Morgunblaðið - 22.03.1974, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. MARZ 1974
39
Áskorun Varins
lands afhent
Framhald af bls. 1
ákvarðanir, sem framundan eru.
Undirskriftirnar eru talandi vott-
ur þess, að mikill meirihluti hinn-
ar íslensku þjóðar telur öryggi og
sjálfstæði þjóðarinnar best borgið
með því að treysta samstarfið inn-
an Atlantshafsbandalagsins og
álítur ótímabært að vísa banda-
ríska varnarliðinu úr landi.
Við undirritaðir, sem höfum
haft forgöngu um þessar undir-
skriftir, gerum þá kröfu við af-
hendingu þeirra, að lögregluvörð-
ur verði settur til að gæta undir-
skriftalistanna þann tfma, sem
þeir liggja frammi. Að þeim tíma
liðnum kjósum við að fela gæslu
þeirra hæstvirtum forsætisráð-
herra, sem nú gegnir jafnframt
embætti dómsmálaráðherra, í
fullu trausti þess, að listarnir
verði ekki notaðir í neinum þeim
tilgangi, sem farið gæti í bága við
hagsmuni þeirra, sem þar hafa
ritað nöfn sín.
Undir þetta ávarp rituðu nöfn
sín auk Þorsteins: Ragnar Ingi-
marsson, Valdimar J. Magnússon,
Þór Vilhjálmsson, Unnar Stefáns-
láta þá liggja þar frammi en síðan
yrðu þeir afhentir forsætisráð-
herra til varðveizlu. Varðandi
kröfuna um lögregluvernd meðan
listarnir lægju frammi á Alþingi
kvaðst Eysteinn ekki geta virt slík
skilyrði en hét því, að listanna
yrði vel gætt. Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra sagði, að fyrst
um sinn yrðu listarnir í vörzlu
Alþingis en þegar þeir yrðu af-
hentir forsætisráðuneytinu yrðu
þeir varðveittir þar. Hann hafði
hins vegar engin orð um það
hvort ríkisstjórnin myndi taka
nokkurt mið af þessum undir-
skriftum rúmlega 55 þúsund Is-
lendinga við ákvörðunartöku í
varnarmálunum.
Með undirskriftalistunum
fylgdi ítarleg greinargerð for-
göngumanna Varins lands um
söfnunina, fjölda undirskrifenda
í einstökum kaupstöðum og sýsl-
um ásamt viðmiðunartölum um
greidd atkvæði á hverjum stað við
síðustu alþingiskosningar, svo og
upplýsingar um einstök tækni-
lega atriði söfnunarinnar.
Greinargerðin birtist hér i heild:
son, Óttar Yngvason, Hreggviður Greinargerð um undirskrifta-
Jónsson, Bjarni Helgason, Þor- söfnun undir kjörorðinu VARIÐ
valdur Búason, Jónatan Þór- LAND:
mundsson, Ólafur Ingólfsson, Alls rituðu 55.522 atkvæðisbær-
Björn Stefánsson, Hörður Einars- ir íslendingar undir áskorun þá
son og Stefán Skarphéðinsson. til ríkisstjórnar og Alþingis, sem
Eysteinn Jónsson veitti undir- kennd er við VARIÐ LAND.
skriftalistunum viðtöku fyrir Nöfnin skiptast þannig eftir
hönd Alþingis og kvaðst myndi landshlutum:
Greidd atkvæði
Undirskriftir I Alþingiskosn-
1974 ingum 1971
Reykjavík 26.416 44.935
Kópavogur 2.505 5.104
Hafnarfjörður 3.480 4.953
Akranes 919 2.126
ísafjörður 831 1.422
Sauðárkrókur 379 879
Siglufjörður 487 1.186
Ólafsfjörður 275 564
Akureyri 2.989 5.604
Húsavík 342 997
Seyðisfjörður 233 434
Neskaupstaður 146 868
Vestmannaeyjar 798 2.680
Keflavík 2 000 2.661
Kaupstaðir alls 41:818 74.413
Gullbringusýsla, Kjósasýsla 4.273 5.417
Mýra- og Borgarfjarðarsýsla 621 1.930
Snæfellsnes- og Hnappadalss. 749 2.093
Dalasýsla 171 633
Barðastrandasýsla 408 1.195
Isafjarðarsýsla 558 1.776
Strandasýsla 63 664
Húnavatnssýsla 565 1.917
Skagafjarðarsýsla 462 1.272
Eyjafjarðarsýsla 691 1.954
Þingeyjarsýsla 571 2.391
Norður-Múlasýsla 218 1.155
Suður-Múlasýsla 702 2.604
Skaftafellssýsla 527 1.590
Rangárvallasýsla 975 1.706
Arnessýsla 2.063 4.265
Sýslur alls 13.617 32.562
Óþekkt heimilsföng 87
Alls 55.522 106.975
— Varnarmálin
Framhald af bls. 40
einnig hafa verið tekin ákvörðun
um að Kef lavíkursjónvarpið yrði
takmarkað við flugvöllinn þannig
að það sæist ekki utan hans. í dag
kl. 2 er boðaður fundur í utan-
ríkismálanefnd Alþingis þar sem
fjallað verður um þennan um-
ræðugrundvöll.
Morgunblaðið reyndi í gær-
kvöldi að ná sambandi við ráð-
herra ríkisstjórnarinnar til þess
að spyrja frétta af ríkisstjórnar-
fundinum í gær. Náðist samband
við Björn Jónsson samgöngu- og
félagsmálaráðherra og Magnús
Torfa Ólafsson mennta
málaráðherra. Voru þeir spurðir
að því hvort endanleg niðurstaða
hefði náðst um stefnu í varnar-
málunum og einnig hvort að
ákvörðun hefði verið tekin um að
loka fyrir Keflavíkursjónvarpið.
Magnús Torfi svaraði þvi til, að
málið væri á lokastigi i meðförum
ríkisstjórnarinnar, en meira viidi
hann ekki segja að svo stöddu.
Björn Jónsson sagði, að á ríkis-
stjórnarfundinum hefði verið
gengið frá drögum að umræðu-
grundvelli við Bandarikjamenn,
en fréttatilkynning um máliðyrði
gefin út i dag. Kvað Björn málið
verða lagt fyrir fund utanríkis-
málanefndar í dag.
Varðandi spurninguna um
ákvörðun þess að loka Keflavíkur-
sjónvarpinu svaraði Björn því til,
að það mál myndi fylgja hinu þótt
ekki væri þar um að ræða samn-
ingsatriði við Bandarikjamenn,
Björn sagði, að einnig yrði greint
frá þvi, sem um það mál var fjall-
að á rikisstjórnarfundinum um
leið og annað varðandi varnar-
málin i heild i dag.
Forgöngumenn undirskriftasöfnunarinnar koma að Alþingishúsinu. Þór Vilhjálmsson og Þorvaldur
Búason bera stálkistuna með undirskriftum rúmlega 55 þúsund Islendinga inn f húsið.
Tala undirskrifta er hér borin
saman við fjölda greiddra at-
kvæða í Alþingiskosningunum
1971, enda sýna þær tölur fjölda
þeirra, sem veittu núverandi AI-
þingismönnum umboð til þing-
setu. Þess skal getið að endanleg-
ar tölur um fjölda nafna á kjör-
skrá á þessu ári eru enn ekki
tiltækar.
Frá upphafi undirskriftasöfn-
unarinnar um miðjan janúar s.l.
var lögð áhersla á, að undir-
skriftalistar væru einungis af-
hentir ábyrgum aðilum, og haldin
var skrá yfir viðtakendur. Var því
að söfnun lokinni unnt að rekja,
hver hefði haft hvern lista í hönd-
um. Til að fyrirbyggja, að undir-
skriftir manna, sem rituðu nöfn
sín tvívegis, væru að lokum tví-
— 225 orð
Framhald af bls. 3.
Samfylki (1)
Samgerði (27)
Samgildi (20)
Samheildi, -kjarni (15)
Samstæður (8)
Samsveit (1, 15) = 2
Samsvæði
Samt
Samtíín 3
Samteigur,-vangur,-ver (27)
Samtök (28)
Samþvrpi (15)
Setur(3)
Skfri 4 + (6, 7) = 6
Stor (9)
Skorð(13)
Sókn 1 + (18) = 2
Staðarfrón (20)
St aða rsve it
St aðfélag 1 + (16) =2
Stifti
Stjörnvist
St jórnþing
Storð
Strjálheildi, -kjami (15)
StjTund (6)
9re itaheildi, -kjarni, -umdæmi (15)
Svið (5)
Svíta
Svæði (14)
Svæðisból,-bú -byggð (27)
Teigur (14)
Tengiból,-bú, -byggð (27)
Tún
Umdæmi (19)
Val (13)
Valbyggð (8)
Veiti (17)
Vengi
Ver
Vé
Viðheildi,-kjarni (15)
Virki
Þegnbyggð, -dæmi, -félag, -há, -lag, -lög,
umdæmi (7)
Þéttbýli (28)
Þing (9)
Þinghá 1+ (7) = 2
Þjöpp
Þorp (28)
Þrep
Þýli
Þyrpa
Þyrpi 1 + (15) = 2
Þyrping
Þyrpisheild (i). -kjarni, -umdæmi (15)
Öndsjá
Önn
Flestar tillögur hafa borizt um þessi heiti:
FYIki 16
Sambyggð 13
Byggð 10
Lén 7
Skíri 6
Amt og Há 5 hvort
Sambý!i4
Samtún 4
Þrjár ti llögur eru um hvert þessara heita:
Búlag
ByggSarlag
Eind
Eining
Samféiag
taldar, var gerð tölvuskrá eftir
heimilisföngum. Komu þá fram
549 tvíritanir. Hafa verið
stimplaðar athugasemdir þar að
lútandi á listana, og viðkomandi
nöfn voru aðeins talin einu sinni
við lokatalningu. Undirskriftir
Reykvikinga, Hafnfirðinga, Kefl-
víkinga, Akureyringa og Kópa-
vogsbúa voru bornar saman við
ibúaskrár, og síðan voru settar
athugasemdir við nöfn þeirra,
sem ekki höfðu náð 20 ára aldri 1.
mars s.l. Voru 448 nöfn felld nið-
ur við lokatalningu af þessu til-
efni. Meirihluti allra nafna á
listunum hefur ennfremur verið
borinn saman við nafnaskrá og
kannað, hvort til væru menn með
þeim nöfnum, sem eru á listun-
um, á þeim stöðum, sem gefnir
Tvær tillögur eru um hvert þessara heita:
Byggðakjör
Byggðaver
FJölbyggð
Gildi
Hóp
Hverfi
Lenda
Sambú
Samsveit
Sókn
Staðfélag
Þinghá
Þyrpi
Alls erstungið upp á 225 heitum.
— Sjómenn
Framhald af bls. 40
Kvað hann útvegsmenn vilja
semja til 15. maí 1976, en sjómenn
aðeins til ársloka 1975. Ef til verk-
falls kemur hjá Sjómannasam-
bandinu, kemur það til fram-
kvæmda hjá öllum fiskiskipaflot-
anum á Suðurlandi, Vesturlandi
og Norðurlandi, en félög á Vest-
fjörðum og Austfjörðum eru ekki
í Sjómannasambandinu og semja
sérstaklega.
Jón taldi líklegt miðað við þá
hörku, sem var á síðasta samn-
ingafundinum i fyrrakvöld, að
frekari breytingar á samkomu-
lagsatriðunum myndu kosta
nokkur átök. Jón áréttaði, að sjó-
menn hefðu ávallt samið til ára-
móta í sinum kjarasamningum og
taldi hann það hagkvæmt bæði
sjómönnum og útgerðarmönnum.
— Aska J. S.
Framhald af bls. 17
Var það gert 28. febrúar sl.
Krukkan var merkt J.S. en graf-
reiturinn ómerktur.
Nokkrum dögum siðar hvarf
krukkan en fyrir skömmu voru
fjölskyldu Smrkovskys sýndar
myndir af krukkunni og tjáð, að
hún hefði fundizt á snyrtiher-
bergi i landamærastöðinni Ceske
Velenice.
— Kúrdar
Framhald af bls. 1
ríkjunum en þeir séu væntanlegir
heim innan nokkurra daga og
muni þá taka til við að fljúga
vélunum til árása á írak.
Heldur þykja þessar fréttir
tyrknesku fréttastofunnar ótrú-
voru upp. Komu þá fram örfá
fölsk nöfn, sem strikuð voru út.
Nokkrir tugir manna, sem bera
nöfn af erlendum uppruna, hafa
skrifað á undirskriftalistana, en
ekki hefur verið unnt að kanna til
hlítar, hvort þeir hafi allir öðlast
Islenskan rikisborgararétt.
Þau gögn, sem notuð hafa verið
við undirskriftasöfnunina, svo
sem spjaldskrá yfir þá rúmlega
2.000 menn, sem fengu undir-
skriftalista frá skrifstofum
Varins lands, svo og útskriftir úr
tölvu, munu verða varðveitt enn
um sinn, meðan forgöngumenn
undirskriftasöfnunarinnar telja
nauðsynlegt að hafa þau tiltæk til
að svara sanngjörnum fyrirspurn-
um.
21. mars 1974.
legar. Fréttastofa Miðausturlanda
segir i frétt frá Bagdad, að samn-
ingar séu hafnir milli stjórnarinn-
ar i írak og sérlegra sendimanna
Kúrda. Viðræðurnar fjalla um
leiðir til að finna pólitíska lausn á
deilunni. t t t
— Litvinov
Framhald af bls. 17
landi — og I þetta sinn skyldi
Síberíuvistin honum sýnu
óþægilegri en síðast, þegar
hann var sendur þangað.
Litvinov var dæmdur til fjög-
urra ára Síberíuvistar árið
1968 eftir að hafa mótmælt
innrásinni I Tékkóslóvakíu.
Hann kom frá Sovétríkjunum
fyrir nokkrum dögum ásamt
fjölskyldu sinni, eiginkonu og
tveimur börnum.
— Kosningar
Framhald af bls. 40
segir m.a.: „Umræðurnar um
skattkerfisbreytinguna á þinginu
hafa vakið mjög mikla athygli.
Ljóst er, að á Alþingi er tæpast
starfhæfur meirihluti meðan
þinginu er skipt I tvær deildir
. .. . þess vegna er alveg augljóst,
að eðlilegustu viðbrögðin við
þessari stöðu væru að rjúfa þing
og boða til nýrra alþingiskosn-
inga, þegar stjórnarflokkarnir
hefðu náð samstöðu um að efna
fyrirheitið um brottför hersins.
Þar með væri stefnu ríkis-
stjórnarinnar vlsað til þjóðar-
innar. Væri þá ekki einungis
spurt um afstöðu þjóðarinnar til
skattkerfisbreytinga heldur til
efnahagsmálanna I heild og her-
stöðvarmálsins og annarra þeirra
megin málaflokka, sem ríkis-
stjórnin hefur við að glima. Áður
en kosningar færu fram, væru
stjórnarflokkarnir búnir að koma
sér saman um framkvæmda-
áætlanir og aðgerðir I öllum
megin málaflokkum. .. En varð-
andi skattkerfisbreytinguna og þá
niðurstöðu, sem varð á Alþingi I
gær i skattamálunum, er vert að
vekja athygli á þvi, að niður-
staðan skerðir verulega mögu-
leika ríkissjóðs til þess að beita
ráðstöfunum gegn þeirri miklu
verðbólgu, sem nú er fyrirsjáan-
leg.“