Morgunblaðið - 08.03.1974, Page 14

Morgunblaðið - 08.03.1974, Page 14
14 MORG UNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. MARZ 1974 Kristnidómurinn boðar trú á góðan Guð. Heiðni Konsómað- urinn hefur e.t.v. einhverja hugmynd um voldugan Guð, sem hefur skapað himin og jörð. En hann tilbiður ekki þennan Guð. Sumir Konsó- menn segja, að Guð þessi hafi verið reittur til reiði og því hafi hann vikið frá mönnunum. Seitan eða Satan er því það afl, sú vera, sem þeir geta leitað til, verða að leita til. Þeir eru bundnir honum og öllum hans árum. Djöfladýrkun-, það er hlutskipti heiðins Konsómanns. Djöfladýrkunin flytur ekki birtu inn í líf hans, hún sveipar það myrkri og ógn, bindur þaðí fjötra, sem hann hvorki getur né þorir að slíta af sér fyrr en hann heyrir um Krist, sem er djöf lunum máttugri. Fóstureyðing Bönd heiðindómsins eru margslungin. Þau taka til lífs heiðingjans frá vöggu til Æskulýðs- og fórnarvika kirkjunnar — IV grein Um átrúnað Konsómanna gráfar. Já, þau ná jafnvel til fósturs í móðurkviði. Hið heiðna fyrirbrigði, fóstureyðing, er sjálfsagður hlutur í lifi og trú Konsó- manna. Fólk er ekki sjálfrátt um, hvenær það giftist, ekki er raunar farið að landslögum, heldur haldið við fornar venjur kynflokksins. Þótt piltur og stúlka gangi í hjónaband er samt ekki víst, að reglurnar leyfi konunni að ala barn strax, það verður e.t.v. að bíða um sinn. Verði konan þunguð ber að eyða fóstrinu, það má ekki fæðast. Vísindalegri tækni og hreinlæti er ekki til að dreifa við slíkar aðgerðir. Kona ein haf ði í 10 skipti misst fóstur sitt á þennan hátt. I 11. skipti varð hún þunguð, það barn mátti hún ala.Það varð vanskapað. Arekstur Svo kemur kristindómurinn. Honum fylgir virðingin fyrir mannlífínu, líka fyrir ófæddu fóstri. Fóstur er mannsbarn á leiðinni í heiminn. Þá verður árekstur á milli rótgróins, heið- ins hugsunarháttar og kristins siðgæðis. Sá árekstur getur orðið mjög harður. Piltur og stúlka í Konsó urðu kristin. Þau hlutu nokkra menntun. Þau felldu hugi saman og vildu ganga i hjónaband. Samkvæmt reglum Konsómanna mátti stúlkan ekki giftast, þó að landslög væru henni í vil. Unga fólkið undi ekki reglunum og giftist. Móðir stúlkunnar ætlaði að ærast, en hún fékk ekki að hindrað dóttur sína. U ngu hjón- in settust að í þorpi einu drjúgan spöl frá isl. kristni- boðsstöðinni. Það heitir Nagúlli og var áður vígi heiðninnar. Þar ætlaði ungi maðurinn að kenna kristin fræði og halda samkomur, konan hugðist segja kvenþjóðinni til m.a. í handa- vinnu. Nú varð unga kristna konan þunguð. Þá syrti aftur i álinn. Samkvæmt reglunum til- heyrði hún sérstökum aldurs- flokki, eða árgangi, sem ekki mátti enn ala barn, fóstrinu bar að eyða. Hjónin hlustuðu ekki á aðvaranir heiðingjanna, þau höfðu yfirgefið hjátrúna. En heiðingjarnir voru ekki í rónni. Þeir komu aftur og aftur að húsi ungu hjónanna, jafnvel vopnaðir, en það þykir alvarleg- ur hlutur, jafngildir morðtil- raun í augum Konsómanna. Að lokum þoldi ungi predikarinn ekki við. Hann fór til íslenzka kristniboðans, sem þá var Gísli Arnkelsson, og bað um hjálp. Kristniboðinn fór heim í þorp- ið, þar var kallaður saman fundur kristinna manna og heiðingjanna. Reyndar sögðust heiðnu mennirnir vera kristnir, en þeir voru enn fjötraðir í hjátrúnni. Gísli flutti nú mál ungu hjónanna með aðstoð túlks og reyndi að leiðrétta þá, sem hræddir voru vegna ungu konunnar. En það var ekki auð- velt verk. Öldungarnir svöruðu fyrir sig með mikilli mælsku í löngu máli. „Við höfum sagt skilið við Seitan og alla anda hans. En við megum ekki gleyma þvi, sem feður okkar og forfeður hafa kennt okkur. Ef við litilsvirðum venjur þeirra, getum við átt á ýmsu von. Búpeningurinn getur fengið einhverja pest og drepizt. Korn- ið getur eyðilagzt á ökrunum." Og þeir skóku hnefana orðum sinum til áherzlu. Þegar öll rök reyndust haldlaus, sagði Gisli frá því, að hann ætti von á heimsókn hvíts manns, sem hann hefði ætlað að koma með til Nagúllí. Slíkt mundi ekki fært, úr því þorpsbúar gætu ekki setið á sátts höfði. Þetta var mikil sneypa, þvf að hvíta manninn virða þeir, þótt heiðn- ir séu. Daginn eftir komu full- trúar öldunganna tilGisla með þau skilaboð, að ungu hjónin yrðu ekki áreitt framar. Það Næringarskortur ogsjúkdómur, sem meðferð særingarmanns hefur gert stórum verri. Barnið er3—4 ára gamalt. loforð héldu þeir og misstu enda ekki af virðulegri heimsókn hvits manns. Á sín- um tíma ól svo konan barn sitt með eðlilegum hætti. Ekki bárust þaðan neinar fréttír um drepsótt í búpeningnum eða uppskerubrest. Ilver efast um, að kristni- boðið eigi erindi til Konsó- manna? Kolmyndir Fyrir réttum tíu árum, ef ég man rétt, hélt Snorri Sveinn Frið- riksson sfna fyrstu einkasýningu hér í borg. Þá voru það einnig kolmyndir, (teiknað með koli) sem hann sýndi, eins og nú. Þetta er þriðja sýning Snorra Sveins, og hann virðist ætla að helga sig að mestu leyti teiknikúnstinni, ef svo mætti að orði kveða. Þegar Snorri Sveinn sýndi í fyrsta sinn, reit ég nokkur orð hér í blaðið og hélt því fram, að þarna væri á ferð ungur hæfileikamaður, sem mundi ná verulegum árangri ef hann héldi vel á kostum sínum sem myndlitarmanns. Ég man ekki betur en að ég forðaðist að gera nokkra fastmótaða spa um framtíð Snorra Sveins á sínum tíma, enda best að láta slíkt eiga sig, þegar ungir listamenn eiga í hlut. Það er því sönn ánægja, nú tiu árum siðar, að geta staðfest að sá árangur, sem ég þá vonaði, að næðist er nú fyrir hendi. 1 Norræna húsinu opnaði Snorri Sveinn Friðriksson sýn- ingu á nýjum kolteikningum á laugardaginn var. Það er 35 teikn ingar, eða kolmyndir, eins og listamaðurinn sjálfur kallar þær, Og eru öll þessi verk af mjög líkrr stærð og öll unnin með sömu tækni. Það gladdi mig sannarlega að sjá þessi nýju verk Snorra Sveins. Hann hefur hoggið stór- um, frá því er hann síðast sýndi, og það fer ekki milli mála, að hann hefur öðlast meiri festu og þar með meira frelsi og léttleik í verkum sínum en áður var. Mynd- byggingin er nú öll með minni þunga en áður var, og léttleiki og svif komið í hans stað. Hreyfingin er það viðfangsefni, sem Snorri Sveinn hefur einbeitt sér að. Hvítt, svart og millispil þessara lita skapa fljúgandi og dansandi sveiflur, sem mynda þéttriðnar heildir á myndfletinum. Stundum er það linan sjálf og einföldun formsins, sem skapa sannfærandi hrynjandi og staðreyndir, sem lifa sínu eigin lífi innan sviðs afmarkaðs ramma. Þessi nýju verk Snorra Sveins eru gerð af þekkingu og öryggi ómengaðrar sálar. Mannleg glima við siðfáguð viðfangsefni. Hvergi er kastað til hendi, allt unnið af vandvirkni og yfirvegun. Þetta er meira en sagt verður um margt af því, sem bor- ið er á borð fyrir okkur nú á síðustu og verstu tímum, eins og sagt er stundum í pressunni. Myndlist eftir VALTÝ PÉTURSSON Við fyrstu sýn, má vera, að sum- um virðist þessi sýning nokkuð einhæf, en þegar betur er að gáð, kemur í ljós, að svo er ekki. Það er furðu mikil breidd í þessum verkum, og jafnvel eru viðfangs- efnin ólík bæði að uppruna og í útfærslu. Hér er meira að segja að finna myndgerð, sem hefur sömu eigindir og sú fígúratífa myndlist, sem svo margir ungir listamenn fást við, og það er ekki frítt við, að örli á áhrifum frá Pop-Iistinni hér og þar. Þetta kemur einna skýrast fram í skiptingu flatarins hjá Snorra Sveini. Hér sést með öðrum orðum, hvernig hug- myndaríkur listamaður getur not- fært sér ýmislegt til að gæða verk sín lífi og fjöri, án þess að hann þurfti að ánetjast fullkomlega einhverjum dægurfyrirbærum, sem mundu tæpast gera árangur- inn eins persónulegan og hér ber raun vitni. Mer virðist Snorri Sveinn hafa algera sérstöðu inn- an þeirrar persónulegur og ein- mitt þess vegna verða þessi verk enn eftirtektarverðari fyrir okk- ur, og ég bæti við, tímabærari. Það virðist vera algengur mis- skilningur, ekki aðeins hjá al- menningi, heldur einnig hjá ein- staka myndlistarmanni, að teikn- ing sé að aðeins leið til annarrar myndgerðar, en það er ekki nema hálfur sannleikurinn. Teikning hefur í rfkara mæli margar af þeim mannlegu tilfinningum, sem svo oft vilja glatast við frekari útfærslu og aðrar aðferðir. Ef teikning er til dæmis útfærð í grafík, verður árangurinn allt annar, og þar ræður sjálf tæknin miklu. Sama má segja um olíu- málverkið og vatnslitamyndina. Það eru margir hlutir, sem fara forgörðum við þá vinnu sem sjálf útfærslan krefst. Hin uppruna- lega teikning, sem oft verður til á andartaki með aðeins fáum línum og snöggum dráttum lifir bókstaf- lega ekki af suma útfærslu, og auðvitað gerbreytist viðhorfið þegar litir eru annars vegar. Teikningin: Línan, svart, hvítt og litrófið þar í milli er eitt erfið- asta verkefni innan myndlistar. Þetta svið hefur Snorri Sveinn Friðriksson valið og þróað með sér um langt skeið. Ég er persónu- lega ekki í neinum vafa um, að ef hann hefði t.d. gert verk sín í grafík, mundu þau missa mikið og verð" fvrir hnjaski af tæknilegum brögðum og ekki vera eins lifandi myndlist og nú blasir við á veggj- um Norræna hússins. Það er sannarlega timi til kom- inn, að listamaður haldi hér sýn- ingu á teikningum eingöngu. Það gerir Snorri Sveinn Friðriksson að þessu sinni, og hafi hann þakk- ir fyrir. Ég hafði mikla ánægju af þeim ferskleik og þeirri íþrótt, sem þessi sýning Sveins Snorra hefur til að bera, og ég vona, að fleiri hafi sömu sögu að segja. Þetta er skemmtileg og hressandi sýning, sem allirættu að sjá. Valtýr Pétursson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.