Morgunblaðið - 03.03.1974, Side 18

Morgunblaðið - 03.03.1974, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974 Hjá hluta af verkfærunum í smiðjunni, en hundrað stórra og smárra verkfæra hefur hann smíðað sjálfur. A kvöld- göngum smíðar hann gripina sína si mwn1 ml juh (Jlti Sigurður á nýju Su/uki skelli- nöðrunni sinni með tilheyrandi hjálm. hátt til lofts, rétt mannhæð, og ekki vítt til veggja, um það bil fimm fermetrar. Hver hlutur hékk á sínum stað, hlið við hlið eins og fannirnar í jöklinum, en þarna voru allir hlutir hlýlegir. Þeir hefðu ekki verið slegnir hátt í nútíma bústað þéttbílis, en þeir áttu persónutöfra þess, sem hefur gildi. Rúm Sigurðar tók nærri hálft gólfrýmið, hlutirnir, félagar hans hvildu sig á eilifðarspássitúrnum á tæplega hinum helmingnum og á milli var þröngur stígur fram- rásarinnar. Sigurður sat á rúmi sínu og reri fram f gráðið. Fyrir ofan hann hékk gömul sláttuklukka. Lúin að sjá eftir langan dag, en tifaði sínu tifi eins og hjarta þess manns, sem þráir og lifir. Elías sat einnig á rúmstokkn- um, ég á gömlum stól úti í horni. ,,Ég hef nú búið hér frá 1940,“ sagði Sigurður, „þetta var byggt þá en hefur aldrei verið klárað. HANS aðalstarf hefur verið að gera við ýmsa hluti, sem úr lagi eru gengnir, en sér til gamans hefur hann smíðað hundruð verkfæra sem eru völundar smíð. Hann á sér litlu smiðju f Kiljuholti á Mýrum vestan Hornafjarðar. Hann býr þar í nábýli við Vatnajökul og blómin, sem spretta ár hvert þrátt fyrir svalann af jöklin- um. Hann er völundur og uppfinningamaður, eitt af hinum mörgu ævintýrum í íslandssögunni, sem fara dult. ,Já, komdu blessaður,“ sagði hann og traust, þéttingsfast hand- tak kom í kjölfarið. „Já, blessaðir gangið í bæinn," hélt hann áfram þegar við Elías Jónsson frá Höfn í Hornafirði bönkuðum upp á í Kiljuholti á Mýrum einn súgkald- an sunnudagsmorgun. Það eru skemmtilegar andstæð- nr barna á Öræfasvæðinu. Kvöld- ið áður hafði ég verið i dans- sal hótelsins. Þar dunaði loft- ið af danshitanum, en árla sunnudagsmorgunsins höfð- um við brugðið okkur upp að Fláajökli til þess að skoða ís- hella. Það var stórkostlegt að ganga inn í jökulinn og horfa á ky njamyndirnar inni í honum. Maður gleymir bíómynd- um, en maður gleymir ekki slíkri sýn inni í Fláajökli. Eitt og eitt strá gægðist upp úr fönninni á hlaði Kiljuholts. Bú- vélar hvíldu þar í fönn eins og venja er búvéla á íslandi. Norðan- boli lék á þekjum. Við lokuðum hurðinni á eftir okkur og við augum blasti löng reynsla snillings í handverki. Meistari smiðjunnar, Sigurður Filippusson, brosti hlýlega. Vinnuteknar hendur hans báru sömu merki og blái nankinsgall- inn hans. Nýting var aðalsmerki umhverfisins. Ekkert pjátur né tildur, mus eða pö, nýting og út- sjónarsemi, takk. Um tólf fermetra gólfflötur er í smiðjunni, en alls kyns tæki og nýtijárn minnkuðu sjálfan gólf- flötinn stórlega. Maður varð að smjúga þarna um eins og í hröð- um polka á dansiballi. í loft- inu lék sér ilmur af oliu, járni, timbri, heyi. Smiðju ilmur, sem fær mann til að verða hluta af öllu húllari- inu. I norðurhluta smiðjunnar stóð merkileg maskína, renni- brekkur og eitthvað fleira heima smíðuð og reimadrifin. Á öllum veggjum voru verkfæri, býsn af verkfærum í hundraða tali. Flest smíðuð af hagleiksmanninum Sig- prði Filippussyni, fæddum í Digurholti á Mýrum á þvi Herr- ans ári 1904. Inn af smiðjunni var gengið inn í herbergi Sigurðar. Það er ekki Völundurinn með eitt þeirra verkfæra, sem hann hefur smfðað, forláta töng. En okkur kemur vel saman.“ „Bú- fénað? Nei, ég á bara tvö hross.“ Hans starf hefur verið að gera við hluti, gera við, gera við, gera við allt mögulegt í áratugi. „Það er nú meiri viðgerðin, en aðal- verkefnið hefur nú verið að taka bilaða hluti og lagfæra. Einu sinni nostraði ég við úraviðgerðir, smæstu úr, ekki þó fullfær til að gera við alla hluti, en maður hef- ur tekið á mörgu um dagana. Ég hef ákaflega mikið verið í smiðju um dagana." Smiðaði flestar eldsmiðjurnar á þessum slóðum. Rafstöðvar. Bakkaði fyrsta skozka ljáinn þarveris fyrir 55 árum í Heina- bergi. Þannig mætti lengi telja. hef alltaf jafn gaman af að vera f smiðjunni. Hef smíðað nokkuð mikið af mínum verkfær- um sjálfur. Já, já, aldrei haft teikningar. Ég hef verið að gera téikningar eftir ýmsum hugdett- um mínum, og smíðað eftir þeim. Þetta hefur gengið svona, en það er gott ráð ef maður er ekki full- fær um að gera eitthvað, að ganga úti á kvöldin og hugsa um það. Þá er maður að smiða á leiðinni, en það er nú betra að umferðin sé ekki mikil.“ Um tíu ára bil sá Sigurður um flutninga á milli Hafnar og Mýra- bæjanna, fimmtán talsins, eða svo. Hann hafði tvo báta: „Það var voðalega erfitt, þurfti oft að draga bátana yfir leirurn- ar, því það er svo grunnt vatnið þarna.“ E3nn kapítuli úr ævi hans, við- gerðir og þjónusta. „Já, það var lítið um verkfæri, en samt alveg furða hvað þetta lánaðist nú samt. Hve mörg? Ég veit það ekki þau eru orðin mörg hundruð verkfærin, sem ég hef smíðað, allt frá 5 ára aldri.“ Ösjaldan þegar fregnir bárust af nýjum verkfærum í kaup- félaginu, brá hagleiksmaðurinn sér á ról. Svo stóð hann góða stund með verkfærið í höndunum við búðarborðið, þakkaði sfðan fyrir sig og hélt heim á leið. Á leiðinni smíðaði hann f huganum og ekki leið á löngu þar til verk- færið fæddist í höndum hans oft eitthvað lagfært tæknilega séð. i hinum stóru útlöndum hafa slíkir menn stórar smiðjur og aðstoð til að fiýta fyrir. Islendingar eru rik þjóð, hafa efni á að eiga slíka menn fyrir sjálfa sig, hafa efni á að eiga slíka menn eins og ævin- týri. „Það erfiðasta? Ég held það sé, skal ég segja þér, hún var nú andskoti erfið túrbínan, sem ég smíðaði fyrir hann Daníel á Rauðabergi og svo rafstöðin heima í Digurholti. Þar var aðeins eins metra fallhæð og vatninu safnað í lón. Það varð að stoppa á nóttunni, nema ef það var rign- ing.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.