargrósseri, eig- andi Norðsfld, simnefni Icelandbear á Djúpvík: Bersi Hjálmarsson. Samkv. Guðsgjafaþulu hafði höfund- ur komið til Kaupmannahafnar að rnorgni þessa sama dags norðan úr Jamtlandi og Þrændalögum og hafði verið þar f námsför að kynna sér verzl- un með fugla; „því þó ég væri að vísu skáld einsog aðrir samlandar mínir, þá var mér snemma ljós nauðsyn þess að versla með fugla." segir sögumaður um sjálfan sig.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.