Morgunblaðið - 23.06.1974, Síða 25

Morgunblaðið - 23.06.1974, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1974 -PJorðurlands- kjördæmi vestra Rekstri atvinnutækjanna verði komið á heilbrigðan grundvöll Rœtt við Adolf Berndsen á Skagaströnd „Það er nú svo komið með rekstur frystihúss Hólaness h/f, og greiðsluerfiðleika þess, að Út- gerðarfélag Skagstrendinga hef- ur ákveðið að láta skuttogara sinn, Arnar leggja upp annars staðar næsta túr,“ sagði Adolf Berndsen hreppsnefndarmaður og stjórnarformaður Hólaness h/f á Skagaströnd, er fréttamaður Mbl. hitti hann að máli nú fyrir skömmu. „Erfiðleikar þessir stafa af miklurn framkvæmdum við endurbætur á frystihúsinu og vegna sölutregðu og verðfalls á þorskblokkinni, samhliða stór- hækkuðum launagreiðslum og hækkun á öðrum kostnaði og ekki hefur tekizt að fá rekstrarfjár- fyrirgreiðslu. Þá er einnig mjög miklir erfiðleikar með rekstur togarans og raunar aðeins tfma- spursmál, hvenær útgerð hans stöðvast. Ástandið hér er þvf heldur dökkt, svo ekki sé tekið dýpra f árina.“ — Hvernig hefur atvinnu- ástandið verið? — Hér hefur verið næg atvinna sl. 4—5 ár, sem byggzt hefur á þeirri atvinnuuppbyggingu, sem hófst á tímum viðreisnarstjórnar- innar og má nefna nokkur dæmi þar um. 1968 var veitt fjárhagsleg fyrirgreiðsla í sambandi við stækkun og endurbætur frysti- hússins, áramótin 1968—69 var keyptur hingað togbáturinn Arnar og svo Örvar áramótin 1971. Með smíði 50 tonna báts, Auðbjargar, hófst skipasmfði hér 1970. 1972 lauk svo vélvæðingu rækjuvinnslunnar og það ár tók saumastofan til starfa. Allt þetta hefur gert það að verkum, að at- vinnan hefur verið næg og meira að segja hefur vantað fólk til starfa við fiskinn. Arnar og örvar voru seldir á sl. ári til að fjár- magna skuttogarakaupin og Arnar, sem er 450 lesta japanskur skuttogari kom svo í október sl. — Er framkvæmdum við frysti- húsið lokið? — Já, þeim er að mestu leyti lokið og hafa verið ærið kostnaðarsamar. Okkur hefur verið legið á hálsi fyrir að hafa ráðizt í of mikið á of skömmum tíma, en ég held, að það hijóti að vera jákvætt fyrir okkur í þessu verðbólgubáli, að vera búnir að þessu. Afköstin hafa einnig aukizt til muna og við eigum nú um 10.000 kassa á lager, sem við bfðum eftir að losna við. — Hver eru brýnustu verkefni Skagstrendinga nú? — Það eru endurbætur á höfn- inni. Hún er nú þannig, að Arnar kemst ekki upp að bryggju, nema sæta sjávarföllum. Við fengum fjárveitingu til framkvæmdanna á samgönguáætlunni 1970—71 og í fyrra var unnið fyrir 10 milljón- ir við grjótflutninga, en við vitum ekkert hvað verður um áframhald í sumar, en vonum hið bezta. Þá hafa hér skv. samgönguáætlunni verið gerðar miklar vegabætur með smfði nýrra brúa og annarra vegabóta. Stjórnarsinnar þakka núverandi stjórn þetta, en það er út í hött, því að áætlunin er frá tímum viðreisnarstjórnarinnar. Annars er auðvitað brýnast málið, að rekstri atvinnutækjanna verði komið á heilbrigðan grundvöll, svo að þau fái starfað áfram. Hús- næðisvandamál eru hér einnig mikil og ijóst, að mun fleira fólk hefði flutt hingað, ef húsnæði hefði verið fyrir hendi. Ekkert bólar á fjárveitingu til smíði 1000 leiguíbúða, sem ríkisstjórnin lofaði landsmönnum og átti vera byrjað á. Við höfum á okkar fjár- hagsáætlun sl. 2 ár lagt til hliðar fjármagn, til að vera tilbúnir með okkar hlut, þegar að framkvæmd- um kæmi. Við erum nú að ljúka við gerð vatnsveitu, sem unnið hefur verið að sl. 4 ár og verður gífurleg bót fyrir okkur. Þá eru einnig uppi áætlanir um varan- lega gatnagerð í þorpinu, þannig að verkefnin eru næg, sagði Adolf að lokum. „Hvar eru efndir ríkisstjórnarinnar um bætt lánakjör til handa bændum? Rœtt við Böyi Handdsson bónda á Bakka í Viðcúaarsmt Það vcrður að tryggja bændum lán til að þeir geti keypt sér meiri vélakost, þvf að aðeins með þvf móti er von til þess að þeir geti stytt vinnutfma sinn og gert sér vonir um orlof. Nú er aðeins lánað út á dráttarvél og sláttuvél og þvf verður að breyta. Mig langar Ifka f þessu sambandi að spyrja, hvar eru efndirnar á lof- orði rfkisstjórnarinnar um bætt lánakjör bænda. Þetta loforð er orðið þriggja ára og ekkert bólar á efndunum, sagði Birgir Haraldsson bóndi á Bakka f Við- vfkursveit f Skagafirði, er við hittum hann að máli á Sauðár- króki fyrir skömmu, þar sem hann var f stuttri kaupstaðarferð. Við spurðum hann hvernig hefði vorað hjá þeim bændum f Skaga- firði. —* Hver eru að þínum dómi brýnustu hagsmunamál bænda? — Það mál, sem ég tel, að sé algerlega óþolandi fyrir bændur er vinnuálagið. Vinnutfmi okkar er alltof langur. Þegar vinnu- tímastyttingin kom til framkvæmda fengum við einir enga styttingu, en sagt er að við höfum fengið það bætt upp með hækkuðum verðlags grundvelli landbúnaðarafurða, en það fær ekki staðizt. Því hefur einnig verið haldið fram, að bændur hafi í kjörum færst nær öðrum stéttum, en það er ekki rétt. Við getum tekið sem dæmi mann með 600 þúsund kr. tekjur, sem hann getur notað fyrir íbúð og fjölskyldu. Af þessu fé verður bóndinn að taka til að kaupa þau tæki, sem hann getur ekki án verið í sínum búskap, og til þessa er ekki tekið nægilegt tillit til. Sem dæmi má nefna, að ég þurfti að setja upp nýjar girðingar í vor, sem kostuðu mig 100 þúsund kr. Þetta varð ég að taka af mfnumtekjum. Egvarð lfka að festa kaup á heybindivél Qg þurfti þar að leggja út 180 þúsund kr. og síðan ætlaði fyrir- tækið að lána mér afganginn. Þá var ríkisstjónin búin að lög- festa innborgunarskylduna og fyrirtækið gat ekkert lánað mér, svo að ég varð að fara á stúfana og bjárga mér annars staðar. Ég var þó heppnari en aðrir bændur, þvf að ég fæ mína vél, en þeir eru margir, sem ekki geta fengið vélar sínar afgreiddar af þessum ástæðum. Ég held að fólk geri sér almennt ekki grein fyrir þvf, að rekstur bóndabýlis er eins og rekstur fyrirtækis, nema að þvf leyti að bóndinn þarf að vinna allt að þvf allan sólarhringinn og er ekki samkeppnisfær við aðrar at- vinnugreinar um vinnuafl. Við höfum líka orðið fyrir áföll- um vegna mikillar hækkunar á fóðurbæti og áburðiog þar virðist engin verðstöðvun vera í gildi, við fáum þetta allt yfir okkur óbætt. — Hefurðu von um, að ráð- stafanir verði gerðar á næstunni til að stytta vinnutfma bænda? — Það hreinlega verður að gera slíkar ráðstafanir til að tryggja framtíð landbúnaðarins. Það var ekkert uppörvandi fyrir páskana, er ég kom á Sauðárkrók f verzlunarferð. Þá voru allir að flýta sér að ljúka störfum, þvf að framundan var 5 daga frí hjá nær öllúm mannskapnum, en hjá bóndanum er enginn munur á páskum og virkum dögum. Pálmi Jónsson flutti á Alþingi frumvarp um orlof bænda, en það var svæft. Ég held við verðum að treysta því, að eitthvað verði gert í þessum málum í nánustu framtfð. „Framtíð landbúnaðarins í háska meðan aðstaðan við aðrar stéttír er ekki jöfnuð” Stutt spjall við Sigurð Þor- bjarnarson bónda á Geitaskarði Þegar ekið er um Norðurlands- veg f Langadal, er á leið- inni eitt býli, sem jafnan hefur þótt bera af öðrum sök- um myndarlegs húsakosts og frábærrar snyrtimennsku ábúendanna. Býli þetta heitir Geitaskarð. Þar býr nú og hefur gert sl. 28 ár, Sigurður Þor- bjarnarson, sonur Þorbjarnar heitins Árnasonar, ásamt konu sinni Valgerði Ágústsdóttur frá Hofi f Vatnsdal. Er fréttamaður Mbl. var á ferð f Langadal f sl. viku hitti hann Sigurð bónda að máli og ræddi stuttlega við hann um búskapinn. Við spurðum hann fyrst, hve stór bústofninn væri. — Það eru um 60 hausar í fjósi, hálft fjórða hundrað fjár og nokkrir tugir hrossa. — Hvernig hefur vorið verið ykkur hér í Langadal? — Hér hefur vorað vel, eins og annars staðar á landinu, en þrátt fyrir það er ekki gott að búa. Biiið hefur enn farið breikkandi milli landbúnaðarins og annarra stétta, landbúnaðinum í óhag, einkum síðan lögin um 40 stundá vinnu- viku voru sett. Meginþorri þjóð- arinnar hefur nú vinnutíma milli 9 og 5, en vinnutfminn hjá bænd- um er ótakmarkaður og oft 24 tímar á sólarhring. öryggisleysi bænda er mikið, vegna þess að þeir eru ekki samkeppnisfærir um vinnuaflið og geta ekki fengið þá hjálp, sem þeir þurfa. Þess vegna gerist það oft, er fólk í sveitum veikist, að það getur ekki lagzt í rúmið eða leitað læknis til að fá hjálp, vegna þess að það hefur ekki efni á þvf að fórna tíma til slfks, það er enginn til að vinna störf þess. Við gætum setið f allan dag og rætt álíka dæmi. — Hvað er til úrbótar í þessum málum? — Þetta verður ekki lagað öðru vfsi, en aðstaðan verði jöfnuð og bændum skapað öryggi f daglegu lífi. Meðan það er ekki gert, er framtíð landbúnaðarins f háska. Það er erfiðara í landbúnaðinum en nokkurri annarri grein að stofna búið, því að lánin eru bundin ákveðnu hámarki. Það mætti í þessu sambandi spyrja hér, hvað hefur orðið um efndirn- ar á þvf ákvæði í málefnasamn- ingi rfkisstjórnarinnar um, að vextir á lánum til bænda skuli lækkaðir og lánstfmi lengdur. A þessu hefur ekkert bólað. — Hversu margir starfa að bú- skapnum á Geitaskarði? — Við hjónin erum bara tvö við þetta, nema á sumrin, þá er sonur okkar heima, og unglingar. Þé t- býlisunglingarnir hjálpa óneitan- lega til yfir sumartimann, en svo kemur öryggisleysið á haustin og varir veturinn og vorið. A mínum tíma hafa 20 jarðir f sveitinni farið f eyði, sem kannski lýsir ástandinu hvað gleggst. Fólk fýsir ekki að leggja út f búskap. — Hver heldur þú að þróunin verði í landbúnaði? — Ég held að hún stefni í þá átt, að bændur snúi sér meira að einni grein búskapar fremur en að hafa blandaðan búskap, eins og á Geitaskarði. — Nú hefur þinn bær ætíð haft orð á sér fyrir fegurð og snyrti- mennsku, er ekki mikið verk að halda f horfinu? — Ég hef alltaf lagt mikið upp úr því að hafa fallegt og snyrtilegt í kringum mig, það var mér kennt í æsku, en því miður verður æ erfiðara að lifa eftir þeirri hug- sjón vegna tfmaskorts, og þvf fer fjarri, að mér finnist ég standa mig nægilega vel í þeim efnum. Þegar við kveðjum Geitaskarðs- bóndann og ökum sem leið liggur suður um, hugsum við til þess, hve miklu skemmtilegra væri að aka þjóðvegina, ef allir bændur temdu sér þá snyrtimennsku, sem gleður auga ferðamannsins, þegar farið er framhjá Geitaskarði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.