Morgunblaðið - 23.06.1974, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.06.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JUNÍ 1974 25 I GÆR ritaði ég hér í blaðið grein, sem ég nefndi „Ógæfan mesta", en mér fannst kominn ærinn tími til þess að vekja athygli á hinu mikla ranglæti í kjördæmaskipun og kosninga- löggjöf, sem nú er ríkjandi. Að þvf hlýtur að koma innan tíðar, að á þessu verði leiðrétting. Sú leiðrétting hlýtur fyrst og fremst að lenda á Framsóknar- flokknum, en hann hefur stöð- ugt lifað á ranglætinu, í rang- lætinu og fyrir ranglætið. En því miður er f fleiri horn að líta um gæfuleysið. Það er e.t.v. hvað mest nú um stundir í efnahagsmálum okkar islend- inga. Margt er búið um þau að segja, en þó verður aldrei nóg- samlega dregið fram í dagsljós- ið hvernig alls staðar stefnir til glötunar í þeim efnum eftir hinn hrapallega feril vinstri stjórnar. Um s.l. mánaðamót hafði Sölusamband íslenzkra fisk- framleiðenda selt blautverkað- an saltfisk fyrir 3,5 milljarða króna frá áramótum. Magnið, sem búið er að selja, er um 21 þús. lestir, en það mun vera um % hlutar þess, sem saltað var á s.l. vetrarvertíð. Verðið, sem nú fæst á erlendum mörkuðum, er 75% hærra en það var á sfðasta ári, og mun þetta vera mesta verðhækkun á fiski, sem vitað er um, á tólf mánaða tfmabili. Ekki ætti þetta að vera sorg- legt, heldur þvert móti gleði- efni fyrir okkur Islendinga. En hvað segir Tómas Þorvaldsson, formaður Sölusambands ís- lenzkra fiskframleiðenda? 1 viðtali við Mbl. fyrir skömmu víkur hann að hinni geigvæn- legu verðbólgu, sem nú er að tröllrfða fslenzku þjóðfélagi og segir sfðan: „Að mínu mati hef- ur aldrei mistekizt eins gjör- samlega stjórn á efnahagsmál- um þjóðarinnar eins og nú á sfðustu tveimur misserum. Slfks eru vart nokkur dæmi, jafnvel ekki í víðri veröld, að svo illa hafi til tekizt eins og hér“. Tómas segir ennfremur: „Við leitumst allir við að vera ábyrgir í starfi og f einu og öllu fara vel með og hugsa um það eitt, að endar nái saman f þeim rekstri, sem við höfum með höndum, en eins og stjórn efna- hagsmála hefur verið hér á síð- ustu misserum, þá er það alls- endis ófær leið fyrir nokkurn mann að halda gangandi nokkr- um rekstri, svo að vit sé í, enda þótt svo vel hafi tekizt til um sölu vertfðarframleiðslunnr.r í ár að fá um 75% hækkun frá vertíðinni 1973“. í sama blaði, laugardaginn 15. júní, er á forsíðu eftirfar- andi fyrirsögn: „Hrfðversnandi ástand í fjármálum og peninga- málum: 4000 milljóna yfir- dráttarskuldir viðskiptabanka. Nær 6000 milljóna fjárskortur sjóðanna. — 3300 milljóna greiðsluhalli rfkissjóðs.“ Ekki er fallegt að tarna, og þó getur Halldór E. Sigurðsson, fjár- málaráðherra, lækkað með nið- urgreiðslum verð á kartöflu- kílói, þannig að það kostar 9 kr. á sama tíma sem verðið á eld- spýtustokk á veitingastöðum kostar 10 kr.! Þrátt fyrir fyrirsjáanlegan greiðsluhalla á þessu ári um 3300 milljónir króna er ekki hikað við að greiða niður vöru- verð — svona rétt fyrir kosn- ingarnar. Þó er lausafjárstaða bank- anna óhugnanleg, þar sem talað er um 4000 milljóna yfirdrátt- arskuldir viðskiptabanka. Auð- vitað er eitthvað, sem úr bætir, svo sem talsverðar birgðir út- flutningsafurða, er liggja fyrir f landinu og bankarnir hafa lánað út á, og skýrir það að nokkru stöðu þeirra. I umræddu blaði er á baksfðu sagt frá því, að við skuldum Rússum 1500—2000 milljónir króna og að skuldin við þá hafi aldrei verið hærri en hún er um þessar mundir. Ekki er þetta gæfulegt. Þá eru fregnir af stofnlána- deild landbúnaðarins. Talið er, að Stofnlánadeildina vanti um 1000 milljónir króna og algjör óvissa er um lánveitingar til bænda. Segir í Mbl. 14. júní s.l.: „Talið er, að útlánaþörfin í ár nemi 1000—1100 milljónum króna, en Stofnlánadeildin hef- ur nú til ráðstöfunnar aðeins um 100 milljónir króna upp f þessa upphæð. Fullkomin óvissa rikir um útvegun þeirra 1000 milljóna króna, sem á vantar, og engin skýr svör hafa komið frá ríkisstjórninni þar um.“ Á sömu fréttasíðu er sagt, að einn sjóðurinn enn sé fjárvana: „1200—1400 milljónir vantar í Fiskveiðasjóð. Til þess að standa undir nauðsynlegum lánveitingum á þessu ári skort- ir Fiskveiðasjóð Islands 1200—1400 milljónir króna og er þá byggt á áætlunum um fjárþörf sjóðsins, sem gerðar voru snemma á þessu ári, en hugsanlegt er, að fjárþörfin verði í raun meiri vegna stöð- ugra verðlagshækkana." Hvernig á að sjá við þessu? Svo bætast inn í þetta smá- munir eins og þeir, sem Eðvarð Sigu'rðsson, formaður Dags- brúnar, segir að sé hrein kjara- skerðing, en þá var rfkisstjórn- in að breyta reglugerð um or- lof. Minna mátti þó gagn gera. Þá er mikil óvissa um vega- framkvæmdir f sumar, svo mik- il, að sagt er, að Vegasjóð vanti 1900 milljónir króna til þess að standa undir þeim framkvæmd- um, sem honum eru ætlaðar. Á sama tíma er ástandið f við- skiptamálunum að öðru leyti þannig, að innflytjendur verða að borga 25% innborgunar- gjald til Seðlabankans og fá 3% vexti fyrir, og í raun og veru er þá gert ráð fyrir að hundruð bifreiða verði látnarryðganiður. Byggingasjóðurinn er sagður tómur og sagt, að 1229 hús- byggjendur fái ekki útborguð seinni hluta lán. Ennfremur, að húsnæðislánin ættu að vera 1400 þúsund krónur á mann, en eru aðeins 800 þúsund. Ekki skal ógæfan frekar tal- in. Efnahagsglundroðinn er geigvænlegur. stefna vinstri stjórnarinnar hefur leitt til þess, að mikilvirkustu framleiðslutæki landsmanna, skuttogararnir, eru nú reknir með gífurlegu tapi. Þegar ríkis- stjórnin kom til valda á miðju sumri 1971, var hafin smfði á eða hafði þegar verið samið um kaup á 17 af þeim skuttogurum, sem komið hafa til landsins á undan- förnum árum. Efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar hefur hins veg- ar kippt rekstrargrundvellinum undan þessuæm atvinnutækjum. Þetta eru ekki órökstuddar full- yrðingar stjórnarandstöðuflokk- anna. Upplýsingar hér að lútandi koma fram f skýrslum, sem sér- fræðingar rfkisstjórnarinnar sjálfrar hafa gert. Fyrir nokkru birti svo Dagur, málgagn Fram- sóknarflokksins á Akureyri, greinargerð um afkomu útgerða- félags Akureyringa. Þar kom fram, að halli á rekstri togarans Sólbaks á sfðasta ári nam tæpum 18 millj. kr. Það er harla broslegt, þegar á þetta er litið, er talsmenn stjórnarflokka leggja sig niður við það að reyna að telja fólkinu í landinu trú um, að stjórnarand- stöðuflokkarnir hafi atvinnuleysi á stefnuskrá sinni. Með sanni má segja, að fullyrðingar af þessu tagi séu sérstæður barnaskapur, á sama tíma og fólkið les það í skýrslum sérfærðinga ríkis- stjórnarinnar sjálfrar, að efna- hagsstefna hennar hafi leitt til hættuástands f efnahagsmálum, sem óhjákvæmilega hafi samdrátt í för með sér. Þjóðin þarf trausta stjórn Stjórnarflokkarnir freista þess nú að leiða hugi fólksins í landinu frá því hættuástandi, sem lýst er í skýrslu hagrannsóknarstjóra og þeirri heimatilbúnu óðaverð- bólgu, sem segir frá í ársskýrslu Sambands íslenzkra samvinnu- félaga, með því að halda fram þeirri tilbúnu staðhæfingu, að nú- verandi stjórnarandstöðuflokkar hafi f Viðreisnarstjórninni leyst efnahagsmálin með hæfilegu at- vfnnuleysi og ætli að gera það, komist þeir til valda á nýjan leik . Og í framhaldi af þessu lýsir Magnús Kjartansson yfir því, að hann vilji heldur óðaverðbólgu en atvinnuleysi. 1 þessu sambandi er fróðlegt að bera saman aðstæður f tfð Við- reisnarstjórnarinnar og núver- andi ríkisstjórnar. Öllum er ljóst að á árunum 1968 og 1969 var hér þó nokkuð atvinnuleysi. Ástæðan var sú, að afli minnkaði um helm- ing og verðhrun varð á útflutn- ingsafurðum okkar á erlendum mörkuðum. Verð á fiskblokk á Bandarfkjamarkaði var þá 20 cent. Engu að síður tókst Við- reisnarstjórninni að leiða þjóðina úr þeim vanda, er þá steðjaði að, og þegar hún fór frá var hér full atvinna og mikil gróska í atvinnu- lífi. Nú er verð á fiskblokk á Bandarfkjamarkaði hins vegar nærfellt 80 cant en eigi að síður er hættuástand og samdráttur framundan. Þjóðviljinn birti fyrir nokkru töflu frá kjararannsóknarnefnd um fjölda þeirra, sem skráðir voru aatvinnulausir f Reykjavfk á árunum 1929—1973. Þegar sú tafla er skoðuð kemur f ljós, að á stjórnartíma Viðreisnarstjórnar- innar frá 1960 og fram að 1968 er ekkert skráð atvinnuleysi í land- inu. Verðbólgan er þá 10% að meðaltali á ári. Efnahagsstefna Viðreisnarstjórnarinnar hafði með öðrum orðum það í för með sér að hér var haldið uppi fullri atvinnu um leið og verðbólgunni var haldið í skefjum, þannig að hún varð ekki meiri en um það bil 10% á ári. Vinstri stjórnin núver- andi hefur hins vegar hleypt verðbólguvextinum upp í 40—50% og þó eru fleiri skráðir atvinnulausir nú heldur en á stjórnartímabili Viðreisnar- stjórnarinnar, ef frá eru talin erfiðleikaárin. Þannig falla röksemdir stjórnarflokkanna hver um aðra þvera um leið og þeir heyja inn- byrðis hjaðningavíg. Þjóðin á nú kröfu á því, að við taki traust ríkisstjórn, er bindi endi á ringul- reiðina f efnahagsmálum og stuðli að framförum í anda frjálshyggju og einstaklingsfrelsis, þar sem það félagslega sjónarmið er sett ofar öðru, að allir einstaklingar þjóðélagsins geti notið þess frels- is, sem lýðræðislegt þjóðfélag er reist á. Framsókn stefnir að brottför varnarliðsins Forystumenn Framsóknar- flokksins hafa afdráttarlaust lýst yfir þvf, að þeir stefni að áfram- haldandi vinstri stjórn, fái stjórnarflokkarnir meirihluta á Alþingi að kosningum loknum. Ljóst er hins vegar, að Alþýðu- bandalagið mun ekki framlengja líf þessarar ríkisstjórnar, nema tryggilega verði frá þvf gengið, að varnarliðið verði látið fara. Lfta verður svo á, að forystumenn Framsóknarflokksins hafi með óskum sínum um áframhaldandi vinstra samstarf fallizt á þessar kröfur Alþýðubandalagsins. Á hinn bóginn er ljóst, að mikill meirihluti þjóðarinnar er andvfg- ur ótímabærri uppsögn varnar- samningsins, eins og gleggst kom fram í undirskriftasöfnun „Var- ins lands" á sl. vetri. Flestum er ljóst, aó eins og nú háttar, er Isendingum nauðsynlegt að taka þátt f varnarsamstarfi vestrænna rfkja og tryggja með þvf móti öryggi landsins. Framsóknar- flokkurinn lagði stein í götu undirskriftasöfnunar „varins lands“. Engum vafa er því undir- orpið, að hvert atkvæði greitt vinstri flokkunum mun styrkja hugsanlega nýja vinstri stjórn í því að rjúfa það varnarsamstarf, sem íslendingar hafa undanfarna tvo áratugi haft við Atlantshafs- rfkin. Sjálfstæðisflokkurinn hef- ur einn lýst þeirri afdráttarlausu stefnu, að öryggi íslands eigi að tryggja með því að halda þessu samstarfi áfram. Engum dylst því, að varnarmál- in verða því aðeins leidd til lykta í samræmi við ótvfræðan vilja meirihluta þjóðarinnar að Sjálf- stæðisflokkurinn komist til áhrifa í rfkisstjórn landsins. Burt með loddarana Flestum ber saman um það, að Sjálfstæðisflokkurinn hafi unnið hinn mikla kosningasigur í byggðakosningunum í lok maí- mánaðar sl. vegna þess fyrst og fremst, að ungir kjósendur hafi nú fylkt sér undir merki sjálf- stæðisstefnunnar. Ástæðan fyrir þvf, að unga fólkið skipar sér nú í raðir Sjálfstæðisflokksins, eru að sjálfsögðu fjölmargar. En eitt af þeim atriðum, sem ugglaust hafa miklu ráðið um þessi straumhvörf er sú staðreynd, að undanfarin 3 ár hefur stjórnmálasíðgæði farið þverrandi f landinu, m.a. fyrir þá sök, að æðstu valdamenn þjóðar- innar hafa hvað eftir annað kom- ið fram fyrir þjóðina í leikbúningi loddaranna. Oft hafa atburðir af þessu tagi Iátið lftið yfir sér, en eigi að síður brenna þeir sig inn í vitund fólks- ins f landinu, ekki sízt unga fólks- ins. Taka má sem dæmi, þegar Magnús Kjartansson stóð upp á Alþingi á haustþinginu 1972 og svaraði fyrirspurn frá alþingis- manni á þann veg, að hann væri ekki á Alþingi til þess að láta þingmenn yfirheyra sig. Og í annan tíma neitaði Lúðvfk Jósepsson að gegna þeirri þing- mannsskyldu að sitja þingfundi. Magnús Kjartansson fer sem ráð- herra á kostnað ríkisins á fund Norðurlandaráðs. Þar ber hann Norðmenn þeim sökum að hafa hlutast til um innanríkismál ís- lendinga. Þegar heim kemur, stendur forsætisráðherrann upp á Alþingi og lýsir yfir þvf, að Magnús Kjartansson hafi f þessu tilviki ekki talað sem ráðherra og engum hafi dottið það f hug! Utanríkisráðherrann lýsir yfir því einn daginn, að ríkisstjórnin muni að sjálfsögðu standa við það fyrirheit, að varnarsamningnum verði sagt upp. Hinn daginn kem- ur hann fram fyrir þjóðina og fullyrðir, aó það se' rangtúlkun ein að lfta svo á, að ríkisstjórnin hafi nokkurn tfma samþykkt að varnarliðið færi úr landinu. Og Lúðvík Jósepsson er ber að marg- földum ósannindum, á Alþingi er hann auðveldaði austur-Þýzkum ryksuguskipum veiðar við strend- ur landsins. Hápunkti náði svo þessi sjónleikur, þegar ríkis- stjórnin sprakk í maímánuði sl, Meðan Magnús Kjartansson rit- stýrði Þjóðviljanum f stórnarand- stöðu, froðufelldi hann dag eftir dag og viku eftir viku af vandlæt- ingu yfir spilltum stjórnmála- mönnum. Formælingar þessar hafa nú snúizt upp f andhverfu sína og kristallast nú öðru fremur í Magnúsi Kjartanssyni sjálfum. Lýðræðislegt stjórnskipulag stenzt ekki til lengdar, ef ráða- menn þjóðfélagsins óvirða leik- reglur lýðræðis og þingræðis með þessum hætti. Það er undir merkjum Sjálfstæðisflokksins, sem unga fólkið snýst nú gegn þessu tvöfalda siðgæði.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.