Morgunblaðið - 23.06.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JUNl 1974
7
Slök frammistaða
íslenzku sveitar-
innar ( undanrásum
Undanrásir Ólympíu-
skákmótsins f Nizza urðu
fslendingum lftið gleði-
efni. fslenzka skáksveit-
in, sem ætla mætti að
væri sú sterkasta, sem
við höfum sent á vett-
vang a.m.k. sfðan 1966,
lenti f einum léttasta
riðli mðtsins, en tókst þó
ekki að komast f A-úrslit.
Allt virðist hafa gengið á
afturfótunum hjá lönd-
um; f 1. umferð töpuðu
þeir fyrir Suður-Afrfku,
sem aldrei hefur verið
talin á meðal sterkra
skákþjóða, og sfðan kom
stórt tap fyrir V-Þjóð-
verjum. f 3. umferð unnu
fslendingar Svfa, sem
hefði átt að gefa nokkra
von um gott áframhald,
en þá tóku okkar menn
uppá þvf að tapa skákum
í viðureignum við ýmsar
minniháttar skákþjóðir,
unnu t.d. Trinidad með
„aðeins“ 2Vt — 1 Vi. Ýms-
um kann að þykja sem
hér sé fullfast að orði
kveðið, en svo er þó ekki.
tslenzka sveitin er skip-
uð 3 Vi alþjóðlegum
meisturum og ætti þvf að
vinna góða sigra á móti
flestum þjóðum, sem
skipuðu sama riðil
undanrásanna. Sömu-
leiðis hljóta allir að sjá,
að ekki er eðlilegt, að
úrslitin í viðureign ts-
lendinga gegn Trinidad
séu hin sömu og gegn
Svfum. En hvað um það,
við skulum vona að betur
gangi f úrslitakeppninni
og löndum takist að
verða a.m.k. ofan við
miðju f B-flokki.
í þessum þætti skulum
við líta á nokkrar skákir
frá fyrstu fimm umferð-
um undanrásanna. Fyrst
kemur þá skák frá viður-
eign íslendinga og
Guerenseybúa, en þar
vann Ingvar Ásmunds-
son snotran sigur á and-
stæðingi sínum.
Hvftt: Knight
(Guerensey)
Svart: Ingvar Ás-
mundsson.
Aljekfnsvörn
1. e4 — Rf6, 2. e5 — Rd5,
3. d4 — d6, 4. c4 — Rb6,
5. f4 — dxe5, 6. fxe5 —
Rc6, 7. Be3 — Bf5, 8. Rc3
— e6, 9. Rf3 — Rb4, 10.
Hcl — c5,11. Be2 — Be7,
12. 0-0 — 0-0, 13. dxc5 —
Rd7, 14. Rd4 — Bg6, 15.
Rf3 — Bxc5, 16. Bxc5 —
Rxc5, 17. Rb5 — Rbd3,
18. Hc3 — Rxb2, 19. Dcl
— Ra4, 20. Ha3 — De7,
Frá
Olympíu-
skákmótinu:
21. Hdl — a6, 22. Rbd4 —
Hfd8, 23. Rb3 — Hxdl,
24. Bxdl — Rd3, 25.
gefið.
Sovétmenn mæta að
vanda með frítt lið stór-
meistara, en sovézka liðið
er nú þannig skipað, talið
Skák
eftir
JÓN Þ. ÞÓR
f borðaröð: Karpov,
Kortsnoj, Spassky,
Petrosjan, Tal og
Kuzmin. Eins og gefur að
skilja er viðureign
sovézku sveitarinnar við
ýmsar smáþjóðir líkust
leik kattarins að músinni.
Hér sjáum við tvö dæmi
um þetta. I fyrri skákinni
er það hinn ungi stór-
meistari Gennady
Kuzmin, sem á í höggi við
einn af minni spámönn-
unum. Kuzmin notfærir
sér skemmtilega
ónákvæma byrjunartafl-
mensku andstæðingsins.
Hvítt: Kuzmin (Sovét-
rfkin)
Svart: Falcon (Puerto
Rico)
Petroffs vörn
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rf6, .
3. Rxe5 — d6, 4. Rf3 —
Rxe4, 5. d4 — d5, 6. Bd3
— Rf6, 7. 0-0 — Be7, 8.
Hel — 0-0, 9. Rbd2 — b6,
10. Rfl — c5, 11. c3 —
Bg4, 12. Re3 — Bxf3, 13.
Dxí3 — cxd4, 14. Rf5 —
He8, 15. Dg3 — g6, 16.
Bg5 — Rbd7, 17. Bb5 —
Re4, 18. Rxe7 — Hxe7,
19. Bxe7 — Dxe7, 20.
cxd4 — Db4, 21. Hxe4 —
Dxb2, 22. Heel — Dxb5,
23. He7 — Rf6, 24. Df4 —
Kg7, 25. g4 — Hf8, 26.
Hael — h6, 27. De5 —
gefið.
Boris Spassky
Boris Spassky teflir nú
á 3. borði fyrir Sovétríkin
og hér sjáum við viður-
eign hans við skozka
teórfuhestinn D. N. Levy,
sem er einmitt sér-
fræðingur í drekaaf-
brigðinu í Sikileyjar-
vörn.
Hvítt: B. Spassky (Sovét-
rfkin)
Svart: D. N. Levy (Skot-
land)
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5, 2. Rf3 — d6, 3.
d4 — cxd4, 4. Rxd4 —
Rf6, 5. Rc3 — g6, 6. Be3
— Bg7, 7. f3 — Rc6, 8.
Bc4 — 0-0, 9. Dd2 — Bd7,
10. 0-0-0 — Db8, 11. h4 —
a5, 12. Bh6 — Rxe4, 13.
Rxe4 — Bxd4, 14. h5, —
d5, 15. Bxd5 — De5, 16.
Bxf8 — Dxd5, 17. Dh6 —
Rb4, 18. Hxd4 — Dxd4,
19. Bxe7 — gefið.
Að lokum fylgir svo
stytzta skák mótsins til
þessa og varla verða þar
tefldar aðrar miklu
styttri.
Hvítt: Rigaud
(Hollenzku Vestur-
Indfur)
Svart: Cooper (Wales)
Kóngsbragð
1. e4 — e5, 2. f4 — d5, 3.
fxe5 — Dh4, 4. g3 —
Dxe4, 5. Kf2 — Bc5 6.
gefið
Duglegur piltur óskast til ýmsa úti og inni starfa. Fjarskiptastöðin Gufunesi simi 33033. Páfagaukur Grænn og gulur páfagaukur tapað- ist í gær frá Fornhaga. Finnandi vinsamlegast hringi í sima 20553.
Fjármagn Óska eftir fjármagni vegna inn- flutnings., Tilboð sendist afgr. blaðsins merkt: „Góður Arður — 1447". Vil kaupa VW árg. 1969—71 fyrir allt að 200 þús. Aðeins góður bill kemur til greina. Upplýsingar i síma 1 701 3 e.f.
Næturhitun. Geymir með hitaspíra 35 kw. hita- túpum (Rafha), rofum ventlum . ofl. et til sölu. Uppl. | símum 83100 og 85321. Keflavík — Suðurnes nýkomið tvibreitt slétt flauel, 5 litir. Álnabær Túngötu 12, Kefla- vik.
Riffill 222 cal. parker riffill til sölu. Tækifærisverð. Slmi 41 949. Dama frá Danmörku óskar að kaupa sjálfstæða ibúð. Ekki ris né kjallara, i rólegu um- hverfi í austurbænum, sem næst miðbænum. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt: Séribúð — 1448 f. 26. júní.
Sumarblómaplöntur höfum ennþá flestar tegundir af ágætum sumarblómaplöntum einnig kálplöntur. Gróðrarstöðin v/Bústaðarveg, simi 341 22. íbúð til leigu. 3ja herb. ibúð i sambýlishúsi við Reynimel er til leigu frá 1. júli n.k. Tilboð leggist inn á afgr. Mbl. fyrir n.k. mánudagskvöld merkt 1008.
Peugeot 504 árg. '71 til sölu, skipti á nýlegum sendi- ferðabil eða station. Uppl. i sima 92 — 1 542. Barngóð kona sem vill koma heim, óskast til að gæta tveggja barna hálfan daginn, (frá 1. sept.) Upplýsingar i sima 82837.
Hárgreiðslustofa. Til leigu er um 90 fm húsnæði sem innréttað er fyrir hárgreiðslu- stofu i mjög þéttbyggðu hverfi i Rvk. Tilboð er greini hugs anlega mánaðarleigu sendist Mbl. merkt „Hár1431". Til sölu notað hjólhýsi, Cavalier. Uppl. i i sima 92-8198.
K.S.f. — K.R.R.
I deild
KR — Fram
Laugardalsvöilur
leika á mánudagskvöld kl. 20.
K.R.
Þessi bátur er til sölu
Bðturinn er af gerðinni DRACO, viðurkenndur af Norsk Veritas fyrir
styrkleika og sjóhæfni. Lengd 5,15 m, m/105 ha VOLVO PENTA
AQUAMATIC vél, landþernum, lensidælu, óbrjótandi gleri, blæju og
svefnplássi. Ganghraði ca. 38 sjm.
Upplýsingar í slma (91) 71 1 60 á kvöldin og um helgar.
GEÐVERND
happdrættió '74
Ósóttir vinningar: — Nr. 43319, nr. 45914
og nr. 26384.
Rétthafar greiddra vinningsmiða hafi samband
við skrifstofu Geðverndarfélagsins sem fyrst.
— Framvísa ber greiddum vinningsmiða og
nafnskírteini. Dregið var 6. júní 1 974.
GEÐVERND — Geðverndarfélag fslands