Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974 Slökkviliðið var í gærmorgun kvatt að Þingholtsstræti 11. Þar var þð um Iftinn eld að ræða og skemmdir ekki verulegar, en vegna þess hversu mikið er í götunni af gömlum timburhúsum töldu slökkviliðsmenn öruggara að mæta þar fylktu liði, eins og sjá má af þessari mynd. (Ljðsm. Mbl. ól. K. M.). Aðalmálið byggða- áætlun Vesturlands Aðalfundur Samtaka sveitarfélaga 1 Vesturlandskjördæmi hefst í dag Aðalfundur Samtaka sveitarfé- laga f Vesturlandskjördæmi er haldinn í Munaðarnesi f dag og á morgun. Fundurinn hefst kl. 2 f dag með fundarsetningu og kosn- ingu starfsmanna fundarins. Ávörp við setninguna flytja Gunnar Thoroddsen félagsmála- ráðherra og Páll Lfndal, for- maður Sambands ísl. sveitarfé- laga. Alexander Stefánsson, for- maður samtakanna, flytur skýrslu stjórnar og Guðjón Ingvi Stefáns- son framkvæmdastjóri skýrir reikninga og fjárhagsáætlun sam- Sambandsstjórn ASÍ kvödd saman síðast takanna. Aðalefni fundarins að þessu sinni er byggðaáætlun fyrir Vesturland. Um það efni verða flutt fimm framsöguerindi, þar af þrjú af sérfræðingum áætlunardeiidar Framkvæmdastofnunar ríkisins, þeim Tómasi H. Sveinssyni, við- skiptafræðingi sem ræðir al- mennt um byggðaþróunaráætlun Vesturlands og samgöngur þar; Sigurði Gústafssyni hagfræðingi sem ræðir um mannfjölda og mannaflaþróun, atvinnusamsetn- ingu og tekjumyndun á Vestur- landi í samanburði við aðra lands- hluta og landsheild; Magnúsi G. Björnssyni, skipulagsarkitekt, sem ræðir um húsnæðisáætlanir og bygginga- og skipulagsmál sem þætti í byggðaþróun; svo og mun Njörður Tryggvason verkfræð- ingur á Akranesi flytja hug- leiðingar um orkumál á Vestur- Framhald á bls. 24. nóvember Eigendur Hamraness °g Haukaness töpuðu málunum EIGENDUR útgerðarfélagsins Vals sf. f Hafnarfirði hafa nú nýverið tapað tveimur málum, sem þeir höfðuðu fyrir Sjó- og verzlunardómi út af tvenns konar skipssköðum — á Hamranesi og Haukanesi. Námu skaðabóta- kröfur útgerðarfélagsins samtals um 40 milljónum króna út af þessum tveimur málum. I öðru tilfellinu höfðuðu eig- endur Hamraness mál gegn Al- Gjöf til Oryrkja- bandalagsins NILS E. Nilsen símamaður, færði nýlega hússjóði öryrkjabanda- lags tslands fimmtíu þúsund krónur að gjöf. Fé þetta rennur til bygginga bandalagsins að Hátúni 10. Háhyrningarn- ir misstu af málsverðinum FJÓRIR reknetabátar lönduðu á Höfn f Hornafirði f gær. Anna var með 24,5 tunnur, Steinunn 62 tunnur, Jóhannes Gunnar með 45 tunnur og Akurey með 37 tunnur. Reknetabátarnir byrjuðu reknetaveiðarnar aftur I byrj- un vikunnar, en hafa verið blessunarlega lausir við hrell- ingar af hálfu háhyrninga, eins og í fyrra sinnið. Að vísu komu þeir að skipunum f eitt skiptið þegar þau voru að Ijúka við að draga og töldu skipverjar að hvalirnir hefðu misst af góðum málsverði. Þessi mynd var tekin á háhyrningaslóðum á dögunum en hins vegar ber mönnum ekki saman um hvort þarna fari há- hyrningur, höfrungur eða hnýsa, en flestir hallast þó að hinu síðast nefnda. En fallega stekkur skepnan hvað sem því líður. mennum tryggingum til greiðslu vátryggingar á togaranum, sem sökk úti á rúmsjó og voru atvik þess atburðar mjög umdeild. Eig- endur kröfðust 17.300.000 kr. en varakrafa þeirra nam um 15 millj- ónum króna. Tryggingafélagið neitaði hins vegar að greiða vá- tryggingarupphæðina vegna þess að það taldi vafasamt með hvaða hætti togarinn sökk. Magnús Thoroddsen borgar- dómari kvað upp dóm i máli þessu og sýknaði Almennar tryggingar af öllum kröfum stefnenda. Eins var tryggingafélagið sýknað af kröfum tveggja veðhafa, Bæjarút- gerðar Hafnarfjarðar og Vél- smiðju Hafnarf jarðar, sem gerðust meðgönguaðilar í málinu á þeirri forsendu að skýrt væri tekið fram í tryggingarskírtein- inu að tryggingin væri fyrir út- gerðarfélagið Val sf. Geta má þess, að á sínum tíma fór fram ítarleg rannsókn á þeim atvikum er leiddu til þess að Hamranes sökk og var málið sent saksóknara til ákvörðunar, en embættið sá ekki ástæðu til að höfða mál gegn eigendum skips- ins. 1 hinu málinu stefndu forráða- menn Vals sf. Hafnarfjarðarhöfn vegna atvik,a er leiddu til þess að Haukanes slitnaði þarfrá bryggju I óveðri og rak upp í f jöru. Krafa forráðamanna sf. nam röskum 20 milljónum króna, en Hafnar- fjarðarhöfn var sýknuð af skaða- bótakröfum stefnenda. Hins vegar liggur nú fyrir Sjó- og verzl- unardómi mál sem forráðamenn Vals sf. hafa höfðað gegn trygg- ingafélaginu út af skemmdum á Haukanesi í umræddu tilfelli. MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Islands hefur samþykkt að boða til fundar sambandsstjórnar ASl föstudaginn 29. nóvember 1974. Fundurinn mun verða haldinn að Hótel Loftleiðum. Á dagskrá fundarins verða m.a. eftirfarandi mál: Kjaramálin, fræðslumál, ÁI- þýðuorlof, fjármál sambandsins, endurskoðun orlofslaga og fleira. Aðildarsamtökum ASÍ hefur nú verið sent boð um þennan fund sem hefst eftir tæplega mánuð. 1 sambandsstjórn ASÍ eru nokkrir tugir fulltrúa allra aðildarsam- taka sambandsins auk mið- stjórnar ASl og eru þessir fundir haldnir reglulega á hverju ári á milli ASÍ-þinga sem nú eru haldin f jórða hvert ár. íslenzk tunga I FORYSTUGREIN Mbl. í gær, sem fjallaði um íslenzka tungu, þurfti endilega að koma ein af þessum leiðinlegu prent- villum, sem hækka blóðþrýst- inginn í málvöndunarmönn- um. Þar stendur: „Um þessi orð prófessorsins farast Helga Hálfdanarson orð í grein hans i Mbl. í dag“ — en á auðvitað að vera Hálfdanarsyni. Þá hef- ur fallið niður smáorðið svo, eins og sjá má af samhenginu. Við böl af þessu tagi mega blaðamenn búa og þykir víst ekki umtalsvert, en á þetta er samt bent vegna fyrirsagnar forystugreinarinnar: Islenzk tunga. Giftusamleg björgun Port Vale af strandstað: Norskur dráttarbátur mun draga togarann til Englands NORSKUR dráttarbátur var væntanlegur til Seyðisfjarðar í gærkvöldi og mun draga Port Vale til Grimsby, en togarinn var dreginn af strandstað við mynni Lagarfljóts um miðnætti í fyrri- nótt af skipum Landhelgisgæzl- unnar — Ægi og Árvakri. Morgunblaðið náði f gær tali af Burreli, fulltrúa tryggingarfélags brezka togarans, og kvaðst hann vonast til þess að norski dráttar- báturinn héldi af stað til Bret- lands eftir einn dag eða svo. Hann kvað skemmdir á skipinu lítt kannaðar enn, en kvaðst helzt ótt- ast að tjón hefði orðið á ratsjá skipsins. Botn skipsins hefði enn ekki verið kannaður af frosk- mönnum. Burrell kvaðst hafa ver- ið á strandstað þegar skipið náðist á flot, „þetta var töluvert ferðalag og merkileg lífsreynsla að verða vitni að björgun togarans.“ Þá náði Morgunblaðið tali af Guðmundi Kjærnested, skipherra á Ægi, sem stjórnaði björgunarað- gerðum ásamt Höskuldi Skarp- héðinssyni, skipherra á Árvakri. Guðmundur kvað björgunina ekki hafa verið mjög örðuga viðfangs. Að vísu hefði verið töluvert brim og mennirnir sem fóru á milli togarans og varðskipanna hefðu blotnað töluvert, því að ekki var landgengt út í togarann. Hins veg- ar notuðu varðskipin flotstreng til að toga í togarann, sem gaf góða raun og auk þess var þyrla til taks um borð i Ægi ef á þyrfti að halda. Að sögn Guðmundar skipherra komu varðskipin á vettvang um kl. 10 á miðvikudagsmorgun og var þá fljótlega byrjað að toga í Port Vale. Hins vegar slitnaði taugin þegar skipinu hafði verið Framhald á bls. 24. Sjóslysanefnd til Hvammstanga MAÐURINN sem fórst á rækju- bát frá Hvammstanga hét Harald- ur Magnússon og var 61 árs að aldri. Hann átti lögheimili f Vest- mannaeyjum en var búsettur á Hvammstanga hjá venslafólki sfnu frá þvf eftir gos. Hann var einhleypur og barnlaus. Rannsóknarnefnd sjóslysa og starfsmaður Siglingamálastofn- unarinnar fóru f gær til Hvamms- tanga til að kanna tildrög slyssins og hugðust um leið kanna allar aðstæður um borð f rækjubátum sem gera út frá Hvammstanga og Blönduósi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.