Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974 Ásgeir Bjarnason for- seti sameinaðs Ragnhildur Helgadóttir og Þorvaldur Garðar Kristjánsson þingdeildaforsetar Asgeir Bjarnason, forseti Sameinaðs Alþingis og Geir Hallgrfmsson forsætisráðherra. Myndin var tekin f Alþingishúsinu f gær. — Fjárlagafrumvarpið FORSETAKJÖR fór fram f sam- einuðu þingi f gær og báðum þingdeildum. Asgeir Bjarnason (F) var kjörinn forseti sameinaðs þings með 43 atkvæðum. 13 at- kvæðaseðlar voru auðir. Fyrri varaforseti sameinaðs þings var kjörinn Gils Guðmunds- son (Abl) með 43 atkvæðum. 12 seðlar voru auðir. Annar varaforseti var kjörinn Friðjón Þórarinsson (S) með 42 atkvæðum. 13 seðlar voru auðir. Skrifarar í sameinuðu þingi voru kjörnir Jón Helgason (F) og Lárus Jónsson (S). I neðri deild var Ragnhildur Helgadóttir (S) kjörin forseti með 28 atkvæðum. 8 seðlar voru auðir. Fyrri varaforseti deildarinnar var kjörinn Magnús Torfi Olafs- son (SFV) með 30 atkvæðum. Sex seðlar voru auðir. Annar varaforseti var kjörinn Ingvar Gíslason (F) með 26 at- kvæðum. 10 seðlar voru auðir. Skriíarar voru kjörnir Guð- þmgs mundur Garðarsson (S) og Páll Pétursson (F). I efri deild var Þorvaldur Garð- ar Kristjánsson (S) kjörinn for- seti deildarinnar með 14 at- kvæðum. 4 seðlar voru auðir. Fyrri varaforseti var kjörinn Eggert G. Þorsteinsson (A) með 18 atkvæðum. 1 seðill var auður. Annar varaforseti var kjörinn Steingrímur Hermannsson (F) með 13 atkvæðum. Sex seðlar voru auðir. Skrifarar deildarinnar voru kjörnir Steinþór Gestsson (S) og Ingvi Tryggvason (F). Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti efri deildar Alþingis. Framhald af bls. 40 komið er i veg fyrir frekari út- þenslu ríkisbúskaparins og dregið er úr ríkisframkvæmdum. Þetta er skref til að freista þess að hafa hemil á verðbólgunni, draga úr greiðsluhallanum við útlönd og tryggja sem bezt lífskjör almenn- ings. Verðlagsþróunin ásamt ýms- um aðgerðum á sviði ríkisfjár- mála fyrr á þessu ári hafa leitt til bess. að ríkisútgjöld munu fara mjög fram úr áætlun fjárlaga 1974, eins og vikið er að nánar síðar í þessum athugasemdum. Sé heilsársáhrifum sérstakra að- gerða bætt við líklega útkomu árs- ins 1974, má gera ráð fyrir, að útgjöld yrðu i heild 29,1% þjóðar- framleiðslunnar. Fjárlagafrum- varpið gerir ráð fyrir 44,8 millj- örðum króna útgjöldum, en það er 28,7% áætlaðrar þjóðarfram- leiðslu 1975. Þessi niðurstaða er í samræmi við það, að heildarvöxt- ur rlkisútgjalda frá fjárlögum 1974 er innan við hækkun meðal- verðlags á sama tímabili. Magnsamdráttur verk- legra framkvæmda Eins og fram kemur á sérstöku yfirliti, er fylgir þessu frumvarpi, hækka verklegar framkvæmdir rikisins um 1.930,6 m.kr. frá fjár- lögum 1974, eða 33,8%. Þar sem almenn verðlagshækkun hefur á sama tímabili verið 50—55%, er hér I raun um 10—15% magn- minnkun að ræða. Þrátt fyrir þessa lækkun hefur þess verið gætt, að hún komi sem minnst niður á framkvæmdum, sem telja verður mjög brýnar frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Eins og kunnugt er, hefur rfkt mikið þensluástand í fram- kvæmdum í landinu, sem m.a. hefur bitnað á útflutningsat- vinnuvegum þjóðarinnar, og er hér gerð tilraun til að hamla gegn því ástandi. Sú magnminnkun ríkisframkvæmda, sem hér um ræðir, ætti þó engan veginn að valda slíkum samdrætti, að leiði til ónógrar atvinnu, enda er það eitt af meginmarkmiðunum að tryggja næga atvinnu. Fjárhagsaðstaða ríkissjóðs styrkt Þessi aðhaldssemi í ríkisfram- kvæmdum skapar svigrúm til þess að styrkja fjárhagsstöðu ríkissjóðs á árinu 1975, en það er eitt brýnasta verkefnið I fjármál- um ríkisins. Yfirdráttarskuld ríkissjóðs I Seðlabankanum verð- ur að likindum um einn milljarð- ur króna við næstu áramót, og er i frumvarpinu gert ráð fyrir, að 250 m.kr. þeirrar skuldar veröi greiddar á árinu 1975. Hér er þó vart nóg að gert, og verð- ur þess freistað við meðferð frumvarpsins á þingi að hækka þessa endurgreiðslu verulega. Þá koma til endurgreiðslu fyrstu spariskírteinin, sem útgefin voru 1964, og er gert ráð fyrir 500 m.kr. endurgreiðslu úr ríkissjóði, en 215 m.kr. með endurútgáfu skír- teina. Á sama hátt væri æskileg- ast að öll endurgreiðslan kæmi úr ríkissjóði. Þessar aðgerðir til að létta á skuldabyrði ríkissjóðs munu jafnframt hafa umtalsverð áhrif til að stuðla að efnahagslegu jafnvægi í víðari skilningi, en bæði verðlagsþróunin og við- skiptastaðan gagnvart útlöndum krefjast þess, að meiri efnahags- jöfnuði en ríkt hefur verði náð á árinu 1975.“ Fjögur mál voru lögð fram í sameinuðu þingi FJÖGUR mál voru lögð fram á fundi sameinaðs þings í gær: Fjárlög fyrir árið 1975, sem sérstök frétt er um í blaðinu I dag og gerð verður nánari grein fyrir næstu daga; Tillaga til þingsálykt- unar frá Helga F. Seljan og Karvel Pálmasyni um þyrlukaup vegna landhelgisgæzlu og slysavarna; Stjórnarfrumvarp um breytingu á lögum um iánasjóð sveitarfélaga og stjórnarfrum- varp til laga um ráðstafanir I sjávarútvegi og ráðstöfun gengis- hagnaðar. Nánari grein verður gerð fyrir stjórnarfrumvörpunum f blaðinu á morgun. € ‘**é***404. Troðfull búð af nýjum vörum! Pils (hnésídd, midi og maxi) — Toppar — Mussur — Blússur — Peysur — Flauelsbuxur — Gaberdinebuxur — og ótal m.fl. Phúsið GRETTISGÖTU 46 - SÍMI: 2 55 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.