Morgunblaðið - 23.06.1974, Page 44
JH<»r0ijní>Ifit>ií>
mRRCFniDRR
mÖCULEIKR VDRR
0r0wil>feij>i^>
ÞRR ER EITTHURÐ
FVRIR RLLH
SUNNUDAGUR 23. JUNÍ 1974
um efnahagsmál:
o O
Stöðvun verðbólgu í áföngum - dregið
úr útgiöldum - liamlað gegn óhófsþenslu
Aðkoma vinstri stjórnar
Þegar vinstri stjórnin tók við völdum á
miðju ári 1971, hafði þjóðarbúið náð sér
eftir mikil áföll vegna aflabrests og verð-
falls sjávarafurða. Viðskiptajöfnuður var
hagstæður og gjaldeyrissjóður tryggur.
Afkoma atvinnuveganna var góð og atvinna
næg. tekjuafgangur var á fjárlögum. Raun-
tekjur almennings höfðu farið ört vaxandi.
Jafnframt hafði tekizt að halda verðbólgu
það mikið í skefjum, að hækkun fram-
færslukostnaðar nam ekki meiru en 9% frá
miðju ári 1970 til miðs árs 1971.
Þetta hagstæða ástand efnahagsmála var
árangur af markvissu starfi viðreinsar-
stjórnarinnar allan áratuginn á undan. Sú
stjórn hafði að mestu leyti leyst atvinnulíf
og viðskipti úr viðjum hafta, bóta og
margvfslegra annarra ríkisafskipta. Á
grundvelli frjálsra athafna hafði þjóðar-
framleiðsla aukizt mun hraðar en áður,
þrátt fyrir áföll af völdum aflabrests og
verðfalls. Jafnframt höfðu tekjur almenn-
ings vaxið í fullu samræmi við vöxt þjóðar-
tekna. Stefnt hafði verið að meiri fjöl-
breytni og um leið meiri stöðugleika í
atvinnulífi með hagnýtingu orkulinda, efl-
ingu nýrra atvinnugreina og inngöngu Is-
lands í Fríverzlunarsamtök Evrópu. Jafn-
framt hafði tekizt með samræmdri stjórn
fjármála og peningamála að koma á jafn-
vægi í viðskiptum landsins út á við, byggja
upp gjaldeyrisvarasjóð og endurreisa láns-
traust þjóðarinnar erlendis.
Viðskilnaður vinstri stjórnar
Eftir tæplega þriggja ára setu vinstri
stjórnar blasir nú við önnur mynd. Sam-
kvæmt skýrslum, sem ríkisstjórnin sjálf
hefur látið frá sér fara, er sannkallað
hættuástand framundan. Sjávarútvegurinn
stendur frammi fyrir stórkostlegum
rekstrarörðugleikum og rekstrargrund-
völlur útflutningsiðnaðar er I þann veginn
að bresta. Mikill halli hefur verið á við-
skiptajöfnuði, og búizt er við, að sá halli
þrefaldist á milli áranna 1973 og 1974 og nái
8 milljörðum króna. Gjaldeyrisforði hefur
minnkað um meira en helming á fáum
mánuðum, jafnframt því sem erlendar
skuldir hafa aukizt meira en nokkru sinni
áður. Greiðsluhalli ríkissjóðs á árinu 1974
er áætlaður 2 milljarðir og fjárvöntun opin-
berra sjóða nemur enn hærri upphæðum.
Auk þess nemur aukning niðurgreiðslna
rúmum 2 milljörðum króna á ársgrundvelli
og fjöldi ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja er
rekinn með miklum halla. Verðbólga hefur
farið hraðvaxandi með ári hverju, og búizt
er við, að hún nemi 40 til 50% á þessu ári.
Þessi þróun stefnir atvinnuöryggi, láns-
trausti þjóðarinnar erlendis og hagvexti í
framtíðinni I bráða hættu. Samkvæmt mati
rfkisstjórnarinnar sjálfrar er efnahags-
vandinn, sem við er að fást, svo mikill og
margþættur, að hann verður ekki leystur
nema með róttækum alhliða ráðstöfunum. 1
stað slíkra ráðstafana hefur ríkisstjórnin
nú fyrir kosningar gripið til bráðabirgða-
aðgerða, sem hljóta að auka vandann enn
meir, þegar fram í sækir, auk þess sem þær
þegar hafa valdið atvinnulífi og viðskiptum
miklu tjóni.
Allt hefur þetta gerzt á mestu uppgangs-
tímum, sem orðið hafa í útflutningsgrein-
um landsmanna, þegar verðlag útflutnings
hefur verið hærra og aukizt hraðar en
nokkru sinni áður. Orsök þessara snöggu
umskipta frá velgengni til ófarnaðar er
mistök, stjórnleysi og ábyrgðarleysi vinstri
stjórnarinnar. Eins og áður, þegar vinstri
stjórnir hafa setið að völdum, hefur valda-
brölt einstakra flokka og ráðherra setið I
fyrirrúmi. öll viðleitni til samræmdrar
stjórnar efnahagsmála hefur verið látin
lönd og leið. Ríkisútgjöld hafa verið marg-
földuð, sérhver sjóður, sem til hefur náðst,
hefur verið tæmdur, og erlendar lántökur
hafa verið stórauknar frá ári til árs. Sú
þensla, sem af þessu og verðhækkunum
útflutnings hefur leitt, hefur gert þróun
launa- og verðlagsmála óviðráðanlega og á
stuttum tíma grafið undan afkomu atvinnu-
Framhald á bls. 43
Togari Skagstrendinga
landar ekki heima
Skuttogarinn Arnar frá
Skagaströnd landaði í
fyrradag um 100 tonnum á
Suðureyri við Súganda-
fjörð, en ekki I heimahöfn
eins og venjan er. Að sögn
Sveins Ingólfssonar fram-
kvæmdastjóra útgerðar-
innar hefur útgerðin ekki
fengið greitt fyrir þann
fisk sem landað hefur verið
hjá frystihúsinu að undan-
förnu og því hafi ekki verið
annað að gera en að landa
þar sem fæst borgað fyrir
fiskinn. Sagði hann, að
sjómenn væru mjög
óánægðir með að fá ekki
borgað þegar landað væri
og sömuleiðis væri það
nauðsyn fyrir útgerðina að
fá gert upp, en frystihúsið
mun nú skulda útgerðinni
um fjóra og hálfa milljón
króna.
frystihússins á Skagaströnd verði
atvinnulaust á meðan ekki berst
hráefni til frystihússins. Sagði
Sveinn Ingólfsson, að hann teldi
betra að togarinn héldi áfram og
frystihúsið stöðvist heldur en að
bæði fyrirtækin stöðvist vegna
greiðsluþrots frystihússins.
Akranesferjan
kemur í dag
VON er á nýju Akranesferjunni
til Akraness um kl. 1 f dag. Skipið
sem er átta ára gamalt og mun
bera nafnið Akraborg kemur frá
Þýzkalandi og er hlaðið dráttar-
vélum en að auki með einn
steypubfl um borð. Þetta er bíl-
ferja, sem taka mun 40 bfla á
lokað dekk og mun sigla milli
Reykjavfkur og Akraness á um
það bil þremur stundarfjórðun-
um. Gamla Akraborgin hefur sem
kunnugt er verið seld til Skot-
lands. Nýja ferjan kemur til
Reykjavfkur f fyrsta sinn á mánu-
dag.
Má gera ráð fyrir að starfsfólk
Óttazt að tveir
hafídrukknað
1 FYRRINÓTT hvoldi bát á Hft-
arvatni á Snæfellsnesi og er talið,
að tveir menn, sem í honum voru,
hafi drukknað.
Rétt áður en blaðið fór í prent-
un í gær var haft samband við
sýslumannsembættið í Borgamesi
og þessi frétt staðfest en lík
mannanna höfðu þá ekki fundist.
Haft var samband við Slysa-
varnafélagið um kl. 6.30 í gær-
morgun og tilkynnt, að slys hefði
orðið við Hítarvatn. Slysavarna-
félagið varðist allra frétta um
slysið í gær. Þyrla Slysavarna-
félagsins var send á vettvang til
leitar og sömuleiðis froskmenn og
lögregla úr Borgarnesi, Akranesi
og Stykkishólmi. Þá fóru björgun-
arsveitir einnig til leitar, en hún
hafði ekki borið árangur, þ?|§F
blaðið fór í prentun f gær, og ekki
var vitað um nöfn hinna týndu.
Þrymskviða
í síðasta sinn
Sfðustu sýningar Þrymskviðu,
óperu Jóns Ásgeirssonar, verða í
kvöld og þriðjudagskvöld í Þjóð-
leikhúsinu. Óperan hefur vakið
mikla athygli og hefur aðsókn
verið góð og undirtektir
áhorfenda frábærar.
Gamli os nýi 'ffmiiín mælti kalla þt ssa niyntl. því á
m>mliuni má sjá einn nýjasta skulfogara lands-
manna BJart NK 121 im elzta <>« <>ina kútferinn f t*ÍKu
iandsmanna. I»aó or Sigurfarí. s<*m nú hefur aftur
vnrió k»*ypim nl \kr.nn-ss 11 á f æn-' jum. Mvntlinvr
J '/! '5?