Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 38
Þróttur 25 ára
Stúlkurnar hafa alltaf tekið virkan þátt f félagsstarfinu. Þessar urðu Reykjavfkur- og Islandsmeistarar í
handbolta mörg ár f röð. Þarna voru þær komnar, þegar félagssvæðið var formlega tekið í notkun, og
helltu uppá könnuna fyrir félagsmenn og gesti. —
Knattspyrnufélagið Þróttur var
stofnað 5. ágúst 1949 og átti þvf
aldarfjórðungsafmæli fyrir
skömmu. Tildrögin að stofnun
félagsins voru þau, að tveimur
mönnum, — öðrum fremur, þótti
ástæða til þess að skapa félags-
lega aðstöðu fyrir unga drengi á
Grfmsstaðaholtinu og f Skerja-
firðinum. Það voru þeir Halldór
Sigurðsson og Eyjólfur Jónsson,
sem báðir voru búsettir á Holt-
inu. Knattspyrnufélag hafði þá
ekki verið stofnað í Reykjavfk
sfðustu fjóra áratugina, eða þar
um bil. Stofnendur félagsins voru
39 ungir menn, og var Halldór
kosinn fyrsti formaður. Fljótlega
fjölgaði félagsmönnum, og strax
fyrstu árin var byrjað að keppa f
yngstu aldursflokkunum. Aðal-
athafnasvæði félagsins var
knattspyrnuvöllurinn á Gríms-
staðaholtinu, sem nú er ekki leng-
ur til. — Nokkrum árum eftir að
félagið var stofnað, fékk það inni
hjá Ungmennafélagi Grfmsstaða-
holts f gömlum bragga, sem stóð
þar sem uppsátrið var Ægisfðu er.
Þar var f mörg ár haldið uppi
blómiegu félagslífi, þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. —
Árið 1952 sigraði flokkur frá
Þrótti í fyrsta skipti í knatt-
spyrnumóti. Það var haustmót 4.
flokks. Meðal þeirra, sem þá voru
f liðinu var núverandi formaður
félagsins. —
Meistaraflokkur var fyrst með í
móti árið 1953, og við deildaskipt-
inguna var Þróttur í fyrstu deild.
Síðan hefur Þróttur verið f fyrstu
deild 1956, 1959, 1964 og 1966. —
Handknattleikur hafði verið
iðkaður innan félagsins í mörg ár,
eða allt frá árinu 1951, en 1968
voru ný lög samþykkt fyrir Þrótt,
og þar með var félaginu skipt í
tvær deildir, knattspyrnudeild og
handknattleiksdeild. Þar til í ár
hafa deildirnar bara verið tvær,
en í sumar var stofnuð blakdeild.
Enda þótt ekki hafi verið sér-
deildir fyrir aðrar íþróttagreinar
þá hefur um langt skeið verið
tefld skák innan félagsins, spilað
bridge, og margir ágætir skauta-
menn hafa verið í Þrótti. —
Forystumenn félagsins hafa all-
ir átt sér draum. Hann er að eign-
ast samastað fyrir félagið og við-
unandi aðstöðu fyrir félagsmenn.
Segja má, að síðustu tuttugu árin
hafi verið háð þrotlaus barátta
fyrir því meðal forystumanna
félagsins og velunnara, að sá
draumur rættist. —
Á fimmtán ára afmæli Þróttar
afhenti þáverandi borgarstjóri í
Reykjavík, Geir Hallgrímsson,
félaginu athafnasvæði við
Sæviðarsund, en þá hafði verið
ákveðið að flytja starfsemina af
Grimsstaðaholtinu og Skerja-
fjarðarsvæðinu, þar sem vagga
félagsins stendur. Síðan hef-
ur verið unnið sleitulaust að
þvi að búa í haginn fyrir félags-
menn á nýja svæðinu, þótt sum-
um hafi þótt miða hægar en
skyldi. 1 júní 1969 var knatt-
spyrnuvöllur félagsins þar form-
lega tekinn í notkun, og nú er á
svæðinu einnig allstórt grassvæði,
og verið er að leggja síðustu hönd
á gerð handknattleiksvallar. — 1
litlu húsi, eldgömlu, eru tvö
búningsherbergi með böðum, og
litið herbergi til fundahalda og
annarrar félagsstarfsemi.
Reynt hefur verið að leggja
rækt við yngstu félagsmennina,
og hefur ungum knattspyrnu-
mönnum félagsins gengið vel í
keppni við jafnaldra sina í öðrum
félögum. Nefna má í þessu sam-
bandi, að þeir piltar, sem nú eru í
3. aldursflokki, hafa flestir haldið
hópinn frá því þeir voru i 5.
fiokki, og á þessum árum hafa
þeir sigrað í sjö mótum. — Það,
sem einkum háir starfseminni nú,
er vöntun á hæfum leiðtogum og
forystumönnum. — Þeir, sem nú
skipa stjórn félagsins, og nefnd-
ir, hafa flestir starfað að fram-
gangi Þróttar í mjög mörg ár, —
eða í allt að tuttugu ár, og er það
ósk þeirra og von, að fleiri leggi
hönd á plóginn í framtíðinni. —
Stjórn Þróttar tekur á móti
gestum, — félagsmönnum og vel-
unnurum, að Hótel Sögu klukkan
15 á morgun, og annað kvöld verð-
ur afmælisfagnaður á sama stað.
Það er von stjórnarinnar, að sem
flestir sjái sér fæst að koma. —
Núverandi formaður Þróttar er
Guðjón Oddsson.
D-dagur brezkrar knattspyrnu:
••
011 landsliðin
fyrrakvöld
BREZKU knattspyrnulióin fengu
mikla uppreisn í fyrrakvöld, en
þá léku þau öll leiki og unnu. Eins
og skýrt var frá í Morgunblaðinu í
gær vann England Tékkóslóvakiu
3—0 á Wembley, Skotar unnu
Austur-Þjóðverja í vináttuleik i
Glasgow, einnig 3—0, Wales
sigraði Ungverjaland 2—0 i leik i
Cardiff, Norður-írar sigruðu Svía
i landsleik í Stokkhólmi 2—0 og
Irland sigraði Sovétríkin i lands-
leik, sem fór fram í Dublin, 2—0.
Þarf engan að undra þótt ensku
dagblöðin drægju fram sitt
stærsta fyrirsagnaletur í gær-
morgun, og þar hljóðuðu fyrir-
sagnirnar þannig: Brezka knatt-
spyrnan enn sú bezta, D-dagur
brezkrar knattspyrnu.
Sá leikur, sem vakti mesta
athygli, var viðureign Englend-
inga og Tékka á Wembley.
Tékkar hafa náð mjög góðum ár-
angri í sumar, leikið beittan
sóknarleik, skorað mikið af mörk-
Keppir á NM
EINN íslendingur, Arni Þór
Helgason, KR, keppir á Norður-
landameistaramóti unglinga í
lyftingum, sem fram fer í Dan-
mörku nú um helgina. Mun Árni
keppa annaðhvort í léttþunga-
vigtarflokki eða milliþungavigtar-
flokki. Á hann mjög góða mögu-
leika til sigurs í mótinu — hefur
náð betri árangri en flestir keppi-
nautar hans, sem taka þátt í mót-
inu.
um og reyndar einnig fengið tölu-
vert af þeim á sig. Þá voru margir
spenntir að sjá hvernig hinum
nýja landsliðsþjálfara og einvaldi
í Englandi, Don Revie, myndi
takast til í sínum fyrsta leik sem
slíkur, en Englendingar binda
miklar vonir við að honum takist
að ná enska knattspyrnulands-
liðinu upp úr þeirri lægð, sem það
hefur óneitanlega verið í að
undanförnu.- Og þeir 86 þúsund
áhorfendur, sem mættu á
Wembley í fyrrakvöld, fengu
óskir sínar uppfylltar. Enska liðið
lék þennan leik mjög vel — hinir
fljótu og hættulegu sóknarmenn
Tékkanna komust ekkert áleiðis í
gegnum sterka vörn Englending-
anna, og allur leikur Englendinga
þótti miklu betur skipulagður.
Sannkallaður Revie-svipur á
honum.
Sigur Wales yfir Ungverjum
kom einnig mjög á óvart, en
Walesbúar höfðu tapað fyrir
Austurríkismönnum 1—2 fyrr I
þessari keppni. Ungverska liðið
er þekkt fyrir góðan og harðan
varnarleik, en það stóðst Wales-
búunum alls ekki snúning í leikn-
um í Cardiff. Það eina, sem olli
Walesbúum vonbrigðum, var að
aðeins 8.445 áhorfendur sáu
hann.
39.445 áhorfendur voru hins
vegar að leik Skotlands og A»
Þýzkalands í Glasgow. Þarna var
um vináttuleik að ræða, en aðeins
í orði. Á borði var barizt af mikilli
grimmd og hörku og þrír ieik-
unnuí
menn fengu bókun — færri en
það verðskulduðu. Það voru Þjóð-
verjarnir Kische og Kreische og
Skotinn Joe Jordan, sem voru
færðir í bækur dómarans.
Skotar voru, sem kunnugt er,
eina liðið, sem ekki tapaði leik í
lokakeppni heimsmeistarakeppn-
innar í knattspyrnu í V-Þýzka-
landi, en ekki tókst þó liðinu að
komast í undanúrslit keppninnar.
Þeir voru mun betri aðilinn í
leiknum gegn Þjóðverjum í fyrra-
kvöld, jafnvel þótt fyrirliði liðsins
og aðaldriffjöður þess frá undan-
gengnum leikjum, Billy Bremner,
léki ekki með.
Til að byrja með áttu Þjóð-
verjar þó meira í leiknum og
hetja liðsins frá síðustu heims-
meistarakeppni, Sparwasser, sem
lék nú með eftir frátafir vegna
meiðsla átti tvö upplögð mark-
STJÖRN KKÍ hefur ákveðið að
stofna til firmakeppni og verður
hún með alveg nýju sniði, gjör-
ólfku þvf sem áður hefur þekkzt
hér á landi.
Leikmenn þeir sem skipa lands-
liðshópinn, 20 að tölu, munu taka
þátt f keppninni, sem fer fram á
þann hátt að einn þeirra Ieikur
gegn einum hverju sinni, og fara
leikirnir fram f hálfleik á leikj-
Don Revie — bærileg byrjun.
tækifæri, sem hann misnotaði. Á
32. mínútu skoraði Hutchinson
fyrsta mark Skotanna, Burns
bætti öðru marki við þremur
mínútum síðar og sitt þriðja mark
skoruðu Skotarnir á 75. mínútu
og var það Daglish, sem það gerði.
um 1. deildar keppninnar.
Hver leikur verður leikinn
þannig, að sá sigrar sem verður
fyrri til að skora 20 stig, eða að ná
8 stiga forustu. Þegar leikmaður
(firma) hefur tapað tvfvegis er
hann úr leik.
Fyrirmyndin af þessari keppni
er sótt til Bandaríkjanna, en þar
er keppni með þessu fyrirkomu-
lagi mjög vinsæl.
KRR
AÐALFUNDUR Knattspyrnuráðs
Reykjavfkur verður haldinn f
fundarsal Hótel Loftleiða laugar-
daginn 9. nóvember og hefst kl.
13.30.
Grótta
STOFNUÐ verður sérstök hand-
knattleiksdeild hjá Iþróttafélag-
inu Gróttu á Seltjarnarnesi
laugardaginn 2. nóvember.
Verður stofnfundurinn haldinn f
anddyri Iþróttahúss Seltjarnar-
ness og hefst kl. 14.00.
Glímuæfingar
Glímuæfingar Víkverja verða í
íþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar
Lindargötu 7 — minni salnum —
á mánudögum, miðvikudögum og
föstudögum kl. 19.00 — 20.00. Er
á æfingum þessum lögð áherzla á
alhliða líkamsþjálfun; fimi, mýkt
og snarræði.
Miklatúns-
hlaup
Laugardaginn 2. nóvember fer
fram þriðja Miklatúnshlaup Ár-
manns á þessu tfmabiti. Keppnin
hefst kl. 14.00.
Danmörk
vann
Danir sigruðu Norðmenn með
einu marki gegn engu f landsleik
18 ára og yngri f knattspyrnu,
sem fram fór f Kaupmannahöfn
um helgina. Markið skoraði Steen
Tychosen úr vftaspyrnu.
Firmakeppni
með nýiu sniði