Morgunblaðið - 03.03.1974, Qupperneq 3
“MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
Tíðarfarið.
Mjög umhleypingasamt var
síðustu viku, sunnan og suð-
vestanáttir sitt á hvað og oft tvær
áttir sama sólarhringinn.
Aflabrögð.
Afli var heldur tregur síðustu
viku, enda sjóveður ekki gott. Til
Reykjavíkur kom Sæborg af trolli
með 37 lestir og Arnarberg tvf-
vegis Ur netum með 7—8 lestir.
Frá Keflavík róa 11 bátar með
net og hefur afli verið 6—8 lestir
eftir nóttina, en þó komizt upp í
28 lestir. Er þetta allt þorskur.
Frá Grindavík eru 14 bátar
byrjaðir með net, og er aflinn hjá
flestum 6—8 lestir og komizt hæst
upp í 14 lestir. Búið er að taka á
móti 21.000 lestum af loðnu á móti
19.000 lestum f fyrra.
1 Þorlákshöfn eru nú allir með
net af þeim, sem eru byrjaðir, en
það eru 10 bátar. Algengasti afli
eru 10 lestir eftir nóttina.
Frá Vestmannaeyjum eru gerð-
ar út 5 bátar með net og 20 með
troll. Afli hefur verið sæmilegur f
netin, en sáratregt í trollið. Afli
netabáta: Árni í Görðum 236 lest-
ir, Kópur 225 lestir, Danski Pétur
200 lestir og Sæbjörg 191 lest.
Nokkrir minni bátar hafa verið
að koma til Eyja með loðnu að
austan, sem hefur verið 50—60%
kvenloðna og frystanleg. Annars
er nú loðna ekki uppi nema í
brotum og erfitt að komast þar að
henni.
Loðnan veiðist nú helzti úti af
Faxaflóa og spá menn því, að
loðnuveiðin sé senn á enda. Nú er
veiðin ekki nema um 350.000 lest-
ir, en var í fyrra 430.000 lestir. Nú
eru aflahæstu loðnubátar með um
10.000 lestir, en voru í fyrra með
20.000 lestir. Nokkuð bætir úr
minni afla hjá skipum almennt,
að verðið er mun hærra f ár, bæði
í bræðslu og frost.
Togararnir.
Togararnir hafa verið að veið-
um á Eldeyjarbankanum, úti af
Jökli og vestan til við Halann.
Mikill þorskur hefur verið í aflan-
um. Heldur hefur verið tregt,
enda afleit tíð.
Tveir togarar lönduðu heima í
vikunni: Þormóður goði 100 lest-
um og Freyja 60 lestum.
Togarinn Bjarni Benediktsson
seldi afla sinn í Þýzkalandi í
vikunni, 219 lestir fyrir 11,1 millj.
krónur, meðalverð 51 króna fyrir
kg.
Ögri seldi í vikulokin í
Englandi, og tók löndun tvo daga.
Fyrri daginn fékk hann tæpar 43
krónur fyrir kg. Verðhrun hafði
orðið á markaðnum, og var mörg-
um skipum snúið til Þýzkalands
og Belgíu, sem fyrirhugað var, að
seldu i Englandi. Meðal þessara
skipa voru Narfi, Dagný, Krossvík
og Freyr.
Það er mikill munur á 43 krónu
verði og 77 krónu, eins og verðið
komst hæst í Englandi.
Ekkert til
skiptanna
Það hefur verið friðsamt í
landhelgismálunum undanfarið,
allt snúizt um verkföllin og
varnarmálin. Þó kvörtuðu Vest-
firðingar undan yfirgangi Breta á
miðunum og að þeir hefðu eyði-
lagt veiðarfæri fyrir miklar fjár-
hæðir. Það geta alltaf orðið óvilja-
verk, en þarna virtist það ekki
vera. Islendingum fannst, að þeir
ættu það sízt skilið af Bretum,
þegar friður hafði verið saminn
og þeim veittur ríflegur hluti af
fiskimiðum „fátæka mannsins",
að þeir færu þannig að ráði sínu.
Það hefur ekki verið samið við
Vestur-Þjóðverja eða nokkur lönd
Austur-Evrópu. Og nú er svo
komið sem betur fer, að íslend-
ingar hafa ekki miklar áhyggjur
af veiðum Þjóðverja, sem eftir
síðustu fréttum halda sig nú við
mörk 50 mflna hvað lengi sem það
stendur. íslendingar geta ekki
hugsað sér samninga við Þjóð-
verja, ef það kostar það, að verk-
smiðjuskip þeirra veiddu innan
landhelginnar og Austur-Evrópu-
þjóðir kæmu síðan með sín skip í
kjölfarið. En það skal viðurkennt,
að skip þeirra hafa virt 50 milna
landhelgina.
Nú er stutt í hafréttarráðstefn-
una. Þessi mál taka svo örum
breytingum Islendingum i vil, að
þeir hafa ekki við að bjóða vel-
komna nýja bandamenn og hina
ólíklegustu, eins og Breta sjálfa,
Norðmenn, Færeyinga, Græn-
lendinga, Kanadamenn og jafnvel
Bandarikjamenn. Og nú eru það
ekki 50 mílurnar, heldur 200.
Skjótt skipast veður i lofti.
Það er leitt, að vinaþjóð eins og
Þjóðverjar skuli beita islendinga
refsiaðgerðum með því að koma í
veg fyrir, að þeir njóti tollfríð-
inda samkvæmt samningnum við
Efnahagsbandalagið. Það stóð þó
ekki á Islendingum að fullgilda
þessa samninga og veita Þjóðverj-
um og öðrum EBE-löndum full
tollfríðindi samkvæmt þeim. Og
meira að segja nutu EBE-löndin
um tíma betri tollkjara en beztu
viðskiptalönd Islendinga.
Ur því sem komið er, er ekkert
að gera annað en þrauka, verja
landhelgina með oddi og eggju, og
Iáta ekki á sig fá, þótt af lands-
mönnum séu 1 bili nagaðar
nokkrar krónur í tollprósentum.
islendingar selja ekki frum-
burðarrétt sinn fyrir baunadisk.
Staða fiskiðnaðarins
eftir verkfall.
Eftir þvi sem næst verður kom-
izt hækkar kaup I fiskiðnaði um
25% til maíloka eða tilþess tima,
sem núverandi fiskverð gildir.
Hér er þó ekki reiknað með auka-
kauphækkun við fiskflökun, 1%
launaskatti og söluskatti, sem er
talinn jafngilda 2% kauphækkun.
Það má því telja, að kaup-, vísi-
tölu-, söluskattshækkun og auk-
inn launaskattur nemi 30% hjá
fiskiðnaðinum. Þetta er miklu
meira á ársgrundvelli, 50—60%.
Nú er hlutur fastakostnaðarins
hjá fiskiðnaðinum talinn jafn
launakostnaði. Má gera ráð fyrir,
að hann hækki álíka þvi að þetta
er mikil þjónustustarfsemi, olía
rafmagn, umbúðir o.fl., sem er
vant að hækka með kaupgjaldinu.
Vinnulaun eru 25% og fasti
kostnaðurinn 25% eða helmingur
af rekstrarkostnaði frystihúss,
hinn helmingurinn 50% er hrá-
efnið, ef allt er eðlilegt. 30%
hækkun á kaupgjaldi og fasta-
kostnaði er því 15% af veltunni.
Dæmi: Frystihús fær 2500 lestir
af hráefni. Að meðaltali eru
greiddar 20 krónur fyrir kg eða 50
millj. króna, vinnulaun eru 25
millj. og fastakostnaður 25 millj.
króna. Þetta er sem svarar afli af
3—4 vertlðarbátum. Veltan er 100
millj. króna. Nú er þetta tæplega
meðalfrystihús, en samt myndi
tapið yfir vertíðina nema 15 millj.
króna vegna hækkana nú, því
frystihúsin voru skilin eftir á
núlli um áramótin. Og síðan hafa
margar fisktegundir fallið I verði
og eiga eftir að falla enn meira.
Þetta er ótrúleg mynd, en engu að
siður sönn.
Þetta hlýtur að hafa í för með
sér samdrátt og gjaldþrot ef ekk-
ert er að gert. Þá hlýtur stóraukin
kaupgeta og minni útflutningur
að ausa úr gjaldeyrisvarasjóðn-
um.
Vonbrigði.
Þegar litið er yfir loðnuvertíð
þá, sem senn er á enda, að
minnsta kosti hvað frystingu
snertir, staldrar hugurinn við hve
lítið hefur verið fryst og hver sé
orsökin. Sennilega verður fryst-
ingin ekki meiri en síðastliðið ár.
en það er eitthvað annað en
menn höfðu gert sér vonir um eða
tvöföldun frá því I fyrra, en þá
voru frystar tæpar 18.000 lestir.
Mikill viðbúnaður var undir
loðnufrystinguna, keyptar voru
20—30 nýjar flokkunarvélar og
gömlum síldarflokkunarvélum
breytt, aukin frystiafköstin,
frystihúsin svo gott sem tæmd af
fiski til þess að rýma til, o.s.frv.
Og ekki vantaði verðið á hráefnið,
það var ákveðið helmingi hærra
en I fyrra og þrisvar sinnum
hærra en í bræðslu. Og sálan til
Japan ótakmörkuð og verðið á
„hæstu" flokkunum hækkaði.
Leita má að orsökum til að
svona fór, en þær eru meðal ann-
ars:
Hátt hráefnisverð hvatti menn
til þess að frysta aðeins I ,,hæstu“
flokkana, flestir lögðu sig fram
um að ná 100% kvenloðnu. Það
hefði þurft að vera hægt að frysta
loðnuna beint úr flokkunarvélun-
um eða svo til, en þá hefði hún
kannski verið 70%. Mikið þarf af
fólki til þess að tína karlloðnuna
úr, svo að eftir verði 100% kven-
loðna.
Ekki þarf að lýsa því hve mikil-
vægt það væri fyrir útgerðina og'
sjómenn, ef unnt væri að frysta
til að mynda helmingi meira af
loðnu, segjum 18.000 lestir til við-
bótar. Það hefði gefið 300 milljón-
ir eða um 200 milljón króna fram
yfir bræðsluverðið.
Aðalatriðið fyrir alla er, að
frystiafköstin séu fullnýtt og þá
lfka á nóttinni.
Færeyingar og Bretar.
Færeyskir útflytjendur frosins
fisks hafa átt að hálfu sölu- og
dreifingarfyrirtækið „Tjaldur" í
Grimsby á móti brezku fyrirtæki.
Nú hafa Bretarnir óskað eftir að
ganga út félagsskapnum og hafa
Færeyingar leitað eftir að fá
Framhald á bls. 47
FERÐAALMANAK ÚTSÝNAR
1974
ALLIR FARSEÐLAR Á
LÆGSTA VERÐI
EINKAUMBOÐ Á ÍSLANDI:
TJÆREBORG REJSER
Hvers vegna skyldu allir farseðlar í
Útsýnarferðir seljast upp löngu
fyrirfram?
Marz:
2 . 9 . 16.. 23.. 30 ENGLAND: LONDON — 7 dagar
2. NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl
2. AUSTURRÍKI: Skiðalerð til ZELL AM SEE — 16 dagar
3. og 22 SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
14 KANARÍEYJAR — 22 daqar
Apríl: « o
KANARÍEYJAR — 15 dagar
SKOTLAND: GLASGOW — 3 dagar
AUSTURRÍKI: Skiöalerð til ZELL AM SEE — 16 dagar
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol
ENGLAND LONDON — 7 dagar
SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar — PÁSKAFERÐ
SPÁNN COSTA DEL SOL — 22 dagar — VORFERÐ
Maí:
KANARÍEYJAR — 22 dagar
ENGLAND LONDON — 7 dagar
SKOTLAND GLASGOW — 3 dagar
SPÁNN COSTA DEL SOL — 22 dagar — BLÓMAFERÐ
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl —
ÍTALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN —21 dagur
2
5.. 12 . 19.. 26
10 og 24
12
30
31
4 og 18
5. og 19
6
6 og 9
7 . 21 . 28
7.
21
Júní:
1 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 19 dagar
6.. 9 og 16 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
9 og 23 ENGLAND LONDON — vikudvól (má framlengja)
19 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15 dagar
20. ÍTALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
23 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
23 ÞÝZKALAND MOSEL/RÍN — vikuferð með bil i vikudvöl I Kaupmanna hofn (má framlengja) (TJÆREBORG)
30 SPÁNN COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar
30 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
O Júlí:
•3 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—29 dagar
4 ÍTALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
7 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
7 ENGLAND LONDON — vikudvöl (má framlengja)
11 SPÁNN COSTA DEL SOL — 14 dagar
11 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
14 ÞÝZKALAND: MOSEL/RÍN — vikuferð með bil *- vikudvöl i Kaupmanna höfn (má framlengia) (TJÆREBORG)
14 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
17 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
18 ÍTALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
18 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
21 ENGLAND LONDON — vikudvól (má framlengja)
24 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
25 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
25 SPÁNN COSTA DEL SOL — 14 dagar
26 OSLO — vikudvol (má framlengja)
31 SPÁNN COSTA DEL SOL -t- 15—22—29 daqar
ftgúst:
1 ÍTALÍA LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN — 15—29 dagar
1 NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má Iramlengja)
6. MALLORCA — LONDON — 17 dagar — (má framlengja)
7 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
8 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar
8 NCRDURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má Iramlengja)
FERÐASKRIFSTOFAN# #
AUSTURSTRÆTI 1 7 (SILLA OG VALDA)
SÍMAR
26611
20100.
8. ÍTALÍA: GARDAVATN — 14 daga bilferð » 3 dagar i Kaupmannaholn
(má Iramlengja) (TJÆREBORG)
11 ÞÝZKALAND MOSEL/RÍN — vikulerð með bil) *■ vikudvol i Kaupmanna-
höfn (má Iramlengja) (TJÆREBORG)
11 MORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengja)
11. ENGLAND: LONDON — vikudvöl (má Iramlengja)
11 ÍTALÍA: GARDAVATN — 1—2 vikur — fluglerð ♦ vikudvöl i Kaup-
mannahöfn (má Iramlengja) (TJÆREBORG)
11 SPÁNN: COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar
14 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
15. AUSTURRÍKI ZILLERTAL — 14 daga bilferð Kaupmannahöfn (TJÆREBORG)
15. NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl — (má framlengia)
15. ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÓNDIN — 15—29 dagar
19 GRIKKLAND AÞENA' LOUTRAKI — 15 dagar Kaupmannaholn (TJÆREBORG)
19 NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvól - (má framlengia)
20 SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar
21. SPÁNN COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
22. MALLORCA — LONDON — 17 dagar — (má framlengia)
22. ÍTALÍA GARDAVATN — 14 daga bilferð 3 dagar i Kaupmannahöfn
(má framlengja) (TJÆREBORG)
22. NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol — (má tramlengia)
22 SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22—29 dagar
25 SPÁNN: COSTA BRAVA — LONDON — 18 dagar
25 ENGLAND LONDON — vikudvól (má framlengia)
27. MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja)
28. , SPÁNN COSTA DEL SOL — 15- 22—29 dagar
29. ÍTALÍA: LIGNANO — GULLNA STRÖNDIN 15 dagar
, September:
18. og 19
22
25
GRIKKLAND RHODOS — 14 dagar • Kaupmannahofn (TJÆREBORG)
GRIKKLAND AÞENA LOUTRAKI — 14 dagar Kaupmannahöfn (TJÆREBORG)
NORÐURLÖND: KAUPMANNAHÖFN — vikudvol — (ma framlengja)
MALLORCA — LONDON — 17 dagar (má framlengja)
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22- 29 dagar
SPÁNN COSTA DEL SOL — 15 dagar
ENGLAND LONDON — vikudvol (ma Iramlengia)
NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvol — (má framlengja)
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15—22 dagar
ENGLAND LONDON — vikudvöl (má framlengia)
NORÐURLÖND KAUPMANNAHÖFN — vikudvöl (má framlengja)
GRIKKLAND AÞENA 'LOUTRAKI • Kaupmannahofn — 18 dagar (má
framlengja) (TJÆREBORG)
SPÁNN: COSTA DEL SOL — 15 dagar
ENGLAND: LONDON — vikudvöl (má framlengja)
SPÁNN: COSTA DEL SOL — LONDON — 18 dagar
Október:
2. SPANN COSTA DEL SOL — 14—30 dagar
6.. 13.. 20.. 27 ENGLAND LONDON — 7 dagar
16 SPÁNN COSTA DEL SOL — LONDON — 18 dagar