Morgunblaðið - 30.12.1973, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 30.12.1973, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973 7 Bætt sambúð Kanada °g USA OTTAWÁ — í október- hefti tímaritsins „For- eign Affairs" segir Ro- bert M. Dunn Jr. prófess- or við George Washingt- on háskóla, að sambúð Bandaríkjanna og Kan- ada sé sennilega erfiðari nú en nokkru sinni fyrr. í Ottawa telja menn þetta sjónarmið úrelt. Kanadískir stjórnarfull- trúar eru þeirrar skoðun- ar, að sambúð ríkjanna hafi stórbatnað frá því, sem var fyrir nokkrum árum, og á það við öll mál. Nú er við ýmis meiri háttar vandamál að stríða, fyrst og fremst orkuskortinn og ýmis við- skiptavandamál, en báðar þjóðirnar virðast reyna að taka tillit til að- stöðu og erfiðleika hinnar. Trudeau forsætisráð- herra Kanada flutti fyrir skömmu sjónvarpsávarp um orkuskortinn og kvartaði þar undan ásökunum um, að Kanadamenn reyndu að ná sér niðri á Bandaríkja- mönnum á meðan þeir liðu vegna olíusölubanns- ins. Hann lýsti því yfir, að Kanadamenn myndu halda áfram að senda Bandaríkjamönnum alla þá olíu, sem þeir mættu missa, „vegna þess,“ sagði forsætisráðherr- ann, „að við erum vinir og vinir hjálpa hver öðrum í neyð.“ Hið sama kom fram í ræðusem JúliusKatz að stoðarutanríkisráðherra flutti fyrir skömmu á fundi nefndar, er fjallar um utanríkismál, en þar bað hann Banda ríkjamenn að minnast þess, að Kanadamenn teldu sig ekki hafa óskoraðan eignarrétt yfir oliu sinni. Þegar Katz ræddi um olíuskortinn sagði hann einnig: „Kanadamenn ætlast hins vegar til þess, að aðrir viðurkenni og virði skoðanir þeirra og stefnumál.“ Ýmis atriði í ræðu Katz stungu svo mjög í stúf við framkomu Kanada- manna i samskiptum landanna á meðan John Connally var fjármála- ráðherra Bandaríkjanna, að blaðið Toronta Globe and Mail prentaði hana í heild. Ekki er þó því að neita, að sárin frá fjármálaráð- herratíð John Conally eru ekki gróin að fullu, en hann reyndi allt hvað hann gat tíl þess að þvinga Kanadamenn til að veita Bandaríkjunum viðskiptaívilnanir árið 1971. Þessi sorglegi og algjörlega ónauðsynlegi þáttur í samskiptum þjóðanna lei-ddi til þess, sem gengur undir nafn- inu „aðgerð númer þrjú“ í Ottawa, en það er lang- tíma áætlun, sem miðar að því að styrkja stöðu Kanadamanna gegn hvers konar þvinungar- aðgerðum Bandaríkja- Trudeau manna og gildir þá einu, hvort það eru ríkisfyrir- tæki eða fyrirtæki í einkaeign, sem standa fyrir slíkum aðgerðum. Ein helzta undirstaða „aðgerðar númer þrjú“ er lagafrumvarp, sem ný- lega var samþykkt mótat- kvæðalaust í neðri deild kanadíska þingsins, og kveður á um fjárfestingu erlendra aðila í landinu. Samkvæmt þessu frum- varpi ber ríkisstjórninni að hafa náið eftirlit með straumi erlends fjár- magns til Kanada. Eng- innefast umþáþörf sem var á setningu slíkra laga, þar sem fjárfest- ingar Bandaríkjamanna í landinu nema nú 35 billjónum dollara, og bandarísk fyrirtæki ráða yfir meira en helmingi allra iðnfyrirtækja í landinu. En þetta nýja laga- frumvarp er aðeins fyrsta skrefið í viðleitni Kanadamanna til þess að ná tökum á sínum eigin efnahagsmálum, eða svo notuð séu orð Alasteir Gillespie fjármálaráð- herra: „Til þess að Kan- ada verði annað og meira en fylgihnöttur erlendra risafyrirtækja og bráð alþjóðlegra iðnfyrir- tækja, sem hafa fyrir löngu fullnýtt allar auð- lindir sínar.“ Kanadamenn vilja lifa í sátt og samlyndi við Bandaríkjamenn, en þó vera þeim óháðir. Lögin nýju, sem lýst var hér að framan, miða að því að ná þessu marki, en þau munu vafalaust valda nokkrum vandræðum sunnan landamæranna. Ef við berum ástandið í dag saman við það, sem ríkti á árunum 1971—72, kemur í ljós, að nú rfkir mun meiri skilningur og eindrægni á báðar hliðar; menn reyna að ræða vanda- málin og leysa þau í fullri vinsemd. Með því móti má finna ýmislegt, sem nágrannar eiga sameigin- legt. Ef litið er á hinar hörðu deilur, sem áttu sér stað fyrir tveimur árum, kemur í ljós, að bandarískir stjórnarfull- trúar viðurkenna nú, að hinn mikli verzlunar- hagnaður Kanadamanna á þeim árum hafi verið stundarfyrirbrigði. Sambandið milli höfuð- borganna tveggja, Washington og Ottawa, hefur stórbatnað að undanförnu og eitt þýð- ingarmesta atriðið í því sambandi, sem að vísu hefur ekki verið haldið mjög á loft, er samræm- ing á tölum um viðskipta- jöfnuð landanna. Sam- eiginleg nefnd Banda- ríkjanna og Kanada vinnur nú að samningi um birtingu viðskipta- talna, sem ætti að geta komið í veg fyrir mis- skilning á borð við þann, sem olli öllum vand- ræðunum árið 1971. Störf þessarar nefndar eru ágætt dæmi um það, hvernig komast má að samkomulagi um við- kvæm mál og auka gagn- kvæmt traust landanna tveggja á miklum breyt- ingatímum, þegar Kan- ada kemur fram af meira sjálfstæði og öryggi en fyrr og falskar forsendur verndarstefnu og þröng- sýnnar þjóðernisstefnu freista Bandaríkja- manna. V..LS*íf7 Eftir JíeUr|lorkShnc0 ^raham ,-ggTN Hove>' HERBERGI TIL LEIGU gegn barnagæzlu hluta úr degi — fæði fylgir Gæti hentað skóla- stúlku. Upplýsingar í sima 1 5320 FÓLKSBÍLL ÓSKAST Vil kaupa góðan 5 manna fólksbíl árgerð 1 968 til 1972 Vinsaml. hringið í síma 81 853 ÍBÚÐ TIL LEIGU ný fullgerð, teppalögð 4ra herb í norðurbænum Hafnarfirði Reglu- semi og góð umgengm skilyrði Tilboð sendist Mbl. merkt: „íbúð 974' TIL LEIGU nýleg 4ra herbergja ibúð i Norður- bænum i Hafnarfírði. íbúðm er laus um áramót Upplýsingar i sima 52980 TIL LEIGU 2ja herb. íbúð í fjölbýlishúsi í Háaleitishverfinu Tilboð óskast send Mbl. merkt: 973 HEKLUBÆKUR frá Marks og Jakobsdals Fjölbreytt úrval lita og tegunda af heklugarni ma Bianca og Lenacryl Hannyrðaverzlunin Erla, Snorra- braut HAFNARFJÖRÐUR — BARNAGÆZLA Barngóð kona óskast til að gæta tveggja barna 3ja ára og 3ja mán i Hvömmunum i Hafnarf ca. hálfan daginn Uppl i s 5341 9 IE5IÐ DnctEcn Hressingarleikfimi fyrir konur Kennsla hefst aftur fimmtudaginn 3. janúar 1974 í leikfimissal Laugarnesskólans. Get bætt við nokkrum konum. Uppl. í síma 33290. Ástbjörg Gunnarsdóttir, íþróttakennari. Óskum starfsmönnum og viðskiptavinum gleðilegs árs með þökk fyrir hið liðna. Vélaverkstæði J. Hinriksson, Skúlatúni 6. __________________________________! EDÐAV tlMBODS ()(• IIKII.I)\ER/.IA!-N ERUM FLUTTIR Mýlt slmanúmer 86166 Sundaborg, Klettagarðar 11 — 1 3 simi 861 66. -rrrr

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.