Morgunblaðið - 30.12.1973, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973
27
Spá fyrir árið 1974
Vogarmerki — 23. sept.—22. okt.
SporSdrekamerki 23. okt.—22. nóv.
Bogmerki — 23. nóv.—20. des.
Steingeitarmerki 21.des.— 19.jan.
Vogin elskar friðinn, og er
reiðubúin til að leggja mikið á
sig til að spilla hinum ekki.
Hún hefur rfka réttlætistilfinn-
ingu, er gædd næmleika og inn-
sæi, og tekur ekki ákvarðanir,
nema að vel yfirveguðu ráði, er
umburðarlynd og freistast
sjaldan til að troða skoðunum
sínum upp á aðra. Víðsýni og
jafnlyndi eru einnig einkenni
þeirra, sem fæddir eru f þessu
merki. Aftur á móti er vogin oft
gagnrýnin um of, forvitin og
jafnvel hnýsin um annarra hag,
auk þess sem henni hættir til
illgirni og öfundsýki. Hún ætl-
ast venjulega til mikils af líf-
inu, og verður oft fyrir sárum
vonbrigðum af þeim sökum.
★
1974 verður ár umskipta og
grundvallarbreytinga þeirra,
sem fæddir eru í vogarmerki.
Að undanförnu hefur gætt óró-
leika i lifi vogarinnar, en nú er
tímabil gæfu og gengis fram-
undan. Varla verður ofbrýnt fyr
ir voginni, að það að hika er
sama og tapa, þannig, að mörg
gullin tækifæri geta gengið
henni úr greipum, nema höfð
séu snör handtök. Fjármálin
munu þróast eins og bezt verð-
ur á kosið á þessu ári, sérstak-
lega á fyrsta ársfjórðungi. Áríð-
andi er, að heilsufarinu sé
gaumur gefinn á árinu, en
nokkuð er hætt við streitu og
ofþreytu.
ánægjulegu ástalífi á árinu, og
um miðbik ársins mun róman-
tíkin blómstra. Vogin ætti að
vara sig á því, að sýna óverð-
ugum trúnað.
Trúlegt er, að ný viðhorf
skapist til margra málefna á
þessu ári, og vert er að reyna að
grípa gæsina meðan hún gefst.
Sporðdrekinn hefur ákaflega
sterkan persónuleika. Hann
hefur frábæra skipulagshæfi-
leika, býr yfir einstökum hæfi-
leikum til forystu og er helzt í
essinu sínu þegar erfiðleikar
steðja að. Hann tekur ekkert
sem sjálfgefið — býst aldrei
við öðru en því að þurfa að hafa
eitthvað fyrir hlutunum. Hafi
hann tekið ákvörðun verður
henni ekki haggað. Þetta fólk á
oft bágt með að láta sér koma
saman við aðra, sakir ráðrfkis
og drottnunargirni. Sporðdrek-
inn er venjulega hefnigjarn og
svífst einskis til að koma
áformum sínum í framkvæmd.
★
Á árinu er allra veðra von —
og er líklegt, að gagnger um-
skipti verði hvað snertir starf
sporðdrekans. Erfiðleikar í
fjármálum munu hafa sin
áhrif, en þar sem sporðdrekinn
lætur vandkvæði ekki aftra sér
frá því að ná settu marki,
verður þetta ekki afdrifaríkt.
Hætt er við því, að hann verði
fyrir barðinu á miður vinsam-
legu fólki, sem mun vinna gégn
honum á bak við tjöldin. Sporð-
drekinn ætti að gæta þess sér-
staklega á þessu ári að sýna
gætni og kurteisi i umgengni
við aðra — og þá sérstaklega
þá, sem liklegir eru til að hafa
áhrif á starf hans og frama.
Fyrstu þrír mánuðir ársins
munu verða óvenju annasamir,
en um leið árangursríkir, og
sarna er að segja um desember-
mánuð.
I ár mun fjölskyldulifið
gegna þýðingarmeira hlutverki
en verið hefur nokkur undan-
farin ár, og sporðdrekinn mun
hafa meiri þörf fyrir náið sam-
band við vini sina og ættingja.
Oftast er bogmaður allra
Ijúflingur, vinsæll, geðgóöur,
en örlyndur. Hann er fljótur til
reiði og fljótur til sátta, hrein-
skilni hans kemur öðru fólki til
að blikna og biána, og oft fer
hann óvarlega og óhyggilega að
ráði sýnu. Hann skiptir um
skoðun mörgum sinnum á dag,
er óáreiðanlegur, en einlægur
og meinar alltaf það sem hann
segir þá stundina. Hann er
gæddur óvenjulegu hugrekki,
en óþolinmæði og eirðarleysi
háir honum oft. Hann er ekkert
feiminn við að hrósa sjálfum
sér, og meinar þá sem endra-
nær hvert orð. Ilann er örlátur
og greiðvikinn, en hættir oft til
að lofa upp í ermina á sér.
★
Á þessu ári ætti bogmaðurinn
að vera viðbúinn verulegum
breytingum á persónulegum
högum sinum. Vandamál, til-
finningalegs eðlis, verður til
lykta leitt, þannig að bogmaður-
inn verður nú óháðari og frjáls-
ari en áður. Afkastageta og lífs-
orka hans eykst, þannig, að bog-
maðurinn getur vænzt farsæld-
ar á komandi ári. Fyrsti árs-
fjórðúngur verður einkar hag-
stæður til undirbúnings og
áætlana fyrir síðari hluta árs-
ins, en þá aukast umsvif á flest-
um sviðum. Helzt vill bog-
maðurinn vera sífellt á fart-
inni, en þetta árið verða ferða-
lög hvorki mörg ná löng. Ósam-
komulag við vini og kunningja
er líklegt, en ástæðan er senni-
lega misskilningur sem leiðrétt-
ist í árslok. Bogmenn, sem
hyggjast festa ráð sitt ættu ekki
að taka ákvarðanir í þeim efn-
um fyrr en á sfðari misseri.
Bogmaðurinn fær tækifæri til
að endurvinna traust og trúnað
sinna nánustu, en ástarævin-
týri og tilfinningarót ætti hann
að forðast eftir megni.
Steingeitin er framsækin og
metorðagjörn, og sést oft ekki
fyrir í þeim efnum. Hún er
skyldurækin og hefur ríka
ábyrgðartilfinningu. Greið-
vikni, sjálfsögun og vinnusemi
er meðal beztu kosta hennar, og
hún ætlast jafnan til þess sama
af sjálfri sér og öðrum. Hún er
yfirleitt eigingjörn, og hættir
til að miða flest við sjálfa sig.
Hún eignast auðveldlega óvini
og svffst einskis til að klekkja á
þeim. Til þess að fegra sjálfa
sig gerir hún oft meira úr veik-
leika og göllum annarra en efni
standa til. Dugnaður og þraut
seigja steingeitarinnar,
nákvæmni hennar og einbeitni
eru þeir eiginleikar, sem koma
henni að beztu haldi.
★
Þetta ár verður einkar hag-
stætt fyrír þá, sem fæddir eru í
þessu merki. Fljótlega mun
koma 1 ljós, að hyggilegast er að
haga seglum eftir vindi, en þar
sem fyrri hluti ársins er heppi-
legastur til meiriháttar fram-
kvæmda er mikilvægt að nota
þann tima vel. Fjármálahorfur
á árinu eru mun betri en verið
hafa, en líklegt er að pen-
ingarnir komi úr annarri átt en
áður. Heilsufarið krefst auk-
innar aðgæzlu, fyrstu fjóra
mánuði ársins, en með þvi að
fara varlega er ekki ástæða til
að hafa áhyggjur af því. Ásta-
málin eru undir miður heppi-
legum áhrifum á árinu, sérstak-
lega hvað varðar ný sambond.
Steingeitin ætti þó.ekki að láta
neitt tækifæri ónotað til að
stofna til nýrra kynna og hafa
sig sem mest í frammi á
almannafæri, þar sem mikil-
væg sambönd hafa sitt að segja
í sambandi við velgengni
hennar á þessu ári.
Vatnsberinn er friðsamur og
jafnlyndur. Hjálpsemi og sann-
leiksást eru áberandi eigin-
leikar í fari hans, og venjulega
er hann umburöarlyndur gagn-
vart náunganum. Hann er
þægilegur í viðmóti, gerir
strangar siðferðilegar kriifur
til sjálfs sín, en hann getur
verið ósveigjanlegur og lang-
rækinn í meira lagi. Vatns-
berinn er tortrygginn að eðlis-
fari og viðurkennir galla sfna
hvorki fyrir sjáifum sér né
öðrum. Honum er oftast
nákvæmlega sama um það álit,
sem aðrir hafa á honum, og er
staurblindur á eigin galla.
Hann er hnýsinn um annarra
hag, og á það til að hlakka yfir
óförum annarra.
★
Fyrsti ársfjóðrungur verður
tími uppgangs og velgengni, en
eftir það verður þörf aukinnar
aðgæzlu og varkárni á flestum
sviðum. Vatnsberinn getur bú-
izt við miklu annríki, og þarf
sennilega að leggja meira á sig
við vinnu sína en að undan-
förnu. Heilsufarið gæti brugðið
til beggja vona á fyrstu fjórum
mánuðum ársins. Á tilfinninga-
sviðinu verður ekki tiðinda-
samt fyrr en með vorinu, en þá
rennur upp tímabil jafnvægis
og staðfestu að því leyti. Þeir
vatnsberar, sem hug hafa á því
að skipta um starf ættu að gera
það fyrir marzlok. Ferðalög
munu ekki gera strik í reikn-
inginn, en gætu reynzt góð til-
breytíng, sérstaklega í sumar.
Nokkur hætta er á vinslitum,
og ætti vatnsberinn að hugsa
sig rækilega um áður en hann
gerir upp hug sinn i sambandi
við tilfinningamál almennt.
Þeir, sem fæddir eru 1 fiska-
merki eru venjulega tilfinn-
inganæmir, þolinmóðir og
þægilegir f umgengni. Þeir
eiga auðvelt með að setja sig
inn I vandamál annarra, eru
samvizkusamir, en hættir
nokkuð til leti. Þeim gengur
ekki vel að taka sjálfstæðar
ákvarðanir — eru oft sammála
síðasta ræðumanni,
óhreinskilnir og undirförulir.
Hins vegar eiga þeir gott með
að laga sig að aðstæðuni, eru
sérlega barngóðir og áhuga-
samir um hagi þeirra, sem
minna mega sfn. Þeir eru á
móti hvers konar raski og
veseni og líður bezt f jafnvægi.
★
Árið 1974 er líklegt til að
marka tímamót í lífi margra
þeirra, sem fæddir eru í fiska-
merkinu. Framundan er lausn
á vandamáli, sem lengi hefur
verið á döfinni, en fyrstu þrjá
námuði ársins gætu fiskarnir
orðið þess áþreifanlega varir,
að laun heimsins eru vanþakk-
læti, og er líklegt, að fiskurinn
verði bitbein miður vinveittra
kjaftaska. í aprfl fer allt að
snúast til betri vegar, og þá ætti
að vera óhætt að hafa sig meira
í frammi. Svo virðist sem liðnir
atburðir hafi mikil áhrif ágang
mála fram eftir árinu, bæði i
hagstæðu tilliti og hinu gagn-
stæða. Því væri ráðlegast fyrir
fiskinn að gera hreint fyrir
dyrum sínum — sérstaklega í
fjármálum og ástam'álum.
Heilsufarið verður fremur gott
á árinu, en þó má búast við því
að smákvillar og slen geri vart
við sig annað slagið. Fiskurinn
getur búizt við fjárhagserfið-
leikum á árinu, og er nauðsyn-
legt að gæta ýtrustu varfærni
og fyrirhyggju í þessurn efnunt.