Morgunblaðið - 30.01.1974, Blaðsíða 11
MORCUNBLAÐIÐ, MIÐ VI KUDAOUR :I0. JANÚAR 197-1
11
minni dómhringir fyrir þessar bú-
fjártegundir, en þær koma ekki
frékar við þessa sögu. Af svölun-
um sást vel niSur í aðalsalinn yfir
vélar og nautgripi.
Ýmist af hreinræktuð-
um kynjum eða blend-
ingar.
Af búfénu bar niesl á nautgrip-
unum, og vöktu þeir tvímæialaust
mesta athygli fréttamanna og
margra sýnin'gargesta. Nautgrip-
irnir voru sýndir I mörgum flokk-
um, bæði blendingar og hrein-
ræktaðir gripir af holdakynjum
og nokkrum tvínytja kynjum (þ.e.
kynjum, sem notuð eru bæði til
mjólkur- og kjötframleiðslu).
Um 300 hreinræktaðir gripir
voru sýndir, og voru þeir af 13
brezkum kynjum. bátttaka var
furðu jöfn rnilli þessara kynja,
mest þó af Devon og Lineoln Red,
sem alltaf eru þungir miðað við
aldur á þessari sýningu. Það kom
mér þó á óvart, hve fáir hrein-
ræktaðir stutthyrninga holdagrip-
ir voru sýndir, en að visu eru þeir
mest notaðir til blendingsfram-
leiðslu.
Blendingareru nú sýndir af fleiri
kynjum en áður, þ<>r sem hin
stórvöxnumeginlandskyn hafa nú
bætzt við hin gamalkunnu brezku.
Til framleiðslu á blendingum er
nær alltaf notað naut af hrein-
ræktuðu holdakyni, en kýrnar
ýmist af öðru hreinu holdakyni
eða þær eru blendingar af tveim-
ur. Síðustu áratugina er þó farið
að nota kýr af tvínytja kynjum og
hreinum mjólkurkynjum, og er
hluti nautakjötsframleiðslunnar i
ýmsuni mjólkurframleiðslulönd-
um nú byggður á þannig blöndun.
Við það sparast að hafa sérstakar
kýr til kálfaframleiðslunnar.
Drjúgur hluti kjölframleiðslunn-
ar er einnig af hreinum tvínylja
kynjum. Af þeim fæst þó ekki
eins mikið nýtanlegt kjöt miðað
við þunga á fæti, og verðmestu
hlutar fallsins ná sjaldan sömu
gæðum pg föll af holdagripunt eða
blendingum.
Nú er Smithfieldsýningin
byggð á því að sýna hið bezta i
kjötframleiðslu, og þvi voru þar
ekki gripir af hreinum mjólkur-
kynjum öðrum en af frisneska
kyninu, sem mest er notað i
mjólkurframleiðslunni en af. þvi
voru aðallega sýndir alikálfar.
Þegar að sýningunni á blend-
ingunum kom, mátti sjá hvernig
hin ýnisu holdakyn eru notuð til
þeirra hluta og hvaða áhrif þau
hafa hvert um sig við blöndun. Af
blendingunum var hægt að rekja
fleiri til Aberdeen Angus kynsins
en nokkurs annars, þar næst til
Charolais, allmiklu færri til
holdastutthyrninga, Hereford og
Galloway, en af öðrurn holdakynj-
um voru mun færri blendingar.
Mæður blendinganna voru fleiri
áf frísneska kyninu brezka en
neinu einstöku holdakyni, enda
hefur það mikinn vaxtarhraða og
sæmilega kjötsöfnunareigínleika,
stundum allgóða. t)nginn blend-
ingur var undan nauti af því kyni.
Um 120 blendingar voru af
meginlandskyni að einhverju
leyti.
Nýtt símanúmer frá 1. febrúar.
22200
Hótel KEA
LÆRIÐ VÉLRITUN
Ný námskeið eru að hefjast. Kennsla eingöngu á raf-
magnsritvélar. Engin heimavinna. Innritun og upplýs-
ingar í símum 41 31 1 og 21 71 9 eftir kl. 1 3.
Vélritunarskólinn,
Suðurlandsbraut 20,
Þórunn H. Felixdóttir.
SKYRTUVERKSMIDJA TIL SÖLU
Ein af elstu karlmannaskyrtuverksmiðjum landsins er til sölu. Verksmiðjan hefur ekki
verið starfrækt um nokkurn tíma. Sameign kemur til greina, og húsnæðis fyrir
verksmiðjuna er þörf, einnig nokkurs fjármagns. Nánari upplýsingar gefa Ragnar
Jónsson, hæstaréttarlögmaður, Hverfisgötu 14, sími 1 7752, og Magnús Víglundsson,
Austurstræti 1 7, símar 1 3057 og 41 523.