Morgunblaðið - 28.08.1974, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 28.08.1974, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 28. ÁGUST 1974 5 öpaðl hver húrra, sem CHARLES Lindbergh, bandaríski flugkappinn heimskunni, sem lézt í fyrradag 72 ára að aldri, heim- sótti ísland árið 1 933 ásamt konu sinni. er hann var að kanna flug- leiðina yfir N-Atlantshaf fyrir bandaríska flugfélagið Pan American, en Lindbergh var um áratugaskeið tæknilegur ráðgjafi þess og átti sæti f stjórn þess. Lindberghshjónin lentu á ytrihöfn- inni i Reykjavík að kvöldi 15. ágúst 1933 og dvöldust hjónin hér i 8 daga. Komu Lindberghs hafði verið beðið með mikilli eftir- væntingu i Reykjavik og við skul- um nú fletta upp i Morgunblaðinu 16. ágúst 1933 og fylgjast með frásögn blaðsins af komunni. Lind- bergh kom hingað frá Angmagsa- lik á Grænlandi. .. Múgur og margmenni þusti niður til hafnarinnar, er það frétt- ist að til hans sæist, og var þar margt fólk fyrir er beðið hafði komu flugkappans mikla alllengi. Var nú eftir að vita hvar hann myndi setjast. Hafnarbáturinn var til taks inni á höfninni til þess að fara út jafn- skjótt og hann settist. Þar var hafnarstjóri, settur borgarstjóri og forseti bæjarstjórnar, bæjarlæknir og Steingrímur Jónsson raf- magnsstjóri, en hann er umboðs- maður hér fyrir Pan American Airways. Er Lindbergh flaug hér fyrst yfir höfnina var hann allhátt i lofti. Skip öll, er i höfninni voru, en þau voru allmörg, þeyttu eimpipur með svo miklum gauragangi, að fólk fékk lokur fyrir eyrun. En fólkið þusti fram og aftur til að finna sér stað, þarsem væri útsýni svo að hægt væri að fylgjast með fluginu. Nú tók Lindbergh að fljúga yfir bæinn inn yfir Sund og suður yfir Skerjafjörð. Var vindur farinn að lægja svo menn bjuggust jafnvel við að hann myndi setjast á ytri-höfnina. En er hann hafði sveimað yfir bæinn og nágrennið upp undir það fjórðung stundar. renndi hann sér niður á Viðeyjarsund. austanhalt við eyna í skjóli við hana. Motorbátur úr Viðey kom brátt til hans og bátskekta frá Vatna- görðum, en þar var Grierson flug- maður í gær og sá hann til ferða Urpa falngað i gner. iirxlhr^iH ImjjRí v'}H siani blfÚ VÍ(' VifttíV. 0* ípAl:: þaa I j Frétt Mbl. af komunm 16. ágúst 1933. belur gal fi Frásögn Morgunblaðsins af komu Lindberghshjönanna til Reykjavfkur 16. ágúst 1933 Lindberghs og fór til hans. Renndi Lindbergh sér nú upp undir Viðeyjarbryggjur og batt þar vél sina við dufl. Kom nú hafnarbáturinn héðan innanað. Var Lindbergh boðið að koma i honum til bæjarins. En hann óskaði heldur eftir þvi að fara í land á Vatnagörðum, til að athuga hvort þar væri nægilega gott uppsátur fyrir flugvélina og sjá flugvélaskálann. Fór nú hafnarbáturinn með þau hjónin þangað. HÚRRA! En er þangað kom var kominn fjöldi fólks úr Reykjavik i einum 50—60 bilum. Þyrptist fólkið þarna niður í flæðarmál og niður á bryggju. Hrópaði hver húrra. sem betur gat til að fagna komu hinna frægu fluggesta. En troðningurinn var svo mikill, að úr athugun á staðháttum gat ekki orðið að þvi sinni. Fóru Lindberghshjónin í bíl, sem þar beið með Steingrími raf- magnsstjóra og Sigurði Jónssyni flugmanni. Óku þau inn á Suður- landsbraut og slðan inn I Sog og fram i Vatanagörðum aftur, en það var mannfjöldinn þaðan far- inn. Þaðan kvaðst Lindbergh vilja fara aftur út i flugvél sina. Akkeri vantaði hann stærra, en hann hafði í upphafi fengið. Og við flug- vélina vildu þau ekki skilja meðan hún væri ekki i tryggari höfn. Kváðust þau hjón hafa gist flestar nætur i flugvélinni síðan þau komu til Grænlands. En I nótt bjóst Lindbergh við að fara með flugvélina inn á innri höfn. Óskaði hann ekki eftir neinni aðstoð við það. Er af öllu þessu sýnilegt. að þau hjón eru til þess útbúin að fara ferða sinna um óbyggðir og bjargast upp á eigin spýtur." FÁMÁLL Það kemur fram I frásögnum Morgunblaðsins af dvöl hjónanna hér á landi, að Lindbergh hefur verið fámáll maður og litið viljað ræða við fréttamenn, en þó hefur blaðamanni Mbl. einu sinni tekizt að ná tali af flugkappanum, en af fyrirsögninni á fréttinni „Lind- bergh verst allra frétta um flug sitt" má ráða, að hann hefur ekki verið margmáll. Lindbergh harmar þó i samtalinu að hann skuli ekki hafa getað lent á höfninni, kvöld- ið. sem hann kom. Hann hafi séð hinn mikla mannfjölda. en á ytri- höfninni hafi verið úfinn sjór og ekki hægt að setjast á innri höfn- ina vegna allmargra skipa, sem þar voru. Sagðist Lindbergh ekki hafa getað lækkað flugið nægi- lega mikið vegna skipanna, að hann gæti hafa setzt innan hafnar- garða. Blaðamaður spurði Lind- bergh hvernig honum litist á flug um Grænland í framtíðinni, en hann vildi ekkert um það segja. Það er forvitnilegt i dag, 41 ári eftír að Lindbergh var hér á landi, að heyra hvað hann hafði að segja um möguleikana á flugi yfir N- Atlantshaf og þátt fslands i þvi. Þetta kemur fram i grein, sem rituð er af blaðamanni Mbl. og er sýnilega byggð á ummælum Lind- berghs við ýmsa aðila hér á landi um flugmálin. TVO FLUGVELLI ÞARF Í greininni segir: „Á næstu tveimur árum er hægt að koma i verk öllum þeim undirbún- ingi, sem gera þarf, áður en flug- Lindberghshjónin koma frá stjórnarráðinu, þar sem þau drukku te með Ásgeiri Ásgeirssyni for- sætisráðherra. Flugvél Lindberghs í Reykjavík. Kona hans aftar viö loftskeytatækin. Mbl. lýsir flugvélinni, sem afar- hraðfleygri vél af Amfibiegerð. ferðir byrja þessa leið, gera flug- hafnir og þess háttar. Hér á ís- landi þurfa flughafnir að vera a.m.k. tvær önnur norðanlands og hin sunnanlands, liklegast hér i Reykjavik. Loftskeytastöðvar þarf að reisa nokkrar í landinu til þess að flugmenn geti þaðan fengið nauðsynlegar veðurfregnir. Lend- ingarstaðir þurfa að vera nokkrir nálægt sama stað svo flugmenn geti valið um hvar þeir setjast eftir því hvernig veðri hagar hverju sinni. En þetta er aðeins hin tekn- iska hlið málsins. Fjárhagshliðin er þessi: Hvernig er hægt að láta flug- samgöngur þessa leið bera sig i samkeppni við skipasamgöngur yfir Atlantshaf. Sem stendur er póstur fluttur sjóleiðina yfir um á 4—5 sólarhringum. Hve fljótfarin verður flugleiðin? Vinnst svo mikill timi, að timasparnaðurinn á flugleiðinni geti borið flugferða- kostnaðinn? Þetta er spurning, sem Lindbergh var ekki viðbúinn að svara og sem ekki verður svar- að nema að undangenginni ná- kvæmari rannsókn en enn þá hefur verið gerð." TE MEÐ FORSÆTISRÁÐ- HERRA Þá daga, sem Lindberghshjónin dvöldust hér I Reykjavik, höfðu þau fremur hægt um sig, en skruppu þó i smá kynnisferðir út fyrir bæinn og sátu boð Ásgeirs Ásgeirssonar þáverandi forsætis- ráðherra. Frú Lindbergh heimsótti einnig Þingvelli i fylgd með for- sætisráðherrafrú, Oóru Þórhalts- dóttur. Fylgdarskip Lindberghs, Jelling, kom til Reykjavikur tveim- ur dögum á eftir flugkappanum og var flugvél hans tekin um borð i skipið og hún yfirfarin af flug- Framhald á bls. 16 Útsala Útsala fl Blússur Tíbrá Buxnasett Peysur Kjóldraktir Náttkjólar Pils Náttföt Samkvæmisbuxur Tækifærismussur Buxur, ýmsar tegundir Tibra, Laugavegi 19 :sala Útsala

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.