Morgunblaðið - 08.03.1974, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1974
„Þögla reiðm” —
nýr rafmagnsstrætó
Brecar hafa nú i fyrsta sinn
komið af stað rafknúnum stræt-
isvagni í fullri stærð, sem á að
taka í notkun til almennings-
ferða f Manehester einhvem
næstu mánaða. Það erChloride-
rafgeymafyrirtækið brezka,
sem ásamt yfirbyggingarfyrir-
tækjum hafa smfðað bílinn.
Strætisvagninn getur ekið rúm-
lega 60 km vegalengd á einni
hleðslu og hefur hámarks-
hraða um 65km/klst.
Strætisvagninn hlaut nafnið
„Þögla reiðin" (Silent Rider)
þar sem hávaði frá bílnum er
mjög lítill og mengunin engin.
Bílinn getur flutt fimmtfu far-
þega. Krafturinn kemur frá 330
volta Chloridegeymasam-
stæðu, sem inniheldur 165 sell-
ur. Afylling á geyma er sjálf-
virk. Bremsukerfið er þannig
útbúið, að þegar bremsað er,
framleiðist straumur, sem
streymir aftur ígeymana.
Fyrirtæki, sem hefur sörhæft
sig í rafmagnshleðslu, hefur út-
búið algerlega nýtt hleðslutæki
fyrir vagninn, og tekur það að-
eins 3'A klst. að hlaða geymana
að fullu meðan venjuleg
hleðsluaðferð tæki 8 klst.
Farartæki eins og þetta er
upplagt til notkunar á stuttum
vegalengdum, og eru margir
fleiri en Bretar, að gera tiÞ
raunir með rafknúna bfla.
Könnun hefur leitt í Ijðs, að
Bílar
45% brezkra strætisvagnaflot-
ans er nýttur minna en 7 klst. á
sólarhring og50% strætisvagna
f miðborgunum aka ekki nema
um 45 km vegalengd á mestu
annatímunum.
Enn er stofnkostnaður hár þó
að rekstrarkostnaður þessa raf-
magnsbfls sé ekki hærri en á
dfsil. Ör þróun rafmagnsbíl-
anna mun gera þá hagkvæmari
f rekstri.
Rafdrifnir bílar eru svo sem
engin ný bóla. Það gengu raf-
magnsstrætisvagnar 1920 og f
dag er f Bretlandi almennari
notkun rafknúinna bfla til
mjólkurflutninga f heimahús
Og mikið er um rafknúna lyft-
ara. Engar ákveðnar framtíðar-
áætlanir hafa verið gerðar fyrir
þennan vagn. Ekki er búozt við,
að rafmagnsbílar komi í stað
allra dísilbfla, a.m.k. ekki á
næstunni.f ýmsum borgum þar
sem brattar brekkur eru yrði
rafmagnsvagninn óhagkvæm-
ur. „Þögla reiðin'* er tilrauna-
bfll og ætlunin er að reyna
hann rækilega ánæstunni.
f stórum dráttum má lýsa
muninum á venjulegum bíl og
rafknúnum svo:
1. Vélin er tekin úr, sömu-
leiðis kúpling og gírkassi. í
staðinn er settur rafmótor.
2. 1 stað blöndungs eða
beinnar innspýtingar er sett
sérstakt kerfi, sem stjórnar
hraða mótorsins.
3. t stað eldsneytisgeyrrtis og
eldsneytisleiðslna kemur pass-
legur rafgeymir og leiðslur.
Tveir af mestu kostum raf-
mótorsins eru minna viðhald
og minna slit vegna þess, að
titringur er minni.
Fundur Varðbergs
og SVS í Borgarnesi
Borgarnesi, 3. marz.
FÉLÖGIN Varðberg og SVF
(Samtök um vestræna samvinnu)
efndu sameiginlega til almenns
f undar í Borgarnesi í dag.
Fundarefnið var: Varnir
Islands og vestræn samvinna.
Fundurinn, sem haldinn var f
Hótel Borgarnesi, var fjölsóttur.
Fundarstjóri var Ásgeir
Pétursson sýslumaður. Magnús
Þórðarson framkvæmdastjóri
flutti yfirgripsmikið erindi um
nauðsynina á vörnum landsins,
samhengi þeirra við varnir
nágranna- og bandalagsþjóða
akkar í Atlantshafsbandalaginu
og fyrirkomulag varnanna. Enn-
fremur skýrði hann frá skipulagi
og starfsháttum NATO. Þorsteinn
Eggertsson laganemi og Alfreð
Þorsteinsson borgarfulltrúi fluttu
ávörp.
Siðan hófust langar og fjörugar
umræður, og var mörgum fyrir-
spumum beint til frummælenda,
sem svöruðu þeim jafnharðan.
Margir tóku til máls, m.a. séra
Brynjólfur Gislason, Guðmundur
Ingi Waage, Örn Símonarson,
Björn Arason, Jenni R Ólafsson,
Jón Sigurðsson, séra Leó Július-
son og Asgeir Pétursson. Óhætt er
að fullyrða, að með örfáum
undantekningum (2—4) hafi
fundarmenn verið einhuga um
það, að standa beri vörð um full
veldi islenzka lýðveldisins með
því, að ísland sé varið land, en
ekki óvarið.
Nýtt félag
verSur stofnað
Þegar fundinum hafði verið
slitið, sátu nokkrir fundarmanna
eftir og ræddu um nauðsyn þess,
að þeir menn í Borgarnesi og
nágrannabyggðarlögumsem vildu
efla vestrænt samstarf, kynna
þörfina á vörnum Islands og
útbreiða þekkingu á starfsemi
Atlantshafsbandalagsins, hvar í
flokki sem stæðu, hefðu með sér
félag um þessi áhugamál sin. Kom
þar niður máli manna, að þeir
bundust samtökum um að stofna
hið bráðasta til félags áhuga-
manna um vestræna samvinnu i
Borgarnesi og nágrenni.
— Fréttaritari.
26 milljarða
gjaldeyris-
öflun
GJALDEYRISÖFLUN Islendinga
varð á árinu 1972 rúmlega 26
milljarðar íslenzkra króna.
Vegna þjónustu er öflun gjald-
eyris 36,1% af heildargjaideyris-
öfluninni, en útflutningur vara er
63,9%.
Mestu gjaldeyristekjurnar
koma að sjálfsögðu inn fyrir sölu
á sjávarafurðum, eða 47,1%.
Næstmesta gjaldeyrisöflunin er
vegna samgangna, 18,0%, en í
þriðja sæti eru iðnaðarvörur,
14,0%. Aðrir atvinnuvegir ná
ekki 10%, en gjaldeyristekjur
vegna varnarliðsins eru í fimmta
sæti, 5,5%, þá tekjur vegna trygg-
inga, 5,0%, o.s.frv. Landbúnaður
skilar 1,9% af gjaldeyristekjum
ársins 1972.
Þessi mynd er sögð vera af Onoda liðsforingja. Japanskur ferðamað-
ur tók hana nýlega, er hann rakst á Onoda inni 1 frumskógunum, og
bróðir liðsforingjans hefur staðfest, að hún sé af honum.
Japanskrar eftir-
legukindar leitað
Manila, 5. febrúar -AP
TVEIR Japanir eru nú I þann
mund að reyna að ná sambandi
við Hiroo nokkurn Onoda, liðsfor-
ingja úr japanska hernum, sem
haldið hefur til á eynni Lubang I
Filipseyjum frá lokum síðari
heimsstyrjaldarinnar. Annar
leitarmannanna er fyrrverandi
yfirmaður Onoda úr strfðinu, en
hinn er ferðamaður sem segist
hafa hitt hann f sfðasta mánuði.
Opinberar heimildir á Filipseyj-
um halda því fram, að Onoda sé
vel kunnugt um að strfðinu sé
lokið, en að hann sé hræddur við
að gefa sig fram vegna glæpa-
verka sem hann kann að hafa
framið á eynni.
íbúar á Lubang hafa sagt að
Onoda og fyrrverandi félagar
hans beri ábyrgð á talsverðum
fjölda rána og morða á eynni, en
um 30 manns hafa að sögn verið
skotin til bana á dularfullan hátt
á undanförnum árum. Segja
heimildirnar að eftir stríðið hafi
fimm japanskir hermenn orðið
eftir á Lubang, en hinir fjórir
hafi annað hvort gefizt upp eða
verið drepnir. Onoda liðsforingi
mun nú vera 51 árs að aldri.