Morgunblaðið - 08.12.1973, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1973
Nýtt smásagnasafn
r ■
eftir Jón Oskar
MENNINGARSJÓÐUR hefur
gefið út nýtt smásagnasafn eftir
Jón Óskar, Sögur, 1940-1964.
Jón Óskar er einkum þekktur
af ljóðum sínum, auk þess sem
hann hefur ritað minningarþætti,
sem hafa vakið athygli, sögur og
margt fleira.
í þessari bók eru prentaðar all-
ar smásögur Jóns Óskars, „sem
hann hefur safnað saman I
heildarsafn frá árunum 1940 —
1964“f eins og komizt er að orði á
bókarkápu. Þar segir ennfremur:
„Margar sagnanna hafa aldrei áð-
ur verið prentaðar og sumar ekki
fullgerðar fyrr en á síðustu árum.
I sumum þeirra svífur andi stríðs-
áranna yfir vötnunum, ef þar er
ekki fjallað beinlínis um atriði,
— Nýir sjávar-
í óveðrinu mikla sem gekk yfir vesturhluta landsins fyrir nokkru, varðeinn af geymum Hitaveitunnar
á Öskjuhlfð fyrir nokkrum skemmdum. Þessar skemmdir má sjá á myndinni. Ekki mun geymirinn hafa
orðið ónothæfur, en áhrif kulda á heita vatnið hafa vafalftið verið meiri en ella.
réttir
Að „ráða yfir sín-
um eigin kropp
„SKYLDI ekki ráð að skrifa
minna," verður manni á að hugsa
við lestur dagblaðanna nú til dags
— enda margt þar, sem orkar
tvímælis svo ekki sé nú meira
sagt. Þó ber stundum út af — og
það svo rækilega, að um munar.
11. okt. birtist hér í Morgun-
blaðinu gi'ein eftir Huldu
Jensdóttur, er bar nafnið „Kona,
hver er réttur þinn?“ Grein þessi
er svo vel skrifuð, að fágætt má
teljast og sannleiksgildi hennar
eftir því, enda eru þessar lfnur
skrifaðar m.a. til að flytja greinar-
höfundi mínar beztu þakkir.
Öguðlegt frumvarp til laga um
fóstureyðingar er lagt fram á
Alþingi því, er nú situr. Þessi
furðulega lagasmíð er samin til að
hugnast nokkrum „kvöldgliðr-
um“ og áhangendum þeirra.
Réttindi kvenna eru sjálfsögð, en
forréttindi þeirra eiga lítiðerindi
til hugsandi manna og skulu þvf
talin ölög ein.
„» egnar segja, að þetta sé það
kaldvsta lifandi" var eitt sinn
kveðiö um hjartalag kvenna, og
þótti mér slíkt vera hið mesta
öfugmæli, þegar ég var barn að
aldri, en það má Guð vita, hvar ég
er staddur nú. Það fann ég bezt,
þégar þessi mál voru á döfinni í
sjónvarpi eigi alls fyrir löngu, en
þar talaði kvenfólkið um þessi
mál rétt eins og fjáreigendur, sem
bollaleggja það, hversu mörg
lömb skuli sett á vetur og hve
mörg flutt í sláturhúsið. Að farga
barni sfnu er vitanlega hræði-
legur glæpur nema í lífsnauðsyn
og lög, seni heimila slíkt, fyrir
neðan allar hellur. Nákvæmlega á
sama hátt væri hægt að leyfa fólki
að deyða hvert annað á förnum
vegi, án nokkurs tilefnis, hvar og
hvenær sem er. Stór hópur
kvenna myndí aldrei notfæra sér
þessi ákvæði, þótt að lögum verði.
Ekið á kyrr-
stæða bíla
MIÐVIKUDAGINN 5. des. sl. var
ekið á tvo bíla á bflastæðum og
tjóni valdið á þeim. Á tímabilinu
ki. 13 — 18 á Ijósbláa Renult-bif
reið, R-10821, við Espigerði 2 og
báðar hurðir öðru megin dældað-
ar, og á tímabilinu kl. 18—20:45 á
guia Datsun-bifreíð, G-4855, við
Laugardalshöllina og hægri fram-
hurð dælduð. Þeir, sem gætu gef-
ið upplýsingar um ákeyrslurnar,
eru beðnir að láta lögregluná vita.
enda beini ég sízt orðum mínum i
þá átt, — en frænkur þeirra ólán-
sömu kvenna, sem báru út börnin
sín í gamla daga, vegna þess að
þær nenntu ekki að hafa fyrir
þeim — eru víst orðnar ískyggi-
lega margar, eftir því sem mér
skilst, og þeim eru þessar línur
ætlaðar. „Móðir mín i kví kví“ var
dregin fram í dagsljósið í þessu
sambandi, hér í haust, og átti hún
að sýna það, hversu konan hefur
ætíð verið fyrir borð borin, þótt
hún sé hins vegar nú orðið víðast
hvar í forréttindum, en það er
önnur saga. En „móðir mín í kvf
kví“ vitnar ekki með þeim kon-
um, sem vilja fá að bera út börn
sin eftir vild, heldur gegn þeim.
Almenningsálitið er þar látið tala
sínu máli og rödd samvizkunnar
ekki siður, sem lætur fólk aldrei f
friði, ef það brýtur lög Guðs og
góðra manna. Þjóðsögurnar
gömlu hitta ætíð í mark, þótt ein-
hver og einhver reyni að gera þær
að botnlausri vitleysu og rugla
með því dómgreind manna á hinn
herfilegasta hátt. Nei, mínar
kæru. Blessuð börnin, sem voru
borin út á kaldan klaka fyrr á tið
til þess að deyja, höfðu
almenningsálitið með sér — og
svo mun enn verða, þótt önnur
aðferð sé notuð. Það skiptir litlu
máli, og raunar alls engu, þegar
allt kemur til alls. „Við eigum að
ráða yfir okkar eigin kroppi,"
heyrist stundum sagt, og það er
líka alveg satt, en þarna eruð þið
bara alls ekki einar um hituna,
heldur einn aðili af þremur, það
hljóta allir að sjá. Eigingirni má
ekki öllu ráða, þótt fyrirferða-
mikil sé. „Við megum ekki vinna
þessi verk, ef að lögum verða,"
segja Iæknarnir. Þetta er Iíka
hverju orði sannara. Verk lækna
eru þau að hlúa að Ilfinu, en ekki
að eyða því að þarflausu og meira
en það.
Talið er, að maðurinn sé æðsta
dýr jarðarinnar, þótt ýmsir vilji
nú draga slíkt í efa, a.m.k. ér það
fátítt í rfki náttúrunnar, aðmóðir,
hvaða nafni sem hún nefníst, tor-
tími afkvæmum sínum, heldur er
hitt næstum allsráðandi, að hún
láti sér mjög annt um þau og njóti
þess í ríkum mæli að hafa þau sér
við hlið.
Að svo mæltu skora ég á þá,
sem aðstöðu hafa, að koma þessu
umrædda frumvarpí fyrir kattar-
nef, svo fljótt sem verða má, önn-
ur eins lagasmíð hefur aldreí ver-
ið samin á íslandi fyrr. Það er
engin átylla, þótt einhverjir sið-
leysíngjar úti í löndum hafi kom-
ið ár sinni fyrir borð á hinn sví-
virðilegasta hátt, í fullri andstöðu
við heilbrigðaskynsemi.
Eyðing á lífi, á hvaða sviði sem
er, I skjóli margs konar öfugþró-
unar, hefur aldrei haft néitt gott í
för með sér heldur þveröfugt. Það
sanna dæmin I gegnum aldirnar,
svo aðekki verður um villzt.
Endalaus ljón á veginum í sam-
bandi við þunganir hjá konum á
bezta aldri er skipulagslaus flótti,
sem á rætur sínar að rekja til
afkáralegra þjóðfélagshátta eða
þá að uppeldi þessara vesalinga
hefur verið meira en lítið ábóta-
vant.
Sandi, 14. okt.1973.
Valtýr Guðmundsson.
SVEINN Björnsson forstjóri afhenti f gær lyklana að 2000. Saab
bflnum, sem Sveinn Björnsson og Co. hafa selt hérlendis. Fyrsti
Saabinn kom hingað til lands 1961 og seldust 100 bflar fyrstu þrjú
árin og hefur þeim farið ört fjölgandi sfðan eins og raunar flestum
gerðum bfla. A myndinni (t.h) er Ragnar Júlfusson skólastjóri að
taka við lykium bifreiðar sinnar.
Framhald af bls. 2.
breytzt mjög ört á síðari árum.
Húsmæður vilja nú fá tilbúna
rétti, sem þær geta tekið upp og
matbúið á 5 mfnútum.
Sagði hann að framleiðendur
yrðu að laga sig að smekk hús-
mæðranna i Danmörku, Svíþjóð,
Þýzkalandi eða Frakklandi, en að
fara ekki við framleiðsluna bara
að sínum eigin smekk. Islending-
ar ættu gott hráefni, en þeir
þyrftu líka að geta framleitt góða
tilbúna matvöru. Þeir gætu illa
keppt við stóru fjöldaframleið-
endurna með dýru vélarnar, en
ættu að miða að betri vöru og
heldur dýrari, en þó ekki svo að
fáir gætu keypt hana. Þá kvaðst
hann trúa því að fjöldi rétta frá
islandi gæti átt leið á nýjan mark-
að.
sem hlutu aðsækja á hugi fólks á
þeim árum, þegar ísland var her-
setið land í heimsstyrjöldinni
síðari. Flestar gerast sögurnar í
Reykjavfk eða við sjávarsíðuna."
Þrjár smásagna Jóns Óskars
sem birtast í þessu heildarsafni,
hafa verið þýddar á erlend máí.
Það eru sögurnar „Ég barnið,
hundurinn", „Island selt“ og
„Maður á kvisti — kona á mið-
hæð“.
— Finnar í
eidlínu í Súez
Framhald af bls. 1
Bandaríkjamenn höfðu áður
lýst sig mótfallna því, að banda-
riskir og sovézkir hermenn yrðu
sendir á staðinn og Nixon setti
allan Bandarikjaher I viðbúnaðar-
stöðu 25. október sl. vegna þess,
að því er sagt var, að Sovétmenn
hefðu undirbúið að senda ein-
hliða herlið til ófriðarsvæðisins.
Nú hefur því hins vegar verið
haldið fram, að Schlesinger, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
hafi sagt á lokuðum fundi hjá
varnarmálaráðherrum NATO I
gær, aðSovétríkin hefðu undirbú-
ið flutning kjarnorkuvopna til
Arabalandanna síðustu daga
stríðsins og það hafi verið ástæð-
an fyrir viðbúnaðarútkalli Banda-
ríkjamanna. Frá því að þetta
gerðist, hefur þróun mála orðið
sú, að Bandaríkjamenn hafa nú
lýst sig reiðubúna til að kanna
allar tillögur, sem miði að því að
tryggja, að deiluaðilar haldi
vopnahléð.
Tæknilegur Undirbúningur fyr-
ir friðarráðstefnuna.sem hefjast á
í Genf 18. þessa mánaðar, hófst I
dag, þrátt fyrir að ekki hafi enn
verið gefin út opinber yfirlýsing
um, að hún skuli hefjast þann
dag. Kissinger, sem ætlar að
mæta á friðarráðstefnunni, eftir
ferð sína um Miðausturlönd,sagði
á fyrrnefndum blaðamannafundi,
að mjög sterkar likur væru á, að
ráðstefnan gæti hafizt þann dag.
Á Sðgu ð morgun ki. 2: Aimennur borgaralundur um:
ODAVERDBÓLGU OG SKATTAMÁL
Fellum niður tekjuskatt af öllu venjulegu launafólki. Skatt-
leggjum EYÐSLUNA í staðinn. Þannig eru m.a. tiilögur Alþýðu-
flokksins um kerfisbreytingu í skattamálunum, sem Gylfi Þ.
Gíslason mun gera grein fyrir á fundinum.
Hvað vilja hinir flokkarnir? Formönnum þeirra ásamt fjármálaráð-
herra hefur verið boðið sem framsögumönnum á fundinn.
Launþegar! Veitum viðnám. Fylgjum eftir kröfunum um ráðstaf-
anir gegn skattpíningu og óðaverðbólgu. Fjölmennum að Sögu á
morgun, hlustum, tölum og spyrjum.