Morgunblaðið - 03.03.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAG UR 3. MARZ 1974
7
Fellini
að starfi.
Þrjú
kvik-
mynda
lönd
ólíkar aðstœður
í umfangsmiklum samningi Efna-
hagsbandalags Evrópu um sam-
vinnu á flestum sviðum er ekkert
ákvæði, sem snertir kvikmynda-
iðnaðinn. Kvikmyndagerðarmenn
pukrast þar hver ! sinu horni við
mismunandi aðstöðu og misjafnan
árangur. Þrjú lönd eiga sér mesta
hefð í kvikmyndagerð — Bret-
land, Frakkland og ítalia, og er að
ýmsu leyti fróðlegt að gera
samanburð á þvi, hvernig kvik-
myndaiðnaður þessara landa er i
sveit settur.
f Bretlandi rikir hreint kreppu-
ástand i kvikmyndaiðnaðinum,
eins og raunar á flestum öðrum
sviðum þjóðlifsins. Manni liggur
við að segja, að þarlend kvik-
myndagerð hafi nú dáið drottni
sinum. Það gefur svolitið til kynna
um ástandið að taka sem dæmi,
að eina brezka kvikmyndin, sem
þar var i framleiðslu um miðjan
siðasta mánuð, var Percy's
Progress, framhaldsmynd af
Percy, er Gamla bió sýndi hér
fyrir fáeinum mánuðum og
greindi frá i hæsta máta óvenju-
legum líffæraflutningi. Að visu er
verið að hefja töku nokkurra
meiriháttar mynda þar þessa
dagana, en þær eiga það allar
sammerkt að vera fjármagnaðar
frá Bandarikjunum og jafnvel með
bandariskum kröftum að ein-
hverju leyti. Þannig er það til
dæmis um Murder on Orient
Express, mynd, sem gerð er eftir
sögu Agöthu Christie, — með
Sean Connery, Lauren Bacall,
Ingrid Bergmann, Albert Finney,
Vannesu Redgrave og Richard
Videmark i aðalhlutverkum, en
Sidney Lumet sem leikstjóra. Hún
getur þvi varla talizt brezk kvik-
mynd.
Banamein brezka kvikmynda-
iðnaðarins ætlar að verða þessi
bandarisku itök. f umræðum um
stöðu brezka kvikmyndaiðnaðar-
ins vitna heimamenn stundum til
orða Winston Churchills, sem
sagði eitthvað á þá leið, að Bret-
land og Bandarikin væru tvær
þjóðir, aðskiidar af sömu tungu.
Þetta má til sanns vegar færa,
þegar horft er á brezka kvik-
myndagerð. f Frakklandi, Svíþjóð
og ftaliu hafa tungumálahindranir
gagnvart öðrum löndum haft i för
með sér, að handritahöfundar,
leikarar og leikstjórar sitja kyrrir
heima og gera myndir fyrir landa
sina fyrst og fremst. Hjá Bretum
er þessu öðru visi farið. Allt frá
Hitchcock hafa fremstu kvik-
myndamenn Breta sótt vest-
ur um haf. þar sem tæki-
færin bíða þeirra og fæstir
snúa aftur, því að brezki
kvikmyndaiðnaðurinn hefur ekki
bolmagn til að yfirbjóða Holly-
wood. Þannig má nefna, að á
aðeins siðustu 12 mánuðum hafa
ýmsir helztu kvikmyndagerðar-
menn Breta — eins og
Jack Clayton, Karel Reisz
og John Schlesinger allir lokið við
nýjar myndir vestan hafs og eru
þar yfirleitt langdvölum.
Önnur ástæða fyrir þessari
kreppu er brezka sjónvarpið,
geysilega fjölbreytt að efni og
gæðum, sem nú hefur að mestu
kafsiglt kvikmyndina þar i landi.
Kvikmyndagerðarmenn hafa reynt
að svara þessari ógnun með þvi að
taka upp vinsæla sjónvarpsþætti
og setja þá i kvikmyndabúning.
Eftirtekjan hefur þó verið harla
rýr, þegar á heildina er litið.
Heimamarkaðurinn hefur reynzt
takmarkaður, enda kvikmynda-
húsin þar í landi flest gömul og úr
sér gengin.
I Frakklandi er ástandið skárra.
Franska kvikmyndin tórir sæmi-
lega. en heldur sig aðallega á
heimavigstöðvum. þar sem hún
hefur komið ár sinni vel fyrir borð.
Ymsir erfiðleikar hafa þó orðið á
vegi hennar. Munar mest um, að
áhorfendum hefur fækkað um 1 5
milljónir á siðustu 15 árum og
munar um minna. Stóru kvik-
myndahallirnar i Paris hafa nú
flestar sungið sitt siðasta. kvik-
myndaverum hefur verið lokað og
út á landsbyggðinni hefur kvik-
myndin orðið undir i samkeppn-
inni við sjónvarpið. Að fara i bió er
helzt orðið frístundaiðja borgar-
búa.
Ýmislegt athyglisvert er þó að
gerast i kvikmyndalifi Frakklands.
Robert Bresson vinnur þar að nýrri
kvikmynd, sem nefnist Grail. Luis
Gamli Bunuel er i Frakklandi og er
að gera myndina Frelsisvofurnar
— „satíru" um bölsýnissamfélag-
ið. í þessum þætti hefur áður ver-
ið minnzt á nýjustu mvnd Alain
Resnais um Stavinsky-málið,
Claude Lelouch er að byrja á nýrri
mynd, sem hann nefnir Allt um
lifið, og Louis Malle hefur nýlega
látið frá sér fara myndina
Lacombe Lucien, sem margir telja
beztu mynd hans til þessa. Þar
segir frá því, hvernig ungur sak-
laus sveitapiltur er tældur til þjón-
ustu við Gestapo á hernámsárun-
um. Með slfkri mynd frá Malle og
Bresson og Bunuel að störfum er
varla hægt að segja, að franska
kvikmyndin sé í bráðri lífshættu.
Ítalía hefur nokkra sérstöðu
meðal Efnahagsbandalagsrikj-
anna, hvað kvikmyndir áhrærir,
þar sem ítalskir kvikmyndahús-
gestir eru helmingur allra kvik-
myndaáhorfenda f EBE-löndunum
nfu. Þar seldust á siðasta ári yfir
500 milljónir aðgöngumiða, sem
svarar til þess, að hvert manns-
bam á italiu hafi farið tiu sinnum f
bió á árinu. Þessa ótrúlegu aðsókn
þakka heimamenn fádæma lélegu
sjónvarpi.
Þessi gifurlega aðsókn hefur
einnig i för með sér, að italski
kvikmyndaiðnaðurinn á afar Iftið
undir þvi komið, að framteiðslan
fari á alþjóðlegan vettvang —
heimamarkaðurinn stendur undir
framleiðslunni og vel það. Eðlilega
ber ftalska kvikmyndin merki
þessa — efnisaðföng eru fremur
innhverf, þar sem leitazt er við að
fjalla um eða taka fyrir ýmsa sér-
italska þjóðfélagsþætti og áhuga-
svið, en litið lagt upp úr þvi að
stila myndirnar á alþjóðlegan vett-
vang. Áætlað er, að á þessu ári
verði gerðar um 200 kvikmyndir á
Ítalíu I fullri lengd og þar af munu
aðeins um 10% nokkru sinni fara
út fyrir landsteinana.
Þessi innhverfa tilhneiging lýsir
sér einnig ágætlega í efnisvali
helztu kvikmyndakempa þarlend-
is. Þannig er nú Bertolucci horfinn
frá alþjóðlegu yfirbragði Siðasta
tangósins og tekinn til við að vefa
þjóðfélagsfræðilegt teppi. sem á
að sýna sögu Ítalíu óslitið frá alda-
mótaárinu fram til fasismans og
áfram. Mynd hans nefnist
„1900" og hann greinir þar frá
samstæðum lifsferli tveggja
manna úr ólíkri stétt f bændasam-
félaginu i Parmahéraði, þar sem
Bertolucci er einmitt borinn og
barnfæddur. Fedrico Fellini hverf-
ur hins vegar allt aftur til átjándu
aldar til að fást við Drauma Casa-
nova, kvikmynd, sem hann hefur
lengi gengið með i maganum. Síð-
asta mynd hans er Amarcord, sem
fengið hefur frábærar móttökur
heima fyrir, en i henni fer hann
með okkur til Rimini, bernsku-
stöðva sinna. Þar endurskapar
Fellini enn einu sinni æskuheim
sinn — og lýsir fyrstu eldskirn
kynlífsins með bosmamiklum kon-
um, svo að eitthvað sé nefnt.
Vittorio De Sica langar lika
heim á fornar slóðir — til Adria-
strandarinnar til að gera kvik-
mynd eftir nokkrum smásögum
Gabriele d’Annunzio, en hann á
enn eftir að fá framleiðanda að
þessari kvikmynd. Hins vegar er
hann með á prjónunum enn eina
kvikmynd a la Sophia Loren, sem
á að gerast á Napóli. Nýlega hefur
hann lokið við myndina Sjóferð-
ina, sem er byggð á sögu Pirand-
ello — með Burton i aðalhlutverki
á móti Loren. Hún gerist um alda-
mótin og sagan tekur áhorfendur
frá Sikiley til Feneyja, svo að
þetta hljómar allt kunnuglega.
„Alltaf öðru hverju verður vart
hugmyndakreppu i kvikmynda-
gerð," var svo haft eftir Sophiu
Loren i blaðaviðtali á ftaliu fyrir
skömmu.
KEFLAVfK — NJARÐVÍK Ung hjón með eitt barn óska eftir litilli ibúð á Isigu. Upplýsingar í síma 92-2977 eftir kl. 7 á kvöld- in. HJÓN ÓSKA eftir vinnu við ræstingar á kvöldin. Upplýsingar i sima 1 9741.
BRONCO.Bronco '66 til sölu. Upplýsingar í slma 85431. FORD FAIRLANE '70 Sportbill 2ja dyra Sérstaklega fallegur til sölu. Má borgast með 3ja — 6 ára skuldabréfi eða eftir samkomulagi. Simi 22086.
VOLKSWAGEN 1300 árg. '72 til sölu. Uppl. ísfma 32328 NÝLEGTRAFMAGNSORGEL með fótspili til sölu. Upplýsingar í síma 50730
ÉG ERÍRSK 24 ára gömul og óska eftir vinnu frá kl. 1—6 e.h. í eitt ár. Msrgt kemur til greina. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: „Vinna — 3247". REIÐHESTUR. Glæsilegur jarpskjóttur 6 vetra hestur undan verðlaunahestinum Blika frá Vatnsleysu. er til sölu Uppl. hjá Sigurði Sigurðssyni, Fákshesthúsum við Elliðaár.
LÖBERAR OG DÚLLUR Gobelin borðdúkar, sem selt var í Litlaskógi, er selt nú i Hann- yrðaverzlun Þuríðar Sigurjóns- dóttur, Aðalstraeti 12 TILSÖLU Ford Mercury Monteago árg. '69 sjálfskiptur, vökvastýri og power bremsum. Mjög vel útlít- andi bfll. Uppl. i sima 86402.
HAUKAR Á LOFTLEIÐUM í kvöld frá kl. 9. TIL LEIGU 3ja herb. ibúð í Breiðholti Að- eins gegn fyrirframgreiðslu. Tilboð sendist Mbl. merkt: „3238 '
BÖSENDORFER FLYGILL til sýnis og sölu i Skeiðarvogi 6 1, mánudag, þriðjudag og mið- vikudag eftir kl 4. HÚSNÆOI ÓSKAST Ungt par, sem er að byrja bú- skap, óskar eftir 2ja herb. ibúð í höfuðborginni. Reglusemi. Vin- samlega hringið i síma 92-8287 eftir kl. 9 á kvöldin.
TILSÖLU VÖRUBIFREIÐ Man 650 árgerð '67 með fram- drifi. 1 6’/2 feta Sindrastálpallur. 1 0 tonna sturtur. Upplýsingar i slma 97-7433. EIGNIZT VINI UM ALLAN HEIM Gangið í stærsta pennavinaklúbb i Evrópu. Sendum ókeypis bækl- 'n9 HERMES, Box 1 7. Berlin 1 1, Germanyþ
FRÍMERKJASKIPTI Sendið mér íslenzk frímerki. Fyr- ir eitt íslenzkt læt ég 3 mismun- andi dönsk eða 5 mismunandi skandinavísk. Gorm Hansen, 6920 Videbæk, ÖsterAllé25, Danmark. HLJÓMPLÖTUR Kaupi notaðar vel með farnar hljómplötur. Einnig Isl. frlmerki, kórónumynd, gömul umslög og póstkort. Myntir og frimerki, Óðinsgötu 3.
Hárgrelðsia - dömur - Breiðhoit
Leitið ekki langt yfir skammt.
Opnum hárgreiðslustofu að Æsufelli 6 í dag.
Hárgreiðslustofan „Breiðholti",
Æsufelli 6, sími 43720.
Salla og Jóna.
ÚTGERÐARMENN
Höfum til sölu uppsetta línu 7 mm, og línuefni.
ÍSBJÖRNINN HF.
Útborgun 10 millj.
Höfum kaupanda að verzlunar-, skrifstofu- eða iðnaðar-
húsnæði á Reykjavíkursvæðinu sem mætti kosta
20—30 millj. Útb. a.m.k. 10 millj.
Eignamiðlunin
Vonarstræti 12.
Símar 11 928 og 24534.