Morgunblaðið - 22.03.1974, Side 25
— Símon Teits-
son sjötugur
Framhald af bls. 12
ins, orðspor þess og velgengm.
Hefur Símon reynzt traustur
hlekkur í þeirri keðju. Fer vel á
því, að nú, er Finnbogi hefurlátið
af forystu Bifreiða- og trésmiðju
Borgarness, hefur Örn, sonur
Símonar Teitssonar, tekið við
verkstjórn þar.
Símon á sér mörg hugðarefni og
hefur víða lagt hönd á plóginn.
Enginn kostur er þess að rekja
það allt saman hér. En hans verð-
ur þó ekki getið án þess að minnzt
sé lífstíðarvináttu hans við
íslenzka hestinn. Allt frá
bernskuárum hefur hann hlúð að
hestum, tamið þá, ræktað góð-
hestakyn og í ríkum mæli notið
þess unaðar, sem samskipti við
hestinn veita mönnum. Sú íþrótt
er í senn göfgandi, heilnæm og
skemmtileg. Hefur Símon átt
margan gæðinginn og á enn og
mun eiga, meðan hann má sig
hræra, trúi ég. Aðrir hestamenn
kunna vel að meta þekkingu
Símonar á hestum og hafa þvf
kosið hann til margháttaðrar
forystu í samtökum þeirra. Á
hann þar mörg handtök og góð.
Öðrum félagsstörfum hefur
Símon Teitsson vissulega sinnt
um dagana. Hann var m.a.
hreppsnefndarmaður í Andakíls-
hreppi og í hreppsnefnd Borgar-
ness um árabil. Þar reyndist hann
traustur og hygginn trúnaðarmað-
ur og gat sér orð fyrir að koma á
sáttum i deilum og var jafnan
ótrauður forgöngumaður umbóta-
mála.
Símon er fastur fyrir, fróður og
hygginn. En það meta vinir hans
mest, hve vinfastur og trygglynd-
ur hann er. Hann hefur verið
gæfumaður í einkalífi sfnu,
kvæntur sæmdarkonunni Unni
Bergsveinsdóttur, sem er Breið-
firðingur að ætt, fædd í Flatey.
Þau hjón eiga fimm börn, Örn,
sem fyrr var getið, Bergsvein,
kjötiðnaðarmann, Teit, bifvéla-
virkja, Sigrúnu, ritara f sýslu-
skrifstofunni, og Sigurbjörgu
húsfreyju í Reykjavík.
Við hjónin og fjölskylda okkar
árnum Símoni og Unni allra
heilla f dag. Við þökkum þeim
vináttu og velvilja, sem ekki
gleymist.
Þessum línum lýk ég með því að
færa Símoni Teitssyni þakkir af
hálfu Borgfirðinga fyrir heilla-
drjúga störf í þágu héraðs þeirra.
Asgeir Pétursson.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
25
UMBOÐ —
PLASTU M BÚÐIR
Dönsk plastumbúðaverksmiðja, sem framleiðir plast-
stampa, plastfötur og plastbikara óskar eftir reyndum og
traustum umboðsmanni á íslandi fyrir framleiðsluvörur
sínar.
UNI-PLAST
H0RHAVEN 26 • 9000 AALBORG
TELEFON 08-13 9535
DANMARK
Aðalfundur
IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS H.F.
verður haldinn í veitingahúsinu Glæsibæ, Álfheimum 74
í Reykjavík laugardaginn 30. marz n.k., kl. 2 e.h.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga um hlutafjáraukningu.
3. Tillaga um breytingar á reglugerð og samþykktum
bankans.
4. Önnur mál.
Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og
umboðsmönnum þeirra I aðalbankanum, Lækjargötu 12,
dagana 25. marz til 29. marz að báðum dögum meðtöld-
um.
Reykjavík, 20. marz 1974
Sveinn B. Valfells
form. bankaráðs
— i : 7
Verkakvennalélaglö Framsökn
Aðalfundur Verkakvennafélagsins Framsóknar verður í
Iðnó sunnudaginn 24. marz kl. 1 4.30.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál
Félagskonur fjölmennið og sýnið skírteini við innganginn.
Stjórnin.
VALHÚSGÖGN
SKATTHOL
til fermingargjafa
Teak og álmur. Verð kr. 1 9.000.—
Palesander. Verð kr. 24.800.—
Valhúsgögn,
Ármúla 4.
Ódyr matarkaup
Kaupi6 fyrir vikuna.
Vió bjóÓum magnafslátt
á öllum kjötvörum.
Staöarkjör,
Húlmgarðl 34,
Síml 32550.
—C/
HAGRÆÐING I ALLRA ÞÁGU.
Sjóvótryggingarfélag islands hefur
flutt út alla starfsemi sína
ó nýjan stað að Suðurlandsbraut 4,
þar sem unnt er að veita
viðskiptavinum betri þjónustu
en hingað til hefur verið unnt.
Hér er um að ræða hagræðingu,
í allra þógu.
Við bjóðum, gamla og nýja,
viðskiptavini velkomna í hin nýju
húsakynni.