Morgunblaðið - 03.03.1974, Page 42

Morgunblaðið - 03.03.1974, Page 42
42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUOAGUR 3. MARZ 1974 Gísli, Elríkur og Helgl etllr ingiblörgu Jónsdöttur líkið, kakóið og mjólkina og ég veit ekki hvað annað. Svo mikið er víst, að slettur og klessur voru um skápa og veggi og alveg upp í loft. Ég ætla ekki að minnast á ofninn, því að deigið flaut út um allt gólf og þegar ég kom heim voru drengirnir að kútveltast á gólfinu." „Hvernig stóð á því, að kakan flaut út um ailt?“ spurði pabbi og Gísli og Eiríkur lögðu eyrun við. Nú fengju þeir að vita, hvað það var sem þeir höfðu notað alltof mikið af. „Nú flónin settu heila krukku af lyftidufti í kökuna!" sagði mamma. „0, þú sem sagðir að hún væri nísk og alltaf að spara,“ hvíslaði Eiríkur að Gísla. r „Hvernig átti ég að vita að þetta væri seigfljótandi sprengiefni?“ hvíslaði Gísli á móti og huggaði sig við það, að nú vissi hann loksins, hvernig ætti að baka Nefndu borg t þessum leik geta verið margir þátttakendur. Þátttakendur stilla stólum sínum f hring í herberginu. Sá, sem inni í hring- miðjunni situr, nefnir eitthvert land og bendir á einhvern er f hringnuin situr. Sá, sem bent er á, á að nefna borg eða bæ í því landi sem nefnt var. Sé svarið rétt, tekur sá er svaraði sæti í hringmiðjunni og ræður ferðinni. Sé svarið rangt, er sá úr leik, sem það átti. köku og hann hugsaði gott til glóðarinnar næst þegar mamma færi í bæinn. Pabbi kallaði á Helga inn og hann var látinn þvo sér og hátta, en í bað var hann ekki sendur það kvöldið eins og bræður nans. Þeir voru látnir setjast við borðið á náttfötunum og máttu ekki segja orð, en Helgi féll að masa um allt, sem amma hafði sagt honum. Gísla fannst þetta óréttlátt og það versta af öllu var að láta reka sig inn í rúm strax eftir matinn, en Eiríki fannst þetta sanngjarnara. Gísli hresstist samt ögn, þegar hann heyrði pabba tala um það, að þetta væri nú sæmileg kaka eftir allt saman og rétt að leyfa strákunum að br.agða á henni fyrir svefninn. Mamma var orðin ögn rólegri og drengirnir fengu því bita inn í rúm og mjólkurglas með. „Þarna sérðu bara, hvort ég get ekki bakað köku,“ tautaði Gísli eftir að hann hafði beðið bænirnar sínar. „Ég get allt, sem ég vil!“ Þegar strákarnir voru allir sofnaðir fór mamma inn til að signa þá og athuga, hvort ekki þyrfti að breiða ofan á þá. Hún lét aftur dyrnar, fór inn í stofu og settist í sófann. Þegar hún var búin að hagræða sér, leit hún á pabba og sagði blíðlega: „Er það ekki undarlegt, hvað mér þykir alltaf vænt um þessa drengi, þegar þeir eru sofnaðir og það eftir annan eins dag og þennan?“ Pabba fannst það ekkert undarlegt, því honum þótti einmitt sjálfum vænst um strákana sofandi uppi í rúmi. Nú er ég búin að segja ykkur frá Gísla, Eiríki og Helga, þegar þeir voru litlir og líka eftir að þeir fóru að ganga í skóla. Það er að segja, Helgi var ekki kominn í skóla ennþá, því að hann var sex ára og þessi saga gerðist fyrir löngu, svo að Gísli, Eiríkur og Helgi voru ekki skólaskyldir fyrr en sjö ára. Dag nokkurn, þegar Gísli, Eiríkur og Helgi vöknuðu um morguninn var pabbi eitthvað svo undarlegur. Hann sendi Gísla og Eirík í skólann og áminnti þá um að koma rakleiðis heim, en Helgi var sendur einn í strætisvagni til ömmu. Mamma sat við eldhúsborðið og var að drekka kaffi með hvítklæddri konu og pabbi tók strákana alveg að sér. Þeir fengu ekki að fara inn, þegar þeir komu aftur, heldur voru þeir líka sendir til ömmu. Strákarnir horfðu hvor á annan í strætisvagninum. „Heldurðu, að það sé að koma?“ spurði Eiríkur. „Já, hún er alveg að springa,“ sagði Gísli. „Heldurðu, að við fáum stelpu,“ spurði Eiríkur. c§AJonni ogcTManni Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi Síðan fór mamma fram og Bogga með henni. En við Manni vorum eftir hjá gestinum. Við áttum ennþá eftir að spyrja hann um ýmislegt. „Hvernig lítur hann út, hann Halldór?“ spurði Manni. „Hann er ákaflega líkur mér“, svaraði Haraldur brosandi. „Við erum líka tvíburar“. „Og hvernig gengur hann klæddur?“ „Þegar hann flúði, var hann í dökkblárri treyju, tvíhnepptri, með stórum gylltum hnöppiun, og á höfð- inu hafði hann barðastóran hatt“. „Þá getum við þekkt hann, ef við sjáum hann“. „Það er vel líklegt, en sennilega sjáið þið hann aldrei“. „Haldið þér, að það væri hættulegt að mæta hon- um?“ spurði Manni. „Já, það er ég viss um, góði minn. Að minnsta kosti mundi hann verja sig hraustlega, ef reynt væri að taka hann höndum“. „Er hann ekki ákaflega sterkur?“ „Jú, hann er voðalega sterkur“, sagði Haraldur og horfði brosandi á Manna. Og Manni starði á hann stórum augum. „Þá er ég feginn því, að hann skuli vera langt í burtu frá okkur“, sagði hann svo. „Það er þér líka óhætt, því að ef þið kæmust í tæri við hann, þá mundi hann sjálfsagt gera út af við ykkur“. „En þá er hann líka hættulegur“, sagði Manni. „Já, það er hann“, svaraði Haraldur. „En þér sögðuð samt áðan, að hann væri góður drengur“. „Já, hann var það líka áður. En núna, siðan hann lagðist út, er hann orðinn hættulegur. Hann lætur ekki taka sig lifandi“. Við Manni fylltumst bæði ótta og lotningu fyrir útilegumanninum, og fegnir vorum við, að hann var hvergi nálægur. ______________________________________________________ — Þegar hann sagðist vera hljómsveitarstjóri, þá bjóst ég við rosasölu. — Tölvan á afmæli. Viltu leggja í púkkið? 7SZ£- — Ég hef veitt kollu.... — Geturðu ekki bara sagt það hreint út, að þér Ifki illa við nýja ilmvatnið mitt? — Ertu viss um, að þú hafir sett barnið í rúmið?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.