Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 01.11.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. NÖVEMBER 1974 5 Nefndin sem undirbjó og skipulagði sölu „lykilsins“. Frá vinstri: Jón Ólafsson kjörforseti Kiwanisklúbbsins Heklu, Axel H. Bender varafor- seti Heklu, Eyjólfur Sigurðsson umdæmisstjóri og Asgeir B. Guðlaugs- son kjördæmisstjóri. Söfnuðu 4 milljónum kr. fyrir geðsjúka Aðalfundur Varðar: Ragnar Júlíusson endurkjörinn formaður Þrátt fyrir óhagstætt veður s.l. laugardag, er Kiwanismenn og aðstoðarfólk þeirra seldu „lykil- inn“ til styrktar geðsjúkum, varð árangur mjög góður. Endanlegar tölur um fjölda seldra lykla liggja ekki fyrir ennþá, en ljóst er að um 40 þúsund „lyklar“ hafa selzt. Fast að 1200 manns, Kiwanis- félagar, eiginkonur þeirra og fjöldi sjálfboðaliða vann að söl- unni um landið. Kiwanishreyfinigin vill hér með þakka landsmönnum við- tökurnar, jafnframt því sem Andrésar andar hátíð í Háskólabíói ÞAÐ HEFUR verið árlegur siður hjá Lionsklúbbnum Þór að efna til barnahátíðar í Háskólabfói, en fyrstu hátíðirnar í ár verða laug- ardaginn 2. nóvember og sunnu- daginn 3. nóvember n.k. Margt er gert börnunum til skemmtunar á þessum hátíðum, en að þessu sinni er sú nýlunda tekin upp að veita stóran vinn- ingferð fyrir fjóra til Mallorka, sem nefnt hefur verið fjölskyldu- boð. Aðgöngumiðar eru númer- aðir, eins og oft áður, og dregið verður úr númerum í lok síð ustu hátiðarinnar og vinningur tilkynntur síðan í fjölmiðlum. Hefur ekki áður verið svona stór vinningur í boði á barnahátíðum. Ágóðinn af þessum hátíðum rennur eins og fyrr til barna- heimilisins að Tjaldanesi, en Lionsklúbburinn Þór hefur aflað fjár til reksturs og uppbyggingar á barnaheimilinu frá upphafi. Kynnir á barnahátið Þórs verð- ur Guðrún Ásmundsdóttir, leik- kona. Dagskrá í stórum dráttum verður á þá leið, að fyrst leikur popphljómsveitin Dögg, en siðan verða afhentar afmælisgjafir, eins og oft áður. Stór liður í dag- skránni er teiknimyndasýning, þar sem fram koma margar fræg- ar persónur úr heimi skop- myndanna, svo sem eins og Andrés önd og félagar. 1 lok hátiðarinnar leikur skólahljóm- sveit Kópavogs undir stjórn Björns Guðjónssonar, en hljóm- sveitin hefur um árabil komið fram á þessum hátíðum. Um leið og hverri skemmtun lýkur fá öll börnin afhenta gjafa- pakka frá Andrési önd og félögum. Forsala aðgöngumiða verður i Háskólabiói frá kl. 4 e.h. á föstu- dag,frá kl. kl. 1 e.h. á laugardag og frá kl. 11 f.h. á sunnudag. Skemmtanirnar verða kl. 3 e.h. á laugardag og kl. 1.15 e.h. á sunnudag. (Frá Lionsklúbbnum Þór). minnt er á, að þeir, sem ekki náðist til, en vildu láta eitthvað af hendi rakna, geta greitt framlög sín inn á gíróreikning 32331. Allir bankar, sparisjóðir og pósthús taka á móti greiðslum. AÐALFUNDUR Varðar, sem er heildarsamtök 11 hverfafélaga sjálfstæðisfólks f Reykjavík, var haldinn i fyrrakvöld f Átthagasal Hótel Sögu. Ragnar Júlfusson, formaður félagsins, setti fundinn. Kvaddi hann til fundarstjóra Svein Björnsson og fundarritara Öskar Friðriksson. Formaður gerói síðan grein fyrir starfsemi Varðar á sl. starfs- ári, sem var margþætt og þrótt- mikil, enda tvennar kosningar á starfsárinu. Hilmar Guðlaugsson gerði grein fyrir utanferðum á vegum samtakanna, en 12 ferðir voru farnar til Danmerkur og 2 til Spánar, og var þátttaka mikil og almenn ánægja með þennan þátt starfseminnar. Þóroddur Th. Sigurðsson, gjaldkeri samtak- anna, gerði grein fyrir reikn- ingum og fjárhag þeirra. Að loknum skýrslum stjórnar var gengið til stjórnarkjörs. For- maður samtakanna var endur- kjörinn samhljóða Ragnar Július- son, skólastjóri. önnur í stjórn eru: Björgólfur Guðmundsson, Hilmar Guðlaugsson, Guðmundur Óskarsson, Helga Gröndal, Brynj- ólfur Bjarnason og Óttar Októs- son. — Varastjórn skipa: Kristín Sjöfn Helgadóttir, Gunnlaugur Claessen og Konráð Adólfsson. Auk framanritaðra skipa hverfa- samtökin 11 sinn fulltrúa hvert í stjórn Varðar og eru þau um þessar mundir flest að halda sína aðalfundi. Endurskoðendur voru kjörnir Ottó J. Ólafsson og Hannés Þ. Sigurðsson. Að loknum venjulegum aðal- fundarstörfum flutti Matthias Bjarnason, heilbrigðis- og sjávar- útvegsráðherra, fróðlega yfirlits- ræðu um málefni þau, er undir ráðuneyti hans heyra, og er hún birt i heild hér í blaðinu. Miklar og fjörugar umræður urðu um erindi ráðherra. Til máls tóku: Pétur Guðjónsson, Þór Vilhjálms- son, Magnús Sigurjónsson, Loftur Ragnar Júlfusson, skólastjóri, formaður Varðar. Júlíusson, Guðjón Hansson og Guðmundur Guðmundsson. Því miður leyfir rúm blaðsins ekki að efnisþráður umræðnanna sé rakinn, en þær voru hinar fróð- legustu, ekki sízt ummæli Péturs Guðjónssonar og Þórs Vilhjálms- sonar. Fundurinn var f jölsóttur. n mmm m sendingar af nýjum stórglæsilegum vörum. Nýju herrafatasniöin „GATSBY". „GATSBY PEAK" og „SUPPER LINE" í nýjum efnum. Nýju buxnasniöin „EASY FIT" og „HIGH RISE" í 10 litum í terylene og ull og 6 litum í riffluöu flaueli. Jafnframt 'L 1 □ FÍNFLAUELSJAKKAR [ ] STÓRAR KVENJAKKA PEYSUR □ RÚLLUKRAGAPEYSUR HERRA Æt V <| SKYRTUR H HERRAPEYSUR [1 KJOLAR □ DOMU PEYSUR & BLÚSSUR '~J SKÓSENDING ] SNYRTI- | VÖRUSENDING O.M.FL. 1 ^ : . ðirililifc' i OPIÐ A MORGUN, LAUGARDAG, TIL KL. 12. |HöT0wn:bIaíiíí> ITIhRGFnLDRR mÖCULEIKR VflRR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.