Morgunblaðið - 30.12.1973, Síða 13
Ever .os HUDAau'/iViuf! .aioA.iavruíiaoiv;
sr
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 30. DESEMBER 1973
13
FLJUGIÐ MEÐ SUNNU
til ævintýra og hvíldar
ÚRVAL ÓDÝRRA UTANIANDSFERÐA 1974
Eigin skrifstofur SUNINíU með íslenzku starfs-
fólki i Palma Mallorca, Torremolinos Costa del Sol
og i Kaupmannahöfn. Þjónusta sem veitir öryggi
og þægindi, sem þúsundir Sunnufarþega þekkja af
eigin raun á undanförnum árum.
Ódýrar orlofsferðir eru lika kjarabætur — Orlof
er nauðsyn nútimafólki.
Heillandi og fagrar ævintýraborgir. — Sólheitar
baðstrendur og jölbreytt skemmtanalíf eftirsótt-
ustu ferðamannastaða Evrópu. Sumarfegurð og
gleði i „Borginni við Sundið". Ökuferðir um feg-
urstu byggðir Evrópu og dvöl í sögufrægum Rinar-
byggðum. Róm — borgin eilifa og fagrar bað-
strandarbyggðir við Napoliflóann og Capri.
Leiguflug til Kaupniannahafnar
Þessar vinsælu ferðir hafa í mörg undanfarin ár gert
almenningi kleift að komast með viðráðanlegu móti til
Kaupmannahafnar, „Borgarinnar við sundið", sem
jafnan verður íslendingum kær. Það er hægt að velja
um dvöl á hótelum og nú i fyrsta sinn einnig í íbúðum
og sumarhúsum, eins og tíðkast i Suðurlandaferðum.
Ennfremur eru ódýrar hópferðir fyrir unglinga,
I Kaupmannahafnarferðum Sunnu með leiguflugi
er ýmist um að ræða ferðir, sem allir geta tekið þátt i
og ekki eru bundnar félagsaðild, þó ferðirnar séu
ódýrar, og einnig ferðir, þar sem um er að ræða
ákveðna félagshópa
Costa del Sol S unna hefir tryggt sér mikið af
vinsælum hótelum og íbúðum i Torremolinos sem er
vinsælasti baðstrandarbærinn á Costa del Sol, Sunna
vill sérstaklega benda á að tekizt hefir að tryggja
mikið pláss á hótelum, sem annars er erfitt að fá á
Suður-Spáni, þar sem mest er byggt af íbúðum, en
dvölin í þeim verður flestum dýrari
Sunna hefir undanfarin tvö sumur haft beint þotu-
flug til Costa del Sol með ágætum árangri.
Rínarlandaferðir Flogið er með leiguflugi Sunnu
til Kaupmannahafnar og dvalið þar í nokkra daga.
Síðan er farið i 8 daga ökuferð um Danmörk og
Þýzkaland til Rínarlanda, þar sem dvalið er um kyrrt í
nokkra daga i hinum glaðværu og sögufrægu Rinar-
landabæjum á bökkum fljótsins.
Nýjung:
Ferðin verður ódýrari
ef pantað er fyrir 1. febrúar.
Til þess að auðvelda skipulagningu skemmti-
ferða til útlanda tekur Sunna nú upp þ? nýbreytni i
samvinnu við nokkur hótel erlendis að koma til
móts við fólk, sem getur ákveðið snemma orlofs-
ferðir sínar, þannig að allar Ítalíu- og Spánarferðir
verða tvö þúsund krónum ódýrari (fjögur þúsund
fyrir hjón) fyrir þá, sem panta ferðirnar fyrir 1.
febrúar.
Mallorka
Fjölsóttasta ferðamannaparadís Evrópu.
Flægt er að velja um dvöl i ibúðum og hótelum í
höfuðborginni palma, eða baðstrandarbæjunum.
náttúrufegurð yfir 100 baðstrendur. Mikill fjöldi
glæsilegra hótela. Otal skemmtistaðir. Og veðrið er
það bezta sem hægt eraðfá á Miðjarðarhafssvæðinu.
Róm — Sorrento
Þessir vinsælu staðir á (taliu eru nú í fýrsta sinn
áfangastaðir i leigufluginu. Flogið er beint til Rómar á
tæpum fjórum klukkustundum. Hægt er að velja um
dvöl i Róm, borginni eilífu, þar sem ótal margt er að
skoða í tvær vikur, eða skipta dvölinni milli Rómar og
hins undur fagra baðstrandarbæjar Sorrento, en
þaðan er skammt til Capri út á hinum fagra Napoli-
flóa. Hægt er líka að dvelja tvær vikur í Sorrento og
skreppa til Rómar í skoðunarferðir.
Eflaust nota margir tækifærið nú, þegar i
fyrsta sinn er hægt að komast i ódýru leiguflugi til
ítaliu.
Norðurlandaferðir
Flogið er með þotu Sunnu til Kaupmannahafnar.
Dvalið þar í nokkra daga Eftir Osloardvöl er ekið um
hin fögru fjalla- og fjarðahéruð Noregs, Þelamörk og
Harðangursfjörð. Síðan um hin víðfrægu vatnahéruð
Svíþjóðar til Stokkhólms og þaðah aftur til Kaup-
mannahafnar. Síðan er farið i 8 daga
bílferðalag um Noreg og Svíþjóð.
IVIizza — Monte Carlo
Franska Rivieran, eins og sólarströnd SuðurFrakk-
lands er kölluð hefir i meira en heila öld dregið til sín
tizkufólkið frá Evrópu
Skammt er með strætisvagninum frá Nizza
til hinnar undurfögru ævintýraborgar Monte Carlo og
blómastrandarinnar Ítalíumegin við landamærin.
Hægt er að velja um dvöl i íbúðum og hótelum.
Þetta er í fyrsta sinn sem (slendingum gefst kostur
á ódýrum leiguflugferðum til hinnar eftirsóttu Mið-
jarðarhafsstrandar Frakklands.
MAÍ JÚNÍ JÚLÍ ÁGÚST SEPT. OKT.
MALLORCA: 2—4 vikur 7 og 21. 4. 18. 2. 16. 23. 30 6. 13. 20. 27. 3. 10. 17. 24. 8. 22.
3 vikur. 10. 31. 21 11 2
COSTA DEL SOL: 2—4 vikur. 11.25 8 22. 6 20. 27 3 10 17. 24. 30. 7. 14 21.
FRANSKA RIVIERAN. 18. 1. 15. 29 12.
RÓM — SORRENTO 18 1. 15 29 12.
KAUPMANN AHÖFN: 1 —4 vikur 5. 19 2 16. 23. 30. 7. 14 19. 21. 26. 28 2.4. 9.11. 16 18 23. 25 30. 1.6. 8. 15. 22. 6
NOREGUR SVÍÞJÓÐ DANMÖRK 2 vikur 2 7.
KAUPM.HÖFN HAMBORG RÍNARLÖND 2 vikur 16 30. 14 28 11.25.
PáskaferSir: Allar flugferðir Sunnu 1974 eru að degi til á
Mallorca. þægilegasta ferðatíma.
5. april til 1 6. apríl. 1 2 daga ferð. Costa del Soi. Kaupmannahöfn. Brottfarartímar frá Keflavíkurflugvelli kl. 09.00 að
1 0. apríl til 1 6. apríl. 6 daga ferð. 6 apríl til 1 7. april. 1 2 daga ferð. 7. apríl til 21. april. 14 daga ferð. morgni.
FERflASKRtFSTOFAN SONNA BANKASTRETI6 ® 1640012070