Morgunblaðið - 23.06.1974, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 23.06.1974, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JUNÍ 1974 Viðhorf poppara austanflalls enn í brennidepli: Ómar Þ. Halldórz^nRÚSSneSkart umræðum um starf og DrÚllÍr aðstoðu popp ## •'í hljómsveita úti á landi og moguleiRar lilj omlistarmanna ^ ÞEGAR forráðamenn SlagsíSunn- arorSuðu það viS mig á dögunum að ég skrifa8i grein um möguleika popphljómlistarmanna úti á lands- byggSinni jafnframt því að ræSa möguleika þeirra á breiðari grund- velli, setti mig hljóðan Ifkt og mann sem skrifa þarf minningargrein. Mér þótti að það væri að færast of mikið I fang fyrír einn mann að lýsa skoðun- um sfnum á þeim I heilli blaðagrein. Ég tók þvf þann kost með samþykki Slagslðunnar að bjóða forsvars- mönnum þeirra tveggja popphljóm- sveita sem starfandi eru austan fjalls til einskonar hringborðsumræðna um þetta mál. Hringborð höfðu þeir að vísu ekki, en ferhyrnt sófaborð reyndist engin hindrun til umræðna. Frá hljómsveitinni Mánum var mætt- ur Guðmundur Benediktsson píanó- og synthesizerieikarí. en gegnt hon- um settist Þórður Þorkellsson gitar- leikari hljómsveitarinnar Orkideu. Svo kveikti ég á segulbandstækinu og kaffivélinni (því til stóð að þeir fengju kaffi). Þeir litu kaffivélina hýru auga en kölluðu segulbandið óþverratæki, sem hindraði eðlilegar umræður. Eftir nokkra bið fór að liðkast um málbeinin og útkoman litur sem sagt svona út og fer hér á efti r. Hverjir eru möguleikar islenzkra popp-hljómlistarmanna, Geta þeir gert þá hluti sem þeir vilja? Guðmundur: Grundvöll fyrir dans- hljómsveit með eingöngu frumsamið e/ni tel ég engan, ef þú átt víð það Daemin hafa sannað það svo ótvlrætt Þórður: Þar áttu við fjárhagsgrund- völl. Þaðer bara spurning um hvort líta á á hljómlist sem atvinnu eða listsköp- un. Það er allt hægt sé viljinn fyrir hendi Beethoven var t d einn af þeim fyrstu sem samdi verk sín óháður öllu peningasjónarmiði G: Það gekk nú misjafnlega hjá honum Þ: Já, en hann hugsaði ekki um fjárhaginn, hann gerði það sem hann vildi sjálfur G: Schubert var til dæmis bláfátæk- ur alla æfi. Og lengi fram eftir urðu slikír menn að vinna annað með þvl, og verða raunar enn. Þ: fslenzk popphljómlist er ákaflega léleg miðað við erlenda og er aðallega fólksfaeðinni um að kenna Hljómsveit- ir keppast meira við að undirbjóða hver aðra heldur en að ná betri árangri. Jafnvel þótt komi upp góð hljómsveit þá hefur hún ekki við neitt að keppa Takmarkið er svo lágt hér á íslandi. Nú er hljómsveitin Orkidea með mest megnis frumsamið efni og leik- ur ekki á dansleikjum. Þið hafið þvl ekki þennan svo kallaða fjárhags- grundvöll. Hvað fær ykkur til að leika þess háttar mússik? Þ: Þetta er bara tómstundaiðja. Vissulega reynum við að gera okkar bezta og einskorðum okkur að mestu við frumsamið efni. Spilum að vísu innan um eitt og eitt erlent lag til að víkka sjónhringinn. Að spila frumsam- ið efni er ákaflega þroskandi og lær- dómsrlkt og við metum það ofar þvl að spila drykkjutónlist. Eins og ég segi, þetta er bara fyrir okkur sjálfa. En hafi einhverjir fleiri ánægju af tónlist okkar er það auðvitað ánægjulegt fyrir okkur. Við gætum að sjálfsögðu farið að spila erlend lög og byggja upp á þeim dansprógram, ef við hefðum einhverja ánægju af því. Við höfum bara mjög takmarkaða ánægju af því að spila erlend lög, svo ég hugsa að við förum aldrei þá leið. Markmiðið hjá okkur er ekki bara að skapa góða hljómsveit heldur llka það að skapa góða einstakl- inga G: Það er sjáfsagt að menn geri það sem þeir vilja. Ef þið I Orkideu viljið spila frumsamin lög og setjið þennan ónóga fjárhagsgrundvöll ekki fyrir ykk- ur, finnst mér sjálfsagt, að þið gerið það Það er að vísu ekki vlst, hve lengi þið endist til þess. Þið þurfið ykkar hljóðfæri eins og aðrir og það er stór gjaldaliður ef innkoman er engin. Þ: Ég held, að svo lengi sem við verðum allir hér á staðnum munum við halda áfram á þessari braut Engin okkar hefur áhuga á danshúsamússlk- inni og við setjum hljóðfærakostnað ekki fyrir okkur. Nú er enginn ykkar fjölskyldumað- ur. Hvað heldurðu að væntanlegar eiginkonur ykkar segi við þessu sjón- armiði? Þ: Þvl get ég náttúrulega ekki svar- að. Planóleikarar, sem leika klassik, verða að taka mikið frá heimilisllfi sínu. Mikinn tíma, — og tími er jú peningar. Teljið þið mögulegt að hafa áhrif á tónlistarsmekk fólks I þá átt að gera það opnara fyrir flókinni popptónlist eða þeirri tegund popphljómlistar sem menn hafa sjálfir áhuga á að spila? 0 Þóróur: „Byggja þarf klúbba upp sem vfðast um landið, þar sem ábugafólk um þróaða popptónlist kæmi saman og hlustaði á góðar hljómsveitir.“ Þ: Já, hiklaust. Hins vegar verður hljómsveit, sem ætlar að spila erfiða mússik sem lltill fjárhagslegur grund- völlur er fyrir að leggja glfurlega á sig, fórna bæði tíma og peningum. Ég tel, að sllk hljómsveit verði að hafa ein- hvern fjárhagslegan grundvöll. Þó ekki sé nema eitthvað upp I hljóðfæra- kostnað Ég held, að það sé bezt leyst með auknu hljómleikahaldi og að byggja upp klúbba sem víðast um landið, þar sem áhugafólk um þróaða popphljómlist kæmi saman og hlustaði á góðar hljómsveitir. Ég held, að áhug- inn myndi aukast bæði hjá hlustendum og hljómlistarmönnum. G: Þar kemur llka til vilji forráða- manna húsanna sem leigja þyrfti. Það kostar töluvert að leigja sllk samkomu- hús. Fjárhagshliðin er ekki endilega mesta vandamálið. Ætli hljómsveit að gera stóra hluti, gefa út vandaða plötu með frumsömdu efni, eða eitthvað hliðstætt, þarf töluverðan tíma. Við t.d. höfum mjög takmarkaðan tlma til æfinga. Með þv! að vinna frá 7 á morgnana til 7 á kvöldin og vera svo dauðþreyttur við að æfa er ekki hægt að búast við neinu stórkostlegu. Eigi Islenzk popphljómlist að standast er- lendar kröfur, verður að vera um hreina atvinnumennsku að ræða. Um smekkbæturnar er það mln skoðun, að fyrir því séu möguleikar. Sem hljóm- listarmanni I danshljómsveit finnst mér, að inn I þetta dansprógram sem dansleikirnir byggjast á megi skjóta t. d. tveim hálftlma syrpum með frum- sömdu efni. Það gæti aukið aðsókn þeirra sem vilja frumsamið efni og þeir eiga llka rétt á að fá sinn skammt eins og hinir. Reynslan skæri svo úr um framhaldið. Þetta er bara ein af hugsanlegum leiðum. Það er bezt að sem flestar leiðir séu notfærðar til að þetta takist. — Nú tóku Mánar upp á þvl fyrir u. þ.b. þrem árum að taka flóknari lög. m.a. frá Jethro Tull, og gera þau sjálfir vinsæl hjá danshúsagestum, án þess að vinsæfdalistar eða útvarp kæmi þar nærri. Telurðu ekki grund- völl fyrir slfku f dag? G: Jú, kannske. Þessi Jethro Tull lög voru þó það sérstök, að þau eru varla nógu heppileg viðmiðun. Mér finnst ekkert svo áberandi sérstakt að gerast I poppinu I dag. Menn eru meira leit- andi. Þ: Það hljóta að vera ótal leiðir til bóta. G: Plötuútgáfa er t.d. möguleiki I þá átt að bæta aðstöðu popphljómlistar- innar hér. Jafnvel þó markaðurinn megi teljast of lltill til að bera plötuút- gáfu uppi, sérstaklega vegna ófullkom- ins tækjabúnaðar hér á landi og gifur- legs aukakostnaðar vegna utanferða vilji menn gera eitthvað gott. Það eru llkur á, að gjöldin yrðu meiri en inn- koman ef taka ætti upp plötu við fullkomnar aðstæður úti. Það þykir mjög góð sala, seljist plata I tvö til þrjú þúsund eintökum. Úti þykir lélegt séu tölurnar ekki I hundruðum þúsunda Það er heldur ekki allt sagt með þvi að taka upp úti. Timinn er svo naumt skammtaður, að þessu fylgir glfurlegt stress og útkoman oft allt önnur en til var ætlazt. Ein leiðin er sjónvarpið en ástæðan fyrir fábreytilegu innlendu tónlistarefni er sennilega sú að sjónvarpið borgar svo vel að það gæti ekki staðið undir miklu af þvíliku efni. Að mínu mati borgar það hljómlistarmönnum allt of vel. Þ: Það myndu flestir vilja fórna tölu- verðu af sínu kaupi til að fá betri upptökur og vandaðri þætti. Margir myndu hreinlega vilja gefa vinnuna til að fá tækifæri til að koma efni sínu á framfæri. G: Mér liggur við að segja að kaupið sé svlvirðilega hátt þvl að það kemur I veg fyrir að áhorfendur fái séð og heyrt hvað hljómlistarmenn geta boðið upp á. — TeljiS þið tillegg útvarpsins til popptónlistar; þætti eins og 10 á toppnum, lög unga fólksins og fleiri óskalagaþætti draga úr áhuga fólks á þróaSri popphljómlist? Þ: Þeir sýna bara smekk svo þröngs hóps. Ef eldri hópur unglinga legði sig niður við að senda atkvæði I 10 á toppnum myndi þátturinn vafalaust breytast töluvert. 10 á toppnum sýnir þvl engan raunhæfan vinsældalista sem sllkan. G: Það er heldur engin ástæða til að fordæma það, þótt börn á fermingar- aldri hlusti á léttari hljómlist heldur en hinir eldri. Það byrjar enginn á þvl að hlusta á neina háþróaða hljómlist. 10 á toppnum sýnir þó það, að menn kunna að velja og hafna sem er ekki svo litilsvert. Þ: Ég held að þegar fólk er komið yfir tvltugt sé tónlistaráhuginn annað hvort svo til dottinn úr þvl eða það eigi sín hljómflutningstæki og hlusti gegn- um þau á þá tónlist sem það vill heyra. Útvarpið skiptir það engu máli, þvi að þvl fólki finnst það ekkert hafa til útvarpsins að sækja. Nú hef ég orðið var við óánægju hjá ýmsum danshúsagestum Mána (aldurinn 18—20 ára og upp úr). Þeim finnst vanta inn I prógram ykkar flóknari lög. Viljið þið ekki spila slfkt eða teljið þið það spilla vinsældum ykkar? G: Ástæðan er sú, að við töldum þessi léttu lög gera okkur auðveldara að ná til okkar þeim fasta hóp, sem sækir dansleiki jafnframt þvl, að eftir að við byrjuðum aftur I haust var það okkur kappsmál að koma fljótlega upp sæmilega stóru prógrammi. Það er alls ekki stefnan að vera með svona lög eingöngu I framtiðinni. Við ætlum smátt og smátt að víkka sviðið og ég tek það fram að vinsældalistalög eru I minnihluta I prógramminu. Flest þessi lög, t.d það sem við spiluðum á popp- hátlðinni I Selfossbíó um páskana og þú hefur reyndar gagnrýnt á Slagsíð- unni, Ómar, eru ekki samkvæmt okkar smekk. Ég er alls ekki að gera litið úr vinsældalistatónlist þvi öll tónlist á rétt á sér. Það er aðeins smekksatriði, hvað er gott og hvað er vont. Ég vil bara taka það fram, að við vorum fengnir á þessa popphátíð með mjög stuttum fyrirvara og vorum þar alls ekki að túlka okkar eigin tónlistarsmekk. Kæmi til að við yrðum beðnir aftur, þá með góðum fyrirvara, að spila á slíkri hátlð, myndum við vafalaust koma fram með annars konar efni. Hafa Islenzkir hljómlistarmenn og hljómsveitir möguleika á að ná frama erlendis? Hafið þið I hyggju að reyna sllkt? G: Margir hverjir gætu sjálfsagt náð langt. Þórir Baldursson virðist gera það gott úti. Eins Pétur Östlund og Árni Egilsson. En eins og ég segi; menn verða þá að geta helgað sig þessu eingöngu ef þeir eiga að verða sam- keppnisfærir við erlenda atvinnuhljóm- listarmenn. Hljómleikaferð Mána um Bandarikin verður llklega ekki farin á þessu ári. (hlátur) Þ: Það gæti komið til greina að leita eitthvað út fyrir, ef við næðum það langt, að við teldum okkur færa til þess. Það færi lika eftir svo mörgu, möguleikum og samningum, þegar þar að kæmi. Við höfum ekkert rætt það til þessa en það gæti komið til greina. Við teljum okkur á svo algjöru frumstigi ennþá miðað við þann standard. Nú heyrist mér á ykkur að þið séuð ekki bjartsýnir á frama ísl. popphljómlistarmanna erlendis. Hvers vegna þá að nota enska texta á plötur fyrir fsl. markað? Þ: Til að gera lag vinsælt hér á (slandi þarf helzt enskan texta og mér 0 Guðmundur: „Skjóta syrpum með frumsömdu efni inn f dans- leikjaprógrammið." finnst líka alltaf annar blær yfir lagi með Islenzkum texta, leiðinlegri blær, ef mússikin á bak við er flókin. G: Ég sé ekki, að það rýri neitt gildi platna þó textarnir séu Islenzkir. Segj- um t.d. doublealbúm Óðmanna. Þ: Umbótatexti getur dregið vin- sældir lags niður. fslenzkir textar eru oftast mjög illa gerðir og draga úr áhuga manns á þeim, þó með góðum undantekningum sbr. plötur Óð- manna. G: Öll vinsældalistatónlist er með ákaflega léttum og oft ómerkilegum textum. Sér I lagi þó ensku textarnir. Þ: Það er llka nauðsynlegt ef á að setja plötu á enskan markað, að á henni séu léttmeltir enskir textsr G: Það eru harla litlar llkur fyrir þvl, að íslenzk plata nái vinsældum úti. nema hún hafi á bak við sig mjög fjársterkan útgefanda. Óðmannaalbúmið vakti hrifningu að mig minnir f sænska útvarpinu þrátt fyrir sína fslenzku texta. Eigi að vinna markað á Norðurlöndum, er þá nokkur ástæða fyrir enskum textum? G: Nei. Islenzka og enska eru bæði erlend tungumál I Skandinávfu og hlustendum þar má á sama standa hvort málið er notað. Enskir textar á Islenzkum plötum eru líka oft svoddan hrákasmið að þeir eru lltt skiljanlegir enskumælandi fólki, jafnvel þó fslend- ingar þykjist skilja þá Mér finnst að Islenzkir hljómlistarmenn ættu að nota meira Islenzka texta, sem hæfa best þeim markaði, sem þeir hafa, en hafa heldur enska texta, ef þeir gera eitthvað raunhæft til að koma sér áfram úti. Hvað með möguleika f Reykjavfk hjá hljómsveitum utan af landi? Þ: Fyrir utan það, að ýmsar popp- flgúrur, ef má orða það svo, eiga að mestu markaðinn I Reykjavik, tel ég, að óþekktar hljómsveitir utan af landi hafi svipaða möguleika þar og óþekkt- ar hljómsveitir úr bænum G: Ef þær koma sér upp frambæri- legu prógrammi held ég, að möguleik- ar séu fyrir þvi. Hljómsveit með ein- göngu frumsamið efni hefði kannske örlltið meiri möguleika I Reykjavlk heldur en úti á landi, en til að ná einhverjum vinsældum yrði hún þá að vera með afburðagott prógramm. Eitthvað að lokum? Þ: Bara bless. G: Sem lokaorð get ég sagt þetta: að I augnablikinu á ég mér enga ósk heitari en að Lenóld Brévsnéff snyrti á sér augabrúnirnar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.