Morgunblaðið - 30.12.1973, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.12.1973, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973 Geir skorar Geir Hallsteinsson skorar eitt af níu mörkum sínum í lands- leik Islands og Bandaríkjanna í handknattleik. sem fram fór í íþróttahúsinu í Hafnarfirði í fyrrakvöld. Geir sýndi frá- bæran leik og knatttækni hans vakti óskipta aðdáun áhorf- enda. Um áramótin fer fram handknattleiksmót í Hafnar- firði með þátttöku bandaríska landsliðsins, íslenzka unglinga- landsliðsins og Hafnarfjarðar- liðanna FH og Hauka og 2. janúar n.k., kl. 20.30, fer fram í Hafnarfirði landsleikur milli tslendinga og Bandaríkjanna. Geir mun leika með FH-liðinu í mótinu og einnig seinni lands- leikinn. Dularfull sauðfjárpest í Rangárvallasýslu EINHVER annarleg sauðfjárpest herjar nú á sauðfé bænda í Hvol- hreppi og hefur sá bóndi, sem flestar ær hefur misst, tapað alls á milli 20 og 30 ám. Á öðrum bæ, sem Mbl. hafði í gær spurnir af, voru 5 ær dauðar. Á bæjum í grenndinni eru einhver brögð að sauðfjárdauða, þótt ekki sé á eins miklum mæli. Ekki er vitað, 1 FVRRINÓTT var brotizt inn í tvær flugeldasölur í borginni, að Hagamel 47 og í Nóatúni, og var stolið nokkru magni flugeida. Lögreglan náði nokkrum þeirra, sem þátt áttu í innbrotsþjófnað- inum í Nóatúni. hvaða sjúkdómur þetta er, en I innyfli hafa nú verið send að Keldum til rannsóknar. Niður- stöður þeirrar rannsóknar liggja ekki enn fyrir. Helzt hafa bændurnir hallazt að því, að um bráðapest væri að ræða og hafa þeir bólusett við henni. Þó hafa ær drepizt eftir að bólu- sett var. Sjúkdómseinkenni eru ekki greinileg og hafa ærnar góða matarlyst, unz þær skyndilega drepazt. Sú ær, sem innyflin voru tekin úr og send til Keldna, var t.d. vel í holdum. Einn bóndinn kom að 6 ám dauðum einn morguninn og hafði ekki orðið var við neinn lasleika. Þó hafa bændur orðið varir við hósta í ám. I fyrrahaust varð vart við dularfullan lasleika í ám í Land- eyjum og virðistþessi sjúkdómur lýsa sér svipað. Þar misstu bænd- ur þá fé með svipuðum hætti og nú í Hvolhreppi. Tíðarfar undanfarið hefur verið afskaplega erfitt bændum. Skipzt hafa á votviðri og hörku- frost og sagði einn bóndinn, sem Mbl. ræddi við í gær, að ef ær væru eitthvað veilar í lungum, gætu þær auðveldlega fengið lungnabólgu í slíku tíðarfari og væri oft erfitt að varast slíka uppákomu. Stærsti innidans- leikur hérlendis ÁTTADÁGSGLEÐI háskólastúd- enta verður haldin á gamlárs- kvöld og eins og undanfaiún ár verður hún f Laugardalshöllinni. Nú hafa eldvarnareftirlit og lög- regla gefið leyfi fyrir því, að 3000 gestir megi sækja gleðina og þar sem búizt er við því, að allir miðar seljist upp, verður þetta fjölmennasti dansleikur, sem hingað til hefur verið haldinn innanhúss á Islandi. I fyrra var heimiluð sala 2500 miða og seld- ust allir. Þess má geta, að inn- ritaðir stúdentar í Háskólann eru nú um 2.300 talsins. Eins og í fyrra mun hljómsveit- in Brimkló leika fyrir dansi, en dansleikurinn stendur frá kl. 23 til kl. 04. Vínveitingar og aðrar veitingar verða og annast stúd- entar afgreiðslu þeirra. Einn barinn er um 30 m að lengd og tvéir aðrir eru nokkru styttri. Skreytingar eru fengnar að láni frá nemendum M.R., sem héldu jólagleði sína á föstudagskvöldið í nýju danshúsi Sigmars Péturs- sonar við Suðurlandsbraut. Einn ig verður sérstök ljósaskreyting. Það er Stúdentaráð H.Í., sem stendur fyrir Áttadagsgleðinni og eru tveir menn í skemmtinefnd, þeir sömu þriðja árið í röð, lagá- nemarnir Guðmundur Alfreðsson og Eiríkur Tómasson. Alls koma um 100 manns á einn eða annan hátt við sögu við undirbúning og framkvæmd dansleiksins. Forsala aðgöngumiða verður i anddyri Háskólans í dag og á morgun kl. 2—5, en ef einhverjir miðar verða óseldir, fást þeir við innganginn, en eru þá dýrari en í forsölu. Rán v-þýzka kaup- sýslumannsins í Belfast óupplýst Belfast, 29. des., NTB. EKKERT hafði í morgun heyrzt frá mönnum þeim, sem rændu vestur-þýzka kaupsýslumann- inum Thomas Niedermeyer f Belfast á föstudag. Lögreglan er þeirrar skoðunar, að írski lýðveldisherinn hafi verið þar að verki, en ekki er getum að því leitt, í hvaða skyni manninum var rænt eða hversvegna Nieder- meyer varð fyrir valinu — maður, sem hefur gert sér far um að leiða hjá sér hinar pólitísku deilur á N-lrlandi. Ekki er útilokað, að einhverjar ókunnar persónulegar LEIÐRÉTTING 1 FRÉTT í Mbl. í gær um afhjúp- un höggmyndar af prófessor Ein- ari Ölafi Sveinssyni í Árnastofn- un urðu þau mistök, að i myndar- texta stóð, að með próf. Einari og sonardóttur hans á myndinni væri listamaðurinn Stále Kylling stad, en átti að standa, að þetta væri frú Kristjana Þorsteins- dóttir, kona próf. Einars. Er beð- izt velvirðingar á þessum mistök- um. orsakir liggi þarna til grund- vallar, að sögn talsmanna lögregl- unnar. Brezkir hermenn og n-írskir lögreglumenn gerðu í gær víðtækar húsrannsóknir í Belfast og nágrenni og fjöldi manna var yfirheyrður, en ekkert kom í ljós, er gefið gæti vísbendingu um ránið. Einn maður lézt í Belfast í nótt af völdum skotsára. ------♦♦ «------ Grein Jóhannesar Helga rithöfundar FYRIRSÖGN á grein Jóhannesar Helga rithöfundar, sem birtist hér i blaðinu i gær, misritaðist. Þar átti að standa: Alþingi grípi í taumana (ekki grípur í taumana). Þá varð misritun í greinarskilum í fimmta dálki. Þar stendur á fjár- lögum ársins 1974 eru veittar tvær milljónir kr. til viðbótarrit- launa, en á að vera 12 milljónir kr. Blaðið biðst afsökunar á mis- tökum þessum í grein höfundar. ,Frost og kuldi kvelja þjóð’ Rættviðnokkra Hornfirðinga um kulda og rafmagnsskort VEÐURGUÐIRNIR hafa löng- um verið tslendingum óblíðir og því ekki að ófyrirsynju, að veðurfar og náttúruhamfarir hafa markað djúp spor í vitund þjóðarinnar. Allt fram á þessa öld hafa tslendingar staðið berskjaldaðir gagnvart ofsa náttúrunnar og orðið að berjast við hana berhentir, án tækja eða tóla. Með tækniþróun síð- ustu ára hefur hér orðið mikil breyting á og með tilkomu hita- veitu og annarra upphitunar- tækja héldu menn, að þjóðinni hefði loksins tekizt að brjótast undan 1000 ára ægivaldi veturs konungs. En svo vakna menn skyndi- lega upp við vondan draum. Rafmagn, þessi helzti burðarás siðmenningarinnar, hefur brostið. Frá suð-austurhorni landsins berast þær fréttir, að menn heyi þar harða baráttu við náttúruöflin og að vopn náttúrunnar, frostið. Þar með er stoðunum kippt undan barnatrú manna á, að harð- stjórn vetrarkonungsins sé endanlega lokið, og fram í hug- skotið gægist vfsubrot, sem ort var á einu harðindaskeiðinu í sögu þjóðarinnar endur fyrir löngu: Frost og kuldi kvelja þjóð koma nú sjaldan árin góð. En gefum Hornfirðingum sjálfum orðið: Elías Jónsson fréttaritari Mbl. i Höfn: I dag hefur verið hér norðan- skafrenningur og fer veður fremur versnandi en hitt. Ástandið á sumum heimilum er allt annað en glæsilegt sakir kulda og rafmagnsskorts. Mikil veikindi eru t.d. á heimili Ingólfs Waage lögregluvarð- stjóra, en hann býr í ákaflega lélegu húsnæði, sem hreppur- inn hefur útvegað hinum hér. Kona Ingólfs og þrjár dæfur, þar af ein nýfædd, eru nú allar illa haldnar af veikindum, sem rekja má til kuldans og hins slæma húsna^ðis. Ingólfur hef- ur notazt vio olíuofna til að halda einhverjum hita i húsinu, en af þeim er stybba og reykur og gefur auga leið, að það er allt annað en glæsilegt að vera með nýfætt barn við slikar að- stæður. Engin breyting er á lóninu við Smyrlabjargaárvirkjun og ekkert bendir til þess, að virkj- unin geti hafið rafmagnsfram- leiðslu í bráð, svo að þrátt fyrir þær díselvélar, sem komnar eru eða eru væntanlegar á næst- unni, er fyrirsjáanlegt, að hér mun ríkja vandræðaástand þar til veðurguðirnir blíðkast. Þorsteinn Matthíasson: Hér hefur nú aftur kólnað töluvert í húsum eftir að nýja túrbínan bilaði. Rafmagn er nú skammtað tvo tíma í senn, en á milli þurfum við að notast við kertaljós og olíuofna. Ég bý hér í hálfkláruðu húsi og vant- ar allar innihurðir, en útihurð er til bráðabirgða. Það gengur því erfiðlega að halda hita í húsiriu, en þegar kaldast var fór frostið niður í 8 stig innan- húss: Viðflúðumþááhótelið eins og fólkið í viðlagasjóðshús- unum. Ástandið er þó ekki alveg eins slæmt nú, þó að ekki sé þaðgott. Til upphitunar nota ég nú 2 olíuofna og hafa þeir bjargað miklu, þótt langt sé í frá, að þeirgefi nægilegan hita, en yngsta dóttir mín liggur nú í hálsbólgu og er með 40 stiga hita. Harpa Sigurjónsdóttir: Við búum hér í einu viðlaga- sjóðshúsanna og í versta kulda- kastinu sváfum við í eldhúsinu, þar sem við höfðum aðeins eitt gastækí til upphitunar. Morg- unin eftir fiúðum við húsið og gengum inni hjá hjónum hérna þar.til við komumst suður með vélunum, sem sendar voru hingað á dögunum. Hingað komum við svo aftur rétt fyrir jól og er ástandið mun skárra nú enda hefur verið bætt við ofnum og frostið er nú ekki eins mikið. Hér hefur nú verið rafmagnsskömmtun síðan á jóladag, en ég hef ekki orðið fyrir teljandi óþægindum af þeim sökum, þótt rafmagnsleys- ið sé öneitanlega þreytandi til lengdar, og ég verð að játa, að ég er orðin svolítið leið á kerta- ljósunum. Ingólfur Geirdal: Þegar verst var flúðum við á hótelið eins og aðrir, sem búa i þessum viðlagasjóðshúsum. Húsin eru svo óþétt, að það er illmögulegt að hafast við í þeim ef eitthvað blæs og miklar frosthörkur erp um leið. Upp á síðkastið hefur ástandið ekki verið jafn slæmt, enda höfum við nú fleiri og betri ofna. Að vísu veldur rafmagnsleysið nokkrum óþægindum og heldur fannst mér dauflegt yfir jólin, en við höfum notazt við gaslukt- ir og kertaljós. Rafmagns- skömmtunin kemur í sjáifu sér ekki verst niður á einstaklingn- um sjálfum, hitt er verra, að ef ástandið í rafmagnsmálunum batnar ekki kemur það til með að draga slæman dilk á eftir sér í atvinnumálum, þar sem orku- frek fyrirtæki eins og fiski- mjölsverksmiðjan verða óstarf- hæf.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.