Morgunblaðið - 03.03.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 3. MARZ 1974
31
Sölumaður
Tvítugur piltur, sem hefur mikinn áhuga á sölustörfum
vantar sölustarf nú þegar. Góð meðmæli. Tilboð sendist
Mbl. fyrir 10. þ.m. merkt„Vanur 1452''.
BINGÖ BINGÓ
Hvöt félag sjálfstæðiskvenna heldur bingó á Hótel Borg (gengið inn
um aðaldyrnar) þriðjudaginn 5. mare kl. 8.30. Fjöldi glæsilegra
vinnmga m.a. utanlandsferð.
Stjórnin.
FELLA- OG HGLAHVERFI
Félag Sjálfstæðismanna í Fe11-'- og Hólahverfi hefuropnað skrifstofu að
Vesturbergi 193, sími 72-72-2.
Fyrst um sinn verður skrifstofan opin frá kl. 1 8—20.
Týr F.U.S. I Kópavogl
Fundur þriðjudagskvöld kl. 19 í Sjálfstæðishúsinu við Borgarholts-
braut.
Mætið stundvislega Stjórnin.
KÓPAVOGUR
Opinn fundur um bæjarmál Kópavogs verður haldinn í Félagsheim
ili Kópavogs (efri sal) þriðjudaginn 5. marz n.k. kl. 20,30.
Eftirtaldir málaflokkar verða ræddir:
if Strætisvagnar Kópavogs og nýtt leiðakerfi
if Gatnaframkvæmdir
if Verkefni rekstrardeildar
if Skóla-og fræðslumál
if íþrótta- og æskulýðsmál
if Samningar við ríkið um Hafnarfjarðarveg.
Stuttar framsöguræður flytja: Sigurður Helgason, bæjarfulltrúi og
Ingimar Hansson, rekstrarstjóri, en sfðan almennar fyrirspurnir.
Allir Kópavogsbúar velkomnir.
Stjórnir Sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi.
TilboÓ
óskast í að vinna götuna Þrúðuvang á Hellu, Rangárvalla-
hreppi undir olíumöl með tilheyrandi lögnum og gang-
stéttagerð.
Gatan erað lengd ca. 630 fm.
Tilboðsgögn verða afhent á verkfræðistofunni Hnit h.f.,
Siðumúla 34, Reykjavík, gegn 5000 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð kl. 16 föstudaginn 15. marz á
Hellu.
BLAÐIÐ FÆST NU I LAUSA-
SOLU í BLAÐASOLUIMNI I
FLUGAFGREIÐSLU SAS I
SAS BYGGIIMGUIMNI I MIÐ-
BORGINNI
TILSÖLUÍ
KAUPMANNAHfiFN
Kartöflusúpa með lauk
500—600 g kartöflur, * 2 laukar, * 1-1 14
msk. smjör, * 114 1 vatn, * 1 súputeningur,
* 2 tsk. salt, ir pipar, * 14 dl. rjómi, ★ 50 g
rifinn ostur, ir steinselja, ef til er. *
Flysjið hráar kartöflur og lauk og skerið
í þunnar sneiðar. Hitið sneiðarnar i potti
með smjörinu. Hellið héitu vatni eða kjöt-
soði á, bætið salti og pipar út í, ef vatn er
notað. Sjóðið súpuna þar til kartöflurnar
eru soðnar f mauk, hrærið i með þeytara.
Látið súputening í, ef þarf, þegar súpan
er að verða soðin. Stráið saxaðri steinselju
yfir súpuna í súpuskálinni. Ennþá bragð-
betri verður súpan, ef ofurlitlum rjóma
eða rifnum osti er bætt í að síðustu. Þeir,
sem vilja, borða brauð með súpunni.
Kjötdeig með eplum og sveskjum
f eldtraustu móti.
4 epii, * 150 sveskjur, i, 1 tsk. salt, *
kjötdeig úr 400 g af kjöti, * 50 g smjörlíki.
Sveskjur eru látnar liggja í bleyti ef
með þarf. Leggið kjötdeig og ávexti í
lögum í smurt, eldtraust mót. Hafið kjöt-
deig efst. Leggið smjörlíkið í smábitum
yfir. Látið mótið vera f ofni um 3/4-1
klst. Ofnhiti 180°.
Epli í sykurlegi
350 g ný epli, * 75 g sykur, * 4 dl vatn. *
Flysjið eplin. Skerið þau í 4 eða 8 báta
og takið kjarnhúsin úr. Sjóðið saman syk-
ur og vatn í sykurlög. Sjóðið eplin í legin-
um, þriðjunginn í einu, og gætið þess, að
eplabátarnir fari ekki í sundur. Þegar
búið er að sjóða öll eplin, er sykurlögur-
inn soðinn þar til hann fer að þykkna, og
er honum síðan hellt yfir eplin. Einnig má
gera sykurlöginn þykkan með örlitlu
kartöflumjöli.
Glóðarsteiktur fiskur
Fiskurinn er ýmist glóðarsteiktur: inn-
pakkaður i álpappír, liggjandi á grind og
snúið einu sinni eða í grind, sem smeygt
hefur verið upp á tein. Það á alltaf að
leika loft, um það, sem er steikt við glóð.
Til að fá fiskinn sem bragðbeztan ætti
helzt að strá salti yfir hann, eða leggja
hann í saltlög (8 msk. salt pr. 1 1 vatn) í
u.þ.b. 5 mín. fyrir glóðarsteikingu. Ef fisk-
urinn er steiktur óinnpakkaður, verður að
smyrja grindina mjög vel, og bera verður
feiti (smjör, olíu) oft á fiskinn meðan á
steikingu stendur, annars er hætta á, að
fiskurinn þorni. Feitur fiskur verður
bragðbetri heldur en magur fiskur. Ekki
má stinga í fiskinn, þegar verið er að snúa
honum við glóðarsteikinguna, nota má t.d.
tvær sleifar eða steikingarspaða og sleif.
Ef fiskur er steiktur á teini, verður að
leggja hann á milli tveggja velsmurðra
grinda, sem síðan er smelt saman og
smeygt upp á teininn. Ekki má heldur
gleyma að smyrja fiskinn mjög vel. Oftast
er fiskurinn kryddaður eftir steikinguna.
Steikingartími er algenastur í 3—4 mfn.
upp í 5—6 mfn. á hvorri hlið eftir stærð
stykkjanna.
MATSEDILL
VIKUNNAR
Umsjón:
Unnur Tómasdóttir
matreiBslukennari
Morgunverður
Hafragrautur m. rúsfnum, gróft brauð,
volgar hveitibollur m. osti og berjamauki,
kaffi, te og mjólk, epii.
Mánudagur
Glóðarsteiktur fiskur, hrátt salat, hrís-
grjónagrautur m. kanil og mjólk.
Þriðjudagur
Kjöt f karrý með hrísgrjónum og gulrót-
um, hrátt salat, apríkósusúpa m. tvíbök-
um.
Miðvikudagur
Fiskkökur með saltkjöti, (sjá uppskrift)
hrátt salat, kartöflusúpa með lauk, (sjá
uppskrift).
Fimmtudagur
Kjötdeig m. eplum og sveskjum f eid-
traustu móti, (sjá uppskrift), hrátt salat,
safthlaup með eggjakremi.
Föstudagur
Steikt hjörtu heil með sveskjum, hrátt
salat, brauðsúpa m. rúsínum.
Laugardagur
Soðnar gellur, hrátt salat, afg. brauðsúpa.
Sunnudagur
Soðin svið með rófustöppu og kartöflu-
jafningi, epli i sykurlegi (sjá uppskrift).
Glóðarsteiktur fiskur í ofnskúffu.
750 g ýsu-, þorsk- eða skarkolaflök, * 4
msk. smjör eða smörliki, * salt, sellerísalt,
pipar, paprika, * 1 egg, * 250 g Gouda
45% eða Maribo ostur. *
Fóðrið ofnskúffu með málmpappír. Roð-
flettið flökin og setjið í skúffuna. Bræðið
smjörið, blandið kryddinu saman við.
Penslið vel með kryddblöndunni. Steikið í
4—5 mfn. og snúið stykkjunum, penslið þá
aftur, setjið stífþeytt egg og rifinn ost
ofan á. Steikið áfram í 4—5 mín., eða þar
til osturinn er fallega gulbrúnn og fiskur-
inn gegnsteiktur. Berið fram með soðnum
eða hrærðum kartöflum, soðnu græmmeti
og grænmetissalati.
Fiskkökur með saltkjöti
500—600 g beinlaus fiskur, * um 100 g
feitt saltkjöt, * 2—3 soðnar kartöflur, * 1
egg, i, 14-1 dl mjólk, * 1 tsk. salt, * V* tsk.
pipar, ef vill, * 5 msk. brauðmylsna, i, 50
g smjörlíki, ★ 2 dl fisksoð, * 1 dl rjóma-
bland eða mjólk, * 2 msk. tómatkraftur.
Hakkið fiskinn og kjötið tvisvar í hakka-
vél. Hakkið að því búnu kartöflurnar.
Hrærið egginu saman við og þynnið deigið
smám saman með mjólkinni. Mótið flatar
kökur úr deiginu. Veltið kökunum úr
brauðmylsnu og brúnið þær á pönnu i um
5 mín. á hvorri hlið. Hellið rjóma, fisksoði
og tómatkrafti á pönnuna, og látið fisk-
kökurnar krauma i nokkrar mínútur á
pönnunni. Berið réttinn á borð með soðn-
um kartöflum og hrásalati.