Morgunblaðið - 03.03.1974, Síða 30

Morgunblaðið - 03.03.1974, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDXGUR 3. MARZ 1974 GAMLA krónan er enn í fullu gildi, hefur verið slagorð bóksala um ára- bil þegar þeir hafa opnað í nokkra daga á hverju ári stærstu hókabúð landsdins. Bókamarkað- urinn er árlegur viðburð- ur sem leshestar hlakka til. Hann var lengi til húsa í Listamannaskál- anum gamla, en nú er búið að rífa hann svo að þessu sinni er markaður- inn inni í Skeifunni, f norðurenda Hagkaups. Og sú gamla króna virð- ist enn ætla að hanga, þótt ótrúlegt sé miðað við hvernig hefur verið farið með hana. Gamla krónan hangir enn á bókamarkaðinum Ol af ur Baldursson. En þótt lengra sé nú að sækja fyrir ýmsa virðist nýi staðurinn sist hafa dregið úr aðsókninni því þangað er stöðugur straum- ur allan daginn og þar skipta þúsundir króna um hendur, þótt bækurnar séu ódýrar. Markaðurinn verður opinn á venjulegum búðartimum fram til niunda þessa mánaðar. Á þriðjudögum og föstudög- um verður þó opið til kl. 22 og á laugardögum til kl. 16. í dag (sunnudag) verður svo opið frá kl. 15—18. Við röltum um til að kíkja á bókatitlana og fólkið sem þarna er að verzla. Viðskiptavinirnir voru á cílum aldri og smekkur- inn því auðvitað misjafn, en allir viturst þó finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem þeir leituðu eftir Dodda bókunum eða einhverri ævisögunni. LANGAR 1 MARGAR Tveir knálegir piltar óku um með vörukerru sem þeir voru búnir að safna nokkrum bókum í. — Ég heiti Smári Karlsson, Gvuuuuð ... hvernig ætli hún endi. (Ljósm. B.Helgas.) sagði ökumaðurinn. — Ég heiti Einar Guðjónsson, sagði hinn. — Við erum báðir 12 ára, sagði Smári. — Og báðir í Voga- skóla, sagði Einar. Drengirnir höfðu fengið ein- hverja fjárveitingu frá foreldr- um sínum til að heimsækja bókamarkaðinn og þeir voru þegar búnir að krækja sér í Zorro, Leyndardómur drauga- hallarinnar og Njósnari merkt- ur X. — Ætli við látum þetta ekki nægja í bili. Það er glás af bókum sem okkur langar í, við gætum alveg keýpt fullan vagn, en við eigum ekki svo mikinn pening. Þeir líta löngunaraug- um á allar bækurnar sem þeir eiga ókeyptar, en skokka svo heimleiðis að lesa Zorro. BARAAÐ SKOÐA Sigurður Samúelsson hafði að vísu ekki áhuga á Zorro, en hann hafði samt séð ýmislegt sem hann gat hugsað sér að glugga í. — Eg er nú eiginlega bara að skoða, en ætli það endi ekki með því að ég labbi út með einhverja skruddu. Ég hef mestan áhuga á ýmsum fróð- leik, ferðasögum og ævisögum, en kaupi yfirleitt ekki skáldsög- ur. — Já, ég hef haldið tryggð við þennan markað. Hef yfirleitt heimsótt hann og litið á hvað þeir bjóða uppá. Mér sýnist að það sé núna eins og endranær, það er hægt að fá margt for- vitnilegt á göðu verði. LJÓÐABÆKUR Olafur Baldursson var í sinni þriðju heimsókn á markaðin- um. — Eg les nú margvíslegar bækur, en hér sækist ég eink- um eftir einhverjum fróðleik. Það er hægt að fá hérnamargar góðar ferðasögur og ætli ég fái mér ekki einhverjar af þeim í þetta skipti. Ég er lika að svip- ast um eftir ljóðabókum. Nei, ekki neinum sérstökum, bara einhverjum sem mig langar í þegar ég sé þær. FYRIR MÖIVIMU Stella Arnórsson var komin með nokkrar bækur undir höndina og gekk um og leitaði að fleirum. — Ég er nú aðallega að leita að bókum handa aldraðri móð- ur minni. Hún fer ekki mikið um, en unir sér vel við lestur. Það eru margar góðar bækur hér sem ég veit að hún hefði gaman af og ég er að hugsa um að fá mér nokkrar í viðbót. — Enhvaðlestu sjálf? — Tja, það má segja að við lesum nokkuð sömu bækurnar. Við höfum líkan smekk, þykir báðum gaman að lesa góðar bækur. FJÖLSKYLDAN OG EIN TIL — Þessa. Nei þessa þarna, heyrðist hvíslað fyrir einu borðinu miðju, þar sem voru hlaðar af skrautlegum barnabókum. Þau stóðu þar fjpgur, tvö stór og tvö lítil. Bjarni og Hildur höfðu farið með Baldur son sinn að kaupa bækur, og Lilja litla frænka fékk að vera með. Litlu krúttin náðu varla upp á borðið, þau hvíldu nefin á borð- brúninni og létu svo augun reika fram og aftur eftir beztu getu. — Þessa. Nei, þessa þarna. — ót. Bjarni og Hildur með Baldri og Lilju. Stel la Amórsson. Smári og Einar. Sigurður Samúelsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.